Morgunblaðið - 13.03.2002, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 13.03.2002, Blaðsíða 51
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 51 H ön nu n & u m b ro t eh f. © 2 00 3 – IT M 90 05 Marstilboð e ð a m e ð a n b i r g ð i r e n d a s t Hreinlætistæki WC með vandaðri setu, festingum, 60/40 skolun. Stútur í vegg eða gólf. Verð kr. 16.850,- stgr. Baðkör, 160/170 x 70. Verð frá kr. 12.450,- stgr. Handlaugar, Margar stærðir og gerðir. Verð frá kr. 3.990,- stgr. Blöndunartæki f. handlaugar, Verð frá kr. 3.950,- stgr. Blöndunartæki f. baðkör, með sturtusetti. Verð frá kr. 6.340,- stgr. Hitastýrð blöndunartæki f. bað eða sturtu. Verð frá kr. 10.800,- stgr. OPIÐ: Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14 Við Fellsmúla Sími 588 7332 STEINÞÓR Jónsson, bakari, fer hamförum í að útúða menntastefnu Stefáns Jóns Hafstein án rökstuðn- ings í Morgunblaðinu 15. febrúar síðastliðinn. Steinþór vísar til orða Stefáns Jóns Hafstein á heimasíðu hans: „Við erum hvorki að eyða miklu í menntamál né fá mikið út úr því sem við þó verjum til þeirra. Það er því órökrétt að heimta bara aukin framlög, við þurfum að fá betri skóla, breytta stefnu sem knýr á um meiri metnað. Að fjárfesta í menntun þýðir ekki bara meiri pen- inga, heldur betri nýtingu. Mark- miðið er að skila Íslandi í fremstu röð ríkja sem bjóða vinnuafl á heimsmarkaði, og þar með hámarka þann arð sem hafa má.“ Í máli Steinþórs kemur fram van- þóknun á þeirri hugmyndafræði Stefáns að fjárfesta í menntun barna okkar til að takast á við sí- breytileika tækniframfara í heim- inum. Ef við fylgjum hugmynda- fræði Steinþórs verður stöðnun í þjóðfélaginu og komandi kynslóðir verða undir í hörðum heimi við- skipta. Íslendingar geta ekki lifað af því einu saman að draga fisk úr sjó, fóðra skepnur og baka brauð, nei við verðum að vinna okkar heimavinnu á öllum iðnaðar- og tæknisviðum. Okkur er skylt að auka menntun til að gera börnum okkar kleift að vinna hjá hátækni- fyrirtækjum á borð við DeCode, Össur, Marel, Landspítalanum, Delta, Landsvirkjun o.s.fr.v. Við gleðjumst að sjálfsögðu yfir þeirri fyrirhyggju að það var fjárfest í menntun Kára Stefánssonar, for- stjóra DeCode og annarra mátt- arstólpa þessa þjóðfélags. Vel menntaðir sérfræðingar gera t.d. Orkuveitu Reykjavíkur kleift að fjárfesta til framtíðar á Nesjavöllum og við uppbygginu á nýju orkuveri á Hellisheiði fyrir nokkra tugi millj- arða kr. Að sjálfsögðu eru þetta stórar tölur en við skulum gá að því að 100MW virkjun skilar 300.000 kr. í „kassann“ á hverri klukkustund sé miðað við 3 kr/kWh. og á ársgrund- velli eru tekjur Orkuveitunnar því 2,5 milljarðar króna fyrir 100MW virkjun sem er í gangi 350 daga á ári. Markmið Stefáns eru háleit og rökrétt fyrir komandi kynslóðir og lýsi ég hér með yfir stuðningi við markvissa stefnu Stefáns Jóns Haf- stein í menntamálum. J. RÚNAR MAGNÚSSON, orkuverkfræðingur. Markviss stefna í menntamálum Frá J. Rúnari Magnússyni: ÉG HÆTTI snemma í vinnunni sl. mánudag og fór heim í sturtu og burstaði skóna mína. Ég var í góðum fíling og hlakkaði mikið til samkom- unnar sem ég var að fara á. Rétt fyr- ir fjögur fór ég svo niður í Smáralind með pylsur, blöðrur og kók. Ég mætti þangað um fjögur og var ánægður með tímasetn- inguna hjá mér, ég hafði klukku- tíma til að undir- búa mig og æfa hetjulögin áður en athöfnin byrjaði. Eitthvað fannst mér nú fáir mættir en það var svo sem skiljanlegt þar sem enn var klukkutími í athöfnina miklu. Svo leið og ekki fjölgaði gestunum neitt í Vetrargarðinum, ég sat þar einn með pylsur, blöðrur og kók. „Hvar er lúðrasveitin?“ hugsaði ég, „hvar er Bjössi B. með ávísunina, ætli þetta eigi að vera úti á flugvelli, er ekki örugglega mánudagur?“ Svo sló klukkan fimm og ekki sá ég neitt sem benti til þess að „við“ værum að fara að taka á móti stráknum „okkar“. Ég beið áfram með pylsur, blöðrur og kók sem stefndi brátt í það að verða ömmukók. „Líklega eru Flugleiðir bara seinir eins og venjulega og það hefur gleymst að láta mig vita,“ hugsaði ég og sötraði á ömmukókinu og blés í einu blöðruna sem ekki var sprungin af spenningi. Um klukkan sex rölti ég yfir á PizzaHut og spurði eina afgreiðslu- stúlkuna hvort hún vissi hvenær hetjan „okkar“ kæmi. „Hvaða hetja?“ spurði hún til baka og spurði svo hvort ég ætlaði að panta eitthvað því ég mætti ekki borða pylsur inni á staðnum. Klukkan 19.12 sprakk síð- asta blaðran, pylsurnar mínar voru búnar og það litla sem eftir var af kóladrykknum var orðið að algjöru langömmukóki. Þá hugsaði ég: „Tja, best bara að drífa sig heim og horfa á íþróttafréttirnar á Stöð 2, þeir hljóta að sýna frá móttökuathöfninni hvar sem hún hefur nú verið, líklega hefur Smáralindin ekki verið nógu stór fyrir lúðrasveitina. Kannski hefur Bjössi B. bara byggt nýju frjáls- íþróttahöllina í einum snargrænum og tekið á móti stráknum okkar þar.“ Ekki var nú sýnt frá athöfninni í íþróttafréttunum á Stöð 2 en þar var sagt frá því að á morgun yrði alveg ægilega spennandi þáttur (fyrsti af 3.333 þáttum) um HM. Einnig var sýnt frá einhverjum tannlausum áhugamönnum spila knattspyrnu á Englandi. Eitthvað var minnst á það að þeir sem skulduðu mest á barnum á Grand Rokk væru að vinna eitt- hvað. Svo var sagt frá þeim mikla heiðri sem íslenska landsliðinu í fót- bolta hefði hlotnast að vera tólfta þjóðin í röðinni til að vera boðið til Brasilíu með bbb-liðið sitt. Engin hinna þjóðanna nennti þessu rugli. Síðan voru sýndar myndir frá fær- eyska kurlhokkíinu á selum og þá rann upp fyrir mér ljós – það var lík- lega engin athöfn fyrir þennan frá- bæra íþróttamann. Ástæðan gæti verið sú að sumir íþróttafréttamenn eru búnir að afskrifa hann fyrir löngu vegna þess að hann varð ekki heimsmeistari hérna um árið. Ríkissjónvarpið gerði vel að sýna frá þessu móti þótt ekki hafi þulirnir nú öskrað yfir sig af kátínu eins og þegar landsliðið í handbolta varð í sama sæti á „sama“ móti fyrir skömmu. Á Stöð 2 fékk Jón Arnar hinsvegar undarleg „fagnaðarlæti“ frá íþróttafréttamanni á laugardag- inn. Sá sagði að „Jón Arnar hefði orðið að sætta sig við 4. sætið“. Já, takið eftir, hann varð að sætta sig við 4. sætið á eftir heimsmethafan- um, ólympíumeistaranum og Evr- ópumeistaranum. Maður sem er bú- inn að eiga í erfiðum meiðslum og vinnur fulla vinnu varð að sætta sig við það að verða á eftir þessum vesalingum, þvílík skömm. Þetta er nú kannski ástæðan fyrir því að af- greiðslustúlkan á PizzaHut þekkti ekki hetjuna okkar því að fjölmiðlar voru ekki búnir að segja henni að við ættum hetju, bara einhvern vesaling sem tapaði fyrir heimsmeistaranum í einni erfiðustu íþróttagrein í heimi. Kannski var hann ekki hetjan „okk- ar“ vegna þess að honum tókst ekki að setja íþróttafélagið sitt á hausinn eins og alvöru hetjunum „okkar“. Með þessu er ég ekki að dæma alla íþróttafréttamenn enda eru þeir margir góðir (líka á Stöð 2) og ég er ekki heldur að gera lítið úr frábær- um árangri handboltalandsliðsins. Það má samt segja að handboltaliðið hafið orðið að „sætta sig“ við 4. sæti, enda var það búið að tryggja sér þetta sæti snemma í keppninni, en tapaði svo restinni og varð því að „sætta sig“ við 4. sæti. Jón Arnar „náði“ hinsvegar 4. sæti enda stefndi allt í það að hann kæmist ekki á mót- ið sökum þess að árangur hans fyrir það var ekki fullnægjandi. Kannski var það gott að lítið var gert úr árangri Jóns því það léttir „pressunni“ af honum sem virðist oft fylgja íslenskum íþróttamönnum. Oft má segja að þegar pressan er mest þá standa þeir sig verst og svo öfugt. Það er umhugsunarefni fyrir íþróttamennina og fjölmiðlana líka. Fyrir hönd íþróttaáhugamanna óska ég Jóni Arnari til hamingju með frábæran árangur. HÁKON HRAFN SIGURÐSSON, doktorsnemi í lyfjafræði og íþróttaáhugamaður. „Hvar voruð þið?“ Frá Hákoni Hrafni Sigurðssyni: Hákon Hrafn Sigurðsson SÚ VAR tíð að Davíð Oddsson var borgarstjóri í Reykjavík. Þá gerðist ræstingarkona á borgarstjórnar- skrifstofunum svo kræf að nota einkasíma borgarstjórans til eigin nota þegar hún var að skúra skrif- stofuna hans. Borgarstjórinn rak skúringar- konuna snimmendis þegar upp komst um misnotkun hennar. Tölu- verður hvellur varð út af málinu og þótti ýmsum sem þarna færi borg- arstjórinn fram með fullmiklum lát- um; áminning hefði átt að duga. En Davíð varð ekki haggað; konan hafði brugðist trúnaði og réttlætiskennd borgarstjórans var stórlega misboð- ið, enda mun símtalið hafa kostað einar 900 krónur. Nú er komið upp um stórfellt mis- ferli hjá forstöðumanni Þjóðmenn- ingarhúss; hann hefur látið greiða sér a.m.k. eina utanlandsferð sem ekki var farin, hann hefur skilað ökubókum sem eru augljóslega fals- aðar og látið greiða sér fyrir svo mik- inn akstur að erfitt er að sjá að hann hafi haft tíma til að vera á skrifstofu sinni vegna bílferða. Og fleira mætti upp telja. Nú er borgarstjórinn fyrrverandi orðinn forsætisráðherra og Þjóð- menningarhúsið heyrir beint undir hann. Og skyldi ekki gamla réttlæt- iskenndin frá borgarstjóraárunum hafa tekið sig upp? Skyldi nú ekki hinn brotlegi embættismaður hafa fengið „gúmoren“ og brottrekstur fyrir misferli í starfi, rétt eins og skúringarkonan forðum? Enda um nokkrar milljónir að ræða. Eða verð- ur látið nægja að slá á puttana á gömlum vini og skjólstæðingi flokks- ins; dusta þetta óþægilega rykkorn af hvítflibbanum svo lítið beri á? Það skyldi þó aldrei vera. Landsmenn ættu að fylgjast vel með gangi mála. HAUKUR MÁR HARALDSSON, framhaldsskólakennari. Ræstingarkonan og forstöðumaðurinn Frá Hauki Má Haraldssyni: einn lítri Málið er 7-up í nýjum umbúðum 1L skiptir máli Rétta stærðin ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O LG 1 70 81 03 /2 00 2 MEISTARINN.IS Frá Miðjarðarhafinu í apótekið þitt „Pharmaceutical - Grade“ ólífuolía í gelhylkjum með vítamínum, jurtum og/eða steinefnum. Heilsuleikur Þú gætir unnið ferð til Spánar! Aðeins í Plúsapótekunum www.plusapotek.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.