Morgunblaðið - 26.03.2002, Blaðsíða 1
71. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 26. MARS 2002
STÚLKUR í grunnskóla í Kabúl
með nýjar námsbækur sínar í
gær. Talibanar komu að mestu í
veg fyrir að stúlkur fengju að
sækja skóla. Um tvær milljónir
grunnskólabarna hafa að und-
anförnu hafið aftur nám í Afgan-
istan og ríkir fögnuður meðal
íbúanna vegna umskiptanna.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna,
UNICEF, er nú að dreifa um 10
milljónum námsbóka í lestri,
skrift og stærðfræði á helsta
samskiptamáli Afgana, dari, og
voru bækurnar búnar til við
Nebraska-háskóla í Bandaríkj-
unum. Einnig hafa bandarískir
hermenn að sögn BBC byrjað að
endurreisa stúlknaskóla í borg-
inni Mazar-e-Sharif í norðurhluta
landsins. Húsið var síðasta vígi
erlendra stuðningsmanna talib-
ana í borginni í nóvember sl. og
skemmdist mikið í loftárásum
Bandaríkjamanna. Reuters
Fyrsti
skóla-
dagurinn
í Kabúl
UNGT fólk notar þumalfingur-
inn mikið þegar það sendir
smáskilaboð (SMS) eða fæst við
ýmsa tölvuleiki og þumallinn er
að taka yfir hlutverk vísifing-
ursins, segir í breska blaðinu
The Observer. Blaðið hefur eft-
ir vísindamanni við Warwick-
háskóla, Sadie Plant, að um
stökkbreytingu sé að ræða.
Vísifingurinn hefur lengi
verið mikilvægastur allra
fingra en Plant segir að unga
fólkið sé með sterkari og fjöl-
hæfari þumalfingur en áður
gerðist, einfaldlega vegna þess
að það noti hann meira. Hún
gerði könnun á fingranotkun
ungmenna í níu borgum um
allan heim, þ.á m. London,
Chicago, Peking og Tókýó. Yf-
irleitt þarf nokkrar kynslóðir
áður en líkamlegar stökkbreyt-
ingar sigra en Plant segir að
gemsar séu tæki sem unga fólk-
ið noti á hverjum degi og þá
taki breytingin skemmri tíma.
Einkum hefur breytingin
fest sig í sessi í Japan. Ungir
Japanir eru stoltir af færni
sinni með þumalinn og kalla sig
sumir „oya yubi sedai“ sem
merkir þumalputtakynslóðin.
Sumir eru hættir að nota vísi-
fingurinn til að benda eða
hringja dyrabjöllu, þeir nota
þumalfingurinn.
Þumal-
puttakyn-
slóðin
ÍSLAMSKUR áfrýjunarréttur í
norðurhluta Nígeríu sýknaði í gær
35 ára konu, Safiya Husaini, sem
dæmd hafði verið til dauða fyrir hór-
dóm. Husaini, sem hér sést gefa
dótturinni Adömu brjóst, hafði verið
dæmd til dauða fyrir að fæða barn
utan hjónabands. Íslamskur undir-
réttur úrskurðaði í október að grýta
bæri Husaini til bana fyrir hórdóm
en áfrýjunarrétturinn ógilti dauða-
dóminn á þeirri forsendu að mál
hennar hefði ekki fengið rétta með-
ferð. „Dómurum ber skylda til að út-
skýra brotið til hlítar fyrir sakborn-
ingnum en það var ekki gert,“ sagði
dómari áfrýjunardómstólsins.
Skömmu eftir dómsuppkvaðning-
una í máli Husaini var skýrt frá því
að íslamskur dómstóll í Katsina-ríki
hefði úrskurðað á föstudag að grýta
ætti fráskilda konu, Amina Lawal, til
bana fyrir hórdóm.
Verður
ekki grýtt
Reuters
KÍNVERSKA lögreglan var með
mikinn viðbúnað í borginni Daqing í
norðausturhluta Kína í gær þegar
verkamenn, sem misst hafa atvinn-
una, efndu til mótmæla. Verkamenn
í nálægri iðnaðarborg, Liaoyang,
héldu einnig áfram mótmælum sem
hófust fyrr í mánuðinum.
Um 500 verkamenn settust niður
við höfuðstöðvar olíufélags í Daqing
og neituðu að fara þaðan. Um 900
lögreglumenn, þeirra á meðal 600
sérsveitarmenn, voru sendir á stað-
inn en ekki kom til átaka.
Mótmælin í Daqing hófust 1. mars
en hlé varð á þeim í vikunni sem leið
þegar lögreglan lokaði lóð olíufélags-
ins eftir að mótmælendur voru sak-
aðir um að hafa misþyrmt bílstjóra
sem mun hafa ekið á nokkra þeirra.
Mótmælin hófust vegna áforma
stjórnvalda um að hækka greiðslur
verkamanna, sem sagt hefur verið
upp störfum og þiggja bætur, í eft-
irlaunasjóði. Fregnir hermdu í vik-
unni sem leið að stjórnvöld hefðu
hætt við þessi áform en mótmælend-
urnir sögðu í gær að afstaða stjórn-
arinnar væri of óljós og mótmælun-
um yrði haldið áfram.
Um 50.000 manns tóku þátt í að-
gerðunum þegar þau náðu hámarki,
að sögn mótmælendanna. Mikil ólga
hefur einnig verið meðal verka-
manna í Liaoyang og fjórir leiðtogar
þeirra hafa verið handteknir. Dóttir
eins þeirra sagði í gær að þeir hefðu
hafið mótmælasvelti.
Verkamenn
mótmæla í Kína
Daqing. AFP.
RÁÐHERRAR utanríkismála í
arabaríkjunum „vísa á bug öllum
árásum eða hótunum um árásir gegn
nokkru arabaríki“, að sögn Mahm-
ouds Hammouds, utanríkisráðherra
Líbanons, í gær. Ráðherrarnir hittust
í gær í Beirút til að undirbúa leiðtoga-
fund arabaríkja þar á morgun. Enn er
óvíst hvort Yasser Arafat Palestínu-
leiðtogi fær að sækja fundinn vegna
ferðabanns Ísraela en Bandaríkja-
stjórn hvetur þá til að leyfa honum að
fara. Sögðu Ísraelar að ákvörðun í
málinu yrði tekin í dag.
Bandarískir ráðamenn hafa rætt
um möguleikann á að ráðast á Írak og
velta úr sessi stjórn Saddams Huss-
eins. Hann neitar að leyfa Sameinuðu
þjóðunum að framfylgja ákvæðum
vopnahléssamninga frá 1991 um al-
þjóðlegt eftirlit með að Írak ráði ekki
yfir gereyðingarvopnum. Blaðið Babil
í Írak, sem er í eigu sonar Saddams,
Uday Husseins, varaði menn við því í
gær að taka of mikið mark á stuðningi
sumra arabaríkja við Íraka. „Ljóst er
að sumir segjast opinberlega vera
með okkur en í reynd hafa þeir aðra
skoðun,“ sagði í leiðara blaðsins.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
hvatti í gær arabaríkin til að sam-
þykkja friðartillögur Sádi-Araba.
Þær ganga út á að Ísraelar skili her-
teknu svæðunum en í staðinn viður-
kenni arabaríki Ísrael. „Forsetinn tel-
ur að tími sé kominn til þess að þjóðir
araba á svæðinu grípi tækifærið og
bæti andrúmsloftið til að friður nái
fótfestu,“ sagði Ari Fleischer, tals-
maður forsetans. „Forsetinn telur að
[Ariel] Sharon og ríkisstjórn Ísraels
ætti að velta því vandlega fyrir sér að
leyfa Yasser Arafat að mæta.“ Colin
Powell utanríkisráðherra bar Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels, boð
þessa efnis frá Bush í gær í símtali.
Powell ræddi einnig í rúman hálftíma
við Arafat, að sögn ráðgjafa Palest-
ínuleiðtogans.
Talið er að það sem helst geti grafið
undan tilraunum Sádi-Araba séu
kröfur Arafats um að allir palestínsk-
ir flóttamenn og afkomendur þeirra
frá 1948, alls um 3,5 milljónir manna,
fái rétt til að snúa aftur. Nokkrir leið-
togar hafa þegar sagt að þeir muni
ekki mæta í Beirút, þ.á m. Moammar
Gaddafi, leiðtogi Líbýu. Gagnrýndi
hann að fyrri samþykktum leiðtog-
anna um stuðning við Palestínumenn
hefði ekki verið fylgt eftir.
Bush vill að Sharon
aflétti ferðabanni
Beirút, Washington, Jerúsalem. AFP, AP.
Handsöluðu/24