Pressan - 13.04.1989, Síða 18
18
Fimmtudagur 13. apríl 1989
HREINT HF.
AUÐBREKKA 8, P.O. BOX 336
200 KÓPAVOGUR S. 91-46088
Bjóðum upp á föst
samningsbundin verk í
daglegri ræstingu eftir
fyrirfram ákveðnu kerfi.
Eftirlitskerfið og bestu
fáanleg efni og áhöld
tryggja gæði og
góða þjónustu.
RAÐGJÖF • EFNISSALA • TÍMAVINNA
TILBOÐS VINNA • FÖST VERKEFNI
SÍMI4 60 88
Reynið viðskiptin
og fáið tilboð
ykkur að kostnaðarlausu.
lú liggur fyrir að viðræður
Verslunarbankans og Iðnaðarbank-
S
ODLIF
Aprílhefti komið út
IINNLENT
i Ritskoðun eða óþolandi ærumeiðing . 9-18
Sérstætt mál; ríkissaksóknari höfðar
mál á hendur Halli Magnússyni
I blaðamanni og gerir honum
ærumeiðandi ummæli um sr. Þóri
j Stephensen staðarhaldara í Viðey að
I sakarefni í krafti þess að um opinberan
| starfsmann sé að ræða. Þessi
framgangsmáti er harkalega gagnrýndur
m.a. af Rithöfundasambandinu og
] Blaðamannafélaginu.
| Vararíkissaksóknari er afar harðorður í
! viðtali við bjóðlíf. Viðtöl og
] fréttaskýring um málið...
• Sjónvarpskönnun
; Innlent efni í sókn. Sagt frá nýrri könnun Jóhanns Haukssonar
félagsfræðings fyrir Þjóðlíf á efni sjónvarpsstöðvanna ...... 18
] Gleraugu í pólitískum ógöngum.
] 30 þúsund gleraugu, sem Lions-hreyfingin safnaði fyrir fjórum árum handa
i íbúum Sri Lanka, bíða enn á hafnar-bakkanum í Reykjavík ... 20
Hriplekt vatnsveitukerfi í Reykjavík.
: 30% leki víða í vatnsveitukerfi
borgarinnar. Grunsemdir um að lekinn haldi lífi í Tjörninni . 22
Skák
1 Sá þreytulegasti sigraði. Áskell Örn Kárason skrifar um
„huldumótið“á Hótel Loftleiðum ............................... 25
ERLENT
íran
Tíu árum eftir byltinguna. Hrönn Ríkharðsdóttir skrifar . 27
. Svíþjóð
; Velþokkaður hrísvöndur. Karl nokkur býr með nokkrum konum og
byggjast samskipti hópsins á undirtónum kynferðislegs eðlis og notkun
j hrísvanda............................................... 30
Bretland
! Pólitískt eggjakast. Salmonellusýking og deilur um eggjamál í stjórn
i Thatchers............................................. 32
i Noregur
; Fjörkippur í efnahagslífinu............................. 34
MENNING
Eldur og ís.......................................43—45
Marteinn St. Þórsson skrifar um
kvikmyndirnar Missisippi Burning og
Rainman, sem hvarvetna hafa vakið
mikla athygli og safnað að sér
verðlaunum á kvikmyndahátíðum. Enn
fremur gefur Marteinn kvikmyndum
stjörnur...
| Bj"r
Fyrri hluti sögu þessa umdeilda drykkjar á Islandi. Hallgerður
Gísladóttir safnvörður á Þjóðminjasafni skrifar ......... 39
i
Ég söng í elskulegu húsi........................ 49-53
Viðtal við Magnús Jónsson
óperusöngvara, sem söng í tíu ár í
konunglega leikhúsinu í
Kaupmannahöfn, bauðst ótal hlutverk
víðar um heim. Flestir vita að Magnús
er í ætt margra þekktustu söngvara á
Islandi. Færri vita að Magnús var
íþróttakappi á yngri árum og tók þátt í
Ólympíuleikum...
ísafjörður
Slunkaríki fjögurra ára ............................... 42
Umdeilda Anna. Sagt frá Anne Sophie —Mutter fiðluleikara . 46
Olga Rottberger áttræð. EinarHeimisson blaðamaður sótti Olgu heim í
Konstans í Þýskalandi ................................. 54
ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
Konan sækir fram. Þjóðfélagsþegnarnir hafa aldrei verið eins virkir og
nú. Nýju leiðirnar liggja utan flokkanna og hefðbundinna
fjöidasamtaka. Einar Karl Haraldsson skrifar um rannsóknir í Svíþjóð
um þjóðfélagslegt vald................................. 55
Endurmenntun
Spjallað við Margréti S.Björnsdóttur endurmenntunarstjóra . 58
UMHVERFI
Ný leið til landræktar. Birki til landgræðslu. Spjallað við Borgþór
Magnússon og Sigurð H. Magnússon um þessar rannsóknir............ 61
Úr heimi vísindanna. Um mongolíta og greiningu .................. 64
VIÐSKIPTI
Dr. Vilhjálmur Egilsson hagfræðingur
skrifar grein um áframhaldandi
uppstokkun íslenska skattakerfisins.
Vilhjálmur segir að sér virðist sem
ráðherrar telji halla á ríkissjóði á bilinu
2500 til 5000 milljónir króna vera í lagi.
Hann gagnrýnir m.a. viðbrögð lækna við
aðhaldsaðgerðum stjómvalda og telur að
skattlagning á atvinnurekstur muni koma
af auknum þunga inn í umræðuna á
næstunni. Pá fjallar hann og um
virðisaukaskattinn...
UPPELDI
Jákvæður agi í uppeldinu. Spjallað við Sólveigu Ásgrímsdóttur
sálfræðing ...............................................
71
YMISLEGT
Bílar............................................................. 75
Barnalíf .......................................................... 70
Krossgáta......................................................... 78
- Spennandi fréttatímarit -
ans um sameiningu og væntanlega
kaup á hlut ríkisins í Útvegsbank-
anum eru ekki lengur óformlegar,
því aðstandendur þessara banka
hittust nýverið á formlegum fundi.
Ekki er það neyðin sem rekur
bankana í sameiningarviðræður,
það er víst. Þessir bankar búa við
mjög góða afkomu og í raun eru
þetta stórvaxandi veldi í viðskipta-
lífinu. í fyrra var velta þeirra til
samans um 5,5 milljarðar króna,
þar af var Iðnaðarbankinn með 3,3
milljarða en Verslunarbankinn með
2,2 milljarða. Aðeins 9 árum áður
var velta þeirra samtals rúmlega 1,3
milljarðar króna á sambærilegu
verðlagi. Umfang bankanna hefur
því á fáum árum vaxið um 320% að
raungildi eða rúmlega fjórfaldast.
Sameinaðir Verslunarbankinn,
Iðnaðarbankinn og Útvegsbankinn
yrðu að líkindum 5. eða 6. stærsta
fyrirtæki landsins...
o
itt þeirra veitingahúsa sem
urðu gjaldþrota í vetur er Torfan.
Þrotabúið var keypt af þremur
mönnum sem hyggjast opna meiri-
háttar matsölustað í húsnæðinu 1.
maí. Þeir eru Gunnar Kristjánsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri á
Hard Rock Café, Snorri B. Snorra-
son, sem var yfirmatreiðslumaður á
sama stað, og Sturla Birgisson, að-
aleigandi verslunarinnar Mirale.
Um helgina seldu þeir allt innbú
Torfunnar og unnið er dag og nótt
við að bylta staðnum...
f lestir bjuggust við að pöbba-
ásóknin myndi einskorðast við mið-
bæjarsvæðið og litið vit væri í að
setja upp slíkar krár í úthverfum
borgarinnar. Þetta er þó öldungis
ekki rétt, ef marka má yfirburða-
vinsældir Rauða Ijónsins á Eiðis-
torgi á Seltjarnarnesi. Síðustu
helgar hefur verið örtröð í kringum
þessa nýju ölkrá, því ekki er nóg
með að staðurinn sjálfur sé fullur,
heldur er allt torgið undirlagt af
fólki sem sötrar þar bjór sinn undir
glerþaki. Um síðustu helgi mynd-
aðist auk þess biðröð fyrir utan
verslunarmiðstöðina. Að sögn
kunnugra er aldurstakmark frekar
frjálslegt þarna inni, þar sem ekki
er hægt að koma í veg fyrir að ungl-
ingar komist inn á torgið á meðan
kvöldverslanir eru opnar eða allt til
kl. hálftólf, en þá þurfa dyraverðir
að tína þá úr sem taldir eru undir
lögaldri og reka út af torginu...
r
1 síðastliðinni viku veitti borgar-
ráð leyfi fyrir fyrsta leiktækjasaln-
um í Breiðholti. Sá mun verða
staðsettur við Hólasel og er hér á
ferðinni fyrsti leiktækjasalurinn
sem settur er upp í íbúðarhverfi í
borginni. Eigendurnir eru tveir
ungir og upprennandi í bisness;
Leifur Grímsson og Arnar
Laufdal...
l^^jötiðnaðarmenn hafa fram
til þessa getað valið úr atvinnutil-
boðum. Um áramót brá þó svo við,
að atvinnuleysis varð vart í grein-
inni. Fjórir voru á skrá í janúar og
héldu menn að nú væru daprir tím-
ar framundan. Reyndin hefur orðið
önnur, því strax í febrúar rofaði til
og sjá nú kjötiðnaðarmenn fram á
jafnbjarta tíma og áður . . .
I slandsmeistarakeppnin í sam-
kvæmisdönsum fer fram á laugar-
dag og sunnudag í íþróttahúsi
Hafnarfjarðar. í fyrra var keppnin
haldin á tveimur stöðum, á Hótel
íslandi og í Laugardalshöll, en nú
er ljóst að fjöldi sá sem sækir
keppnina rúmast ekki nema í stórri
íþróttahöll. Um þrjú hundruð pör
hafa skráð sig til keppninnar í ár,
eða um sex hundruð keppendur, og
hverjum keppanda fylgja alltaf
nokkrir áhorfendur...
U* -Vwt