Morgunblaðið - 03.06.2003, Page 13
VEL gengur að selja afurðir Sam-
herja á mörkuðunum um allan
heim, nema ýsu en á henni hefur
verið viðvarandi sölutregða í nokk-
urn tíma. Stafar hún af mikilli veiði
við Ísland Noreg og Færeyjar.
Gústaf Baldvinsson, sölu- og mark-
aðsstjóri Samherja og fram-
kvæmdastjóri Seagold í Bretlandi,
segir að ekki sé undan neinu að
kvarta í þessum málum og vel gangi
að selja fiskinn.
„Við erum alltaf með lítið af
þorsk- og ýsuflökum á þessum árs-
tíma, en mjög vel hefur gengið að
selja þorskflökin og verð á stærstu
flökunum hefur verið að tosast upp
á við eftir lækkun eftir áramótin.
Nánast öll okkar flök af þorski og
ýsu fara í veitingahús sem bjóða
upp á fisk og franskar, eru bara
þídd upp og stærri flökin skorin til
fyrir steikingu.
Það er mikil spurn eftir grálúðu
enda hefur veiðin verið léleg. Hins
vegar eru Norðmenn að byrja grá-
lúðuvertíð sína og það getur haft
einhver áhrif á markaðinn. Lúðan
hefur hreinlega selst jafnóðum til
Japans og Tævans og engrar sölu-
tregðu gætt þar vegna bráðalungn-
abólgunnar. Spurn eftir hausunum í
Kína hefur reyndar slaknað aðeins
og líklega má kenna lungnabólgunni
um það. Þá hafa Pólverjar verið að
kaupa töluvert af lúðu sem fer til
reykingar þar.
Þá gengur einnig vel að selja
karfann, en verðið er svona rétt í
meðallagi vegna þess hve veikt jen-
ið er um þessar mundir. Loks eru
þokkalegar söluhorfur í síldinni
enda tiltölulegar litlar birgðir af
stórum flökum.
Það má því segja að þetta gangi
allt vel nema í ýsunni,“ segir Gústaf
Baldvinsson.
Morgunblaðið/Árni Hallgríms
Mikil spurn er eftir grálúðu vegna
lítillar veiði.
Gengur vel að
selja fiskinn
Mikil spurn eftir grálúðu vegna slakrar veiði
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2003 13
Suðurlandsbraut 20 - 108 Reykjavík
Sími 588 0200 - www.eirvik.is
gæði - ending - ánægja
Þegar kemur að matargerð sætta Ítalir
sig aðeins við það besta. Í meira en
heila öld hefur Ballarini framleitt potta
og pönnur í hæsta gæðaflokki fyrir
kröfuharða matgæðinga.
Ballarini kynnir nú nýja kynslóð
eldhúsáhalda, Titanio, sem byggir
á langri reynslu og rannsóknum.
• Fullkomin framleiðsluaðferð
• Viðloðunarfrí títaníumhúð
• Má nota málmáhöld
• Flagnar ekki af
• Endist og endist
Ný kynslóð
í eldhúsinu
D
ix
ill
/R
ey
kv
ís
k
ú
tg
áf
a
Tilvalin
brúðar
gjöf
1.Tillaga um að breyta nafni félagsins.
2.Tillaga um breytingu á grein 2.01.2
í samþykktum félagsins þess efnis að
heimild vegna útgáfu kaupréttarsamninga
verði hækkuð um kr. 50.000.000.
3.Kosning meðstjórnanda í stjórn
félagsins.
4.Önnur mál
Dagskrá og fundargögn eru hluthöfum til
sýnis á skrifstofu félagsins, Síðumúla 28
Reykjavík. Dagskrá og fundargögn ásamt
aðgöngumiðum og atkvæðaseðlum verða
einnig afhent á fundarstað.
Stjórn Íslandssíma hf.
Hluthafafundur Íslandssíma hf.
Íslandssími hf. boðar hér með til hluthafafundar sem
haldinn verður í dag, þriðjudaginn 3. júní 2003, kl. 15:00,
í Skála, 2.hæð, Radisson SAS Saga Hótel við Hagatorg.
Á dagskrá fundarins verða eftirtalin mál:
UM áratugaskeið hefur sá háttur
verið viðhafður á sjómannadeg-
inum að heiðra sjómenn fyrir
störf þeirra á sjónum og að fram-
gangi félags- og réttindamála
stéttarinnar. Í ár voru sex sjó-
menn heiðraðir í Reykjavík.
Ársæll Þorsteinsson bryti hóf
sjómennsku 17 ára gamall og var
á ýmsum fiskiskipum. Frá 1951
var hann matsveinn á togurum
og farskipum. Hann lauk prófi
frá Matsveina- og veitingaþjóna-
skóla Íslands 1963 og var bryti
hjá Eimskipafélaginu til 1972. Ár-
sæll var í stjórn Matsveinafélags-
ins 1964–1967 og í stjórn Félags
bryta 1968–1970.
Hafsteinn Sigurðsson sjó-
maður, sem hefur verið til sjós í
rúmlega fimmtíu ár, hóf sjó-
mennsku 13 ára gamall og var á
bátum og togurum til 1963 að
hann réð sig bátsmann á skipum
Sambandsins. Frá 1966 var hann
vélamaður á skipum Eimskipa-
félagsins.
Helgi Hallvarðsson skipherra
hóf sjómennsku 15 ára gamall á
varðbátnum Óðni. Hann lauk far-
mannaprófi frá Stýrimannaskól-
anum í Reykjavík 1954 og prófi
frá varðskipadeild Stýrimanna-
skólans 1962. Helgi var stýrimað-
ur á öllum varðskipum og flug-
vélum Landhelgisgæslunnar
1954–1963. Skipherra var hann á
öllum varðskipum, flugvélum og í
stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
1964–1990. Helgi tók þátt í
þorskastríðunum þremur. Hann
starfaði í hartnær fimmtíu og tvö
ár hjá Gæslunni. Helgi hefur
hlotið fjölda viðurkenninga fyrir
störf sín, m.a. frá bandarísku
strandgæslunni og danska sjó-
hernum.
Karl Levi Jóhannesson vél-
stjóri hóf að sækja sjóinn ferm-
ingarárið sitt, 1933, á opinni
trillu frá Tálknafirði. Hann var
m.a. kyndari á norskum hval-
bátum sem gerðir voru út frá
Tálknafirði á sumrin. Karl Levi
var háseti á togurum þar til hann
lauk mótorvélstjóraprófi 1940 að
hann varð vélstjóri á ýmsum
fiskiskipum. Hann var vélstjóri á
hvalbátum Hvals hf. í tvær ver-
tíðir. Karl Levi tók þátt í hinni
frægu björgun árið 1947 sem
gjarnan er nefnd björgunar-
afrekið við Látrabjarg þegar tólf
breskum sjómönnum var bjargað
úr togaranum Dhoon við erfiðar
aðstæður.
Tómas Sæmundsson skip-
stjóri hóf sinn sjómannsferil frá
Eyrarbakka 14 ára gamall. Hann
lauk hinu meira fiskimannaprófi
frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík 1957 og var eftir það
stýrimaður og skipstjóri. Árið
1964 eignaðist Tómas sinn fyrsta
bát, Hafnarberg RE 404, og var
skipstjóri á bátum með því nafni
fram til 2001 að hann hætti sjó-
mennsku en sinnir nú útgerðinni
í landi.
Tryggvi Marteinsson mat-
sveinn hóf sjómennsku 13 ára á
færeyskri skútu á handfærum við
Ísland en Tryggvi fæddist í Fær-
eyjum. Árið 1958 lauk Tryggvi
prófi frá Sjókokkaskólanum í
Kaupmannahöfn og varð að því
loknu matsveinn á ms. Gullfossi.
Síðustu árin var Tryggvi mat-
sveinn á skipum Granda, allt til
2002 að hann lét af sjómennsku
eftir 35 ár.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Sex sjómenn voru heiðraðir á sjómannadaginn í Reykjavík. Það voru Ársæll Þorsteinsson, Hafsteinn Sigurðsson,
Helgi Hallvarðsson, Karl Leví Jóhannesson, Tómas Sæmundsson og Tryggvi Marteinsson.
Sjómenn heiðraðir í Reykjavík
Clearwater
kaupir afla-
heimildir
GENGIÐ hefur verið frá kaup-
um Clearwater Seafoods á afla-
heimildum á hörpuskel og ýms-
um botnfisktegundum af
sjávarútvegsfyrirtækinu High
Liner Foods. Stjórnendur Cle-
arwater segja að þessi kaup
muni auka tekjur félagsins
strax á þessu ári.
Alls voru greiddar 65 millj-
ónir kanadískra dollara fyrir
aflaheimildirnar, eða um 3,4
milljarðar króna.
Clearwater hefur ekki þörf á
því að nýta sér allar þær heim-
ildir sem fengnar voru frá High
Liner. Þess vegna hefur Cle-
arwater þegar selt heimildir að
andvirði um 690 milljónir króna
til óskyldra aðila.