Morgunblaðið - 16.05.2002, Page 20

Morgunblaðið - 16.05.2002, Page 20
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 20 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Umhverfisráðuneytið hefur staðfest úrskurð Skipulags- stofnunar um að fallast á lagn- ingu Hallsvegar í Grafarvogi en stofnunin komst að þeirri niðurstöðu að loknu frekara mati á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar. Gerir ráðuneytið það að skilyrði að haft verið samráð við íbúa við Garðhús og kirkjugarðsyfir- völd um hönnun og útfærslu mótvægisaðgerða og að leitast verði við að haga hljóðvörnum með þeim hætti að óæskileg umhverfisáhrif verði sem minnst. Um er að ræða tveggja ak- reina stofnbraut frá Fjall- konuvegi að Víkurvegi í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að vegurinn verði 7,5 metra breiður og um 800 metra lang- ur og eru þrenn gatnamót fyr- irhuguð í tengslum við fram- kvæmdina. Framkvæmdar- aðilar eru Vegagerðin og Reykjavíkurborg. Kemur fram í úrskurði ráðuneytisins að megináhrif framkvæmd- anna lúti fyrst og fremst að hljóðvist. Kröfðust þess að óháður aðili færi yfir skýrsluna Það var hópur íbúa við Garðhús í Grafarvogi sem kærði niðurstöðu Skipulags- stofnunar til umhverfisráð- herra en vegurinn verður lagður fyrir framan íbúðarhús þeirra. Áður hafði ráðherra úrskurðað að frekara mat á umhverfisáhrifum skyldi fara fram og felldi Skipulagsstofn- un úrskurð sinn að því loknu. Var aðalkrafa íbúanna sú að úrskurður Skipulagsstofnunar yrði felldur úr gildi og um- hverfisráðherra setti óháðan aðila til að fara yfir skýrslu framkvæmdaraðila um frek- ara mat á umhverfisáhrifum vegarins. Þá var þess krafist að ráðuneytið myndi kveða upp rökstuddan úrskurð um mat á umhverfisáhrifum á grundvelli viðbótarmats- skýrslunnar og fyrirliggjandi gagna. Umhverfisráðherra fellst í úrskurði sínum ekki á að Skipulagsstofnun og skipu- lagsstjóri hafi verið vanhæf til að úrskurða um mat á um- hverfisáhrifum framkvæmd- arinnar vegna afskipta sinna af viðbótarmatsskýrslu áður en úrskurður var kveðinn upp eins og kærendur töldu. Vís- uðu íbúarnir þar til bréfs sem Skipulagsstofnun sendi til framkvæmdaraðila þar sem m.a. segir að æskilegt sé að hafa samráð við íbúa og að slíkt samráð auki líkur á því að viðunandi niðurstaða náist fyr- ir málsaðila. Lítur ráðuneytið svo á að þarna komi ekki fram endanleg afstaða til fram- kvæmdarinnar eða mats- skýrslu heldur leiðbeining til framkvæmdaraðila. Ljóst sé að stofnunin hafi ríka leiðbein- ingarskyldu gagnvart fram- kvæmdaraðila og öðrum sem til embættisins leita varðandi mat á umhverfisáhrifum og fellst ráðuneytið því ekki á sjónarmið kærenda hvað þetta atriði varðar, né önnur er lúta að aðalkröfu íbúanna. Kostnaður við stokk margfaldur Varakrafa íbúanna var að úrskurðurinn yrði felldur úr gildi og umhverfisráðherra hafnaði framkvæmdunum, þrautavarakrafa var að um- hverfisráðherra hafnaði fram- kvæmdunum eins og þær eru fyrirhugaðar en samþykkti að vegurinn yrði lagður í stokk og loks var þrautaþrautavara- krafa sú að ráðherra felldi úr- skurð Skipulagsstofnunar úr gildi og úrskurðaði að frekara mats á umhverfisáhrifum væri þörf vegna annarra verk- áfanga við Hallsveg og að þeir yrðu metnir samhliða fjögurra akreina vegi á umræddum vegarkafla. Í niðurstöðu ráðuneytisins segir að með frekara mati á umhverfisáhrifum vegarins hafi umhverfisáhrif fram- kvæmdarinnar verið leidd í ljós með fullnægjandi hætti og fellst ekki á að binda fram- kvæmdina skilyrði um marg- földun á framkvæmdakostnaði með því að leggja hann í stokk. Kemur fram í úrskurðinum að kostnaður við lagningu vegar- ins sé talinn vera um 140 millj- ónir króna en verði vegurinn lagður í stokk yrði kostnaður um 480 milljónir. Er því úrskurður Skipu- lagsstofnunar um að fallast á framkvæmdina staðfestur en sem fyrr segir með því skilyrði að samráð verði haft við full- trúa íbúa við Garðhús og kirkjugarðsyfirvöld um hönn- un og útfærslu mótvægisað- gerða og að leitast verði við að haga hljóðvörnum með þeim hætti að óæskileg umhverfis- áhrif verði sem minnst. Staðfestir úr- skurð Skipu- lagsstofnunar                                                                        !  " Grafarvogur Úrskurður umhverfisráðherra um umhverfisáhrif Hallsvegar ÍÞRÓTTA- og tómstunda- félög í Mosfellsbæ hafa mótað sér heildarstefnu þar sem starfsemi félaganna er sam- ræmd þannig að starf þeirra verði sem árangursríkast. Þetta er í fyrsta sinn sem öll íþrótta- og tómstundafélög í einu sveitarfélagi móta sér sameiginlega stefnu með þessum hætti. Í frétt frá bænum segir að andi ræktunar hafi verið hafð- ur að leiðarljósi við mótun stefnunnar og með tilkomu hennar geti öll börn og ung- lingar í Mosfellsbæ tekið þátt í íþrótta- og tómstundastarfi miðað við getu og áhuga. Markmiðið með stefnunni sé að samræma starfsemi félag- anna þannig að stefna þeirra sé öllum ljós, að stuðla að sem árangursríkustu starfi í hverju félagi fyrir sig, kanna samstarfsvettvang milli allra íþrótta, ungmenna og æsku- lýðsfélaga í Mosfellsbæ, stuðla að því að fjármagn sem fari til íþrótta og tómstunda- félaga nýtist betur og að setja fram faglega stefnu í félögun- um þar sem fram kemur hvað beri að taka fyrir íþróttalega í hverjum aldurshópi með sem mestu jafnræði milli kynja. Félögin sem tóku þátt í stefnumótunarvinnunni voru: Golfklúbburinn Kjölur, Skátafélagið Mosverjar, Ung- mennafélagið Afturelding, Hestamannafélagið Hörður og Björgunarsveitin Kyndill. Andi ræktunar hafður að leiðarljósi Mosfellsbær BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt að fela gatnamálastjóra að kanna hvort flýta megi lagningu holræsis frá núver- andi enda Grafarvogsræsis að Gufuneshöfða og byggja þar dælustöð, en framkvæmdin á að koma í veg fyrir skólp- mengun í fjörum Hamra- hverfis og í Eiðsvík. Áður hafði verið ákveðið að fresta holræsaframkvæmdum á þessu svæði fram til ársins 2004. Á fundi ráðsins í síðustu viku lögðu fulltrúar Sjálf- stæðisflokks fram tillögu um að gripið yrði til aðgerða vegna skolpvanda á umrædd- um svæðum en í samþykkt borgarráðs frá því á þriðju- dag, sem var gerð samkvæmt tillögu borgarstjóra, er bráða- birgðaframkvæmdum hafnað vegna þess hversu kostnaðar- samar þær yrðu og „því vafa- samar í ljósi þess hve skammt er í að varanleg lausn fáist“. Miðað við núverandi áætlanir á lagningu holræsis og bygg- ingu dælustöðvar að vera lok- ið á fyrsta ársfjórðungi árið 2004 en sem fyrr segir ákvað borgarráð að fela gatnamála- stjóra að skoða hvort flýta megi framkvæmdinni. Þá á gatnamálastjóri að kanna kostnað sem slíkt hefði í för með sér og hvort mögulegt sé að skera niður í framkvæmd- um annars staðar til að mæta þeim kostnaði. Ekki ástæða til var- úðarmerkinga Á fundi borgarráðs síðast- liðinn þriðjudag var jafnframt lagt fram svar forstöðumanns Umhverfis- og heilbrigðis- stofu Reykjavíkur við fyrir- spurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokks um hvað líði varúðarmerkingum vegna mengunar í fjörum Grafar- vogs. Fyrirspurnin var til komin þar sem umhverfis- og heilbrigðisnefnd hafði sam- þykkt að setja upp slíkar merkingar á þeim fjörum, þar sem mengunin væri umfram viðmiðunarmörk. Þá hvatti nefndin til aukinna mengun- armælinga í Eiðsvík og Hamrahverfi í Grafarvogi. Í bréfinu segir að í úttekt á saurmengun á þessum stöð- um, sem átti sér stað í nóv- ember og desember á síðasta ári, hafi komið í ljós vísbend- ingar um að mengun kynni að vera yfir viðmiðunarmörkum. „Þess ber að geta að gerla- styrkur mælist almennt hærri yfir vetrarmánuðina, þegar sólarljóss nýtur ekki við, en fellur með hækkandi sól. Til þess að fá marktækar og heildstæðar niðurstöður um slíka mengun þarf að taka sýni og mæla þau reglulega í nokkurn tíma,“ segir í bréf- inu. Fram kemur að mælingar á þessum stöðum hafi verið auknar í framhaldinu. Hafa sýni verið tekin og mæld mán- aðarlega síðan í febrúar og stendur til að halda því áfram í heilt ár. „Þær þrjár mæling- ar sem nú þegar hafa átt sér stað á þessu ári hafa ekki gef- ið ástæðu til þess að setja upp varúðarmerkingar um meng- un í fjörum Grafarvogs. Í Eiðsvík hefur styrkur koli- gerla verið undir viðmiðunar- mörkum síðan í mars. Í Hamrahverfinu mældist hann yfir viðmiðunarmörkum þangað til í apríl,“ segir í bréf- inu en tekið er fram að við- miðunarmörk fyrir þessi tvö svæði séu ólík þar sem Eiðs- vík er skilgreint útivistar- svæði en Hamrahverfið ekki. Segir í lok bréfsins að ef mælingar leiði í ljós að meng- un sé viðvarandi umfram við- miðunarmörk muni verða hugað að uppsetningu varúð- armerkinga í samræmi við samþykkt umhverfis- og heil- brigðisnefndar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Styrkur koligerla í fjörunni við Hamravík mældist yfir viðmiðunarmörkum þar til í apríl sl. Kannað hvort flýta megi holræsaframkvæmdum Grafarvogur Mengun undir viðmiðunar- mörkum í Hamrahverfi og Eiðsvík ÞAÐ voru ófáar skvetturnar sem gengu upp úr tjörn Fjöl- skyldugarðsins í gær en þá tók sumardagskrá garðsins formlega gildi. Það þýðir að leiktækin eru öll komin í notkun, hestarnir komnir á stjá og lestin er farin að bruna hring eftir hring um svæðið. Skemmtileg tæki hafa bæst við leiktækjaflóru garðsins þetta vorið, klessu- bátar á tjörninni sem eiga án efa eftir að vekja mikla lukku meðal gesta í framtíð- inni. Þá er einnig í sumar von á fallturni og ítalskri hring- ekju. Morgunblaðið/Golli Sumar í Fjölskyldu- garðinum Laugardalur Móta stefnu í íþrótta- og tómstundamálum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.