Morgunblaðið - 26.10.2003, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 26.10.2003, Blaðsíða 52
ÞAÐ HEFUR komið fram víðaað Barði Jóhannsson í BangGang vann á árinu plötu meðsöngkonunni Keren Ann, en hitt vita eflaust færri hver þessi Ker- en Ann er, en hún er með forvitnileg- ustu tónlistarmönnum Frakklands nú um stundir, vinsæl vel og virt fyr- ir plötur sínar og lagasmíðar. Í lið- inni viku kom út diskurinn Not Going Anywhere sem Skífan dreifir hér á landi og gefur gott færi á að kynnast tónlist Keren Ann. Fjölþjóðlegur uppruni Segja má að uppruni Keren Ann Zeidel sé fjölþjóðlegur því móðir hennar er hollensk-indónesísk, alin upp í París, og faðir hennar rúss- neskur gyðingur. Hún fæddist í borginni Césarée í Ísrael en bjó í Hollandi til ellefu ára aldurs, þegar fjölskyldan fluttist til Frakklands og upp frá því hefur Keren Ann búið í París. Hún hefur lýst uppvexti sínum svo að hún hafi alist upp við fjölþjóðlega tónlist, en aðallega þó þjóðlega jidd- íska tónlist og franskan vísnasöng. Í viðtali við aðdáendavefsetur fyrir skemmstu segist hún hafa alist upp við Cat Stevens og Bítlana frá eldri systkinum, en móðir hennar hafi haft dálæti á Francoise Hardy og Joe Dassin. Með tímanum komu svo Car- ole King og Joni Mitchell og hún seg- ir að þar hafi verið komnir tónlist- armenn sem hún vildi líkjast, hermdi eftir sem barn, meðal annars vegna þess að þær sungu á ensku, en hún lærði ekki frönsku fyrr en fjöl- skyldan fluttist til Frakklands. Gítar, munnharpa og klarinett Keren Ann byrjaði að semja lög á táningsaldri, leikur á gítar, faðir hennar gaf henni gítar þegar hún var níu ára, munnhörpu og klarinett, en lét sér nægja að hafa tónlist sem áhugamál, stundaði háskólanám af kappi, tölvufræði, heimspeki og sál- fræði og tók að auki námskeið í haf- fræði í San Diego. Meðfram náminu hélt hún áfram að semja lög og smám saman náði tónlistin yfirhöndinni. Hún segir reyndar að það hafi alltaf verið tog- streita á milli ólíkra listgreina, hún hafði mikinn áhuga á ljósmyndun, teiknaði og dreymdi um að verða rit- höfundur. „Tónlistin sameinaði þetta að vissu leyti, enda gat ég þá samið lag og texta, eitthvað sem hafði upp- haf og endi.“ 1998, þegar Keren Ann var 24 ára gömul, ákvað hún að snúa sér alfarið að músíkinni og stofnaði hljómsveit- ina Shelby með tveimur vinkonum sínum. Sú sveit hljóðritaði eina breið- skífu, I+I+I, sem seldist þokkalega en áður en lengra varð haldið kynnt- ist Keren Ann hljóðfæraleikaranum Fjölþjóðlegur Frakki Keren Ann Zeidel þekkja menn hér á landi fyrir samstarf hennar við Barða í Bang Gang en fyrir Frökkum er hún frábær og forvitnilegur tónlist- armaður. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson 52 SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ KRINGLAN Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. KEFLAVÍK Sýnd kl. 10.15. B.i. 12 SG DV Empire Kvikmyndir.is SV MBL KRINGLAN Sýnd kl. 4 og 6. KRINGLAN Sýnd kl. 8 og 10. Með hinum hressa Seann William Scott úr “American Pie” myndunum og harðjaxlinum The Rock úr “Mummy Returns” og “The Scorpion King.” Beint á toppin n í USA Ævintýraleg spenna, grín og hasar Frumsýning ROGER EBERT SG DV Empire Kvikmyndir.is SV MBL SG DV HJ MBL Sýnd kl. 4.Sýnd kl. 3.30. Stórstjörnurnar George Clooney og Catherine Zeta-Jones fara á kostum í myndinni. Nýjasta mynd Coen bræðra. Frábær rómantísk gamanmynd sem bragð er að. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Sýnd kl. 10. B.i. 16. Sýnd kl. 6. B.i. 14. 6 Edduverðlaunl  SG DV Empire Kvikmyndir.is SV MBL “Fyndnasta barátta kynjanna á tjaldinu um langa hríð.” ATH!AUKASÝNINGKL. 9.05 Sýnd kl. 4, 6 og 8. Sýnd kl. 3.30, 6, 8 og 10.30. Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8, 9.05 og 10.15. SV MBL Tvímælalaust ein albesta mynd ársins sem slegið hefur rækilega í gegn í USA Stórmynd sem engin má missa af.  "Skotheldur leikur og frábært handrit." HP KVIKMYNDIR.COM SV MBL HK.DVKVIKMYNDIR.IS SG MBL SG DV AÐDÁENDUR metsölubókanna um galdrastrákinn Harry Potter eiga þess nú kost að koma fram í nýjustu kvikmyndinni um ævintýri hans og vina hans. Myndin heitir Harry Potter og eldbikarinn og er sú fjórða í röðinni í sögunni um hinn vinsæla töfrastrák. Höfundur bókanna, J.K. Rowling, býður til hátíðar- góðgerðarsamkomu þar sem tvö lítil hlutverk verða boð- in upp. Tilefni uppboðsins er söfnun fyrir mænusigg- sjúklinga, en Rowling missti móður sína úr sjúkdómnum fyrir 13 árum. „Það að geta barist fyrir mænusiggsjúk- linga er það mikilvægasta sem frægðin hefur fært mér,“ segir Rowling. „Ef aðeins einn sjúklingur sleppur við að ganga í gegnum það sem mamma mín gekk í gegnum þá er ég alsæl.“ Framleiðandi myndanna, David Heyman, hefur skilið eftir op í handritinu fyrir tvær aukapersónur. Góðgerðarsamkoman verður haldin í nóvember í þjóð- minjasafni Skotlands en tökur myndarinnar munu lík- lega hefjast í apríl á næsta ári. J.K. Rowling í herferð gegn mænusiggi Uppboð á hlut- verkum í Harry Potter-myndinni Allir vilja í Potter leika. Reuters
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.