Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.2002, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.2002, Blaðsíða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. OKTÓBER 2002 HALLÓ KISULÓRA. Ég var við vinnu í skóla í Reykjavík í nokkra daga þegar ég fann þennan kettling. Það var veturinn 1998. Feldurinn á honum bjó yfir óvenjulegri mýkt, líkt og lambseyra. Vegna þess hve hann var einkennilega varnarlaus, virtist hann jafnvel enn mýkri. Skólabörnin sem struku honum voru sama sinnis, svo þau lögðu vanga sína að maganum á honum til þess að finna nákvæmlega hversu mjúkur. Ég setti hann niður á blátt línóleumgólfið og tók þessa mynd. Á þeim tíma sem ég fann hann var ég að ljósmynda öll þau dýr sem eru Íslandi upprunaleg og hinn hversdagslegi húsköttur er ekki eitt þeirra. En ég stóðst ekki freistinguna. Kisa er á veiðum. Og jafn- vel þótt frumskógurinn sé bara línóleumdúkur er rándýrsstellingin raunveruleg. Og þótt hún sjáist einungis aftan frá, eru eiginleikar forvitni og óskammfeilni, jafnvel ærsla þekkjanlegir. Þótt augna- tilliti hennar sé hulið finnum við greinilega fyrir því. Og þótt við sjáum ekki á hvað hún horfir, vitum við að það er til staðar.* *Sjá næsta hluta Iceland’s Difference (Sérkenni Íslands), Lesbók , 19. október, 2002. Þetta er tuttugasti hluti flokks sem í heild ber heitið: Iceland’s Difference (Sérkenni Íslands). © fyrir ljósmynd, 1998, fyrir hönnun og texta, 2002, Roni Horn. Fríða Björk Ingvarsdóttir þýddi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.