Morgunblaðið - 31.03.2002, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 31.03.2002, Blaðsíða 50
DAGBÓK 50 SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Víkverji skrifar... AUÐUR í krafti kvenna er aðmörgu leyti merkilegt fyrir- bæri og verkefnið „Dæturnar með í vinnuna“ ugglaust líka, en Auður... stendur fyrir því einu sinni á ári. Þá er blásið í lúðra og hvatt til þess að „dætur“ landsmanna fái að fara með foreldrum sínum í vinnuna. Gott og blessað, en Víkverji spurði sjálfan sig að því í tilefni þessa merk- isdags, á þriðjudaginn, hvort að því kæmi að fólk yrði líka hvatt til þess að taka synina með í vinnuna. Er það ef til vill svo sjálfsagt að ekki taki því að minnast á það? Eða er jafnfrétt- isbaráttan svo skrýtin í raun að mis- mununin sé enn talin vænleg til ár- angurs? Víkverji hefur reyndar heyrt af vinnustöðum, til dæmis bæjarskrif- stofunum á Akureyri, þar sem dætur og synir máttu koma með foreldri sínu til vinnu, og vonandi hefur svo verið víðar. Víkverji leyfir sér a.m.k. að hvetja til þess að fyrirkomulagið verði þannig í framtíðinni. Mismun- un er ekki vænleg til árangurs í jafn- réttisbaráttunni, að mati Víkverja, hvorki þegar börn eiga í hlut eða aðr- ir. Til dæmis í pólitík, þannig að fólk sé valið eftir kyni á lista stjórnmála- flokka. Vera kann nauðsynlegt að reyna að hafa hlutfall kynjanna nokkurn veginn jafnt, en það að velja karl og konu (eða ætti Víkverji ef til vill að segja konu og karl?) til skiptis í sæti á listum getur auðvitað skapað vandræði. Víkverji er á þeirri skoðun að þann hæfasta eigi að velja í hvert skipti; í tiltekið starf eða sæti á lista stjórnmálaflokks, svo dæmi séu tek- in, en kyn eða litarháttur eigi ekki að skipta máli. x x x VÍKVERJI er mikill áhugamaðurum kvikmyndir og fylgdist því með því hvernig viðurkenningar dreifðust á Óskarsverðlaunahátíð- inni sem fram fór í Hollywood um síðustu helgi. Og sumt kom honum satt að segja á óvart. En fyrir því eru eflaust góðar og gildar ástæður. Eða hvað? Fróðlegt hefur verið að fylgjast með lesenda- bréfum á heimasíðu bandaríska dag- blaðsins Los Angeles Times um þetta efni síðustu daga. Þar segir til dæmis einn bréfritara að óskiljan- legt sé að Russell Crowe hafi ekki hlotið Óskarinn fyrir besta leik í að- allhlutverki í kvikmyndinni „A Beautiful Mind“. Flestir meðlimir akademíunnar (sem kýs um það hverjir hljóta verðlaun) viti að frammistaða Crowe hafi verið mun betri en leikur Denzel Washington í „Training Day“, en það hafi komið Crowe í koll að hann er hvítur á hör- und. Víkverji getur vel trúað því að ein- hvers konar pólitík af þessu tagi skipti máli við slíkt kjör. Bréfritari segir: Washington var valinn besti karlleikari í aðalhlutverki vegna þess hvernig komið hefur verið fram við þeldökka leikara fram að þessu. Aðeins einn svertingi, Sidney Poitier, hafði verið valinn besti leik- ari í aðalhlutverki þar til um síðustu helgi, að bæði Washington og Halle Berry hlotnaðist sá heiður. Washington og Berry eru vita- skuld bæði frábærir leikarar, en er ekki hætt við því að þarna sé á ferð- inni ámóta „mismunun“ í jafnréttis- átt og tíðkast hér á landi með því að hvetja fólk til þess að taka dæturnar með sér í vinnuna? Ef svo er þykir Víkverja það ekki gott. Fyrirspurn MIG langar að vita af hverju afnotagjöld símans hafa hækkað svona mikið. Grunngjaldið hefur hækk- að úr 820 í 1.111 og númera- birting úr 63 í 90 kr. – og svo er búið að taka af okkur ókeypis skrefin. Mér finnst þetta mikil hækkun. Eins finnst mér að Íslendingar eigi að eiga sinn síma sjálf- ir. Símnotandi. Dapurlegur endir á skemmtiferð FIMMTUDAGURINN 22. mars endaði dapurlega hér á leikskólanum Fífusölum í Kópavogi. Að morgni þess dags fóru hressir 3–5 ára krakkar ásamt leikskóla- kennurum í strætóferð frá Salavegi og aðeins upp í Salahverfið og ætluðu svo að ganga aftur í leikskólann sinn. Í gönguferðinni átti að taka myndir og videomynd- ir af hópnum og umhverf- inu og voru því leikskóla- kennararnir með videoupptökuvél leikskól- ans og eina digital-ljós- myndavél í tösku með sér. Þessi taska gleymdist í strætó og hefur enn ekki skilað sér í leikskólann. Í videovélinni var spóla sem inniheldur dýrmætar minn- ingar frá starfi og leik okk- ar á leikskólanum og það sama er að segja um myndakortið í myndavél- inni. Okkur finnst grátlegt að hafa tapað þessum eign- um skólans og börnin eiga erfitt með að skilja af hverju þeim hefur ekki ver- ið skilað. Við biðjum um að þessu verði skilað til okkar á leikskólann, þetta eru eig- ur og minningar barnanna okkar. Leikskólinn stendur við Salaveg í Kópavogi og er síminn hér 5704200. Börn og starfsfólk leikskólans Fífusalir. Pistlahöfundi sagt upp MÉR brá í brún, er ég las í DV h. 20.3. að Karli Th. Birgissyni hefði verið sagt upp hjá RÚV. Ég hef alltaf hlustað á Karl. Pistlar hans í Spegl- inum á þriðjudögum hafa mér þótt framar öðrum, að mörgum öðrum ólöstuðum. Karl er beinskeyttur og þorir að taka á ýmsum mál- um, sem koma upp í þjóð- félaginu, og kitlar oft fínu taugarnar hjá fólki, ekki síst þeim sem við á hverju sinni. Ég vona að Karl fái inni hjá öðrum miðli, því af pistl- unum hans vil ég ekki missa. Virðingarfyllst. Svanur Jóhannsson. Varasamir pottaleppar GUÐRÚN hafði samband við Velvakanda og vildi hún koma því á framfæri að hún hefði keypt sér pottaleppa sem voru fallegir fyrir aug- að en hún segir að þeir séu stórvarasamir því þeir þoli engan hita. Innan í hönsk- unum stendur að þeir þoli 40 gráða hita. Vildi hún vara fólk við þessu. Tapað/fundið Fermingarpeningar týndir MÁNUDAGINN 25. mars varð ungur fermingar- drengur fyrir því óláni að tapa veskinu sínu sem er svart leðurveski með 60 þúsund krónum í. Pen- ingana fékk hann í ferming- argjöf. Drengurinn kom m.a. við í versluninni Mótor á Laugavegi og gæti hafa misst það þar. Eins og gef- ur að skilja er drengurinn mjög miður sín og biður þá sem hafa orðið varir við veskið að hafa samband í síma 823 2752. Dýrahald Páfagaukur í óskilum GRÁR dísarpáfagaukur er í óskilum á Dvergabakka. Þeir sem kannast við fugl- inn hafi samband í síma 895 2900. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 LÁRÉTT: 1 brotsjór, 8 ganga, 9 naga, 10 gréru, 11 sjó- ferð, 13 rödd, 15 mjög hallandi, 18 vinningur, 21 bætti við, 22 sára, 23 framleiðsluvara, 24 leyndardómsfull. LÓÐRÉTT: 2 angist, 3 stólpi, 4 baun- ir, 5 jarðeignar, 6 heitur, 7 fjötraði, 12 blóm, 14 fæði, 15 hryggs, 16 stirð- lyndu, 17 bik, 18 hristist, 19 heilabrot, 20 gler. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 hrjúf, 4 völva, 7 offur, 8 rímur, 9 kið, 11 afar, 13 arar, 14 egnir, 15 jálk, 17 illt, 20 búk, 22 fangi, 23 álkan, 24 rimma, 25 tuðra. Lóðrétt: 1 hrota, 2 jafna, 3 fork, 4 værð, 5 lemur, 6 aur- ar, 10 innbú, 12 rek, 13 ari,15 jöfur, 16 lúnum, 18 líkið, 19 tunna, 20 biða, 21 kátt. K r o s s g á t a NÚ hefur spurn- ingakeppni framhalds- skólanna verið háð síðan 1987 og framan af var frekar jöfn skipting á sigrum milli skóla. En nú ber svo við að Mennta- skólinn í Reykjavík hefur unnið þessa keppni tíu ár í röð og eru margir orðnir frekar pirraðir á því. Ég man þegar ég var í Menntaskólanum við Hamrahlíð að þá var þetta alltaf svo mikil gleði og spenna í lofti. En nú virð- ast lið hreinlega leggja ár- ar í bát þegar þau dragast gegn MR. Þessari þróun verður að breyta og setja þarf ein- hvers konar kvóta á sig- urlið. Ein hugmynd sem komið hefur upp er sú að hafi lið sigrað þrjú ár í röð sé því einfaldlega meinuð þátttaka að ári til að aðrir skólar fái að njóta sín. Það hefur viljað bera á svo- litlum hroka hjá MR- liðunum sem hafa keppt undanfarin ár því að þeir sem eru í MR núna og hafa verið a.m.k. síðustu sex árin þekkja ekkert annað en að MR sigri í Gettu bet- ur. Þess vegna verðum við að snúa þessum hroka við og meina þeim keppni í t.d. eitt keppnistímabil. Örvar Gröndal, Vesturgötu 62, R. Gettu betur skal breytt Skipin Reykjavíkurhöfn: Í gær fóru út Vigri RE og Ottó N. Þorláksson RE. Hafnarfjarðarhöfn: Í gær fór Ljósifoss út. Mannamót Aflagrandi 40. Afla- grandi. Búnaðarbank- inn verður á Aflagranda 40 þriðjudaginn 2. apríl kl. 10.15. Verslunarferð í Hagkaup í Skeifunni miðvikudaginn 3. apríl kl. 10 frá Grandavegi með viðkomu á Afla- granda. Kaffiveitingar í boði Hagkaups. Skrán- ing í afgreiðslu og í síma 562-2571. Nýtt jóganámskeið hefst fimmtudaginn 4. apríl. Kennt verður tvisvar í viku á þriðjud. og fimm- tud. Kennsla hefst kl. 9. Skráning í afgreiðslu í síma 562-2571. Opið hús fimmtudaginn 4. apríl. Húsið opnað kl. 19.30. Félagsvist kl. 20. Léttar kaffiveitingar. Eldri borgarar, Kjal- arnesi og Kjós. Fé- lagsstarfið Hlaðhömr- um er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13– 16.30, spil og föndur. Lesklúbbur kl. 15.30 á fimmtudögum. Jóga á föstudögum kl. 11. Kór- æfingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mos- fellsbæ á Hlaðhömrum fimmtudaga kl. 17–19. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586 8014 kl. 13–16. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. 2. apríl vinnu- stofa, kl. 13.30 spilað í Kirkjuhvoli, kl. 13 mál- un, kl. 13.30 tréskurður. 3. apríl: Kl. 11.15 og 12.15 leikfimi. Kl. 13.05 róleg stólaleikfimi, kl. 13 vinnustofa, kl. 13.30 handavinnuhornið, kl. 16 trésmíði. 4. apríl: Kl. 9.45 boccia, kl. 9 vinnu- stofa, kl. 13 málun, ker- amik og postulín. Félag eldri borgara, Kópavogi. Opið hús verður í Gullsmára 13 laugardaginn 6. apríl kl. 14. Dagskrá: Upplestur, hljóðfæraleikur o.fl. Kaffi og meðlæti. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Á þriðju- dag brids, nýir spilarar velkomnir. Saumur undir leiðsögn og frjáls handavinna kl. 13.30, spænskukennsla kl. 16.30. Leikhúsferð mið- vikudaginn 10. apríl kl. 14 að sjá leikritin Í lífs- ins ólgusjó og Fugl í búri er Leikfélagið Snúður og Snælda sýna í Ásgarði, Glæsibæ. Skráning og allar upp- lýsingar í Hraunseli og í síma 555-0142. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan opin alla virka daga frá kl. 10–13. Kaffi – blöðin og matur í hádegi. Félagsstarf fellur niður um páskana. Hefst aftur þriðjudaginn 2. apríl. Þriðjudagur: Skák kl. 13 og alkort spilað kl. 13.30. Miðvikudagur: Göngu- Hrólfar fara í létta göngu frá Hlemmi kl. 9.45. Söngvaka kl. 20.45 umsjón Sigurbjörg Hólmgrímsdóttir. Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir í Ásgarði í Glæsibæ, félagsheim- ili Félags eldri borgara söng- og gamanleikinn „Í lífsins ólgusjó“ minningar frá árum síldarævintýranna. Og „Fugl í búri“, drama- tískan gamanleik. Næstu sýningar: Mið- vikudaginn 3. apríl kl. 14, kvöldsýning verður fimmtudaginn 4. apríl kl. 20. Sýningum fer fækkandi. Miðapant- anir í síma: 588-2111 og 568-9082. Heilsa og hamingja laugardaginn 13. apríl nk. kl. 13.30 í Ásgarði, Glæsibæ. Hóprannsóknir á veg- um Hjartaverndar. Vil- mundur Guðnason, for- stöðulæknir Hjartaverndar. Fræðslunefnd FEB hvetur fólk til að mæta og kynna sér málefnin. Á eftir hverju erindi gefst tækifæri til spurninga og umræðna. Sparidagar á Örkinni 14.–19. apríl, skráning á skrifstofu FEB. Silfurlínan er opin á mánudögum og mið- vikudögum frá kl. 10 til 12 f.h. í síma 588-2111. Skrifstofa félagsins er flutt að Faxafeni 12, sama símanúmer og áð- ur. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Upplýsingar á skrifstofu FEB. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Ath. í dag sunnudaginn 31. mars er lokað. Félagsstarfið Furu- gerði. Félagsstarfið óskar öllum gestum sínum gleðilegra páska og opnar aftur þriðju- daginn 2. apríl með hefðbundinni dagskrá. Gerðuberg, félagsstarf. Starfsfólk óskar öllum þátttakendum og sam- starfsaðilum gleði- legrar páskahátðiðar. Gjábakki, Fannborg 8. Einmánaðarfagnaður verður í Gjábakka fimmtudaginn 4. apríl kl. 14. Fjölbreytt sköp- unar- og skemmti- dagskrá sem er sam- starfsverkefni Digranesskóla, Leik- skólans Marbakka og Gjábakka. Vöffluhlað- borð. Allir velkomnir. Handverksmarkaður verður fimmtudaginn 4. apríl. Vinsamlega pant- ið borð sem fyrst í síma 554-3400. Hvassaleiti 56–58. Á þriðjudag er söngstund við píanóið kl. 10.30. Vesturgata 7. Starfs- fólk Vesturgötu 7 óskar gestum og velunnurum gleðilegra páska. Þriðjudaginn 2. apríl kl. 13.30–14 verður Lands- banki Íslands hf. með almenna bankaþjón- ustu. Fimmtudaginn 4. apríl kl. 10.30 veður helgi- stund í umsjón séra Hjálmars Jónssonar dómkirkjuprests, kór Félagsstarfs aldraðra syngur undir stjórn Sigurbjargar Petru Hólmgrímsdóttur, allir velkomnir. Orlofsnefnd húsmæðra. Húsmæður athugið. Eigum nokkur sæti laus til Portúgals 9.–16. apr- íl. Upplýsingar í síma 551-2617 og 864-2617. Kvenfélagið Hrönn. Farið verður í Kaffileik- húsið í Hlaðvarpanum föstudaginn 5. apríl. Kvöldverður og skemmtun. Húsið opnað kl. 19. Kemur í staðinn fyrir aprílfund. Tilkynna þarf þátttöku til stjórnar fyrir 2. apríl. Kvenfélag Garðabæjar heldur aprílfund sinn á Garðaholti þriðjudaginn 2. apríl kl. 20.30. Góð skemmtiatriði. Stjórnin. Kvenfélagið Fjallkon- urnar heldur fund þriðjudaginn 2. apríl kl. 20 í Safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju. Séra Jóna Hrönn Bolla- dóttir kemur í heim- sókn. Allar konur vel- komnar. Ferðaklúbburinn Flækjufótur. Skráning er hafin í sumarferð sem farin verður 27. júní til 3. júlí nk. Upp- lýsingar í símum 557- 2468 og 898-2468. Minningarkort Rauða kross Íslands eru seld í sölubúðum kvennadeildar RRKÍ á sjúkrahúsum og á skrif- stofu Reykjavík- urdeildar, Fákafeni 11, s. 568-8188. Minningarkort Hvíta- bandsins fást í Kirkju- húsinu, Laugavegi 31, s. 562-1581 og hjá Krist- ínu Gísladóttur, s. 551- 7193 og Elínu Snorra- dóttur, s. 561-5622. Minningarkort Sjúkra- liðafélags Íslands eru send frá skrifstofunni, Grensásvegi 16, Reykjavík. Opið virka daga kl. 9–17. S. 553- 9494. Minningarkort Vinafélags Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í síma 525-1000 gegn heimsendingu gíróseðils. Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði fást í blómabúðinni Burkna, hjá Sjöfn s. 555-0104 og hjá Ernu s. 565-0152. Minningakort Breiðfirðingafélagsins, eru til sölu hjá Sveini Sigurjónssyni, s. 555- 0383 eða 899-1161. Minningarkort Kven- félagsins Seltjarnar eru afgreidd á bæj- arskrifstofu Seltjarn- arness hjá Ingibjörgu. Í dag er sunnudagur 31. mars, 90. dagur ársins 2002. Páskadagur. Orð dagsins: En Jesús sagði við þá: „Gjaldið keisaranum það, sem keis- arans er, og Guði það, sem Guðs er.“ (Mark. 12,17.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.