Morgunblaðið - 04.09.2002, Síða 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002 23
ÍSLENSKT ljóðskáld, Sigríður
Droplaug Jónsdóttir, sneri sl.
þriðjudag aftur frá Washington DC í
Bandaríkjunum þar sem hún hafði
tekið þátt í ljóðasamkeppni á vegum
International Society of Poets.
Stór keppni
Forsaga málsins er sú að Sigríð-
ur, sem semur ljóð í frístundum sín-
um, tók þátt í ljóðasamkeppni á veg-
um fyrrnefnds félags á Netinu, á
poetry.com. Hún fékk nokkru
seinna bréf, þar sem henni var tjáð
að ljóðið hennar hefði verið valið í
undanúrslit keppninnar og yrði gef-
ið út í bók ásamt öðrum ljóðum í
undanúrslitunum. Síðar fékk hún
annað bréf þar sem tilkynnt var að
ljóð hennar væri komið í úrslit og
hefði verið valið ásamt 33 öðrum
ljóðum til útgáfu á geisladiski.
Henni bauðst þá að koma til Wash-
ington DC og taka þátt í úrslitunum
sjálfum. Þau fóru fram um síðustu
helgi og las Sigríður ljóðið sitt upp á
föstudagskvöld.
„Það gekk bara ágætlega, reynd-
ar vann ég ekkert, en þetta var mjög
gaman og þetta var nokkuð stór
keppni,“ segir Sigríður í samtali við
Morgunblaðið. Hún segist telja að
um 2.600 keppendur og gestir frá
öllum heimshornum hafi sótt keppn-
ina. „Upplesturinn fór fram á föstu-
degi og laugardegi í fjórum sölum
Hilton-hótelsins í Washington, þar
sem keppnin fór fram,“ útskýrir Sig-
ríður. „Það voru áreiðanlega um 100
manns sem hlýddu á upplesturinn.“
Ljóðið um stríðsáhorfendur
Ljóð Sigríðar nefnist The War
Watcher og er ort á ensku en hún
segir það hafa verið skilyrði fyrir
þátttöku. „Ljóðið fjallar um fólk,
eins og þig og mig, sem situr heima
og horfir á allt það hræðilega sem er
að gerast í heiminum. Fólk er að
deyja og taka þátt í stríði, og við sitj-
um bara og horfum á,“ segir hún.
Hún segist gera mikið af því að
skrifa ljóð, en fyrst og fremst semja
fyrir sjálfa sig og ekki sé á dagskrá
á næstunni að gefa út ljóðabók.
Hægt er að skoða ljóð hennar á slóð-
inni www.poetry.com, með því að slá
inn nafn hennar þar.
Morgunblaðið/Kristján
Sigríður Droplaug Jónsdóttir
með verðlaunin sem hún hlaut í
ljóðasamkeppninni.
Tók þátt í
ljóðasam-
keppni í
Wash-
ington
FUGLAHÚS
Garðprýði fyrir garða og sumarhús.
10 mismundandi gerðir.
Klapparstíg 44 Sími 562 3614
PIPAR OG SALT
Frá kr. 3.995
8