Morgunblaðið - 02.01.2004, Blaðsíða 30
DAGBÓK
30 FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Venus, Örfirisey og
Mánafoss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Borneo kemur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og
jóga, kl. 14 bingó. Hár-
snyrting, fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 13–
16.30 smíðar. Bingó
spilað 2. og 4. föstudag
í mánuði.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–12
vefnaður, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
vefnaður og frjálst að
spila í sal.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og hárgreiðslustofan
opin, kl. 14 söngstund.
Félagsstarfið, Dal-
braut 27. Kl. 8–16
handavinnustofan opin,
kl. 10–13 verslunin op-
in.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, myndlist
o.fl., kl. 9.30 gönguhóp-
ur, kl. 14 spilað.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 opið hús,
spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 10–16.30
opið, m.a. spilasalur frá
hádegi, heitt á könn-
unni. Allir velkomir. S.
575 7720.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin virka daga frá kl.
9–17.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, út-
skurður, baðþjónusta,
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 11 spurt og
spjallað, kl. 14 bingó.
Norðurbrún 1. Fé-
lagsstarfið
tekur aftur til starfa 5.
janúar.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl.10–11
kántrídans. Kl.13.30
sungið við flygilinn við
undirleik Sigurgeirs,
kl.14.30–16 dansað við
lagaval Sigvalda.
gott með kaffinu,allir
velkomnir, kveðja
Halldóra.
Vitatorg. Allt allmennt
félagsstarf
tekur til starfa 5. jan-
úar, matstofan er opin
alla daga. kl. 11–12.30.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Opið frá
kl. 10–14.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka kl. 10.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin virka daga frá kl.
9–17.
Félag einhleypra.
Fundur á morgun kl.
21 í Konnakoti, Hverf-
isgötu 105. Nýir fé-
lagar velkomnir. Heitt
á könnunni.
Munið gönguna mánu-
og fimmtudaga.
Bandalag kvenna í
Hafnarfirði heldur sinn
árlega nýársfund
mánudaginn 5. janúar
kl. 17 í Friðarhöfn.
(Þjóðkirkjan)
Minningarkort
Styrktarfélag krabba
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í s. 588 7555
og 588 7559 á skrif-
stofutíma. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Samúðar- og heilla-
óskakort Gídeon-
félagsins er að finna í
anddyrum eða safn-
aðarheimilum flestra
kirkna á landinu, í
Kirkjuhúsinu, á skrif-
stofu KFUM&K og
víðar.
Þau eru einnig af-
greidd á skrifstofu Gíd-
eonfélagsins, Vestur-
götu 40, alla virka daga
frá kl. 14–16 eða í s.
562 1870. Allur ágóði
fer til kaupa á Nýja
testamentinu sem gefið
verður 10 ára skóla-
börnum eða komið fyr-
ir á sjúkrahúsum,
hjúkrunarheimilum,
hótelum, fangelsum og
víðar.
Minningarspjöld
Kristniboðssambands-
ins frást á skrifstof-
unni, Holtavegi 28 (hús
KFUM og K gegnt
Langholtsskóla), s.
588 8899.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju eru til
sölu í kirkjunni í s.
587 9070
eða 587 9080. Einnig er
hægt að nálgast kortin
í Kirkjuhúsinu,
Laugavegi 31, Reykja-
vík.
Líknarsjóður Dóm-
kirkjunnar, minning-
arspjöld seld hjá
kirkjuverði.
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði, til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í Tálkna-
firði eru afgreidd í s.
456 2700.
Í dag er föstudagur 2. janúar, 2.
dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Gleð þú sál þjóns þíns, því að til
þín, Drottinn, hef ég sál mína.
(Sálm. 86, 4.)
Á pólitísku vefritunumer vinsælt að velja at-
burði og persónur, sem
staðið hafa upp úr í póli-
tíkinni á liðnu ári.
Björn Bjarnason birtir
slíkt yfirlit á vef sínum,
Bjorn.is. Að mati Björns
er „versti afleikurinn“ að
„stjórnarandstaðan hljóp
frá samkomulagi um eft-
irlaunamál forseta Ís-
lands, ráðherra og þing-
manna“. Sömuleiðis
finnst Birni „tapari árs-
ins“ vera Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, sem
kvaddi árið þannig í
Fréttablaðinu á gaml-
ársdag: „„Nei, ég geri
ekki ráð fyrir að sakna
stjórnmálanna á Íslandi,“
segir Ingibjörg Sólrún
hlæjandi …“
Björn telur hins vegar
áhrifamesta atvik ársins
þegar Davíð Oddsson tók
inneign sína út úr Kaup-
þingi Búnaðarbanka. Og
að hans mati er „van-
metnasta ákvörðunin“
ákvörðun bæjarstjórnar
Garðabæjar um að semja
um einkarekinn grunn-
skóla án kröfu um skóla-
gjöld.
Í Vefþjóðviljanum er„símasamband ársins“
talið eftirfarandi: „Tveir
af ábyrgustu stjórn-
málamönnum landsins
urðu fyrir því óhappi að
lenda utan símasambands
þegar þau helst vildu
komast í fréttir. Þegar
sagðar voru fréttir af
rannsókn Samkeppn-
isstofnunar á þætti Þór-
ólfs Árnasonar í olíufé-
lagamálum var Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir stödd á
Ísafirði dögum saman og
þar með náðist aldrei í
hana í síma eins og frétta-
menn höfðu mikinn skiln-
ing á. Sama ólukka henti
Steingrím J. Sigfússon
þegar lífeyrisfrumvarp
var til umræðu fyrir jól.
Þá var hann alltaf „fyrir
norðan“ og þar næst ekki
í menn sem kunnugt er.“
Sömuleiðis útnefnir
Vefþjóðviljinn skrýtnustu
tilfinningu ársins: „Sjálf-
kjörinn varaformaður
Samfylkingarinnar, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir,
lýsti því yfir að það væri
„skrýtin tilfinning að
vera orðin varaformaður
með engu greiddu at-
kvæði“. Og það er ekki
nóg með að þetta sé
skrýtin atkvæðatala, enn
ótrúlegra er að þetta er
nákvæmlega sam-
anlagður fjöldi þeirra at-
kvæða sem Ingibjörg
hlaut í baráttusæti R-
listans 1994, 1998 og
2002, í 5. sæti Samfylk-
ingarinnar 2003 og til að
bera titilinn forsætisráð-
herraefni Samfylking-
arinnar árið 2003.“
Á Frelsi.is er valinnfrjálshyggjumaður
ársins: „Össur Skarphéð-
insson fyrrverandi rit-
stjóri Þjóðviljans, fyrir að
gera tillögur Heimdallar í
heilbrigðismálum að
stefnu Samfylking-
arinnar.“ Þar á bæ telja
menn líka að veðurfræð-
ingur ársins sé „Alfreð
Þorsteinsson stjórn-
arformaður OR fyrir að
hækka verðskrá veit-
unnar vegna góðviðris“.
STAKSTEINAR
Pólitík gamla ársins
Víkverji skrifar...
Víkverji fór í Kringluna að morgnigamlársdags, ætlaði í Áfengis-
og tóbaksverzlun ríkisins eða „Vín-
búðina“ til að kaupa freyðivínsflösku
sem átti að opna um áramótin. Oft er
nú biðröð í Ríkinu, gjarnan inn í búð-
arenda, en í þetta sinn náði hún út úr
búðinni og fram undir rúllustigann
framan við Hagkaupsbúðina. Vík-
verja – og flestum hinum í röðinni –
fannst nú satt að segja anzi aumt að
standa í sovézkri biðröð eftir jafn-
hversdagslegri verzlunarvöru og
freyðivínsflösku. Mál manna í bið-
röðinni var að það væri óþolandi að
geta ekki bara gripið flöskuna með
sér í stórmarkaðnum um leið og
keypt væri í matinn, eins og tíðkast í
velflestum siðuðum löndum. Hve-
nær ætli stjórnmálamennirnir hætti
að hlusta á nokkra háværa templara
og leggi niður þetta fyrirkomulag,
sem mikill meirihluti þjóðarinnar er
löngu búinn að fá sig fullsaddan á?
x x x
Starfsfólk ÁTVR má hins vegareiga það, að það stóð sig vel í
þessum erfiðu aðstæðum, var allt
eitt bros og svindlaði meira að segja
um einar tuttugu mínútur á af-
greiðslutímanum, svo allir sem í bið-
röðinni voru fengju áramótavínið
sitt. Það fannst Víkverja til fyr-
irmyndar.
Víkverji hefur eignazt góðanbandamann í baráttu sinni við
kerfið, sem aukinheldur sýnir
skilning á eilífri glímu litla manns-
ins við skriffinnskuna. Þetta er
Vefþjóðviljinn, en þar sagði fyrr í
vikunni: „Íbúðalánasjóður er
dæmi um stofnun sem veldur
mönnum óþarfa snúningum. Í stað
þess að ganga frá málum við
bankann sinn þurfa menn að fara
ótal ferðir í Íbúðalánasjóð til við-
bótar ferðunum í bankann. Menn
geta bara hugsað sér hvað þetta
þýðir fyrir „kunningja Víkverja“,
óheppnasta mann í heimi, sem
hvarvetna kemur að lokuðum dyr-
um hjá þjónustustofnunum og
misskilur allt sem hægt er að mis-
skilja. Þetta er ef til vill ekki stór-
mál fyrir aðra og sem betur fer
þurfa menn að jafnaði ekki að
skipta um húsnæði nema nokkr-
um sinnum á ævinni. En þegar
hægt er að komast hjá svona lög-
uðu er sjálfsagt að gera það.“
x x x
Víkverji fagnar liðsinni Vefþjóð-viljans. Honum finnst líka
Íbúðalánasjóður vera ámóta óþörf
stofnun og ÁTVR, sem þjónar að-
allega því hlutverki að búa til
aukasnúninga fyrir fólk og eyða
tíma þess í vitleysu.
Morgunblaðið/Kristinn
Biðröðin við Ríkið er árviss viðburður
á gamlársdag.
Að fara í
jólaköttinn
Í JÓLASTRESSINU var
þjóðin búin að gleyma
landsfeðrunum, eftir að
þeir voru búnir að úthluta
gjöfum sínum til þjóðarinn-
ar í formi ýmissa skatta og
álagninga, sem er nauðsyn-
legt að þeirra mati og þjóð-
inni hollt í öllu góðærinu,
sem ríkisstjórnin hefur
komið á, án þess að þjóðin
hafi tekið eftir því. Þar á
meðal stórum pakka til ör-
yrkja, sem sýna bara van-
þakklæti í staðinn. Til að
koma í veg fyrir að alþing-
ismenn, ráðherrar og háað-
allinn færu í jólaköttinn þá
brá forseti Alþingis sér í
gervi jólasveinsins með að-
stoð ráðherra að sjálf-
sögðu, og létu þeir Alþingi
úthluta auknum lífeyri, sem
bónus til sín fyrir erfið og
vanþakklát störf í þágu
þjóðarinnar. Þetta var í
formi lífeyris, sem aðeins
hæfir útvöldum. Þannig var
með snarræði komið í veg
fyrir að elítan færi í jóla-
köttinn.
Að fara í jólaköttinn þótti
áður fyrr slæmt hlutskipti,
eins og segir í gömlu kvæði,
sem þeir hafa greinilega
lært í æsku og hafa ekki
gleymt.
Allt er þetta gert af for-
sjálni og umhyggju fyrir
þjóðinni og á að sögn þeirra
að tryggja hæfara fólk í
þessi störf heldur en nú
starfar að þessum málum,
ef ég hef ég skilið orð
þeirra rétt. Í þessu felst
mikil hreinskilni og hóg-
værð, sem þjóðin verður að
muna í næstu kosningum.
Lífeyrisþegi.
Tapað/fundið
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU í rauðri
Dolce Gabbana-umgjörð
fundust aðfaranótt sunnu-
dags á Laugaveginum.
Upplýsingar í síma 866-
9274.
Grænn
velourkjóll týndist
GRÆNN velourkjóll, í
miklu uppáhaldi eiganda,
fauk af snúrunum á Tóm-
asarhaga 51, 28. eða 29.
des. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 553 9484 eða
862 4713.
Lyklakippa týndist
BÚSTIN lyklakippa með
beltisfestingu tapaðist í
Garðabæ eða Hafnarfirði.
Skilvís finnandi vinsamlega
láti vita í síma 698 8277.
Fundarlaun.
Þakkir
GUÐMUNDA hafði sam-
band við Velvakanda og
langaði hana að koma á
framfæri þakklæti til Hall-
dórs Einarssonar, sem var í
Kastljósi sunnudaginn 28.
desember sl.
Sagði hún að hann hefði
verið svo jákvæður og frá-
bær að henni fyndist að
hann ætti að vera leiðbein-
andi ríkisstjórnarinnar.
Segir hún að það sé alltof
lítið um að fólk tali um það
sem jákvætt er.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 augljós, 8 gyðja, 9
hörkufrosts, 10 greinir,
11 gafl, 13 hinn, 15 háðs-
glósur, 18 sjá eftir, 21
hundavaðsháttur, 22
nauts, 23 viðurkennir, 24
fer illum orðum um.
LÓÐRÉTT
2 fiskinn, 3 starfsgreinin,
4 tileinka, 5 önug, 6
öruggur, 7 hæðir, 12 for-
æði, 14 spil, 15 pest, 16
sjóðir mat, 17 hávaði, 18
fugl, 19 gladdi, 20 rækt-
uð lönd.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 sýnir, 4 kappa, 7 iðrun, 8 rykið, 9 gap, 11 ilin,
13 kinn, 14 eflir, 15 punt, 17 álka, 20 aða, 22 angan, 23
gáski, 24 klifa, 25 asnan.
Lóðrétt: 1 seiði, 2 nærri, 3 röng, 4 karp, 5 pakki, 6 auð-
an, 10 aflið, 12 net, 13 krá, 15 pjakk, 16 negri, 18 losun,
19 arinn, 20 Anna, 21 agna.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16