Morgunblaðið - 04.09.2002, Síða 1
206. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 4. SEPTEMBER 2002
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, sagði í gær, að innan nokkurra
vikna yrðu birt sannfærandi gögn
um tilraunir Íraka til að komast yfir
gereyðingarvopn. Sagði hann, að
ekki væri unnt að loka augunum fyr-
ir þeirri hættu, sem umheiminum
stafaði af Saddam Hussein, forseta
Íraks, og það væri ekki Bandaríkja-
manna einna að bregðast við henni.
Tareq Aziz, aðstoðarforsætisráð-
herra Íraks, sagði í Jóhannesarborg
í gær, að Írakar væru reiðubúnir að
starfa með Sameinuðu þjóðunum en
byggju sig undir stríð.
Blair sagði á fréttamannafundi í
kjördæmi sínu, Sedgefield á Norð-
austur-Englandi, að „á næstu vik-
um“ yrðu birt gögn, sem sýndu með
sannfærandi hætti tilraunir Saddam
Husseins til að komast yfir kjarn-
orkuvopn. Sagði hann, að vísbend-
ingar væru um, að skammt væri í að
honum tækist það. Blair lagði hins
vegar áherslu á, að æskilegast væri,
að breið samstaða skapaðist gegn
stjórninni í Bagdad.
„Bandaríkjamenn eiga ekki að
axla ábyrgðina einir. Við eigum að
standa saman,“ sagði Blair en bætti
við, að engar ákvarðanir hefðu verið
teknar um hernaðaraðgerðir.
Búa sig undir stríð
Aziz, aðstoðarforsætisráðherra
Íraks, sagði að loknum fundi með
Kofi Annan, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, í Jóhannesar-
borg í gær, að Írakar tækju hótanir
Bandaríkjamanna um árás alvarlega
en væru reiðubúnir til samstarfs við
vopnaeftirlitsmenn SÞ. Í því sam-
bandi þyrfti þó líka að ræða önnur
mál, einkanlega refsiaðgerðir SÞ
gegn Írak. Sagði Aziz, að Írakar
byggju sig undir stríð enda óttuðust
þeir, að það væri það, sem Banda-
ríkjamenn vildu.
Ari Fleischer, talsmaður Hvíta
hússins, sagði í gær, að George W.
Bush, forseti Bandaríkjanna, vildi,
að vopnaeftirlitsmenn SÞ fengju að
starfa í Írak. Það yrði þó ekki til að
eyða grunsemdum um, að Írakar
hefðu eða væru að þróa efna-, líf-
efna- eða kjarnavopn. Colin Powell,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði í gær, að yfirlýsingar Aziz um
samstarf væru gamalt bragð og gaf í
skyn, að skammt væri í, að Bush
tæki ákvörðun um aðgerðir gegn
Írak.
„Skelfileg mistök“
Yussef bin Alawi, utanríkisráð-
herra Omans, ítrekaði í gær, að öll
arabaríkin væru andvíg árás á Írak
og Joschka Fischer, utanríkisráð-
herra Þýskalands, sagði, að hugsan-
leg árás yrði „skelfileg mistök“. Þá
sagði Peter Struck, varnarmálaráð-
herra Þýskalands, að þýska stjórnin
hefði engar sannanir gegn Íraks-
stjórn, sem réttlættu hernaðarað-
gerðir.
Tony Blair hvetur til samstöðu með Bandaríkjunum gegn Saddam Hussein
Boðar gögn um vopna-
áætlanir Íraksstjórnar
London, Jóhannesarborg. AP, AFP.
Reuters
Tony Blair á fréttamannafund-
inum í Sedgefield í gær.
Írakar segjast vilja samstarf við vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna
Reuters
Mikil
lækkun
á mörk-
uðum
New York, London. AP, AFP.
GENGI hlutabréfa á Wall Street
lækkaði meira í gær en nokkru
sinni eftir að markaðurinn var
opnaður aftur eftir hryðjuverkin í
Bandaríkjunum fyrir ári. Mikil
lækkun varð einnig í Evrópu og á
öðrum mörkuðum.
Lækkunin í gær var rakin til
þess, að sáralítil framleiðsluaukn-
ing var í Bandaríkjunum í ágúst
og nýjum pöntunum fækkaði. Þá
er ljóst, að atvinnurekendur ætla
að segja upp fleiri starfsmönnum á
næstunni en búist hafði verið við.
Hefur þetta vakið ótta við nýtt
samdráttarskeið.
Dow Jones-vísitalan lækkaði um
355,45 punkta eða 4,10% í gær og
Nasdaq-vísitalan um 51 punkt eða
3,88%. Í Evrópu var gengið lægra
en það hefur verið í mánuð.
„Svartur dagur í
sögu mannréttinda“
Jerúsalem. AP, AFP.
HÆSTIRÉTTUR Ísraels gaf hern-
um í gær nýtt vopn í stríðinu gegn
Palestínumönnum er hann sam-
þykkti, að reka mætti frá heimilum
sínum fólk, sem aðstoðað hefði
hryðjuverkamenn með einhverjum
hætti. Fulltrúar mannréttindasam-
taka og palestínsku heimastjórnar-
innar fordæma úrskurðinn og rót-
tæk, palestínsk samtök hóta hefnd-
um.
Málið snerist um þrjá ættingja
tveggja manna, sem Ísraelar segja,
að hafi staðið að hryðjuverkum. Voru
tvö systkin annars þeirra fundin sek
um að hafa aðstoðað við þau og verða
þau rekin frá Vesturbakkanum til
Gaza í tvö ár. Sá þriðji var sýknaður.
Saeb Erekat, helsti samningamað-
ur Palestínumanna, sagði í gær, að
um væri að ræða „svartan dag í sögu
mannréttinda“ og sagði, að hugsan-
lega yrði dómnum skotið til örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna og til Al-
þjóðasakamáladómstólsins. Þá hafa
mannréttindasamtök fordæmt hann
harðlega og segja hann brot á Genf-
arsáttmálanum. Talsmaður Hamas-
samtakanna sagði í gær, að dómnum
yrði mætt með aukinni baráttu gegn
Ísraelum.
Dæmdir/20
MARKAÐSTORG í Grikklandi
voru að mestu auð í gær er neyt-
endur sniðgengu þau í einn sólar-
hring til þess að mótmæla verð-
hækkunum er orðið hafa síðan
evran, hinn sameiginlegi gjaldmið-
ill Evrópusambandsins, var tekin í
notkun í landinu um síðustu ára-
mót.
Framkvæmdastjóri neytenda-
samtakanna INKA, Haralambos
Kouris, sagði að aðgerðirnar, sem
væru viðvörun, hefðu tekist vel.
Það voru INKA sem hófu mót-
mælaaðgerðir gegn meintum
hækkunum í kjölfar upptöku evr-
unnar, og hafa þær hlotið stuðning
launþegasamtaka og Sósíalista-
flokksins, PASOK, sem heldur um
stjórnartaumana í landinu. Er
markmiðið að vara við aukinni
verðbólgu sem talið er að megi
rekja til evrunnar.
Stjórnarandstaðan í Grikklandi
hefur sakað stjórnvöld um að eiga
sinn þátt í verðhækkununum með
því að hækka verð á rafmagni og
símaþjónustu en neytendasamtök
á gervöllu evrusvæðinu hafa fyrst
og fremst sakað kaupmenn um að
hafa nýtt sér það að neytendur
væru óvanir evrunni og hækkað
verð síðan gjaldmiðillinn var tek-
inn í notkun.
Nokkur neytendasamtök á Ítalíu
eru nú að kanna möguleika á
„neytendaverkfalli“ og er fyrirhug-
að að boða það 12. september
næstkomandi.
Þriggja mánaða verðbólga í
Grikklandi fór í 3,3% í júlí og var
hærri þar en í öðrum ríkjum á
evrusvæðinu. Búast hagfræðingar
við svipaðri niðurstöðu þegar tölur
fyrir ágúst verða birtar á mánu-
daginn.
Neytenda-
verkfall í
Grikklandi
Aþenu. AFP.
Erfiðir
tímar í
Hong Kong
UM ÁTTA þúsund manns, aðallega
aldrað fólk, beið þess í gær í Hong
Kong að fá að gjöf hrísgrjónapoka
frá hjálparstofnun í borginni. Veg-
ur hann fimm kíló og kostar um 470
ísl. kr. í næsta stórmarkaði. Ástand-
ið í efnahagsmálum í krúnunýlend-
unni fyrrverandi hefur verið erfitt
og farið versnandi á síðustu árum.
Hefur það komið illa niður á þeim,
sem höllustum fæti standa, gömlu
fólki og vaxandi fjölda atvinnuleys-
ingja.