Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
UNNIÐ er að því að næsta plata
Jóhönnu Guðrúnar verði gerð
fyrir alþjóðlegan markað. Stefnt
er að útgáfu næsta haust, að sögn
Maríu Bjarkar Sverrisdóttur, út-
gefanda og umboðsmanns söng-
konunnar ungu. Vinna við plöt-
una hefst strax í byrjun næsta
árs.
„Við erum búin að vera í við-
ræðum við útsetjara og lagahöf-
unda, þá helstu í heiminum, í Sví-
þjóð, Bretlandi og Bandaríkjun-
um. Sumir þeirra tengjast beint
og óbeint alþjóðlegum plötufyrir-
tækjum, þeim stærstu í heimi,“
segir María Björk en hún og Jó-
hanna Guðrún eru nýkomnar frá
Bandaríkjunum. Heimsóttu þær
Svíþjóð og London þar á undan.
„Stefnt er að því að ljúka
samningum við upptökustjóra í
byrjun næsta árs, strax í janúar,
og taka í framhaldi upp viðræður
við plötufyrirtæki, sem kynnu að
hafa áhuga á samstarfi og samn-
ingi við Jóhönnu Guðrúnu,“ segir
María Björk og er viss um að hin
12 ára Jóhanna Guðrún fái plötu-
samning.
Slegist um
Jóhönnu Guðrúnu
„Það er rosalegur áhugi fyrir
henni úti. Þeir slást um hana. Við
erum að vinna úr þessu. Núna er-
um við í þeirri stöðu að velja á
milli bestu upptökustjóra og laga-
höfunda í heimi. Við erum að tala
um fólk, sem er að útsetja og
semja fyrir bæði Britney Spears
og Jennifer Lopez. Sá sem við
vorum að tala við síðast var að
fara að útsetja fyrir Celine Dion
um helgina,“ segir hún.
María Björk segir að Jóhanna
Guðrún hafi mjög gaman af
þessu. „Henni finnst þetta æð-
islegt. Hún er samt mjög mikið
niðri á jörðinni. Hún er meira að
spá í hvað hana langi í jólagjöf.“
Á dögunum kom út þriðja sóló-
plata Jóhönnu Guðrúnar fyrir ís-
lenskan markað, jólaplatan Jól
með Jóhönnu, sem er önnur sölu-
hæsta plata landsins um þessar
mundir.
Sömu lagahöfundar og
hjá Britney og J-Lo
Stór, erlend plötufyrirtæki hafa sýnt þessari 12 ára stúlku mikinn áhuga.
Jóhanna Guðrún gerir plötu fyrir alþjóðlegan markað
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
i i
BOND ER MÆTTUR
FLOTTARI EN
NOKKRU SINNI
FYRR
ÍSLAND Í
AÐALHLUTVERKI-
ÓMISSANDI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.45.
DV
RadíóX
YFIR 30.000 GESTIR Á 10 DÖGUM
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4741-5200-0002-4854
4548-9000-0059-0291
4539-8500-0008-6066
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Bi 14.
BOND ER MÆT-
TUR
FLOTTARI EN
NOKKRU SINNI
FYRR
ÍSLAND Í
AÐALHLUTVERKI
- ÓMISSANDI
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
i i
DV
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.4, 7 og 10
Sýnd kl. 5, 8 og 10.50. B.i.12 ára
RadíóX
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
YFIR 30.000 GESTIR Á 10 DÖGUM
Faxafeni 5 • Sími 588 8477
www.betrabak.is
Heilsunnar vegna
Jólagjöf