Morgunblaðið - 23.03.2003, Page 33

Morgunblaðið - 23.03.2003, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 33 ekki afstæð. Þetta er raunveruleg ógn sem Ís- lendingar ekki síður en aðrar þjóðir heims verða að taka afstöðu til. Heimurinn breyttist vissulega með lokum kalda stríðsins en ekki í þá veru að ríki þyrftu ekki lengur að hafa áhyggjur af öryggi sínu. Hulunni var svipt af þeirri tálsýn ellefta september fyrir rúmu ári. Raunar höfðu margir varað við þessari ógn um árabil. Það var hins vegar ekki fyrr en hinn örlagaríka septembermorgun sem öllum varð ljóst að ógnin var raunveruleg. Þessa þróun má rekja til margra þátta. Ann- ars vegar tækniframfara sem gera að verkum að stöðugt verður auðveldara að framleiða skelfileg vopn, jafnvel með tiltölulega litlum til- kostnaði. Sú þekking sem lá að baki smíði fyrstu kjarnorkusprengjunnar markaði á sínum tíma þáttaskil í vísindasögunni. Í dag þykja þau fræðilegu atriði, sem þarf að kunna skil á til að setja saman slíkt vopn, sjálfsögð á sviði eðlis- fræðinnar. Það sem helst hamlar því að fleiri geti komið sér upp slíkum vopnum er að enn sem komið er hefur tekist að hamla aðgangi að auðguðu úrani og plútóni. Þær áhyggjur sem menn hafa af smíði kjarnorkuvera í Íran og ekki síst Norður-Kóreu er að með gangsetn- ingu þeirra gæti hafist fjöldaframleiðsla á þeim efnum er þarf til smíði kjarnorkusprengju. Talið er víst að Írakar hafi nú þegar um langt skeið búið yfir þekkingu og getu til að smíða kjarnorkusprengju. Þeim hefur hins veg- ar ekki enn, að því er talið er, tekist að verða sér úti um auðgað úran. Ef Norður-Kórea gangsetur hið umdeilda kjarnorkuver í Yongbyon, en smíði þess olli því að litlu munaði að stríð hæfist á Kóreuskaga ár- ið 1994, gætu slík „vandamál“ verið úr sögunni. Við kjarnabruna versins yrði árlega til nægilegt magn af plútóni til að gera marga tugi vopna virk. Helmingunartími plútons hleypur á tug- þúsundum ára. Sé þessu skrímsli hleypt út á annað borð gæti það reynst mannkyninu dýr- keypt, ekki einungis næstu árin heldur árþús- undin. Hvað ef þetta efni kemst í hendur samtaka á borð við Al-Qaida eða ofbeldisseggja á borð við Saddam Hussein? Treysta menn því að kjarn- orkuvopnum verði ekki beint gegn Vesturlönd- um? Hvaða áhrif myndi það hafa á heiminn ef kjarnorkusprengja spryngi í vestrænni stór- borg? Tilhugsunin kann að virka fjarlæg og jafnvel fjarstæð en því miður er þetta raun- verulegt vandamál sem við stöndum frammi fyrir. Dettur einhverjum í hug að Íslendingar geti haldið sig til hlés í þessari umræðu? Að það hefði engin áhrif á Ísland og hagsmuni Ís- lendinga ef hryðjuverkamenn beittu slíkum vopnum t.d. í London eða New York? Auk þeirrar staðreyndar að ávallt er fjöldi Ís- lendinga á ferli í flestum vestrænum stórborg- um myndi atburður sem þessi hafa áhrif á allt umhverfi okkar. Hagkerfi heimsins stæði frammi fyrir kreppu er væri alvarlegri en kreppan mikla á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar. Alþjóðavæðingin svokallaða myndi heyra sögunni til, ríki myndu draga sig inn í skel sína og leggja áherslu á öryggi sitt framar öllu öðru. Hvers vegna? Jessica Stern, sér- fræðingur í starfsemi hryðjuverkahópa og kennari við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, rekur í bók sinni The Ultimate Terrorist (sem rituð var fyrir ellefta september) fimm megin- ástæður fyrir því að líkur séu að aukast á að hryðjuverkamenn muni í framtíðinni beita kjarnavopnum, efnavopnum eða sýklavopnum gegn almennum borgurum. Í fyrsta lagi séu þessi vopn kjörin fyrir hryðjuverkamenn er vilji sýna fram á guðlega hefnd, vísindalega hæfni eða einfaldlega myrða sem flesta til að valda usla. Í öðru lagi séu markmið hryðjuverkamanna að breytast. Ný kynslóð hryðjuverkamanna hafi komið fram sem stjórnist af trúarlegu ofstæki, öfgahægristefnu eða heimsendasýn. Ofstækis- menn séu stöðugt vaxandi ógn. Í þriðja lagi hafi með hruni Sovétríkjanna myndast svartur markaður fyrir vopn, vopna- hluti og þekkingu. Öryggiskerfi Sovétmanna á tímum kalda stríðsins hafi miðast við að Banda- ríkin gætu ekki komist yfir vopn og þekkingu Sovétmanna. Það hafi ekki gert ráð fyrir því að hætta gæti stafað af innherjum. Hundruð tonna af geislavirkum efnum eru geymd á viðkvæm- um stöðum víðs vegar um Sovétríkin fyrrver- andi af illa launuðum gæslumönnum. Jafnvel sé ekki hægt að útiloka að hægt sé að stela heilum vopnum. Þótt hinar langdrægu kjarnorkuflaug- ar Rússa séu vel varðar sé ástæða til að hafa áhyggjur af minni vopnum. Í fjórða lagi séu stöðugt fleiri ríki að verða sér úti um gjöreyðingarvopn, jafnvel ríki sem eru þekkt fyrir að styðja hryðjuverkahópa. Í fimmta lagi geri tækniframfarir að verkum að auðveldara er fyrir hryðjuverkamenn að gera árásir með gjöreyðingarvopnum. Í gegn- um Netið geti þeir náð til breiðs hóps stuðn- ingsmanna og verið í stöðugum samskiptum. Stern telur að þrátt fyrir þetta bendi líkur til að árásir hryðjuverkamanna með gjöreyðingar- vopnum verði sjaldgæfar. Hins vegar megi ekki einungis taka mið af líkunum. Einnig verði að taka mið af hugsanlegum afleiðingum, sem gætu verið tugir eða jafnvel hundruð þúsunda fórnarlamba. Fred C. Iklé, fyrrum aðstoðarvarnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, velti fyrir sér svipuðum sjónarmiðum í grein í tímaritinu The National Interest árið 1997. Þar segir hann m.a.: „Morg- uninn eftir stórfellda árás með efnavopnum eða sýklavopnum eða eftir að kjarnorkuvopni hefur verið beitt mun lögmál hernaðar breytast í grundvallaratriðum um heiminn allan. Ef beit- ing slíkra vopna yrði látin óáreitt, eða, sem er enn verra, hún myndi koma gerandanum til góða, myndi harðstjóra um allan heim fýsa að komast yfir slík vopn og að endingu beita þeim. Þessi harðstjóri framtíðarinnar gæti orðið ann- ar Saddam Hussein sem ógnaði Bandaríkjunum eða bandamönnum þeirra með árásum. Eða … hann gæti verið nýr Lenín eða Hitler sem reyndi að koma upp harðsvíruðu einræðiskerfi innan frá.“ Vangaveltur sem þessar eru því miður ekki fjarri sanni. Á síðastliðnum áratug hafa stöðugt fleiri fræðimenn, sérfræðingar og stjórnmála- menn í Bandaríkjunum komist að þeirri nið- urstöðu að þetta sé mesta ógnin sem heimurinn stendur frammi fyrir. Í kjölfar ellefta sept- ember má segja að þessi sjónarmið hafi orðið ofan á í umræðum um öryggismál og myndi þann grunn sem til dæmis stefnan gagnvart Írak byggist á. Í mörgum Evrópuríkjum eru umræður um þessi mál mun skemur komnar þótt til dæmis forsætisráðherra Bretlands hafi sett þessi mál á oddinn um margra ára skeið. Reuters Það tekur enginn leiðtogi vestræns lýðræðisríkis ákvörðun um að halda út í styrjöld er mun kosta fjölda mannslífa af ástæð- um sem þessum. Forseti Bandaríkj- anna, þótt hann sé að mörgu leyti valdamesti ein- staklingur veraldar, getur ekki einn og óstuddur leitt Bandaríkin út í stór- fellda styrjöld ef fyrir því liggja ekki haldbær rök. Laugardagur 22. mars Breskir landgönguliðar í Suður-Írak.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.