Morgunblaðið - 02.01.2004, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.01.2004, Blaðsíða 19
ÁRAMÓT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2004 19 „GÓÐIR Íslendingar. Ég óska ykkur öllum farsældar og gleði, gæfu og góðrar heilsu á árinu sem við hefjum nú og þakka vináttu og hlýhug í okkar garð hér á Bessastöðum, samstarf og samræður sem við höfum átt við þúsundir landsmanna á liðnu ári. Lýðræðisvitund Íslendinga hefur löngum dugað þjóðinni vel, veitt stjórnvöldum aðhald og verið hreyfiafl á framfaraskeiði. Það var ríkur vilji fólksins sjálfs sem efldi baráttuna fyrir auknum rétti og hollt er að minnast þess þegar við fögnum senn aldarafmæli heimastjórnar og því að sextíu ár verða liðin frá lýðveldisstofnun. Þótt þjóðin nyti margra glæsilegra og mikilhæfra leiðtoga, frá tímum Fjölnismanna og Jóns Sigurðssonar, Hann- esar Hafsteins og Skúla Thoroddsens til kjörs fyrsta forsetans á Þingvöllum 1944, þá skipti aflið sem bjó í stuðningi almennings sköpum á örlagastundum. Vissulega gefur afmælisár okkur tilefni til að líta yfir farinn veg, meta söguna og lær- dómana sem hún færir okkur en tímamót af þessu tagi eru líka kjörin til að ræða framtíð- ina, spyrja hvaða breytingar séu í vændum, ræða tækifærin sem blasa við og stöðuna sem ný heimsmynd og árangur okkar sjálfra hef- ur skapað. Þjóðir lifa ekki lengi á fornri frægð, eink- um nú þegar hraði breytinganna er meiri en nokkru sinni. Þættirnir sem á liðinni öld og reyndar lengur réðu úrslitum þegar ríki voru metin – herstyrkur, olía, málmar, þungaiðn- aður – deila nú sessi með öðrum eiginleikum, frumkvæði og frumleika í athöfn, tillögum og málafylgju. Framlag okkar til nýsköpunar, ferskleiki í hugmyndum og listalífi, nýjungar í vísindum, tækni og atvinnuháttum munu einkum ráða orðspori okkar á komandi árum. Sumir kennimenn hafa jafnvel sagt að nú sé hafin öld hinna mjúku áhrifa og harður hnefaréttur dugi ekki til lengdar. Þjóðir þurfi að vakna til vitundar um að ný hugsun móti stöðu þeirra á alþjóðavelli. Spurt verði af vax- andi þunga: Hvað hafið þið til málanna að leggja? Hvert er erindið sem þið eigið við umheiminn? Hvaða boðskapur og nýsköpun felst í framlagi ykkar? – Ekki eingöngu: Hvert er afl þitt, auður eða hernaðarmáttur? Slík þáttaskil gætu fært okkur Íslend- ingum fjölmörg ný sóknarfæri ef við höfum vit og vilja, þrótt og metnað til að laga okkur að breytingunum og eflum þá eiginleika sem skapa okkur sérstöðu í framtíðinni. Í þessum efnum er þrennt sem brýnt er að sinna vel: Heimsvæðing viðskiptanna, frum- kvæði í alþjóðlegu samstarfi og nýsköpun í listalífi. Á þessum þremur sviðum sjáum við nú þegar vitnisburð um að við Íslendingar getum í sameiningu náð einstæðum árangri. Á liðnu ári tókst ungri kynslóð að vekja enn meiri áhuga annarra þjóða á samtíma- menningu okkar Íslendinga. Sigurför Nóa albínóa um kvikmyndahátíðir í ólíkum lönd- um, glæsilegar viðtökur Rómeós og Júlíu á heimaslóð Shakespeares, orðspor hljómsveita og tónlistarfólks víða í Evrópu og Vest- urheimi, síaukinn áhugi erlendis á verkum ís- lenskra rithöfunda og á íslenskri myndlist og dansi eru vitnisburður um að þátttaka okkar í heimsmenningunni er í vaxandi mæli byggð á sköpunarkrafti nýrrar kynslóðar. Þegar sjálfstæðisbaráttan skilaði þjóðinni heimastjórn var það einkum forn frægð, handritin, hetjusögur og Eddukvæði sem mynduðu kjarnann í menningarlegum rökum fyrir auknum rétti Íslendinga. Nú eru það ekki síður verkin sem samtíminn skapar sem auka til muna orðstír okkar og sjálfstraust í samfélagi þjóða heims. Við þurfum því að meta að verðleikum afrekin sem hin unga kynslóð er að vinna og sýna með ráðstöfun fjármagns og aðstöðunni sem almannavald- ið getur skapað að við höfum skilið til hlítar ávinninginn sem þjóðinni hlotnast þegar ný lista- kynslóð er að sigra heiminn. Í annan stað kalla breyttir tímar á öflugt og vakandi frum- kvæði okkar í alþjóðlegu sam- starfi. Sífellt verður brýnna að framlag þjóða sé sérstakt og auðugt að innihaldi, stefnan byggð á ferskum hugmyndum, þekkingu og reynslu sem komið geta öðrum að notum. Í þessum efnum þurfum við Íslendingar að leggja rækt við nokkra þætti sem í senn liggja vel við okkur og skipta veröldina alla miklu máli. Í fyrsta lagi: Hafið. Auðlindir sjávar, skyn- samleg nýting þeirra, samstarf þjóða um uppbyggingu fiskistofna, rannsóknir á haf- straumum og vegvísum um loftslagsbreyt- ingar sem hafið geymir, samspil heilbrigðis og fiskneyslu, baráttunnar gegn illvígum sjúkdómum og aðgengis að lykilefnum sem sjórinn skapar – allt eru þetta viðfangsefni sem alþjóðasamfélagið telur nú einkar brýn. Við Íslendingar búum að ríkum reynslu- sjóði á þessu sviði, höfum þar öðlast virðingu og áhrif, allt frá samningum um Hafrétt- arsáttmálann og útfærslu landhelginnar til árangurs við arðbæran og hátæknivæddan sjávarútveg á okkar tímum og þess orðspors sem nýjungar í hugbúnaði og rannsóknir vís- indamanna og sérfræðinga hafa skapað. Þótt hafið þeki stærstan hluta jarðarinnar hefur það að mörgu leyti verið vanrækt svæði. Við vitum meira um mánann en hafið, sagði hinn merki landkönnuður Thor Heyer- dal. Það kann þó að horfa til betri vegar því nú er að vaxa öflug alþjóðleg hreyfing sem setur umfjöllun um málefni hafsins á oddinn. Hún veitir okkur Íslendingum möguleika til að láta til okkar taka, verða forystuafl í hug- myndavinnu og tillögugerð, gera úr arfleifð okkar öndvegi til áhrifa á nýrri öld. Í öðru lagi: Jarðhiti og vetnisvæðing. Ákaft er nú leitað að orkugjöfum sem ekki ógna líf- ríki jarðar, skapa grundvöll framfara og hag- sældar án mengunar sem skaðar heilsu og heill milljónanna. Fjölmargar þjóða vilja nú nýta jarðhitann sem víða um veröld leynist í jörðu og áhrifamesta ríki heims hefur nýlega boðið Íslendingum ásamt fáeinum öðrum til samstarfs um hvernig best er að vetnisvæða borgir og samfélög í framtíðinni. Á báðum þessum sviðum eru Íslendingar nú í fremstu röð og mikilvægt að við nýtum tækifærin sem slík forysta veitir. Vís- indamenn okkar, sérfræðingar og áhrifafólk í Orkuveitu Reykjavíkur, Hitaveitu Suð- urnesja, Landsvirkjun, Orkustofnun, Háskóla Íslands og víðar á vettvangi orkumála hafa sýnt áræðni og atorku; árangur þeirra er að færa þjóðinni fjölmörg sóknarfæri. Það er merkileg þversögn, en líka tákn- rænt fyrir nýja tíma, að ein smæsta þjóð heims skuli vera leiðandi afl á sviði þar sem heimsveldin voru áður allsráðandi. Nú leita Kína og Kalifornía, Rússland og ríkin í Evr- ópu miðri, lönd í Suður-Ameríku og Afríku eftir samstarfi við okkur og framlag okkar getur orðið grundvöllur að traustum tengslum við tugi þjóða. Í þriðja lagi: Norðurslóðir. Á dögum kalda stríðsins var þessi heimshluti helfrosinn vegna kjarnorkuógnar stórveldanna en nú hefur þar skapast nýr vett- vangur fyrir samvinnu ríkja og Norðurlönd sitja hér við borðið ásamt Rússlandi, Kanada og Bandaríkjunum. Í málefnum Norðurslóða get- um við Íslendingar lagt margt til mála með þeim hætti að eftir sé tekið. Okkur er sýndur trúnaður. Við förum nú með formennsku í Norðurskautsráðinu og gegnum veigamiklu hlutverki í Há- skólakeðju norðurskautsins og Rannsókn- arþingi norðursins en Háskólinn á Akureyri er þar umsvifamikill fulltrúi okkar. Okkur gefst færi á að styrkja tengsl okkar við tvö áhrifaríkustu ríki heims, Bandaríkin og Rúss- land, með þróun samvinnu sem er í senn ný, heillandi og brýn. Margt bendir til að Norðurslóðir verði æ mikilvægari í framtíðinni, lykilsvæði í fram- fararsókn og hagsæld jarðarbúa. Þar er að finna um fjórðung vannýttrar orku í veröld- inni, forðabúr sem verður sífellt verðmætara. Þar kann senn að opnast ný siglingaleið, norðurleiðin, sem styttir ferðir milli Ameríku og Evrópu annars vegar og Asíu hins vegar á jafn róttækan hátt og Súesskurðurinn um- bylti heimsviðskiptunum fyrir röskri öld; og höfum í huga að Asía verður líklega senn helsta aflvélin í hagkerfi heimsins. Á Norðurslóðum er einnig að finna mik- ilvægustu mælistikur á lofslagsbreytingar jarðarinnar, vegvísa sem sýna hvort stórfelld hætta steðjar að lífríki og heilsu íbúa í öllum álfum. Hafstraumar sem leika um Ísland, hitastig þeirra og efnasambönd, áhrif af bráðnun íss og jökla, aukinn þungi í heim- skautsfljótum eru ábendingar um að heims- byggð kunni senn að horfast í augu við nýja ógn sem umturnað getur lífsháttum og efna- hag allra jarðarbúa. Rannsóknarsamstarf á Norðurslóðum er forsenda fyrir réttu mati á hættunum sem blasa við og framlag okkar á þeim vettvangi verður sífellt brýnna. Auk hafsins, orkunnar og Norðurslóða eru málefni smárra ríkja fjórði þátturinn sem við þurfum að sinna vel. Nú eru rúmlega 50 ríki innan Sameinuðu þjóðanna sem teljast smá en í árdaga sam- takanna vorum við nánast ein um hituna í þessum flokki. Smáríkin ráða nú ríflega fjórð- ungi atkvæðamagns á Allsherjarþinginu og innan annarra alþjóðastofnana geta þau orðið áhrifaafl. Hagsmunir þessara ríkja, vandamál, sér- staða og viðfangsefni hafa á ýmsan hátt verið vanrækt vegna þess að stefnumótun á vett- vangi stjórnkerfa og efnahagsmála hefur einkum tekið mið af kenningum og hug- myndakerfum sem mótuð hafa verið í stærri ríkjum og einnig vegna þess að flest hinna smærri ríkja eru nýkomin á alþjóðavettvang. Hér hefur Ísland kjörstöðu til að verða að liði. Árangur okkar í efnahagsþróun, mennt- un og heilsugæslu, stofnanamótun og al- þjóðlegri samvinnu er langt umfram það sem smæðin gefur til kynna. Við ógnum engum, erum friðsælt og opið lýðræðisríki og ann- arlegir hagsmunir eru ekki í farangri okkar. Aðrir eru því reiðubúnir að kynnast reynslu Íslendinga en hafa allan vara á sér þegar öfl- ugri ríki bjóða fram krafta sína. Ísland getur orðið miðstöð fyrir samræður og samskipti smærri ríkja og það getur tengt okkur traustum vináttuböndum við fjölda þjóða í öllum álfum; opnað leiðir fyrir nýja kynslóð til þátttöku í alþjóðastarfi víða um heim, til viðskipta, rannsókna og fræðistarfa. Já, hin nýja tíð færir okkur fjölmörg tæki- færi sem áður voru óþekkt. Nú ríður á að við höfum vit og samstarfsvilja, einnig í okkar eigin röðum hér á heimavelli, til að nýta þau Íslandi til framdráttar og farsældar á nýrri öld. Það er brýnt að skilja til hlítar breyting- arnar sem orðið hafa á heimsmyndinni en gleyma sér ekki í flækjum og togstreitu fyrri tíðar. Aldarafmæli heimastjórnar ætti að vera okkur tilefni til að hugleiða ekki aðeins hin risavöxnu umskipti sem orðið hafa síðan fyrsti ráðherra Íslands gekk í Alþingissalinn heldur einnig til að vera samstiga í að hag- nýta tækifærin sem iðukast nýrra strauma færir okkur. Það snýr einkum að umrótinu sem heims- væðing viðskiptanna hefur skapað en umræð- ur sem urðu á liðnu ári báru ýmis merki þess að við værum ekki nægilega vel búin undir afleiðingarnar sem einkavæðing og árang- ursrík útrás athafnafólks bera með sér. Heimsvæðing viðskiptanna og opnun hins íslenska hagkerfis hafa í fyrsta sinni í sögu þjóðar okkar veitt frumkvöðlum með íslensk- ar rætur tækifæri til að verða forystuafl á heimsvísu og árangur þeirra getur skapað svo mikinn arð að engin dæmi eru um slíkt í reynsluheimi síðustu aldar. Fyrirtæki í smásöluverslun, lyfjafram- leiðslu, drykkjarvörum, bankastarfsemi, fjár- málasýslu, gervilimum, matvælum og á fleiri sviðum hafa á síðustu árum flutt sig á al- þjóðamarkað og náð slíkum árangri að eign- astaða og árlegur hagnaður eru einstæð á ís- lenska vísu. Vissulega er þessi þróun ungu íslensku at- hafnafólki hvatning til að láta að sér kveða en hún vekur líka spurningar um hvernig al- þjóðleg viðhorf til viðskipta falla að íslenskum veruleika. Við þurfum að ræða á sanngjarnan og heið- arlegan hátt hvernig við ætlum að gefa at- hafnafólki tækifæri til að njóta sín um leið og við varðveitum eðalkosti samfélagsins. Hvernig ætlum við að tryggja að arðurinn af heimsvæðingu viðskiptanna skili sér hing- að heim og komi öllum til góða? Hver verður hlutur íslensks almennings í hinum mikla auði sem nýju athafnaskáldin eru að skapa? Hvað er í senn sanngjarnt og vænlegt til ár- angurs í framtíðinni? Svörin munu ráða miklu um þróunina og höfum í huga að opnun hagkerfisins er þess eðlis, hvort sem okkur líkar betur eða verr, að fyrirtækin geta einfaldlega flutt heimkynni sín, skattskyldu og þjóðþrifaframlög til ann- arra landa ef tökin eru hert um of hér heima. En fyrirtækin þurfa líka að skilja að miklum árangri fylgja ríkar samfélagslegar skyldur og ábyrgð. Við þurfum í sameiningu að ráða fram úr vandamálum sem þessi umskipti skapa og beita til þess samræðum þar sem allir hafa sama rétt og sanngirni og framsýni ráða för. Takist okkur það getur hin nýja tíð fært okk- ur Íslendingum mikla hagsæld og tækifærin lagt grundvöll að einstöku framfararskeiði. Ég óska ykkur öllum farsældar á nýju ári og vona að gæfan fylgi ykkur ávallt í framtíð- inni; gætum vel að því góða landi sem við fengum í arf.“ Nýársávarp forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar Þurfum að meta að verðleikum afrekin sem unga kynslóðin er að vinna Ólafur Ragnar Grímsson Útsalan er hafin 10-70% afsláttur Yfirhafnir í úrvali, stakir jakkar, peysu, vesti o.fl.Op num kl. 9 Mörkinni 6, sími 588 5518. Opið lau. og sun. kl. 10-18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.