Morgunblaðið - 04.12.2003, Blaðsíða 21
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2003 21
FYRSTA tölublaðið af nýju tímariti
kemur út á Akureyri í dag. Það hef-
ur fengið nafnið „Við“ og mun
koma út mánaðarlega. Ásprent-
Stíll hf. gefur tímaritið út en rit-
stjóri og textahöfundur er Guðný
Jóhannesdóttir. „Þetta er alfarið
mín hugmynd, sem ég fór með til
forsvarsmanna í Ásprent-Stíl. Þeim
leist vel á hugmyndina og því var
ákveðið að ráðast í útgáfuna, enda
er skortur á prentmiðlum á lands-
byggðinni,“ sagði Guðný í samtali
við Morgunblaðið.
Hún sagði að tímaritið spannaði
alla tímaritaflóruna. „Við erum
með viðtöl, matarumfjöllun, innlit,
kíkjum út á lífið og svo er blaðauki
fyrir strákana, umfjöllun um
stangaveiði, myndir af fallegum
norðlenskum stelpum og leikfang
mánaðarins, svo eitthvað sé nefnt.“
Guðný sagði að efnistökin væru
fyrst og fremst af Norður- og Aust-
urlandi en blaðið verður selt víða
um land og eingöngu í lausasölu
fyrst um sinn.
Aðalviðtölin í
þessu fyrsta tölu-
blaði eru annar
vegar við Guð-
brand Sigurðs-
son, fram-
kvæmdastjóra
Brims, og hins
vegar Díönnu
Ómel frá Greni-
vík, „konuna sem
enn er strákur“ eins og Guðný orð-
aði það. Fyrsta tölublaðið er 64 síð-
ur, prentað á vandaðan pappír og
með fjölmörgum litmyndum, sem
flestar eru eftir Finnboga Marinós-
son ljósmyndara, auk þess sem
Guðný var sjálf á ferðinni með
myndavélina.
Guðný sagði að bæði auglýsendur
og aðrir hefðu tekið þessari hug-
mynd vel „og það hefur aldrei verið
jafn auðvelt að fá viðmælendur,“
sagði Guðný, sem áður skrifaði
greinar í hin ýmsu tímarit Fróða.
Nýtt tímarit kemur
út á Akureyri
Guðný
Jóhannesdóttir
UMFANGSMIKLAR endurbætur
eru hafnar á lögreglustöðinni við
Þórunnarstræti. Töluvert rask verð-
ur á starfsemi lögreglunnar á næstu
mánuðum en að sögn Daníels Guð-
jónssonar yfirlögregluþjóns verður
allri þjónustu sinnt eftir sem áður og
hann vonast til að viðskiptavinir lög-
reglunnar verði fyrir sem minnstum
óþægindum.
Vegna framkvæmdanna hefur
rannsóknardeild lögreglunnar flutt
sig um set, í húsnæði sýslumannsins
við Hafnarstræti. Þá mun almenna
deildin flytjast í sumarhús sem kom-
ið verður fyrir á bílastæðinu við Þór-
unnarstræti eftir áramót. Daníel
sagði að húsnæðið hefði verið hann-
að alveg upp á nýtt, því yrði það
gamla rifið í burtu og allt endurnýj-
að innanhúss. Hann sagði húsnæði
lögreglunnar alveg nógu stórt í fer-
metrum en með nýrri hönnun og
skipulagi nýttist það enn betur. Ekki
verður ráðist í endurbætur á fang-
elsinu, aðeins á fangelsisgarðinum.
Daníel sagði ekki yrði rask á þeirri
starfsemi en þó væri viðbúið að
menn ættu eftir að verða varir við
hávaða og læti vegna framkvæmda.
Fyrirtækið Hagleiksmenn á
Akureyri vinnur að endurbótum lög-
reglustöðvarinnar en fyrirtækið átti
lægsta tilboðið í útboði. Sex tilboð
bárust, öll yfir kostnaðaráætlun,
sem hljóðaði upp á tæpar 70 millj-
ónir. Hagleiksmenn buðust til að
vinna verkið fyrir tæpar 74 milljónir.
Verklok eru áætluð í nóvember á
næsta ári.
Þá hefur verið ákveðið að setja
upp varastjórnstöð fyrir 112, Neyð-
arlínuna, á lögreglustöðinni á Akur-
eyri. Það þýðir að ef eitthvað kemur
upp á hjá Neyðarlínunni við Skógar-
hlíð í Reykjavík, hún teppist eða
dettur út, eins og Daníel orðaði það,
verður hægt að afgreiða neyðar-
símtöl frá Akureyri. Hann sagði að
lögreglu- og slökkviliðsmenn yrðu
þjálfaðir til verksins.
Umfangsmiklar endurbætur hafnar á lögreglustöðinni
Morgunblaðið/Kristján
Vegna breytinganna á lögreglustöðinni hafa börnin á leikskólanum Klöppum tekið Lúlla löggubangsa í fóstur í vet-
ur þar sem hann er mjög viðkvæmur fyrir ryki. Börnin sóttu Lúlla á snjóþotu og drógu hann heim á leikskóla.
Almenna deildin flyst í
sumarhús á bílastæðinu
Tré- og álrimlagardínur
Sólvarnargardínur
Felligardínur
Flekar
Strimlar
NÝTT
Bambusgardínur
NÝTT
Tauvængir og efni
Smíðum og
saumum eftir máli
Stuttur
afgreiðslutími
Pílutjöld ehf.
Faxafeni12,
108 Reykjavík
s. 553 0095,
www.pilu.is