Morgunblaðið - 26.10.2003, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 26.10.2003, Blaðsíða 47
AUÐLESIÐ EFNI MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 47 STÖÐUGILDUM hjá sveitarfélögum fjölgaði um 900 á árunum 2000 til 2002 og á sama tíma fjölgaði ársverkum hjá ríkinu um 400, samvæmt upplýsingum Verslunarráðs Íslands. Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri Verslunarráðsins, segir að á árunum 2000–2002 hafi opinberum starfsmönnum fjölgað mjög mikið auk þess sem laun þeirra hafi hækkað tölvuvert umfram laun á almenna markaðnum. „Fjölgun starfsmanna hjá sveitarfélögum er m.a. komin til vegna aukinna krafna og lagasetninga er snerta sveitarfélagareksturinn. Hættan við flutning verkefna frá ríki til sveitarfélaga er sú að sambandsleysi verði á milli þeirra sem taka ákvarðanir um ný útgjöld og þeirra sem þurfa að standa straum af kostnaðinum. Sambandsleysið þýðir að Alþingi verður enn áfjáðara í að setja fram kröfur um aukna þjónustu þar sem „ríkið“ þarf ekki að borga brúsann,“ segir Þór m.a. í grein á heimasíðu Verslunaráðs. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að á þessari fjölgun séu eðlilegar skýringar. „Sú fjölgun skýrist nær alfarið af fjölgun starfsmanna við kennslu- og uppeldisstörf á leik- og grunnskólum en á þessu sviði hafa sveitarfélögin sýnt mikinn metnað. Á þessu tímabili fjölgaði nemendum í grunnskólum um tæplega 1.100 og í leikskólum um rúmlega 1.700 og á sama tíma hafa sveitarfélögin verið að efla og bæta sína þjónustu á þessu sviði. Ennfremur má nefna að ýmis ný lög og reglugerðir hafa leitt til fjölgunar starfsmanna sveitarfélaga.“ Starfsmönnum sveitarfélaga fjölgar Morgunblaðið/Ásdís Frá Tröllaborg við leikskólann Hvamm í Hafnarfirði. FIMMTÁN þúsund eintök verða prentuð í fyrstu atrennu af nýjustu bókinni um galdrakarlinn Harry Potter sem kemur út á íslensku 1. nóvember næstkomandi. Snæbjörn Arngrímsson hjá bókaforlaginu Bjarti, sem gefur Harry Potter út hér á landi, segir að upplagið slái öll met. „Við prentum 15 þúsund eintök í fyrstu prentun og ég veit ekki til þess að jafnmikið magn hafi áður verið prentað af bók hér á landi, fyrir utan bækur eins og símaskrána og slíkt,“ segir Snæbjörn. Reuters Bækurnar um Harry Potter njóta mikilla vinsælda víða um heim. Harry Potter slær öll met CONCORDE-þotan hljóðfráafór í sitt hinsta farþegaflug á föstudag en hún flaug þá frá New York í Bandaríkjunum til London í Bretlandi. Eitt hundrað gestir voru um borð – allt boðsgestir eða fólk sem mikið hefur flogið með Concorde-vélunum. British Airways og Air France voru einu flugfélögin sem notuðu Concorde en 27 ár eru liðin síðan þotan fór í sitt fyrsta flug. Concorde var álitin á meðal mestu tækniafrekanna á öldinni sem leið en hún var fyrsta og eina hljóðfráa þotan í heiminum. Air France lagði öllum sínum vélum í maí og á föstudag gerði British Airways hið sama. Ástæða þess að Concorde hefur nú farið í sitt hinsta farþegaflug er erfiður rekstrargrundvöllur. Rekstur þeirra hefur aldrei skilað hagnaði vegna mikils eldsneytiskostnaðar og hefur reksturinn síðan verið sérstaklega erfiður eftir flugslysið í París 25. júlí árið 2000. Þá létu 113 manns lífið þegar Concorde-þota hrapaði skömmu eftir flugtak. Samdráttur í farþegaflugi undanfarin ár hefur einnig haft áhrif. Concorde-þotan kveður Reuters 27 ára farþegaflugi Concorde-þotnanna lauk á föstudag. ÍSLENSK kona hefur umsjón með förðun í nýjustu mynd hins þekkta leikstjóra Quentins Tarantinos. Heba Þórisdóttir er förðunarmeistari í Bana Billa (Kill Bill), sem fékk fjórar stjörnur af fjórum í Morgunblaðinu. Tarantino hefur líka gert myndina Reyfara (Pulp Fiction) og þykir hann áhrifamikill í kvikmyndaheiminum. Heba segir að Tarantino sé hæfileikaríkur og gaman sé að vinna með honum. Hún segir að hann nái vel til samstarfsfólks síns og hlusti þegar aðrir komi með hugmyndir. Heba er núna að vinna í væntanlegri mynd leikstjórans Wes Andersons. Þar sér hún um förðun fyrir hina þekktu leikkonu Cate Blanchett. Íslensk kona í Bana Billa Uma Thurman leikur aðalhlutverkið í Bana Billa. Netfang: auefni@mbl.is MANCHESTER United vann skosku meistarana í Glasgow Rangers þegar liðin mættust í Meistaradeild Evrópu í vikunni. Talað var um leikinn sem „orrustuna um Bretland“ og skoraði Phil Neville eina mark leiksins og tryggði ensku meisturunum sigur og þrjú dýrmæt stig. Liðið er með sex stig eftir þrjá leiki í E-riðli eins og Stuttgart sem vann Panathinaikos frá Grikklandi 2:0. Allt gengur hins vegar á afturfótunum hjá Arsenal sem hefur ekki unnið leik í B-riðlinum, tapaði 2:1 fyrir Dynamo Kiev, sem er með 6 stig eins og Inter í efstu sætum riðilsins. Eiður Smári Guðjohnsen og félagar í Chelsea unnu góðan 2:1 sigur á Lazio og eru í efsta sæti G-riðils með sex stig. Juventus og Real Madrid eru einu liðin sem ekki hafa tapað stigi í Meistaradeildinni þegar þrjár umferðir eru búnar. Juventus er með 9 stig í D-riðli og markatöluna 8:4 og í F-riðli hefur Real níu stig og markatöluna 8:3. United hafði betur í „orrustunni um Bretland“ Reuters Philip Neville fagnar marki sínu gegn Glasgow Rangers í Meistarakeppninni á miðvikudag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.