Morgunblaðið - 08.02.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.02.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ „Alvöru ævintýrabók“ edda.is „Allt verður ljóslifandi og skemmtilegt og frum- leikinn hoppar um á hverri síðu.“ - Kristín Heiða Kristinsdóttir, MBL Best myndskreytta bókin að mati barna Valið á sýningunni Þetta vilja börnin sjá í Gerðubergi Guðjón Ketilsson myndskreytti „ÞAÐ er ófært að segja má allt frá Norðurárdal í Borg- arfirði, norður um og austur á land og suður með land- inu, allt til Víkur.“ Þannig lýsti starfsmaður hjá Vega- gerðinni færðinni á þjóðvegum landsins í gærmorgun. Hjá Vegagerðinni minnast menn ekki jafn mikillar ófærðar svo víða á landinu á sama tíma í mörg ár. Sæmileg færð var hins vegar um Snæfellsnes, á Suð- urnesjum og austur í Árnes- og Rangárvallasýslu en skafrenningur á öllu þessu svæði. Illviðri var víða um landið fram eftir laugardegi og biðu starfsmenn Vega- gerðarinnar færis að veður lægði svo hægt yrði að senda snjómoksturstæki til að opna helstu þjóðvegi. Svona leit kort Veðurstofunnar yfir færð á landinu út fyrir hádegi í gær. Kolófært var víða um land. Ófært allt frá Norðurárdal til Víkur í Mýrdal „VISTIN hefur verið ágæt. Það var dansað fram eftir nóttu en svo fór raf- magnið þannig að menn voru bara við kertaljós að hafa það rólegt og bíða, fá sér kaffi og borða þorramat,“ sagði Sigurbjörn Snæþórsson, bóndi í Gils- árteigi, í samtali við Morgunblaðið í gærmorgun þar sem um hundrað manns voru veðurtepptir í Félags- heimilinu Hjaltalundi á þorrablóti í Eiða- og Hjaltastaðaþinghá á Austur- Héraði aðfaranótt laugardags. Sigurbjörn segir að stórhríðin hafi skollið á rétt fyrir þrjú, einhverjir hafi verið farnir heim áður en það var. En björgunarsveitir vissu einmitt um 20 manns sem sátu fastir í bílum á leið frá blótsstað og óttuðust um að svo gæti verið ástatt um fleiri. Sigurbjörn segir ekkert annað að gera en að bíða þess að veður lægi. „Það er verst að það eru nokkrir kúa- bændur hérna. Þeir eru orðnir óþol- inmóðir að fara að komast heim.“ Að- spurðir hvort einhverjir heima á bæjunum geti mjólkað skepnurnar segir Sigurbjörn að þannig sé ástatt heima hjá honum á Gilsárteigi. „En hann kemst ekkert út í fjós það er svo vitlaust veður. Jæja, núna sló raf- magninu aftur inn,“ sagði Sigurbjörn og beið þess að veðrinu slotaði.                 Hundrað manns veð- urtepptir á þorrablóti FÁMENNT var í miðborg Reykja- víkur í fyrrinótt og lítið að gera hjá lögreglu. Fólk hljóp á milli öldurhúsa í fimb- ulkuldanum og stoppaði lítið við samkvæmt lýsingu lögreglunnar en eitthvað var þó um minni háttar pústra á milli manna. Fáir á ferli í fimbulkulda BJÖRGUNARSVEITARMENN á Höfn fóru til aðstoðar manni sem sat fastur í bíl sínum í ófærð og óveðri á Skeiðarársandi aðfaranótt laugar- dags. Fóru björgunarmenn á bíl frá Freysnesi og sóttu manninn. Var hann ágætlega á sig kominn skv. upplýsingum lögreglu. Björguðu manni á Skeið- arársandi TVEIR piltar sem sátu fastir í ófærð og stórhríð á Fljótsheiði óskuðu að- stoðar björgunarsveitar kl. 22 á föstudagskvöldið, skv. upplýsingum lögreglunnar á Húsavík. Voru tvær björgunarsveitir kallaðar út til leitar og fundust piltarnir kl. fimm um nóttina. Hafði þeim þá tekist að brjótast á bílnum langleiðina niður af heiðinni. Leituðu tveggja pilta á Fljótsheiði FJÖRUTÍU og níu starfsmenn við Kárahnjúka sátu fastir í vinnuvélum og vinnuskúrum aðfaranótt laugardags og biðu af sér veðrið. „Þetta er búin að vera löng nótt hjá okkur. Við áttum reyndar von á óveðrinu og vorum búin að gefa út við- vörun og óska eftir því að fólk kæmi sér í húsaskjól tím- anlega, en óveður koma mönn- um að óvörum, jafnvel uppi í Kárahnjúkum,“ segir Leó Sig- urðsson, öryggisstjóri Impr- egilo. „Menn voru að yfirgefa sín vinnusvæði á leiðinni í hús þegar óveðrið skall á með miklum krafti.“ Leó segir að mennirnir hafi fest örfáa kílómetra frá vinnu- búðunum í Kárahnjúkum. Þegar Morgunblaðið talaði við Leó á ellefta tímanum í gærmorgun var verið að senda stórvirka vinnuvél að sækja mennina og vonaðist hann til þess að megnið af mönnunum, eða 44 þeirra kæmust þannig í hús á innan við klukkutíma. Fjölmargir Portúgalar vinna á Kárahnjúkum sem eru fæstir vanir stórhríð á borð við þá sem gekk yfir landið. „Þeir eru nú bara mjög bratt- ir, enda margir hverjir orðnir vanir þessu [...] en auðvitað leggst þetta mismunandi í menn,“ segir Leó. 49 sátu fastir í vinnuvélum og skúrum „ÞAÐ er mjög erfitt ástand hérna núna. Við erum með allmarga í neyð. Við vitum um yfir 20 manns sem sitja fastir í bílum, en óttumst að það séu fleiri. Það er verið að reyna að finna upplýsingar um það,“ sagði Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri á Egils- stöðum sem stjórnaði aðgerðum, við Morgunblaðið í gærmorgun. Þetta fólk var allt, að einum manni und- anskildum, að koma af þorrablóti í Hjaltalundi þegar það festist. Sagði Baldur að björgunarsveitir hefðu vit- að af fleiri bílum sem fóru af þorra- blótinu en höfðu ekki skilað sér. „Við erum núna að undirbúa alvöru leið- angur á tveimur snjóbílum og öllum öflugustu tækjum sem völ er á á svæðið, á þennan veg sem liggur að þorrablótsstaðnum,“ segir Baldur. Þá var vitað um þó nokkurn fjölda manna sem sátu fastir á Kára- hnjúkasvæðinu sem hafði setið fast frá því á föstudag. „Það er fólk í bíl- um og þungavinnuvélum. Það er ger- samlega ófært og allt útlit fyrir að það verði áfram,“ sagði Baldur. Björgunarsveitarmenn stóðu í ströngu alla aðfaranótt laugardags- ins. „Við erum búnir að vera að í alla nótt og við höfum getað leyst nokkuð mörg verkefni. Það eru stanslausar beiðnir, við erum búin að vera hér í allmiklu verkefni varðandi hitaveit- una, til að tryggja öryggi hennar. Því er lokið og við erum búin að aðstoða fólk hér sem lenti í því að það fuku upp hurðir og gluggar. Við höfum sótt fólk út og suður við mjög erfiðar aðstæður. Hér var vindhraðinn 27 metrar á sekúndu á klukkutíma- kafla, það dúraði ekki en það er að- eins að lagast,“ sagði Baldur þegar Morgunblaðið náði tali af honum á tí- unda tímanum í gærmorgun. Björgunarsveitir stóðu í ströngu við að bjarga fólki í neyð Tugir manna sátu fastir í bílum og óttast um fleiri Morgunblaðið/Steinunn Allt var á kafi í snjó á Egilsstöðum í gærmorgun og flestir héldu sig innan dyra. ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.