Morgunblaðið - 24.06.2003, Síða 42
Morgunblaðið/Jim Smart
Hin færeyska Eivör Pálsdóttir mun
leika með hljómsveitinni Þeim
þremur í kvöld.
SÍMANUM er svarað og í bak-
grunni heyrist leikið á hljóðfæri.
Karlmaður svarar og segir að Eivör
komi í símann rétt strax. Áður en
hljóðfærin þagna er Eivör komin í
símann og syngur: „Hver er þa-a-
að?“
Það er í anda Eivarar Pálsdóttur,
enda sísyngjandi. Þessi færeyski
söngfugl hefur búið á Íslandi í hálft
annað ár og spilað fyrir landsmenn
við ýmis tækifæri – tók jafnvel þátt
í forkeppni Evróvisjón. Í kvöld mun
hún halda tónleika með bandi sínu,
Þeim þremur, á Kaffileikhúsinu en
Þeir þrír eru Pétur Grétarsson, Eð-
varð Lárusson og Birgir Bragason.
Eivör kynntist þeim fljótlega eft-
ir að hún fluttist til Íslands: „Mig
langaði að búa til tónlist og hafa
einhvern til að spila með mér. Ég
hringdi bara í Pétur því ég hafði
heyrt mikið um hann. Við kynnt-
umst og hann þekkti Eðvarð og
Birgi svo við bjuggum bara til
band,“ segir Eivör og bætir við að
allt hafi gengið vel og hún sé ánægð
með afraksturinn.
Þau hafa spilað hér og þar og eru
að undirbúa upptökur á plötu en
ætlunin er að taka hana upp í Nor-
egi og hefjast upptökur seinna í
mánuðinum.
Eivör hefur ekki setið auðum
höndum undanfarið og hélt síðast
tónleika í Svíþjóð, Færeyjum og á
djasshátíð í Bandaríkjunum.
Eivör segir lögin á nýju plötunni
verða í anda þess sem þau hafa ver-
ið að gera á tónleikum undanfarið:
„Þetta eru lög og textar eftir mig í
hálfgerðum þjóðlagaanda. Það er
erfitt að útskýra það nánar því
þetta er með öðrum áherslum, allt
frá djassi til rokks.“
Textarnir eru á færeysku. „Það
tók mig nokkurn tíma að taka loka-
ákvörðun um það. Ég ætlaði upp-
haflega að þýða allt á íslensku en
sýndist það vera flottara að syngja
á mínu eigin móðurmáli. Ég held
líka að Íslendingar skilji færeysk-
una ágætlega,“ segir hún.
„Fólk heldur alltaf að maður
þurfi að syngja á ensku, en það er
bara ekki rétt,“ heldur hún áfram
og bendir á að hún hafi sungið við
góðar undirtektir á færeyskri tón-
listarhátíð sem haldin var í Banda-
ríkjunum á dögunum.
Eivör skellihlær þegar blaðamað-
ur ýjar að því við hana að Íslend-
ingar séu farnir að eigna sér hana
en hún segir vel mögulegt að hún
muni ílengjast hérna: „Mér líður af-
skaplega vel hér og ætla að vera á
Íslandi í einhvern tíma í viðbót.“
Framundan er þéttskipað sumar,
tónleikar hér og þar um landið, og
jafnvel fyrir utan landsteinana:
„Við erum að spila á nokkrum há-
tíðum og viðburðum, á Íslandi og í
Færeyjum líka, jafnvel víðar um
Norðurlöndin.“
Eivör Pálsdóttir heldur tónleika með Þeim
Hitað upp fyrir
nýja plötu
Í kvöld má heyra Eivöru spila með
Þeim þremur í Kaffileikhúsinu og
hefjast tónleikarnir kl. 21.00.
þremur á Kaffileikhúsinu í kvöld
42 ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fyndnasta
myndin sem
þú sérð á árinu!
2 vik
ur
á top
pnum
í USA
!
Sýnd kl. 10. B.i. 12. Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
HK DV
X-97,7
HJ MBL
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
Ef þú hélst að þú værir
heimskur, þá hefurðu ekki
hitt Harry og Lloyd.
Þeir eru komnir aftur,
heimskari en nokkru sinni
fyrr í geggjaðri grínmynd!
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára Sýnd kl. 10.15. B.i. 12
2 vik
ur
á to
ppnu
m
í US
A!
Fyndnasta myndin
sem þú sérð á árinu!
Losaðu þig við reiðina
og hlæðu þig máttlausan!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 6 og 8.30.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 3.40, 5.50 og 8.
Ef þú hélst að þú værir heimskur, þá hefurðu ekki hitt
Harry og Lloyd. Þeir eru komnir aftur,
heimskari en nokkru sinni fyrr í
geggjaðri grínmynd!
HJ MBL
SV DV
X-ið 977
Kvikmyndir.com
kl. 4. Ísl. tal. 500 kr.
FORSÝN. ÞRI. 24/6 miðav. 1.500 ÖRFÁ SÆTI
FORSÝN. MIÐ. 25/6 miðav. 1.500 UPPSELT
FRUMSÝN. FIM. 26/6 - KL. 20.00 UPPSELT
2. LAU. 28/6 - KL. 15.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
3. SUN. 29/6 - KL. 17.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
4. FIM. 3/7 - KL. 20.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
5. FÖS. 4/7 - KL. 20.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
6. SUN. 6/7 - KL. 17.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
ALLT er nú reynt í henni Holly-
wood og verður tilraun nokkurra
óskyldra aðila til að búa til framhald
við hina vinsælu gamanmynd Far-
relly-bræðra, Dumb and Dumber
eða Heimskur, heimskari, að teljast
einstaklega upplitsdjörf. Í framhald-
inu, Heimskur, heimskarari: Þegar
Harry hitti Lloyd, koma uppruna-
legir leikarar, leikstjórar og hand-
ritshöfundar nefnilega hvergi nærri.
Þar er horfið aftur í tímann og stað-
an tekin á hinum vitgrönnu söguper-
sónum Farrelly-bræðra, þeim Harry
Dunne og Lloyd Christmas, þegar
þeir eru viðkvæmar unglingssálir og
rétt að hefja nám í gaggó. Í stað
þeirra Jim Carrey og Jeff Daniels
eru nú komnir tveir óþekktir leik-
arar, þeir Eric Christian Olsen og
Derek Richardson, í hlutverk hinna
barnungu Lloyd og Harry og eru
þeir svo áþekkir upprunalegu per-
sónunum að rýna þarf vel í kynning-
arveggspjald myndarinnar til að sjá
muninn.
Með framhaldinu er hins vegar
verið að eiga við viðkvæma helgi-
mynd í hugum margra, því þeir sem
eru hrifnir af Heimskur, heimskari á
annað borð, eru flestir harðir aðdá-
endur og eflaust strangir á saman-
burðinum við forverana. En þrátt
fyrir allt tekst leikstjóranum Troy
Miller og handritshöfundinum ágæt-
lega til með endursköpun þeirra
Harrys og Lloyds sem Carrey og
Daniels túlkuðu svo eftirminnilega
um árið. Skemmtilegasti eiginleiki
þessara persóna var hin barnslega
og glaðbeitta heimska þeirra sem
var svo augljós í allra augum nema
þeirra sjálfra. Þessi eiginleiki kemur
skýrt fram í unglingunum Harry og
Lloyd og skera þeir sig fyrir vikið
mjög úr hópi jafnaldra sinna, sem
jafnan eru þjakaðir af útlitsáhyggj-
um, félagslegum þrýstingi og al-
mennum ónotum með sjálfsmynd
sína. Leikstjóri og handritshöfundur
Heimskur, heimskarari spila dálítið
skemmtilega með þessar ímyndir
framan af í myndinni, þar sem fylgst
er með því þegar Harry og Lloyd
finna í hvor öðrum hinn fullkomna
félaga, og fremja glaðir í bragði ýmis
heimskupör saman.
En í heild sinni hefur kvikmyndin
litlu við upprunalegu gamanmyndina
að bæta, og er sögufléttan sem
spunnin er í kringum bernskubrek
þeirra félaga rýr og óáhugaverð. Og
þar fer áreynsla leikaranna ungu,
Olsens og Richardson, fyrir lítið en
þeim tekst á aðdáunarverðan hátt að
líkja eftir háttum þeirra Jims Carrey
og Jeff Daniels sem vakti svo mikla
lukku í Heimskur, heimskari.
Sælir og einfaldir
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó, Smárabíó, Regn-
boginn og Borgarbíó á Akureyri
Leikstjórn: Troy Miller. Handrit: Robert
Brener, Troy Miller. Aðalhlutverk: Eric
Christian Olsen, Derek Richardson, Eug-
ene Levy, Rachel Nichols og Mimi Rog-
ers. Lengd: 82 mín. Bandaríkin. New Line
Cinema, 2003.
Dumb and Dumberer: When Harry Met
Lloyd. / Heimskur, heimskarari: Þegar
Harry hitti Lloyd
Heiða Jóhannsdóttir
Óþarfa áreynsla: Eric Christian Ol-
sen er sannarlega nauðalíkur fyr-
irmyndinni Carrey.
SAGT er að tískan fari í hringi. Það
sést best á keppni sem haldin verður
í kvöld á skemmtistaðnum Sirkus
við Klapparstíg en þar er von á hátt
í 30 ungum mönnum sem keppast
munu um hverjum hefur vaxið feg-
ursta yfirvararskeggið. Að sjálf-
sögðu er keppnin kennd við Tom
Selleck sem ærði marga snótina og
halinn á árum áður, ekki hvað síst
vegna þykkrar, svartrar, karlmann-
legrar og seiðandi mottunnar.
Það er Stephan Stephansen, oft
titlaður President Bongo og kennd-
ur við hljómsveitina Gus Gus, sem
er í forsvari fyrir keppnina: „Þetta
er tileinkað Tom Selleck að nafninu
til, en þó ekki keppni um hver líkist
honum mest heldur hvernig hver og
einn keppenda ber sína mottu – hve
stoltið nær að skína bjart.“
Keppnisreglur eru að öðru leyti
fáar. Þó fá menn 20 stig aukalega ef
yfirvararskeggið er það vel vaxið að
það hylur efri vörina og eins ef
menn eru með ljósa skeggrót eða
gisna, en sýna samt viðleitni til að
safna mottu, þá fá þeir 20 stig í for-
gjöf.
Svipuð keppni, en mun minni, var
haldin fyrir ári. „Við strákarnir í
Gus Gus erum búnir að vera með
mottu meira og minna síðan hún
byrjaði að vaxa,“ segir Stephan.
„Síðan má segja að neistinn að bál-
inu hafi kviknað þegar Raggi (Ragn-
ar Páll Steinsson), bassaleikari
Botnleðju, fór að sjást með þessa
líka mögnuðu mottu í fyrra. Við
ákváðum þá að halda keppnina,
reyndar aðeins með viku fyrirvara.“
Stephan segir undirbúning hafa
verið öllu meiri fyrir þessa keppni,
og menn jafnvel látið sér vaxa
myndarlegt yfirvararskegg alveg
síðan síðustu keppni lauk. Sjálfur er
hann enginn taðskegglingur: „Ég er
með alveg massífa og hnausþykka 7
mánaða gamla mottu.“
Grönina segir Stephan góða og
reynast vel: „Manni er alltaf trúað
miklu betur þegar maður er með
mottu. Ef þú heldur alvarleikanum í
andliti þá færðu extra sannfæring-
arkraft með mottunni.“ Sömuleiðis
segir Stephan að mottan dragi ekki
úr kynhylli heldur séu ansi margir
sem finnist til skeggsins koma.
Skeggið kitlar heldur ekki: „Það
kvartar enginn, enda er mottan mín
orðin svo mjúk – komin einhvers
konar silkiáferð á hana – og hún er
orðin síð og hefur veðrast öll og
mýkst upp.“ Hann segir einnig ekki
mikinn vanda að rækta gott yfirvar-
arskegg, en verst sé þó biðin eftir
því að mumpurinn nái þeirri lögun
sem sóst er eftir en sú bið getur oft
reynt á þolinmæðina.
Keppnin í kvöld snýst þó sem fyrr
segir ekki jafn mikið um þykkt og
lengd og hún snýst um hvernig hver
og einn ber sinn kamp, hve vel
skeggið samsvarar eigandanum og
persónuleika hans.
Keppni kennd við Tom Selleck um snotrasta yfirvararskeggið í kvöld
Upprisa
yfirvarar-
skeggsins
ÓMÓTSTÆÐILEGAR MOTTUR: Tom
Selleck þegar hann var upp á sitt besta og
Buckmaster, einn af stofnendum Tom
Selleck- keppninnar.
Tom Selleck-keppnin um besta yf-
irvararskeggið verður haldin á Sirk-
us í kvöld, þriðjudagskvöld, og hefst
kvöldið kl. 21.00.