Morgunblaðið - 28.03.2003, Qupperneq 58
58 FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HÉR er komið aftur þríeykið
úr Rómeó verður að deyja
(Romeo Must Die) frá árinu
2000. Þetta eru leikstjórinn
Bartkowiak, ásamt rapp-
aranum Dark man X eða DMX
og Jet Li sem einmitt öðlaðist
heimsfrægð í fyrrnefnri mynd.
Nú er það myndin Frá
vöggu til grafar, þar sem Jet
Li leikur tælenskan alríkislög-
regluþjón og DMX er glæpa-
maðurinn. Þeir félagar lenda
víst í alls konar sprengingum,
myndrænt úthugsuðu ofbeldi,
ótrúlegustu aðstæðum þar
sem gæti reynst ágætt að
kunna að að hlaupa upp vegg
til að bjarga sér!
Sagan er sú að dóttur
glæpamannsins, Tony Fait, er
rænt og krefjast ræningjarnir
ómetanlegra demanta í lausn-
argjald. Tony sem foringi
mjög þjálfaðs glæpamanna-
gengis neyðir lögguna Su til að
bjarga dótturinni. Þá hefst
kapphlaup þeirra við tímann
til að finna demantana. En
þeir finna ekki aðeins dem-
anta, heldur einnig nýtt dráps-
vopn í stríðsátökum.
Jet Li er einn vinsælasti
leikarinn sem beitir fyrir sig
sjálfsvarnarlistinni. Hann fær
víst að njóta sín til hins ýtrasta
í þessari mynd þar sem hrað-
inn dettur aldrei niður og tón-
list Eminem hljómar.
Krimmi og lögga saman í liði
Sambíóin frumsýna kvik-
myndina Frá vöggu til grafar
(Cradle 2 Grave). Leikstjórn:
Andrzej Bartkowiak. Aðal-
hlutverk: Jet Li og DMX.
Jet Li og DMX eru löggan og krimminn.
UM seinustu helgi fékk kvik-
myndin Hvergi í Afríku
(Nirgendwo In Africa)
Óskarsverðlaunin sem besta
erlenda kvikmyndin. Myndin
hefur auk þess hlotið fjölda
þýskra verðlauna og einnig á
Karlovy Vary-alþjóðakvik-
myndahátíðinni.
Myndin er ástarsaga sem
nær yfir tvær heimsálfur.
Þetta er saga gyðinga-
fjölskyldu sem flýr Þýskaland
nasismans árið 1938 alla leið á
sveitabýli í Kenýa. Það tekur
Walter Redlich, eiginkonuna
Jettel og fimm ára dóttirina
Regínu tíma að laga
sig að heldur erf-
iðara lífi en þau
áttu að venjast
í Þýskalandi.
Lögfræðing-
urinn Walter
verður umsjón-
armaður
býlisins, hin
dekraða Jett-
el neitar að
sætta sig við
aðstæðurnar,
en Regína tekur
nýja landinu opn-
um örmum, lærir
tungumál og siði
þess, auk þess að eignast vini.
Myndin er byggð á sam-
nefndri metsölubók, sem höf-
undurinn Stefanie Zweig
byggði á eigin lífi. Sagan þyk-
ir sérstaklega sterk, þar sem
hún dregur
áhorfendur til
sín strax og bíða
þeir þess í of-
væni að sjá hvað gerist næst.
Um leið kafi hún inn í hjarta
lítillar gyðingastúlku og sýni
daglegt líf í Kenýa af ein-
stakri innsýn og á töfrandi
máta.
Nýtt líf í Afríku
Háskólabíó frumsýnir kvikmynd-
ina Hvergi í Afríku (Nirgendwo in
Africa). Leikstjóri: Caroline
Link. Aðalhlutverk: Juliane Köhl-
er, Regine Zimmermann, Merab
Ninidze, Matthias Habich.
Leak Kurka og
Sidede Onyulo í þýsku
óskarsverðlaunamynd-
inni Hvergi í Afríku.
ÞAÐ er sívinsælt í Hollywood
að gera myndir um félaga sem
lenda í eltingarleik og hremm-
ingum, hvort þem þeir eru
löggur, njósnarar eða smá-
krimmar. Nú er enn eitt parið
mætt til leiks, en það mynda
öryggisverðirnir Hank og
Earl, leiknir af Zahn og
Lawrence, í grínmyndinni
Þjóðaröryggi (National Secur-
ity). Hins vegar fær fólk að
ráða hvort það treystir þess-
um náungum fyrir þjóðar-
öryggi Bandaríkjanna …
Earl og Hank eiga það eitt
sameiginlegt að þeir hafa báð-
ir verið reknir úr lögguliði Los
Angeles. Eftir að hafa tekist á
sitt hvoru megin laganna, þar
sem æsingurinn er í hámarki í
umferðaröngþveiti, lenda
þessir óheppnu menn saman
sem félagar í léttvægu
öryggisvarðarstarfi.
Þrátt fyrir að vera neðst í
metorðastiga lögreglunnar
tekst Earl og Hank að klekkja
Félagar
á fullu
Smárabíó, Laugarásbíó og Borg-
arbíó á Akureyri frumsýna kvik-
myndina Þjóðaröryggi (National
Security). Leikstjórn: Dennis
Dugan. Aðalhlutverk: Steve
Zahn, Martin Lawrence, Colm
Feore, Bill Duke og Eric Roberts. Öryggisverðirnir Martin Lawrence og Steve Zahn.
ÞESSI rómantíska mynd ger-
ist í indælu ekta ensku um-
hverfi. Gömul ensk lítil hús í
þorpi rétt hjá graslendi.
Kirkjugarðurinn, tebúðin,
bókabúðin og lestarstöðin;
allt á sínum stað. Ævintýrin
eru heldur ekki langt undan
þar sem ást og losti taka völd-
in.
Segja mætti að Skot sé
kvennamynd með létt fem-
inískum undirtónum. Að-
alhetjan er Kate (Andie
MacDowell), bandarískur
framhaldsskólakennari á
fimmtugsaldri. Hún á tvær
bestu vinkonur, Janine lækni
og Molly lögreglustjóra. Vin-
konurnar vita fátt betra en
hina vikulega fundi sína þar
sem þær drekka gin, reykja,
borða nammi og ræða frekar
tilbreytingarlaust ástalíf sitt.
En einn dag verður breyting
á því … Kate fer í jarðarför
og er mjög snortin af tónlist-
inni í kirkjunni. Á eftir hittir
hún organistann sem heitir
Jed (Kenny Doughty) og er
fyrrverandi nemandi Kate.
Hún er rúmlega 15 árum eldri
en hann, en það skiptir litlu,
þau heilla hvort annað upp úr
skónum í samtali sínu. Ekki
líður á löngu þar til þau eru
komin í blússandi ástarsam-
band.
Myndin er ekta ástarmynd
þar sem skiptast á skin og
skúrir, vonir og væntingar,
bráðfyndin atriði, hjónaskiln-
aðir í brúðkaupsveislum. Allt
gerist þetta í þessu róm-
antíska umhverfi og með við-
urkenndar leikkonur í hverju
hlutverki.
Ástir miðaldra konu
Eldri kona + yngri maður =
sönn ást?
Sambíó Kringlunni og Há-
skólabíó frumsýna kvikmyndina
Skot (Crush). Leikstjóri: John
McKay. Aðalhlutverk: Andie
MacDowell, Imelda Staunton,
Anna Chancellor og Kenny
Doughty.
á meiriháttar glæpamönnum.
Eitthvað eiga þeir þó erfitt
með að hafa stjórn á gjörð-
unum, en allt kann þó að fara
vel – þ.e.a.s ef þessir ólíku fé-
lagar drepa ekki hvorn annan
fyrst!
Þjóðaröryggi er endalaus
eltingarleikur og ótrúlegar
uppákomur á vegaflækjum
Los Angeles borgar. Hún þyk-
ir bæði þrælfyndin og svolítið
lúmsk mynd, þar sem leik-
ararnir flagga sínu besta.
Sýnd kl. 10 og Miðnætursýning kl. 12.
Sýnd kl. 6, 8, 10 og Powersýning kl. 12 á miðnætti.
Sýnd kl. 4Sýnd kl. 6 og 8.
Frábær spennutryllir sem hræðir
úr þér líftóruna.
Þegar röðin er komin að þér þá
flýrðu ekki dauðann!
Þeir líta bara út
eins og löggur!
Grínið er farið í gang
með tveimur geggjuð-
um - Steve Zahn og
Martin Lawrence!
i lí
i l !
í i f i í
i j
i !
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
SV. MBL
HK DV
ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i 12. Sýnd kl. 3.45 og 5.50.Sýnd kl. 3.40, 8 og 10.20. B.i. 16
Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 og Powersýning kl. 12. Sýnd kl. 5,30, 8 og 10.20.
kl. 8.
Eingöngu í LÚXUSSAL kl. 5.30 og 10.30. B.i.12
Skemmtilegasta rómantíska
gamanmyndin síðan
Pretty Woman!
Rómantík,
grín og góð
tónlist í
frábærri
mynd!
Radíó X
Kvikmyndir.com
X-IÐ
6 ÓSKARSVERÐLAUN M.A.BESTA MYNDIN
Þeir líta bara út
eins og löggur!
Grínið er farið í gang
með tveimur geggjuð-
um - Steve Zahn og
Martin Lawrence!
i lí
i l !
í i f i í
i j
i !
HK DV
HL MBL
Powe
rsýni
ng
kl. 1
2.