Morgunblaðið - 20.04.2002, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 20.04.2002, Blaðsíða 53
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 53 ✝ Friðrikka Mar-grét Aðalsteins- dóttir frá Hafnarnesi fæddist á Krosshjá- leigu á Berufjarðar- strönd 28. júlí 1917. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Suðaustur- lands 11. febrúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Aðalsteinn Pálsson og Karólína Auðuns- dóttir. Margrét var ein af ellefu systkin- um og eru fjögur þeirra enn á lífi. Margrét giftist Jóni G. Ófeigs- syni 24. júní 1947. Þau bjuggu í Hafnarnesi frá árinu 1942 til árs- ins 1995 með hefð- bundinn búskap. Jón lést 5. desember árið 1996. Þau eignuðust eina dóttur, Eddu, sem býr á Höfn. Hennar maður var Jóhannes A. Sig- urðsson. Hann lést 17. desember 1971. Þau eignuðust fimm börn. Langömmu- börn Margrétar eru fjórtán og langa- langömmubörnin tvö. Útför Margrétar fór fram frá Hafnarkirkju laugardaginn 16. febrúar. Það er sumar og sól og við krakk- arnir erum að snúast í kringum þau afa og ömmu, það þarf að hirða heyið og mjólka kýrnar og þar kemur hjálp okkar að góðum notum. Það eru ekki langir fætur sem teygja sig á ped- alana á dráttarvélinni, rétt nógu lang- ir til að ná niður. En afi og amma treystu okkur fullkomlega, við lærum að standa undir því trausti, ekki ama- legt veganesti fyrir framtíðina. Amma var lítil og nett kona en samt svo ótrúlega sterk og létt á fæti. Hún gekk í öll þau störf sem vinna þurfti í sveitinni en hennar fasta verk var samt að sjá um kýrnar og hans að sjá um kindurnar. Svona liðu nú árin og við krakk- arnir fluttum burt eitt og eitt, stofn- uðum heimili og eignuðumst okkar eigin börn. En alltaf voru samt tengslin sterk við afa og ömmu í Hafnarnesi. Hjálpin sem við sem börn höfðum veitt var ríkulega end- urgreidd þegar við þurftum á því að halda og ekkert var of gott fyrir okk- ur systkinin. Við minnumst sunnu- dagsferðanna inn í Hafnarnes, við sjáum fyrir okkur hann afa sitja við borðsendann með kaffibollann og síg- aretturnar sínar við hliðina og hún amma létt í spori með nýbakaðar pönnukökur. Þarna kynntumst við annarri hlið á þeim afa og ömmu því að hann afi var alveg ótrúlega fróður maður og víðlesinn og ekkert var eins gaman og að heyra hann segja frá. Hann átti líka góða hesta og af þeim var hann mjög stoltur. Að því kom að heilsan hjá afa tók að bresta og þau brugðu búi en bjuggu samt áfram í Hafnarnesi. Hann afi var orðinn mik- ill sjúklingur, hann hafði næstum misst sjónina og var sykursjúkur. En amma hjúkraði honum og þá kom sér nú vel hversu hraust og lipur hún var og ekki varð henni misdægurt. Þegar afi var fluttur á hjúkrunardeildinna á Skjólgarði átti hann ekki þaðan aft- urkvæmt. Amma flutti með honum og fékk sitt eigið herbergi sem hún útbjó með natni og skreytti með myndum af afkomendum sínum. Hún var svo ótrúlega flink í höndunum og fyrir jólabasarinn hjá Skjólgarði var unnið af kappi til að hafa nóg á boðstólum. Hún talaði oft um blessað gamla fólk- ið en fannst hún sjálf aldrei vera göm- ul. Það er eftirminnilegt hvað gaman henni þótti að vera hrein og snyrtileg, klæðast fallegum fötum og vera fín um hárið. Það var mikið áfall fyrir ömmu þegar afi dó þótt sjá mætti hvert stefndi, en enginn er tilbúinn fyrir dauðann, sama hversu nálægur hann virðist. Eftir fráfall afa var tíminn fyrir ömmu nánast eins og bið. Heilsu hennar fór að hraka og sjóninni sömuleiðis. Það var samt alltaf jafn gaman að heimsækja hana og spjalla en því miður urðu stundirnar fáar nú síðustu árin eftir að við fluttum til Noregs. Hún amma var sátt við að deyja, hún trúði því að afi biði hennar hinum megin og tæki á móti henni þar. Og hver veit, kannski eigum við öll eftir að hittast við sunnudagsborðið ein- hvers staðar, heyra sögurnar hans afa og borða pönnukökurnar hennar ömmu þeim til samlætis. Elsku afi og amma. Við erum afar þakklát fyrir umhyggju ykkar og stuðning og allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Minninguna um samverustundirnar getur enginn tekið frá okkur, þær eigum við svo lengi sem við lifum. Kveðja. Ófeigur, Birna, Jón Björn og Heiða Björg, Noregi. Elsku amma, nú ertu farin frá okk- ur öllum í þína síðustu ferð. Þegar ég hugsa til baka kemur svo margt upp í hugann að ég kem því ekki öllu á blað. Ég get enn fundið lyktina úr eldhúsinu heima í Hafnar- nesi þegar þú varst að steikja kleinur og baka jólakökur. Þú gerðir það alltaf svo vel og sagð- ir að það væri mikilvægt að gera sitt allra besta, sama hvað maður tæki sér fyrir hendur. Þetta var bara ein af þeim lífsreglum sem þú byrjaðir að kenna mér þegar ég var smástelpa. Þær voru sko margar fleiri sem ég lærði af þér. Þú skammaðir mig einu sinni fyrir að þykjast vera fótbrotin í læknisleik, þú sagðir að það væri ekki sniðugt og að heilsan væri ekkert til að fíflast með, hún gæti verið farin á morgun. Allar þessar reglur sitja fast í huga mér þegar ég hugsa til þín. Þegar ég og Aníta frænka vorum litlar og lékum okkur saman í Hafn- arnesi gerðum við margt sem við viss- um að við mættum ekki gera, bara til að sjá viðbrögðin hjá þér. Við fengum að sjálfsögðu alltaf skammarræðu um hvað það væri hættulegt að klifra upp á fjósþak og hlaupa yfir öll útihúsin. Við þóttumst auðvitað aldrei hafa gert neitt, en þú vissir betur og vildir okkur bara vel. Þú varst alltaf svo góð að í hvert skipti sem maður fékk skammir þá fékk maður líka kleinur og pönnsur á eftir. Þegar ég kom til þín og afa fannst mér alltaf að það væri mitt heimili. Ég var alltaf velkomin til ykkar hve- nær sem var og þið hugsuðuð um mig eins og ég væri ykkar eigin dóttir. Nú er ég flutt og komin með mitt eigið heimili og yndislegan kærasta sem lætur mér líða vel, sama hvað gengur á, alveg eins og þú gerðir alltaf. Ég vildi að þú hefðir lifað nógu lengi til að sjá okkar fyrsta barn, sem á að koma í heiminn í júlí, kannski á afmælisdag- inn þinn. Þú ert komin á miklu betri stað núna þar sem þú getur fylgst með okkur öllum og kannski leiðbeint okk- ur í gegnum lífið. Þó að þú sért farin úr þessum heimi verða bæði þú og afi eilíf í mínum huga og fyrstu sögurnar sem barnið mitt fær að heyra eru gömlu góðu sögurnar úr Hafnarnesi, þar sem alltaf var gott að vera. Ég gæti sjálfsagt skrifað heila bók um þig en ég verð víst að kveðja í bili, ég veit að ég hitti þig aftur seinna. Bless, elsku amma, og hafðu það gott með afa. Takk fyrir allt sem þú kenndir mér og fyrir allt það góða sem þú gerðir fyrir mig. Hjördís Edda Olgeirsdóttir. Elsku amma, langamma og tengdaamma. Okkur langar að minnast okkar ástkæru Möggu ömmu. Nú ert þú loksins laus frá líkamlegum og and- legum þrautum lífsins hér í þessu jarðríki, eins tómlegt og það er fyrir okkur hin. Hins vegar geymum við góðar minningar og góð kynni í þinn garð. Við gleymum seint síðasta sím- talinu þínu kvöldið áður en þú veiktist og baðst Röggu að koma til þín vegna þess að þér liði svo illa og gott fannst mér að geta farið og setið hjá þér dá- litla stund. Þú varst mikil kjarnorku kona og gekkst í öll verk, jafnt úti- sem inni- verk. Það kemur upp í hugann þegar þú sagðir okkur frá því þegar þú þurftir að skreppa út á Höfn og hafðir ekki bíl. Þá brást þú undir þig betri fætinum og hljópst út á Höfn. Magga amma, þú varst ein af þess- um konum sem geta afkastað svo miklu á skömmum tíma. Ekki sast þú auðum höndum eftir að þú komst á Skjólgarð, aðra eins framleiðslu af dúkkum, krossum, dúkum og ýmsum munum höfum við aldrei séð sem prýða nú heimili okkar. Gaman var að uppfylla ósk þína að þú kæmist á út- skurðarnámskeið sem við ættingar þínir gáfum þér á áttræðisafmælinu og hversu ánægð þú varst þegar þú sýndir okkur listaverkin sem þú skarst út. Þetta sýnir best hversu ákveðin persóna þú varst og lést hlut- ina ekki vaxa þér í augum. Ánægjulegt var að hafa ykkur Jenna afa hinum megin við vegginn í Hafnarnesi og hversu oft þið lituð yfir til okkar og spjölluðuð og létuð ykkur varða um hagi okkar og alla hjálp og stuðning sem þið veittuð okkur. Við vorum lánsöm að fá að njóta nærveru, góðmennsku kærleika og væntumþykju ykkar. Fyrir það verð- ur seint nóg þakkað. Megi guð og gæfan fylgja ykkur í hinum æðri heimi. Hinsta kveðja. Olgeir, Ragna og fjölskylda. Elsku langamma, ég mun gleyma því seint þegar ég fór í Hafnarnes um helgar þegar ég var yngri. Þá var langamma alltaf með ískalda mjólk og nýbakaðar pönnukökur. Svo var setið og borðaðar pönnukökur þang- að til að maður var algjörlega sprung- inn. Hjördís frænka bjó í íbúðinni við hliðina með pabba sínum og fóstur- mömmu og alltaf vorum við að gera eitthvað sem var stranglega bannað. Þá kom langamma hlaupandi út og ætlaði að skamma okkur en þá vorum við komnar lengst út á tún. Heyskapurinn stendur líka upp úr, þegar við frænkurnar vorum að „hjálpa til“ en vorum aðallega að flækjast fyrir sagði langamma. Svo árið ’96 flutti langamma upp á elliheimili til langafa sem var kominn þangað út af heilsuleysi. Langafi kvaddi þennan heim í desember ’96 og þá fór langamma að bíða eftir kall- inu sínu svo að hún og langafi gætu verið saman á ný. Í ágúst í fyrra eignaðist ég son sem varð þá langalangömmubarn hennar númer tvö. Alltaf fannst henni gaman þegar ég kom með hann í heimsókn til hennar. Hann var litli engillinn henn- ar eins og hún orðaði það. Langamma hafði mjög gaman af börnum, en naut þess líka að reyna að leiðbeina okkur í gegnum lífið og var hlustað mismikið á þann fyrirlestur. Alltaf þegar ég heimsótti hana sagði hún mér sögur af sér og hvernig lífið var þegar hún var að alast upp. Og sagði hún mér einu sinni að hún hefði haft mjög gaman af að sparka í bolta á sínum yngri árum. Það fannst mér sniðugt því ég er búin að spila fótbolta í mörg ár. Langamma fylgdist mjög mikið með fótboltanum hér heima á sumrin þegar leiktíðin stóð sem hæst. Ég var að vinna á hjúkrunarheimilinu sem hún var á og alltaf eftir leiki hjá mér vildi hún vita allt um leikinn. Langamma var búin að segja okk- ur að hún hefði heyrt í langafa og hann hefði sagt að hann væri búinn að byggja bæ með ágætis búskap þar sem hann er núna. Svo kom kallið hennar mánudaginn 11. febrúar og vona ég að henni líði vel þarna hjá langafa og að búskapurinn gangi vel. Svo að ég kveð þig nú í síðasta skipti og vona að ég hitti ykkur seinna þegar ég kem yfir. Drottinn, þú ert með oss öllum allar stundir og hefur engum nær en þeim, sem líða og syrgja. Þú hefur verið hjá ástvini vorum, sem nú er horfinn frá oss, þú hefur ekki sleppt hendi þinni af honum. Og þú yfirgef- ur oss ekki. Öll erum vér í þinni hendi og ekkert getur gjört oss viðskila við kærleika þinn. Góða nótt og sofðu vært. Þín Aníta Sóley Þórisdóttir og fjölskylda. Fáein minningarorð um Margréti Aðalsteinsdóttur langar mig að festa á blað og þakka góða viðkynningu. Hugurinn nemur staðar við endur- minninguna um Margréti frá Hafn- arnesi. Hana þekkti ég aðeins í sjón þar til ég kom hingað á Hjúkrunar- heimilið Skjólgarð á Höfn fyrir u.þ.b. tveimur árum. Hér kynntist ég Mar- gréti sem var vistmaður hér. Fljót- lega bauð Margrét mér inn til sín og þar sýndi hún mér iðju sína. Þótt heilsa Margrétar væri ekki sterk hélt hún andlegum kröftum og færni handanna til að útbúa fagra hluti. Margrét var tvímælalaust listamaður af guðs náð. Hún átti skúffur fullar af fegurstu útsaumsstykkjum. Á borð- unum hennar voru smádúkar er hún hafði búið til af hreinni list, einnig krossar og bókamerki. Bæði gaf hún og seldi töluvert af þessum fagurlega gerðu hlutum. Borið hafði hún einnig við að skera út og mála. En það var sama hvað hún lagði hendur að; hand- bragðið var listilegt og gladdi augað. Margrét var forkur dugleg og ósérhlífin meðan heilsan leyfði að hún gæti beitt sér. Ung fór hún að heiman til að vinna fyrir sér og átti þá ekki annarra kosta völ en að fara í vist eins og kallað var, það er að gerast vinnu- kona inni á heimilum. Misjafnir reyndust henni húsbændurnir sem hún lenti hjá, sumir reyndust vel, aðr- ir miður. En skrítið þótti henni þegar bæði börn og fullorðnir á heimilinu þéruðu hana 16 ára ungling eins og gert var á heimili Einars Þorgilsson- ar athafnamanns í Hafnarfirði, þó að undanteknum Einari sjálfum, sem hún minntist að hefði sagt að hann gæti „ómögulega farið að þéra þetta blessað barn“. Það þótti henni vænt um. Hún minntist oft á veru sína hjá þeim Einari og Geirlaugu og börnum þeirra og einnig á dvölina á heimili Þórhalls Daníelssonar á Höfn, þar sem hún vann um tíma. Ekki taldi hún að þessi ríkmannlegu heimili hefðu frekar en aðrir sloppið við ýmis vandamál innan sinna veggja. Á búskaparárunum í Hafnarnesi var Margrét driffjöðrin bæði úti og inni. Jón var ekki mikið náttúraður fyrir búskapinn og Margrét horfði ekki aðgerðarlaus á það sem koma þurfti í verk. Hún gekk í útiverk jafn- hliða inniverkunum, hirti um gripina, vann við heyskap og önnur bústörf. Allir vissu að það var hún sem með sínum frábæra dugnaði hélt öllu gangandi í Hafnarnesi. Árin liðu – Margrét og Jón fluttu á hjúkrunarheimilið Skjólgarð á Höfn, hnigin á efri ár, heilsan farin að bila. Þar dvöldu þau frá árinu 1995 til ævi- loka. Jón andaðist árið 1996, Margrét 11. febrúar síðastliðinn. Eftir andlát Jóns þvarr lífslöngun Margrétar, enda hrakaði heilsunni. Lengst af var hún þó fær um að fylgja fötum og sitja við að búa til sitthvað fallegt. Margrét var töluvert skapmikil og nokkuð viðkvæm í lund, eins og gjarnan er títt um listamenn. En hún átti dálítið mjög dýrmætt í fari sínu sem ég held að mörgum kæmi vel að eiga meira af. Hún var sáttfús og leitaði sátta ef hún fann sig hafa orðið full tannhvöss við einhvern og fór þá beinustu leið til viðkomandi og baðst fyrirgefningar. Mér datt oft í hug að slíkt ættu fleiri að gera. Þá yrðu misklíðarefnin sjald- an til vandræða. Margrét hlakkaði til að kveðja jarðlífið og fá að hitta aftur mann sinn og aðra ástvini sem á und- an voru farnir. Ég og við hin sem áttum samleið með Margéti þökkum samveruna og biðjum henni allrar góðrar Guðs blessunar á sviðum framtíðarinnar í þeim heimi sem við tekur. Ég vona að þar fái hún að skapa sín fegurstu listaverk. Sigurlaug Árnadóttir. FRIÐRIKKA MARGRÉT AÐAL- STEINSDÓTTIR allar þær sögur og ævintýri sem hún kunni voru ótrúlegar. Amma greip stundum í galdrahúfuna góðu og það var nú ýmislegt góðgæti sem kom upp úr henni. Amma var mjög ætt- fróð og frændrækin og með eindæm- um minnug á alla afmælis- og merk- isdaga í fjölskyldunni og ættinni. Ömmu fannst alltaf gaman þegar fjölskyldan eða ættin komu saman. Það var einkennandi fyrir ömmu hvað hún hugsaði alltaf fyrst um aðra áður en hún hugsaði um sjálfa sig. Hún gerði ekki miklar kröfur og trúði sterkt á Guð, englana og bæn- ina, bað ávallt fyrir okkur. Íþróttaáhugi ömmu var mikill enda spilaði hún handbolta á gullald- arárunum. Handboltaleik í sjónvarp- inu mátti hún ekki missa af og eins enska boltanum. Hennar lið var Liv- erpool og vissi hún nöfnin á þeim bestu í deildinni og í hvaða liði þeir voru. Er ég viss um að amma verður á HM í sumar. Þær eru margar minningarnar sem streyma fram í hugann þegar ég hugsa til ömmu minnar, minningar sem ég get yljað mér við og enginn getur tekið frá mér. Það er með mikl- um söknuði sem ég kveð ástkæra ömmu mína. Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pét.) Elsku afi, ég votta þér mína dýpstu samúð og veit að amma er ekki langt undan að fylgjast með okkur. Guðrún Kristín. Elsku langamma, ég kveð þig í dag með söknuði. Takk fyrir allt. „Þó að ég sé látinn harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, en þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. Minningin lifir.“ Elsku langafi, amma mín og allir, við stöndum saman í sorginni. Kristný Ósk Geirsdóttir. Hún amma Gunna er dáin. Hún var amma Sólbrekku- barnanna og við töluðum aldrei um hana öðruvísi en sem ömmu Gunnu. Enda var það í raun hennar hlut- verk. Eiginkona, móðir, tengdamóð- ir og amma. Barnabörnin hennar áttu vísan stað hjá ömmu Gunnu og afa á Fossvöllunum, enda sóttu þau þangað mikið. Umhyggja hennar fyrir velferð barna og tengdabarna var endalaus, það þekkjum við hvað hún var tengdadóttur sinni góð. Enda stóð fjölskyldan þétt saman, sem sást vel í veikindastríði Gunnu. Þau voru þar til staðar, alltaf. Það var alltaf tilhlökkuefni hjá sonum okkar að fara í boðin til Ósk- ars og Ásu því amma Gunna kom alltaf með brúnu tertuna sína, enda segja strákarnir að hún hafi bakað ótrúlega góðar kökur. Það var í þessum boðum sem við hittumst oftast. Hún í essinu sínu þegar hún sagði frá gömlu góðu dög- unum, rifjaði upp handboltaárin sem voru henni minnisstæð og ýmsar aðrar frásagnir frá gamalli tíð svo sem árin í Héðinshúsi og sögur af gömlum Húsvíkingum. Hún og Kristján voru líka dugleg að ferðast um og safna steinum sem Kristján síðan sagaði og slípaði svo úr urðu mestu gersemar. Síðasta fjölskylduboðið var um sl. jól þegar við fögnuðum stúdents- áfanga sonardóttur hennar. Þá voru veikindi hennar byrjuð en ekki óraði mann fyrir að hverju stefndi. Við kveðjum í dag mæta konu sem mun lifa í minningu okkar. Við sendum Kristjáni, börnum, tengdabörnum og ömmubörnum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Jóna og Guðlaugur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.