Morgunblaðið - 25.03.2004, Page 47

Morgunblaðið - 25.03.2004, Page 47
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 47  Ársalir- fasteignamiðlun  Ársalir- fasteignamiðlun  Nýttu þér áratuga reynslu okkar og traust í fasteignaviðskiptum Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5 105 Rvk 533 4200 og áður sagði umdeilanlegt nýmæli. Það felur í sér að Íslendingar gefa eftir 1% af leyfilegum heildarafla eða sem nemur 7.100 lestum. Þeir fá í staðinn aukinn aðgang til veiða í efnahagslögsögu Noregs norðan 62° N. Þetta er ekki heppileg niðurstaða. Það þjónar augljóslega ekki íslenskum samningahags- munum að auka veiðar íslenskra skipa í norskri lögsögu. Staða Norðmanna styrkist eftir því sem Íslendingar verða háðari heim- ildum til veiða innan norskrar efnahagslögsögu. Íslenskir hagsmunir liggja miklu fremur í því að veiða sem mest af okkar hlut innan íslensku efnahagslögsög- unnar. Hvati til veiða innan lögsögunnar Síðustu árin hefur stofninn gengið í takmörkuðum mæli inn fyrir mörk lögsögunnar, og flest íslensku síldveiðiskipanna hafa þá gjarnan verið að veiðum annars staðar. Þau hafa því einungis í takmörkuðum mæli getað veitt síldina meðan hún er innan lögsögu Íslands. Sam- fylkingin leggur því ríka áherslu á að Hafrannsóknastofnun verði tryggt fjármagn til að vakta sér- staklega göngur og dreifingu norsk-íslensku síldarinnar inn fyrir íslensku efnahagslögsöguna og auðvelda þannig íslenskum skipum að ná sem mestum afla innan hennar. Samfylkingin telur jafn- framt koma til greina að ívilna íslenskum skipum með auknum síldarkvóta í hlutfalli við það magn sem þau veiða innan íslensku lögsögunnar. Samfylkingin mun á næstu dögum leggja fram þingmál sem fjallar einmitt um það. Slíkt fyrirkomulag myndi hvetja til auk- inna veiða meðan síldin er á íslensku hafsvæði og þannig styrkja kröfur Íslendinga um aukna hlutdeild úr norsk-íslenska stofninum. Höfundur er formaður Samfylkingarinnar. FORMAÐUR ný- stofnaðra Samtaka áhugafólks um spila- fíkn skrifar grein í Morgunblaðið 17. mars þar sem hann sakar framkvæmda- stjóra Rauða kross Íslands um vankunn- áttu og skilnings- leysi. Af því tilefni er rétt að fram komi að framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands er hvorki vankunn- andi né skilningssljó, enda alþekkt bæði hérlendis og erlendis fyrir færni í störfum sínum. Sem fram- kvæmdastjóri talar hún auk þess máli fjölmennustu mann- úðarsamtaka heims, hreyfingar sem stendur með afger- andi hætti vörð um líf, heilsu og virðingu fólks, og starfað hefur samfellt í 80 ár á Ís- landi. Jafnframt er rétt að ítreka að einn helsti tekjustofn frjálsra fé- lagasamtaka, sem sinna sam- félagslegri þjónustu, er hér, sem víða erlendis, happdrætti af ýms- um toga. Íslandsspil aflar, á þenn- an hátt, fjár til reksturs SÁÁ, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Rauða kross Íslands með starf- rækslu söfnunarkassa. Verði um- svif fyrirtækisins skert mjög veru- lega mun það kippa stoðum undan starfsemi þessara félaga og þann- ig veikja þá mikilvægu þjónustu sem þau veita nauð- stöddu fólki bæði hér- lendis og erlendis. Eigendum og for- vígismönnum Íslands- spils er mikið í mun að rekstur Íslands- spils sé ábyrgur. Til þess hafa verið gerðar margar ráðstafanir á undanförnum árum. Þar má nefna viða- mikla könnun um spilavenjur Íslendinga sem gerð var til þess að færa umræðuna á fastari grunn. Íslands- spil heldur einnig úti vef þar sem meðal annars er hægt er að fræðast um spilafíkn og þreyta sjálfspróf. Ég óska Samtökum áhugafólks um spila- fíkn velfarnaðar. Rauði kross Íslands telur bæði nauðsyn- legt og eðlilegt að fram fari stöðug og vönduð um- ræða um spilakassa og spilafíkn eins og margt annað mannanna bölið. Sú umræða þarf þó að byggjast á rökum og rannsóknum og fara fram með skynsemi og háttvísi. Órökstuddar fullyrðingar um vammlausa einstaklinga eiga þar hins vegar ekkert erindi. Byggjum á rökum og rannsóknum Úlfar Hauksson svarar formanni Samtaka áhugafólks um spilafíkn Úlfar Hauksson ’Eigendum ogforvígismönnum Íslandsspils er mikið í mun að rekstur Íslands- spils sé ábyrg- ur.‘ Höfundur er formaður Rauða kross Íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.