Morgunblaðið - 23.03.2003, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.03.2003, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 21 GUÐRÚN Jónsdóttir sópr- ansöngkona er Ísfirðingur að ætt og uppruna. Hún lagði stund á söngnám bæði hér heima og erlendis og hefur sungið í óperum og óperettum í leikhúsum í Noregi og á Íslandi. Hún er nú búsett á Ísafirði og kennir söng við Tónlistar- skólann ásamt því að taka þátt í sönglífinu af lífi og sál. Hún hristir höfuðið skelli- hlæjandi þegar ég spyr hvort hlutverk Maríu í Söngvaseið sé ekki einfalt dæmi fyrir atvinnumann- eskju. „Það er kannski ekki svo ýkja erfitt hvað sönginn varðar en ég gerði mér enga grein fyrir hvað ég var að fara út í stórt leikhlutverk með töluðum texta þegar ég greip þessa hugmynd á lofti einhvern tíma í haust. Ég hef þurft að hafa talsvert fyrir því því auðvitað vill maður gera þetta af fagmennsku.“ Erfitt? „Já, þetta er auðvitað erfitt þegar allar æfingar lenda ut- an venjulegs vinnutíma og heima er maður með tvö lítil börn. En þetta er líka óskaplega skemmtilegt og frábært að sjá hvað allir eru tilbúnir að láta þetta takast sem best. Ég held að þetta sé að verða miklu betri sýning en nokkru okkar datt í hug í upphafi að gæti orðið.“ Undir þessi orð tekur tón- listarstjórinn Beáta Joós en undir hennar stjórn og hljóm- sveitarstjórans Janusz Frach hafa hljóðfæraleikararnir æft tónlistina þrotlaust frá því í desember. „Þetta hefur verið mikil vinna en skemmtileg,“ segir Beáta. „Hér á Ísafirði eru margir ágætir söngvarar og ég safnaði saman kven- röddum úr skólanum og kór- unum í nunnukórinn í sýning- unni. Í svona sýningu er auðvitað forsenda að geta sungið en það er þó alls ekki nóg því kórinn verður að leika líka. Þar hefur leikstjórinn Þórhildur Þorleifsdóttir heldur betur lagt sitt af mörkum.“ Beáta sem kemur frá Ungverjalandi, þar sem tónlistarlíf á sér langa og merka sögu, segist halda að svona viðamikið samvinnuverkefni áhugamanna sé einsdæmi fyrir Ísland. „Ég hefði aldrei látið mér detta þetta í hug en það er sann- arlega þess virði að taka þátt í því,“ segir hún. María og Abbadísin. Söngkonurnar Guðrún Jónsdóttir og Ingunn Ósk Sturludóttir í hlutverkum sínum. Fagmennska í fyrirrúmi BÖRN og unglingar skipa stóran hluta leikhópsins. Þau Helgi Þór Arason og Ingibjörg Kristín Jóns- dóttir leika Friðrik, elsta bróð- urinn, og Grétu, yngstu systurina. Helgi Þór er 16 ára og er í 1. bekk Menntaskólans á Ísafirði og Ingi- björg Kristín er 9 ára og í 4. bekk Grunnskóla Ísafjarðar. Önnur börn sem leika í sýningunni eru Herdís Anna Jónasdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Elma Sturludóttir, Lísa Marý Viðarsdóttir, Anna Marzellíusardóttir, Katrín María Gísladóttir, Andri Pétur Þrast- arson, Þorgeir Jónsson og Agnes Ósk Marzellíusardóttir. Helgi Þór býr að talsverðri reynslu af leiklist enda segist hann hafa verið illa haldinn af leiklistarbakteríunni frá því hann man eftir sér. „Ég hef tekið þátt í Morranum, atvinnuleikhúsi unga fólksins, sem rekið er á sumrin, ég var í öllum leikritum sem sett voru upp í Grunnskólanum og var formaður leikfélagsins þar í tvö ár. Svo lék ég hlutverk Fatts í Hatti og Fatti sem Litli leikklúbburinn setti upp í fyrra. Svo hef ég farið á nokkur leiklist- arnámskeið fyrir sunnan og reyni að vera með í því sem gert er hér.“ Ingibjörg Kristín er að leika í fyrsta skipti og stekkur beint inn í nokkuð viðamikið hlutverk, þar sem Gréta, yngsta systirin, er býsna áberandi þótt hún sé ekki há í loftinu. Hvernig datt Ingibjörgu í hug að taka þátt í sýn- ingunni? „Ég bara heyrði að það ætti að halda leikprufu fyrir krakkana og fannst það rosalega spennandi og svo var hringt í mig eftir fyrstu prufuna og ég beðin að koma aftur og enn var hringt í mig aftur og þá spurði Þórhild- ur hvort við vildum ekki öll taka þátt í sýningunni og ég sagði já og þá var þetta bara ákveðið.“ Hlutverk barnanna í sýningunni eru 7 og munu um 50 börn hafa sóst eftir þeim. Það var því úr vöndu að ráða þegar kom að því að velja þau 11 börn sem leika hlutverkin, því þau yngstu skipta með sér hlutverkunum til að álagið af æfingum og sýningum verði ekki alveg eins mikið. Helgi Þór segir þetta hafa verið alveg ómetanlega reynslu þótt álag- ið sé talsvert, þegar leikæfingar standa frá 4–6 klukkustundum dag- lega eftir að venjulegum skóladegi lýkur. „Mér finnst Þórhildur Þorleifs- dóttir alveg frábær og hún gerir miklar kröfur til okkar sem er fínt. Það er líka ótrúlega gott að hafa at- vinnusöngkonurnar Guðrúnu Jóns- dóttur og Ingunni Ósk í aðalhlutverk- unum. Þetta verður til þess að við þurfum að leggja okkur enn meira fram.“ Ingibjörg segir að hún hafi ekki haft hugmynd hvað það væri mikil vinna á bakvið svona sýningu og neitar því ekki að hún sé stundum ansi þreytt á kvöldin þegar hún leggur höfuðið á koddann. „Ég er líka að gera ýmislegt annað. Æfa sund og körfubolta og gera allt sem þarf í sambandi við skólann, og þar erum við að æfa fyrir árshátíðina sem verður núna bráðum. Það er nóg að gera.“ Helgi Þór kinkar kolli við spurningunni hvort hann hafi ekki nóg að gera þessa dagana. „Það er ekki mikill tími eftir af sólarhringnum þegar skólinn, vinnan í kjörbúð- inni, handboltaæfingar og leikæfingar eru búnar.“ Af hverju eruð þið að þessu? Væri ekki miklu skemmtilegra að hafa nógan tíma til að slappa af og horfa á sjónvarpið og leika sér? Þau horfa á blaðamann eins og hann sé ekki alveg með á nótunum. „Þetta er skemmtilegt. Skemmtilegast af öllu er að hafa nóg að gera og vera með alls konar skemmtilegu fólki.“ „Erfitt en skemmtilegt,“ segja þau Helgi Þór Arason og Ingibjörg Kr. Jónsdóttir. Skemmtilegast að hafa nóg að gera SÖNGLEIKUR væri varla mikils virði án hljóðfæraleiksins og hljómsveitin sem leik- ur á sýningunni á Söngvaseið er í raun- inni hluti af skóla- hljómsveit Tónlistar- skólans. Tveir af hljóðfæraleikurunum gáfu sér tíma til að svara spurningum blaðamanns, en sögðu að þær yrðu stöðugt að vera til taks því langan tíma tæki að samhæfa leik, söng og hljóðfæraleik í þá heild sem leikstjórinn ætlaðist til. Hljóm- sveitarstjóri er Janusz Frach en þau Beáta Joó tónlistarstjóri og Sigríður Ragnarsdóttir hafa annast hljóm- sveitar- og raddæfingar. „Þetta er miklu meiri vinna en við höfðum ímyndað okkur,“ segja þær Sandra Rún Jóhannesdóttir, 17 ára, sem spilar 1. fiðlu í hljómsveitinni og Arnþrúður Gísladóttir, 16 ára, sem spilar á þverflautu. Þær eru báðar komnar talsvert langt í tónlistarnámi, Sandra Rún hefur lokið 7. stigi og Arnþrúður hefur lokið miðprófi eftir 5. stig. Þær eru því þaulvanar að leika alls kyns tónlist og taka þátt í samspili sem er stór hluti af námi þeirra við tónlistarskólann. „Þetta er samt mjög ólíkt því tónlistin er öðru- vísi en ég er vön að spila,“ segir Arn- þrúður. „Og svo er hljómsveitin ekki í aðalhlutverki eins og maður er vanur á tónleikum. Nú þurfum við að gæta að því að fylgja leikurunum, spila hraðar eða hægar eftir þörfum og spila ekki of sterkt til að yfirgnæfa ekki sönginn,“ segir Sandra Rún. Tónlistin í sýning- unni er viðamikil eins og nærri má geta og kemur kannski á óvart að lögin eru hvorki fleiri né færri en 43. „Þetta eru auðvitað ekki allt sönglög, sum lögin eru örfáar línur og eru millispil á milli atriða eða þátta. En í allt þá er nótnaheftið 60 blaðsíður sem er auðvitað talsvert,“ segir Arnþrúður. „Þetta er kannski ekki sérlega flókin eða erfið tónlist, en maður verður aðallega þreyttur á að spila svona lengi á æfingunum, kannski í fjóra klukkutíma. Maður er alveg búinn í handleggjunum,“ segir Sandra Rún. Arnþrúður tekur undir það. Þær eru sammála um að þrátt fyr- ir þreytuna og erfiðið þá sé þetta svo sannarlega þess virði; „Það er ótrú- lega gaman að taka þátt í þessu og þetta verður örugglega mjög flott sýning.“ „Verður örugglega mjög flott sýning,“ segja Sandra Rún Jóhannes- dóttir fiðluleikari og Arnþrúður Gísladóttir þverflautuleikari. Nótnaheftið er 60 blaðsíður islandssimi.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I SS 2 06 14 03 /2 00 3 *Meðan birgðir endast. Startpakkinn - tölvuleikur fylgir! Verslun Íslandssíma í Kringlunni. Þú velur! Tölvuleikur að verðmæti 4.990 kr. fylgir með Startpakkanum.* 3.750 kr. á mánuði 256 Kb/s 512 Kb/s hraði og 100 MB til útlanda innifalið. Startpakkinn - allt sem til þarf Innifalið í ADSL II Startpakka er: USB mótald, stofngjald og smásía. Samtals að verðmæti 18.125 kr. Miðað er við 12 mánaða áskrift. Internetaðgangur er innifalinn í mánaðargjaldi. 0 kr. Hvergi lægra mánaðargjald! til 15. apríl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.