Morgunblaðið - 24.01.2002, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 24.01.2002, Blaðsíða 46
MINNINGAR 46 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Marteinn JónÁrnason fæddist í Keflavík 12.12. 1922. Hann lést 14. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Þorsteins- dóttir, f. 1896, d. 1968, húsfreyja, og Árni Vigfús Jónsson, f. 1899, d. 1966, mat- sveinn. Systkini hans voru Geir, Kristín og Elías, öll látin. Marteinn ólst upp hjá ömmu sinni og afa í Keflavík frá fimm ára aldri, þeim Margréti Jónsdóttur húsfreyju og Þor- steini Þorsteinssyni kaupmanni á Hafnargötu 18. Hinn 24. desember1944 kvænt- ist Marteinn Elínu Ólafsdóttur, f. 13.9. 1922. Foreldrar hennar voru Ólafur Bjarnason, f. 18.9. 1894, d. 8.8. 1975, og Severína Högnadóttir, f. 11.11. 1895, d. 29.9. 1984. Börn Marteins og El- ínar eru: 1) Ólafur, f. 11.3. 1944, kvæntur Margréti Jónu Guðjóns- dóttur, dætur þeirra eru a) Mar- grét, f. 1967, gift Jamil Jamchi, þeirra börn eru Nadia Margrét, f. 1994, og Daníel Ólafur, f. 1997. b) Elín, f. 1969. 2) Anna Kristín, f. 18.8. 1949, gift Goða Sveinssyni, börn þeirra eru Styrmir, f.1981, og Marta, f. 1984. Dóttir Önnu og uppeldisdóttir Goða er Guðrún Rína Þorsteinsdóttir, f. 1973, maki Ólafur B. Einarsson. 3) Þor- steinn, f. 19.2. 1953, kvæntur Maríönnu Einarsdóttur, synir þeirra eru Atli, f. 1975, Þórir, f. 1979, og Högni, f. 1984. 4) Bryn- dís, f. 5.7. 1967, maki Indriði Guðmundsson, dótt- ir þeirra er Íris, f. 1994. Marteinn lauk hefðbundnu skóla- skyldunámi og út- skrifaðist frá Versl- unarskóla Íslands árið 1942. Hann starfaði við verslun- ar- og skrifstofu- störf í Keflavík á ár- unum 1942-1965, má þar nefna Versl- unina Vatnsnes, Verslun Þorsteins Þorsteinssonar, Dráttarbraut Keflavíkur, Amer- ican Express-bankann á Kefla- víkurflugvelli, Landshöfn Kefla- vík-Njarðvík. Einnig sinnti hann bókhalds- og framtalsaðstoð samhliða daglegum störfum. Ár- ið 1965 keypti hann Bókabúð Keflavíkur og rak ásamt eigin- konu sinni til ársins 1989. Sat á því tímabili í stjórn Innkaupa- sambands bóksala. Marteinn sat í bæjarstjórn Keflavíkur 1958-1962 og gegndi fjölda trúnaðar- og nefndarstarfa fyrir bæjarfélagið. Hann sat í stjórn Sparisjóðsins í Keflavík, þar af sem formaður stjórnar í sjö ár. Marteinn tók þátt í marg- víslegum félagsstörfum. Hann var einn af stofnendum Skátafé- lagsins Heiðabúa, Stangveiði- félags Keflavíkur, Lions-klúbbs Keflavíkur, Oddfellow-stúku í Keflavík. Marteinn var virkur fé- lagi í Sjálfstæðisfélagi Keflavík- ur. Útför Marteins fór fram frá Keflavíkurkirkju 22. janúar í kyrrþey að ósk hins látna. Mikil eftirsjá og tregi fyllti hug minn þegar ég frétti fráfall Mar- teins J. Árnasonar enda farinn góð- ur vinur minn til margra ára. Við Marteinn þekktumst í gegnum árin, enda áttu menn oft leið til þessa þægilega kaupmanns í bókabúðinni. Viðskipti og gott spjall fór líka vel saman. Marteinn var hress viðmæl- andi og sanngirni, lipurð og þjón- ustulund við verslunarreksturinn færðu honum marga viðskiptavini. Marteinn var áratugum saman einn af ábyrgðarmönnum Sparisjóðsins í Keflavík og var hann kjörinn í stjórn hans og síðar formaður stjórnar um skeið. Í ábyrgðar- mannahópnum og í stjórn spari- sjóðsins lá okkar samstarfsleið sam- an. Samstarfið stóð um nokkurra ára skeið eða þar til Marteini fannst stjórnarseta sín orðin nógu löng. Þá var heldur ekkert verið að hika við, heldur hætt. Að fá að starfa með Marteini þessi ár var ákaflega lær- dómsríkt. Hann var gætinn en þó áræðinn. Að efla sparisjóðinn var takmark hans og að því vann hann af festu. Tölvuöldin var að hefjast og af henni var Marteinn ekki hrif- inn. Ekki fyrir það að hann gerði sér ekki grein fyrir framförunum heldur vegna þess að hann áleit að með því misstu menn hið eðlilega samskiptasamband sem skiptir slíka stofnun máli. Allt yrði of vélrænt. Undir hans forystu var árið 1981 hafist handa við byggingu nýs húss í Tjarnargötu 12. Ég minnist um- ræðna um húsið, stærð þess og gerð. Eitt vorum við og fleiri þó sammála um að ekki hefði annar að- ili bolmagn til þess að byggja hús sem hæfði hjarta Keflavíkurbæjar. Ég hygg að flest getum við sam- mælst um það að vel hafi til tekist. Ég hlýt einnig að minnast á sam- veru okkar Marteins við laxveiðar árum saman. Við renndum í margar góðar árnar og einnig eru ferðirnar í Svarthöfða með honum og Ellu, Hædý og Tomma okkur Eddu afar minnisstæðar sakir einstaks fé- lagsskapar. Sömu sögu er að segja af öðrum samverustundum. Dvöl með Marteini við veiðar var mér oft lærdómsrík. Ég, sem var allnokkuð yngri, teigaði fróðleik og rökræður þessa reynda veiðimanns. Hæv- erska hans, tillitssemi, léttleikinn og tilsögnin skildu eftir nokkuð sem forréttindi voru að fá að þiggja. Marteinn var lunkinn veiðimaður og veiddi gjarnan á fluguna en gaman var einnig að fylgjast með veiði hans á devoninn, á honum hafði hann gott lag. Já, það eru mörg minningabrotin sem koma nú upp í hugann. Öll eru þau ánægjuleg. Það voru vissulega forréttindi að fá að umgangast og starfa með Marteini J. Árnasyni. Við Edda þökkum fyrir og færum Ellu og fjölskyldunni innilegar sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning heiðurs- manns. Finnbogi Björnsson. Hinn 15. september árið 1937 stofnuðu átta ungmenni í Keflavík Skátafélagið Heiðabúa. Af þeim eru nú sex „farnir heim“, eins og skátar nefna það, er félagar þeirra hverfa af sjónarsviðinu, og nota þá táknið, sem er hér fyrir ofan. Það kom fljótt í ljós, að Marteinn Jón Árnason, sem á þeim árum var ætíð kallaður Matti, var vel til for- ystu fallinn. Hann vann sig því fljótt upp í að verða aðstoðarsveitarfor- ingi og síðar sveitarforingi, eftir að kvennasveit var stofnuð innan fé- lagsins 2. júlí 1943. Að lokum varð hann svo deildarforingi um allnokk- urt skeið. Á skátaárum sínum sótti Matti skátamót, bæði innanlands og utan. Hann var til dæmis einn fimmtán Heiðabúa, sem sóttu Friðar Jamb- oree í Frakklandi 1947 og einn af fimm Heiðabúum á Jamboree í Austurríki 1951. En lífið hafði sinn gang, og Matti staðfesti ráð sitt, eignaðist góða konu og kom með henni upp mynd- arfjölskyldu, sem einnig tengdist umtalsvert skátastarfinu. Enda þótt brauðstritið og barna- uppeldið tæki við, gaf Matti skáta- störfin alls ekki upp á bátinn. Er hann hætti síðar venjubundnum skátastörfum, var hann um langt skeið endurskoðandi félagsins. Oft var einnig leitað aðstoðar hans, eftir að hann eignaðist Bókabúð Kefla- víkur, og fóru skátarnir þaðan aldr- ei bónleiðir til búðar. Við þökkum Matta framlag hans til skátastarfs í Keflavík og vottum ástvinum hans innilegustu samúð okkar. Í minningu hans og allra þeirra stofnenda Skátafélagsins Heiðabúa, sem „farnir eru heim“, þykir okkur við hæfi að birta ljóðið Skátahvöt, sem Kristinn Reyr Pétursson, stofnandi Bókabúðar Keflavíkur, færði félaginu á sex ára afmæli þess: Hæ, skáti, vertu viðbúinn, því vorið kallar á þig, og sólin hugsar hlýtt til þín og hlakkar til að sjá þig með hafurteski, táp og fjör og trú í veganesti á gönguför um frjálsa jörð, sem fagnar rjóðum gesti. Er aftanskinið skreytir tind við ský og hverfur sýnum, hæ, skáti, vak með vísnasöng hjá varðeldinum þínum. Og lækur annast undirleik þíns óðs um glaðar stundir, en grónir hjallar hlýða á, og hamrar taka undir. Og sólin skín, og skáti brýzt í skriðum upp í móti og eygir stöðugt stefnumið, þótt steinar ofan þjóti. Í dalsins lognþey ljóma vötn með ljósblik fjallamynda, en, skáti, vertu viðbúinn, því vindar blása’ um tinda. Skátafélagið Heiðabúar. Við sem komin erum á efri ár er- um sífellt minnt á alvöru lífsins, vin- um og kunningjum fækkar og jafn- aldrar, sem maður í andvaraleysi hélt að yrðu samferðamenn enn um sinn og sem við ættum eftir að hitta margsinnis á næstu mánuðum og árum eru fyrr en varir horfnir yfir móðuna miklu. Einn þeirra er Marteinn Árnason sem við hjónin kynntumst fyrir aldrarfjórðungi síðan þegar fjöl- skyldurnar tengdust. Eftir það voru þau Marteinn og Elín fastir punktar í tilverunni. MARTEINN JÓN ÁRNASON ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minn- ingargreina   ) '( ' 1- .       7 +  ,-   +     #     "   /  ,44'  !! ( ! - # ( # . ( !     !#!#  ( )     ' 4'68  & 3G  .    63   +     ,/   9 "      &&  !   &"   .   # 5             C *48 '   1       '    +    *        -      "  ,0''  $% C  ! .!# $%!! # $%! $ ! $%! ( )    ' 9-C+- ?:+0/B  !#!=?:H     "  ,,   9 "       :  .;<   "   /   ,04' &"  +0#30I= 3J ! 30 =    >  > +   +    " !    !  " &  K'/2'+* ++ !!  G  . *      $ " *  )  . &     ! ?8 63  + ( !!20 !!#  (20 !!! - !0 # 20 !!# 4!! !  20 !!! & * ! # 320 !!! C !  /% # 91   20 !!! 6  - .! # ! (20 !!! 20 !! 8 2!#    $ ! $%! !0!!  1!  5  !    !     2'6 )* ++ -  EL 4D     63  +   ,   @ "    &&!   %" >  >  ! !!  #  $ 8! ! *%!  # -  ! /!#.  # - ! - 3 41!! - !!  !  !!0 #  # -!!  !   2!#    # 2!' ! 2!/%!  !  3 !#  "#   $ ! $%! $ ! $ ! $%!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.