Vísir - 26.03.1981, Blaðsíða 21

Vísir - 26.03.1981, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 26. mars 1981 VlSIR 21 urn skcílum snéri ég mér að fullu að leiklistinni og starfaði i átta ársem leikkona i ameriskum leikhúsum, sjónvarpi og kvik- myndum, lék meðal annars i Hester Street, sem mér skilst að hafi verið sýnd hér i islenska sjónvarpinu um jólin. Fyrir fimm árum snéri ég mér svo alfarið að söngnum en til að geta gert það, varð ég að flytjast frá New York, þar sem alltaf var verið að kvabba i mér að taka að mér hlutverk i hinum og þessum leikritum og kvikmyndum. Ég stundaði söngnám hjá mörgum þekktum kennurum, eins og Ascencion Capella á Spáni, Carolina Segrera i New York og Maestro Ettore Campo- galliani á Italiu. Mina fyrstu tón- leika hélt ég svo i Carnegie Hall i New York i águst ’79, en það má segja, að nú fyrst sé ég orðin at- vinnusöngkona.” — Hvað er framundan hjá þér? ,,Ég held tónleika i Gamla biói i kvöld, siðan ætlum við Kristján að koma hingað aftur i mai og halda þá tónleika saman. 1 sumar er svo ætlunin að halda i tónleika- för til Sovétrikjanna og með haustinu mun ég „debutera” i óperum eins og Cog d’or eftir Rimsky Korsakov I Venice leik- húsinu I Feneyjum og Hamlet eft- ir Ambrosie Thomas i Filarmonic leikhúsinu i Verona.” — Hvað ætlar þú að flytja á tó- leikunum i kvöld? ,,Ég ætla að syngja nokkur klassisk verk eftir meðal annarra Mozart og Ambroise Thomas, franska ariuog aðra spánska. Þá ætla ég að syngja nokkur itölsk þjóðlög og svo islensk lög, Ég held nefnilega aldrei tónleika, nema syngja eitthvað á móðurmáli þeirra, sem ég er að syngja fyrir hverju sinni.” — Att þú einhver uppáhalds verk? ,,Já, mér eru sérstaklega hug- leikin verkin Hamlet og Ofelia, svo og Titania og Zerbinetta Strauss.” — Nú er þetta fyrsta sinn, sem þú kemur til Islands, hvernig kanntu við land og þjóð? „Mjög vel, sérstaklega finnst mér þið heppin, hvað það er alltaf bjart hérna, og kuldinn finnst mér sosum ekkert tiltökumál, ég hef lent i honum svalari. Mér finnst íslendingar afskaplega elskulegt fólk, og hvarvetna hef ég mætt hlýju, til dæmis söng ég fyrir for- setann ykkar, Vigdisi Finnboga- dóttur, og hún finnst mér sérlega elskuleg kona, þið getið verið stolt af henni,” sagði Dorriet Kavanna. ,,Að fórna öllu fyrir sönginn.” En Kristjan, nú ert þú búinn að vera fjögur ár á ttaliu, hvernig hefur þér vegnað? „Mjög vel, þegar ég fór út kunni ég aðeins tvær ariur eftir Puccini, nú fjórum árum siðar hef ég ellefu óperur á valdi mínu. Nú er ég lika kominn i atvinnu sem óperusöngvari og talinn full- fær að syngja í stærstu leikhúsun- um. Röddin í mér er mjög ung, svo ég ætti að eiga eftir 20—30 ár I söngnum. Annars hef ég ndð þeim árangri á þessum fjórum árum, sem aðrir eru að streða við i tiu, fimmtán ár.” — Hvað ert þú að gera hér heima núna? „Ég er að æfa La Boheme i Þjóðleikhúsinu og hef mjög gam- an af. Þarna starfar frábært starfslið og ég er mjög ánægður með allt og alla þar. Sieglinde Kahmann, sem ég syng með i uppfærslunni er söngkona a heimsmælikvarða, samt er það nú svo, að þá fyrst fyllist andrúmsloftið af list, þegar gömlu kempurnar, eins og Guð- mundur Jónsson og Kristinn Hallsson opna munninn. Það er alveg nauðsynlegt að hafa slika menn með, ekki sist þegar þeir eru eins tryggir manni og vin- veittir og þessir tveir.” Kristján Jóhannsson og Dorriet Kavanna. (Visismynd. EÞS) — En skyldi vera mikill munur á aö vinna að óperuuppfærslu hér á hjara veraldar eða i vöggu óperumenningarinnar á megin- landinu? „0, já, ekki fer hjá þvi, að munurinn er töluverður. Erlendis er það þannig, að leikhúsin undir- búa ekki sjálf uppfærsluna, það gera söngvararnir sjálfir og veröa þá að borga þjálfara og annaö, sem til þarf úr eigin vasa, siöan þegar allir eru búnir að læra sitt, þá stendur leikhúsið fyrir örfáum æfingum. Þvi er það erfitt að slá i gegn nema fórna öllu og hafa nóg af peningum. Hér heima aftur á móti sér leik- húsið fyrir öllu. Þvi er ég sann- færöur um, að ef fólk hér legði harðar að sér, væri hægt að setja upp fleiri óperur, jafnvel tvær, þrjár á ári, og þá þyrftu söngvararnir að hafa nokkur verk klár i vasanum. En hér er erfitt um vik þvi, eins og við vitum, eru söngvararnir yfirleitt bara söngvarar á kvöldin og um helg- ar, vinna önnur störf þess á milli. Til að ná frama og frægð á þessu sviöi þarf maður að geta verið eingöngu i söngnum,” — Att þú þér einhver uppá- haldsverk? „Það sem ég er að vinna að hverju sinni, finnst mér alltaf skemmtilegast’.. — Og hvað er framundan hjá þér? „Viö förum út i næstu viku til að syngja á Italiu, siðan komum við heim i mai og ég syng i La Bo- heme. Og ef Dorriet býður mér með sér til Rússlands þigg ég það auðvitað annars verð ég á tslandi,” og nú hlær Kristján við, „i haust held ég svo áfram að syngja á Italiu, en þar hafa mér verið boðin ýms hlutverk,” sagði Kristján Jóhannsson. Já, likast til hafa þau fundið þann hreina. —KÞ í Bilamarkaður VÍSIS - simi 86611 CHEVROLET TRUCKS GMC Pickup yfir’ ’77 130.000 Daihatsu Charaoc 4d ....’80 63.000 CH. Malibu station 120.000 Ch. Malibu Sedan 105.000 Ch. Chevette s jálfsk 65.000 Austin Mini Clubman 28.000 Datsun 220Cdiesel 60.000 Datsun 180B 56.000 Subaru GL 1600 2d 57.000 Ch. Malibu Landau 89.000 Toyota Carina CL 2d ’80 92.000 Volvo 244 DL 78.000 Opel Record 4d L ’77 49.000 M. Benz 300 5 cyl 120.000 Volga 12.000 Tovota Hiluxe 4x4 ’80 150,000 Ch.Capri Classic 115.000 Ch. Capriclassic '78 125.000 Opel Record 4d L ’77 65.000 Mazda 626 4d. 2000 5 gira 78.000 Volvo 242 L 56.000 Audi 100 LS 65.000 Land Roverdiesel 60.000 Ch. Citation XII 6cyl ’80 135.000 Daihatsu Charmant 64.000 Mazda 121 64.000 Ch. Chevi Van lengri 98.000 Fiat 128special '76 23.000 Mazda 6261600 4d '80 79.000 Saab 99 GL ’ 79 88.000 Audi 100 GL diesel '79 120.000 Audi 100GLS sjálfsk ’78 80.000 Ch. Nova Concors 2d 76.000 Ford Escort '74 19.000 Daihatsu Charmant sfption .... ’79 65.000 Ch. Citation 2d 6 cyl ’80 120.000 Mazda 616 2d 24.000 Ch. Malibu Sedan '79 95.000 Ch. Malibu Sedan ’78 82.000 Austin Mini 32.000 Kord Cortina 1600 25.000 Oldsm. Cutlass diesel ’79 120.000 C. Vega sjálfsk. vökvast 48.000 Pontiac Phönix 85.000 Mazda 626 4d 66.000 Ch. Pickup yfirb '78 160.000 Scoutll V8sjálfsk 90.000 GMC Astro95yfirb 260.000 Peugeot 504 diesel 45.000 Ch. Malibu ’72 27.500 Samband Véladeild Egill Vilhjá/msson hf. Sími Davíð Sigurðsson hf. 77200 Honda Accord Autom. 1978 RitmoóO CL5 dyra 1980 Fiat127 Top 1980 Concord station Autom. 1979 Datsun 180Bstation 1978 Citroen CX 2400 Palace 1978 Simca Tröll 1977 Mercury Monarch hardtop, 6cyl 1976 Eagle4x4 1980 Willys CJ5 Golden Eaglel978 ÁRMÚLA 3 - SlMt 38SC0 Willys J 6 1977 Willys CJ 5 1974 Wagoneer Custom 1976 Dodge Dart 1975 Audi 100 LS 1974 G.M.C. Rally Wagoon 1974 GMC Gipsy 1978 Concord DL 1978 Fiat 132 GLS 2000 1978 Fiat 125P station 1978 Höfum kaupendur að: Fiat 76-77-78 Sýnum ennfremur nýja bíla: Fiat 131 CL, Fiat 127 Topp, Fiat 125 P 1500. ATHUGIÐ: Opið laugardaga kl. 1-5 Sýningarsalurinn Smiðjuvegi 4 — Kópavogi 80.000 70.000 64.000 100.000 57.000 95.000 30.000 65.000 160.000 110.000 90.000 45.000 80.000 57.000 40.000 50.000 115.000 75.000 65.000 30.000 127 árg. Siaukin saia sannar öryggi þjónustunnar Honda Accord ’79 2ja dyra ekinn 15 þús. km- Datsun Cherry ’80 ekinn 4 þús. km. Mazda 626 80 2ja dyra. Mjög glæsilegur bill sjálfskiptur. Mazda 616 ’78 ekinn 46 þús.km. Góður bill. Dodge Aspen SE ’79 6. cyl. ekinn 26 þús. Mazda 929 hardtop ’79 Bill i algjörum sér- flokki. Volvo 244, ’78, sjálfskiptur. Skipti. Fiesta ’79 ekinn 6 þús. Peugeot 505 ’80 ekinn 8 þús. km. Volvo 244 ’79 ekinn 23 þús km. Mazda 929 ’77 sjálfsk. Lada station ’80, ekinn 7 þús. km. Mazda 323 station ’79 sjálfsk. Chevrolet pick-up ’77 drif á öllum Saab 99 2ja dyra ’73, sjálfskiptur. Bill i sér- flokki. Ch. Monte Carlo ’ 78 2ja dyra. Datsun diesel ’79. Góður bill. Toyota Cressida GL ’80 sjálfsk. Bókstaflega eins og nýr. Volvo 244. ’77 fallegur bill. bilasala GUÐMUNDAP Bergþórugötu 3 — Reykjavík Símar 19032 — 20070 y.VV.'.V.V.V.V.V.V.V.W.V.W.W.V.V.WAW/.W 1 ! HYDILASALA I 8B i BILASALAN BLIK s/f í SÍÐUMÚLA 3-5-105 REYKJAVlK Í SÍMI: 86477 WA'.VAV.V.'.V.V.V.'.V.V.VAW.W.'.WV^W.^V. I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.