Morgunblaðið - 04.03.2003, Qupperneq 37
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003 37
Reiðfatnaður
Náttúrulegur lífsstíll
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
SÍÐUSTU tvær vikur hefur Brynjar
Vilmundarson, eigandi stóðhestsins
Þrists frá Feti, kannað undirtektir
við þátttöku í hlutafélagi um hestinn,
sem nú er á fimmta vetri. Hulda G.
Geirsdóttir hefur séð um nokkurs
konar markaðskönnun og í framhald-
inu kynningu á sölu hluta í klárnum
og sagði hún að þetta hefði gengið
ótrúlega vel. Seinnipartinn í gærdag
voru sjö hlutir óseldir en þar af voru
aðilar mjög volgir fyrir kaupum á
tveimur hlutum. Þannig er líklegt að í
dag séu aðeins fimm hlutir eftir
óseldir.
Uppbyggingin á félaginu um Þrist
er sú sama og hjá Orrafélaginu, en
Þristur er einmitt undan Orra. Um
sextíu hluti verður að ræða og hyggst
Brynjar eiga tuttugu hluti sjálfur.
Það þýðir að eigendur hestsins geta
haldið sextíu hryssum undir hann en
auk þess verða seldir tíu tollar til við-
bótar og tekjurnar af því notaðar til
að reka hestinn. Þar er um að ræða
fóðrun og hirðingu hestsins og um-
sýslu á fengitíma. Einnig bætist við
þjálfun á hestinum verði stefnt með
hann í dóm á nýjan leik. Hluturinn í
Þristi er seldur á 205 þúsund krónur
og markaðsverðmæti hestsins því
samkvæmt því 12,3 milljónir króna.
Ef um beina sölu á öllum hestinum
hefði verið að ræða má ætla að verðið
hefði verið allnokkru lægra. Að sögn
Huldu eru væntanlegir kaupendur
alls staðar að af landinu og í hópnum
séu allt frá hrossaræktendum í
fremstu röð niður í áhugamenn um
hrossarækt sem fái eitt folald á ári og
jafnvel minna en það. Það má því
ætla að margir líti á kaup í Þristi sem
góða fjárfestingu sem veiti þeim um
leið aðgang að spennandi stóðhesti
með hryssur sínar. Þá hefur einn aðili
í Bandaríkjunum keypt hlut og sömu-
leiðis einn frá Þýskalandi.
Af sterkum stofnum
Þristur var sýndur á landsmótinu í
sumar og hlaut þá í aðaleinkunn 8,19,
fyrir sköpulag hlaut hann 8,09 en fyr-
ir hæfileika 8,26. Hann hlaut þrjár ní-
ur fyrir tölt, vilja og geðslag og feg-
urð í reið. Auk þess hlaut hann 9,0
fyrir prúðleika sem var jafnframt
hæsta einkunn sköpulags. Hann er
með 122 í aðaleinkunn í kynbótamati
en þar hlýtur hann hæst 132 fyrir
fegurð í reið og 129 fyrir brokk og 128
fyrir tölt. Hæstu einkunnir sköpulags
eru 123 fyrir hófa og bak og lend en
fyrir prúðleika hefur hann hlotið 120.
Veiku punktarnir í Þristi samkvæmt
kynbótamatinu eru höfuð, fótagerð
og réttleiki og í hæfileikum skeið og
fet. Móðir Þrists er Skák frá Feti sem
hefur hlotið 7,74 í aðaleinkunn í dómi
og aðeins 106 stig í kynbótamati. Hún
er undan Barón frá Miðsitju sem var
undan Hervari frá Sauðárkróki og
Perlu frá Kúskerpi. Hann hlaut að-
eins dóm fyrir sköpulag og hlaut þá
7,53 og í kynbótamati er hann aðeins
með 103 í aðaleinkunn. Á pappírun-
um virðist því móðurættin býsna veik
en þess ber að gæta að á bak við Skák
stendur eins og hér kemur fram
Hervar og á öðrum stað Hrafn frá
Holtsmúla. Þá eru einnig í bakgrunni
Gormur frá Akureyri og faðir hans
Eyfirðingur og svo er Sokki frá Vall-
holti á nokkrum stöðum í ættartölu
Þrists. Þá má einnig geta þess að
meginstólparnir á bak við Orra frá
Þúfu eru einmitt Hervar og Hrafn og
er ættartafla Þrists nokkuð athygl-
isverð að því leytinu til.
Þristur vakti mikla athygli á lands-
mótinu fyrir skörulega og örugga
framgöngu, töltið í hestinum virðist
afar sterkt og hann vel settur í höf-
uðburði með góðum fótaburði. Þrist-
ur er brúnskjóttur, sem þykir í dag
mikill kostur. Má ætla að hann gæti
gefið skjótt í ríkum mæli þar sem
talsvert er af brúnskjóttu á bak við
hann.
Framtíðareignarform
Hlutafélagsformið er greinilega
mjög hentugt eignarform í stóðhesta-
haldinu. Hrossaræktarsamböndin
hafa gegnum árin gegnt forystu- og
lykilhlutverki ístóðhestahaldi, þau
keyptu að öllu jöfnu alla bestu stóð-
hesta landsins og tryggðu hrossa-
ræktendum aðgang að þeim á viðráð-
anlegu verði. Nú hafa markaðs-
lögmálin tekið yfir og einnig hitt að
með verulega auknu framboði á góð-
um stóðhestum virðist hlutafélags-
formið henta betur. Sérstaklega hin
seinni ár hafa skoðanir verið afar
skiptar þegar hrossaræktarsambönd
hafa keypt stóðhesta og þá gjarnan
tekist á um hvort kaupa hefði átt
þennan eða hinn hestinn og eins að
verðið hafi verið alltof hátt fyrir
þennan eða hinn hestinn. Með hluta-
félagsforminu kaupa menn í hestum
sem þeir hafa velþóknun á og má því
segja að með því skipi menn sér í
fylkingar eftir stóðhestum en tæp-
lega er hægt að tala um ræktunarlín-
ur í dag.
Allmörg hlutafélög um stóðhesta
eru til og hefur reksturinn gengið
upp og ofan. Ræðst það að sjálfsögðu
af því hversu góðir kynbótagripir
hestarnir reynast þegar á hólminn er
komið. Fremst í flokki er þar að sjálf-
sögðu Orrafélagið, sem nú hefur ver-
ið til í áratug. Þá hafa verið stofnuð
félög um aðra ungstjörnu landsmóts-
ins, Aron frá Strandarhöfði, Markús
frá Langholtsparti, Dyn frá Hvammi,
þá bræður frá Brún Óð og Óskahrafn
og Sæ frá Bakkakoti. Þetta eru með
bestu stóðhestum landsins og hefur
rekstur félaga í kringum þá gengið
þokkalega. Einnig hafa verið stofnuð
félög um aðra hesta minna þekkta og
er óhætt að segja að gengi félaganna
hafi verið með ýmsu móti. Vel þekkt
eru dæmi um að ungir og óreyndir
hestar hafi engan veginn staðið undir
vonum og því hafi fjármunir sem
hluthafar hafi lagt fram að engu orðið
eða því sem næst. Dæmi eru um að
hluthafar hafi einungis útgjöld út úr
félögum sem þessum. Það fylgir því
talsverð spenna að kaupa sér hlut í
stóðhesti því þótt vissulega megi hafa
einhver áhrif á það hvernig gengi fé-
lagsins verður er það fyrst og fremst
erfðakraftur og gæði hestsins sem
ferðinni ráða. Verð hluta í hestum
hefur einnig verið mjög breytilegt og
fer það að sjálfsögðu eftir einstak-
lingsgæðum þeirra oft í byrjun.
Einnig eru dæmi um að stofnað hafi
verið til félagsskapar um hesta strax
á folaldsaldri og má þar nefna sem
dæmi Óskahrafn frá Brún. Þar er lík-
lega um hámarksáhættu að ræða á
þessum vettvangi, margir óvissu- og
áhættuþættir á langri leið. Nú hefur
sá hestur verið sýndur og er með all-
þokkalega stöðu en væntanlega
verða það afkvæmi hans sem skera
úr um hvort sú fjárfesting sem lagt
var í fyrir einum sex árum skilar sér
og hvort klárinn skilar hluthöfum sín-
um hagnaði af þessum fjármunum.
Þess má geta að samkvæmt sölu á
hlutum í Óskahrafni á sínum tíma var
markaðsvirði hans sex milljónir og er
að öllum líkindum dýrasta folald sem
um getur hér á landi og þótti þetta
verð með ólíkindum á sínum tíma.
En svona hafa markaðslögmálin
teygt anga sína inn í hrossaræktina
og setur það óneitanlega aukna
spennu í greinina.
Enn eitt hlutafélagið um stóðhest í burðarliðnum
Hlutirnir í
Þristi frá
Feti renna út
Morgunblaðið/Vakri
Salan á hlutum í Þristi frá Feti virðist falla í góðan jarðveg hjá hestamönnum. Knapi er Erlingur Erlingsson.
Hlutafélagsformið er nú óðum að taka yfir í
heimi stóðhestanna. Í síðustu viku hefur staðið
yfir undirbúningur að enn einu hlutafélagi um
stóðhest og virðist allt stefna í að sá háttur
muni leysa af hólmi eitt aðalhlutverk hrossa-
ræktarsambanda í áratugi. Valdimar Krist-
insson kynnti sér stofnun hins nýja félags og
getur hér einnig annarra félaga.
vakri@mbl.is
NÚ Í fyrsta skipti var boðið upp á
tvær sýningar og veitti svo sann-
arlega ekki af, því færri komust
að en vildu og spurðist meðal
annars út að tvær rútur hefðu
mætt á staðinn fullar af fólki en
því miður hefði orðið að vísa
þeim frá því húsrúm leyfði ekki
fleiri áhorfendur. Eins og ávallt
áður var unga fólkið í miklum
meirihluta sýningargesta og sýn-
ingaratriðin að venju með örfáum
undantekningum borin uppi af
ungum hestamönnum.
Mikil vinna og fyrirhöfn hefur
verið lögð í sýningaratriðin og
komu þar margir að. Árangurinn
var líka eftir því, hvert atriðið
öðru betra, skraut og munst-
urreiðar ýmiss konar, söngur,
dans og hljóðfæraleikur ungra
hestamanna og hunda og svo
hestur lagður til svefns.
Fyrir utan skemmtanagildi sýn-
ingarinnar, sem er mikið ef
marka má þessa miklu aðsókn,
má hiklaust telja hana hafa skap-
að sér mikilvægan sess í kynn-
ingu á hestum og hestamennsku.
Þarna kemur mikill fjöldi barna
og unglinga sem stunda hesta-
mennsku í litlum eða engum mæli
og má mikið vera ef enginn
þeirra laðast að þessari áhuga-
verðu frístundaiðju sem verður
síðar meir atvinna margra. Þá
virðist sem Æskan og hesturinn
sé orðin vinsælasta reiðhallarsýn-
ing sem haldin er á landinu en
taka verður með í reikninginn í
slíkum samanburði að ókeypis er
inn á þessa sýningu.
Pollar, sem er tiltölulega nýr
aldursflokkur í hestamennskunni,
fengu heldur betur að njóta sín
að þessu sinni en 40 börn í þess-
um flokki riðu um sal hallarinnar
við mikla kátínu sýningargesta.
Eftir 10 til 15 ár má gera ráð fyr-
ir að einhverjir þeirra muni fara
um sali hallarinnar í alvarlegri
erindagjörðum á gæðingum í
fremstu röð.
Mikil ánægja ríkti með sýn-
inguna að þessu sinni enda sam-
koman einstaklega vel heppnuð.
Æskan og hesturinn í Reiðhöllinni í Víðidal
Fjölsóttasta reið-
hallarsýning ársins
Morgunblaðið/Valdimar
Mikið var lagt í sýninguna Æskan og hesturinn. Meðfylgjandi mynd var
tekin í síðasta ári og þótti það vel takast og komust færri en vildu.
Sýningunni Æskan og
hesturinn hefur svo
sannarlega vaxið fiskur
um hrygg. Allt frá
fyrstu sýningu fyrir sex
árum hefur aðsókn farið
ört vaxandi og nú er
talið að sýningargestir
hafi verið í kringum
fimm þúsund og meðal
þeirra var Valdimar
Kristinsson sem
skemmti sér prýðilega.