Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 12

Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR PRESSAN 1. OKTÓBER 1992 Biður Vigdísi að endur- heimta bát sem tollur- inn seldi Ungur franskur ævintýramaður telur að tollgæslan í Reykjavík hafi brotið á sér þegar hún bauð upp bát sem var í hans eigu. Hann hefur leitað liðsinnis háttsettra stjórnmálamanna til að endurheimta bátinn og útilokar ekki málsókn. Franski þingmaðurinn Jean Pi- erre Fourre hefur ritað Vigdísi Finnbogadóttur forseta bréf þar sem hann fer þess á leit að hún hlutist til um að ungum Frakka, Mathieu Morverand, verði skilað báti sem var í hans eigu en toll- gæslan í Reykjavík gerði upptæk- an og seldi á uppboði í mars síð- astliðnum. Bréfið sendi Fourre, sem er þingmaður fyrir stjórnar- flokk sósíalista og formaður vin- áttufélags Frakklands og íslands, einnig til Björns Bjamasonar al- þingismanns, Georges Kiejman, aðstoðarutanríkisráðherra og mikils vinar Francois Mitterrand Frakklandsforseta, og til Rolands Dumas, utanríkisráðherra Frakk- lands. Þetta mál á sér nokkuð langan aðdraganda. Mathieu Morverand er ungur skólanemi, aðeins 21 árs, sem hefur getið sér nokkurt orð vegna ævintýralegra uppátækja. Um það var til dæmis nokkuð fjallað í blöðum fyrir nokkrum ár- um þegar hann sigldi yfir Ermar- sundákajak. í lok ársins 1990 lögðu Morver- and og tveir félagar hans upp í siglingu ffá Bretagneskaga á bátn- um „Love Love“, sem er af Air Melhin II-gerð og 21 fet að lengd. Var ætlunin að sigla til íslands með viðkomu á ýmsum breskum smáeyjum. Hópurinn mun hafa verið fremur illa búinn af mat og fé, en það mun jafnvel hafa verið vitandi vits, til að ævintýrabragur- inn yrði enn meiri. Undan austur- strönd Englands lentu þau í óviðri og þurftu að leita hafriar. Þar urðu lyktirnar þær að þau fengu far frá Hull til Reykjavíkur með Helgafelli, einu skipa Sam- skipa. Báturinn var einnig fluttur með, Morverand að kostnaðar- lausu. skipa, en PRESSAN hefur ekki fengið það staðfest. Morverand heldur því fram að báturinn hafi verið seldur án þess að hann hafi verið látinn vita á einn hátt eða annan. Þar hefur hann meðal annars kennt Sam- skipum um, en skipafélagið flutti bátinn eins og áður kom fram. Segir hann að Samskip hafi haft heimilisfang sitt og þannig hefði verið auðvelt að láta sig vita af vandræðunum með bátinn. Vandséð er þó að skipafélagið beri nokkra ábyrgð í málinu. PRESSUNNI er ókunnugt um að málaleitan Morverands til for- setans eða annarra valdamanna hafi enn borið árangur. En hann virðist ekki ætla að gefast upp. í bréfum hefur hann sagst vera reiðubúinn að höfða mál til að endurheimta bátinn góða. Þegar til Reykjavíkur kom mun Morverand hafa talið sig eiga ein- hverja möguleika á að fá vinnu. Ekkert varð úr því, en Morverand lét ekki deigan síga, enda gekk hann með þá hugmynd að fá ein- hver íslensk fyrirtæki til að taka þátt í áætlun sem hann hafði á prjónunum. Ætlun hans var að sigla á kajak þvert yfir Atlantshaf, milli Bandaríkjanna og Bretlands. íslendingar reyndust heldur áhugalausir um þetta og að lokum sneri Morverand heim til Frakk- lands. En báturinn varð eftir og lengi vel virtist Morverand ekki hafa mikinn áhuga á að vitahveryrðu afdrif hans. En síðastliðið vor fer hann að gera fýrirspurnir og sýnir því áhuga að fá bátinn til Frakk- lands. Þá kemur fljótlega í Ijós að tollgæslan hefur gert bátinn upp- tækan og selt hann í mars. PRESSAN náði ekki sambandi við neinn hjá toll- gæslunni sem gæti upplýst hvernig á uppboðinu stóð eða hvert báturinn var seldur, en venja mun vera að bjóða upp hluti sem hafa legið hjá tollinum í meira en ár og ekki verið tollafgreiddir. Síðan þetta kom á daginn hefur Morverand verið vakinn og sofinn í að endur- heimta bátinn sinn. í upphafi hafði hann samband við Albert Guðmundsson, sendiherra í París. í bréfum vitnar Morverand í Al- JIAN-PIMRC rOURRfi ASSEMBLÉE JKIff-KAllTMIAlfinT copi» matiow ■ bert og segir að hann hafi sagt í samtali við sig að þetta væru hneykslanlegar aðfarir. Morver- and virðist einnig hafa haft spum- ir af því að báturinn hafi verið seldur syni eins starfsmanna Sam- KRON fer í mál við Sambandið og Sam- vinnuiífeyr- issjóðinn Krafist riftunar á 25 millj- óna króna viðskiptum KRON við Búvörudeildina og Samvinnulífeyrissjóð- inn. í síðustu viku voru þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur tvö rift- unarmál sem þrotabú Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis hefur höfðað. Málarekstur vegna þeirra getur tekið nokkur ár, ef þau fara alla leið til Hæstaréttar, og tefst sem því nemur að ganga ffá gjald- þrotaskiptum á KRON. Að sögn Hlöbvers Kjartans- sonar bústjóra er í báðum tilfell- um stefnt til riftunar viðskipta á þeim forsendum að óeðlilegur greiðslueyrir hafi farið á milli ná- kominna aðila, þ.e. Búvörudeildar SÍS og KRON annars vegar og Samvinnulífeyrissjóðsins og KRON hins vegar. í fýrra tilfellinu er um að ræða að Búvörudeild Sambandsins keypti fasteign KRON í Furu- grund 23 í Kópavogi í maí 1990 og voru 18,7 milljónir af kaupverðinu látnar ganga beint upp í skuldir KRON við Búvörudeildina. Um svipað leyti keypti Samvinnulíf- eyrissjóðurinn hlutafé KRON í 01- íufélaginu hf., að nafnvirði 1,2 milljónir, fýrir 6,7 milljónir. Sú upphæð var einnig látin ganga beint upp í skuldir KRON við sjóðinn. Enn er óvíst hvort þrotabú KRON þarf að leggja fram trygg- ingu fýrir málskostnaði. Stefndu fóru ffam á það við þingfestingu, en dómari hefur ekki tekið af- stöðu til þeirrar kröfu. Leitað var til kröfuhafa í þrotabúið um að þeir tækju þátt í kostnaði við málareksturinn, en það fékkst ekki samþykkt. Reiknað er með að þrotabúið eigi fýrir málskostnaði, en að öðru leyti er búið svo til eignalaust. Fyr- ir utan veðkröfur, sem afgreiðast utan skipta, eru almennar kröfur í búið um 200 milljónir og for- gangskröfur um 20 milljónir. Ljóst er að ekkert fæst upp í al- mennar kröfur og aðeins hluti for- gangskrafna fæst greiddur. Á U PPLEIÐ.m Atvinnuleysið, sem hefur varla verið meira síðan í kreppunni. Jón Sigurðsson, sem mjakaðist ögn uppá- við þegar álfurstarn- ir í Alumax lofuðu að tékka aftur á því hvort þeir gætu sleg- ið lán fyrir álveri. Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son, sem var sauðþægasti fylgismaður Davíðs Oddssonar meðan hann var borgarstjóri, en hefur nú talið í sig kjark og skammar hann fyrir fram- komuna við sveitar- stji Eiður Guðnason, sem Greenpeace lofa í bak og fyrir hvað hann hafi verið harður og klár á Parísarráð- stefnunni um sjáv- armengun. Fáir erða til að lofa Eið g hrósið er gott — þótt það komi frá Greenpeace. Hitastigið, sem náði 16 til 17gráðumá landinu á þriðjudag- inn með fúlu kola- og sótlofti frá Evr- ópu. Ætli veðrið batni þegar við göngum í EES? Á NIDURLEID.ee Jón Sigurðsson, sem segir upp 38 starfsmönnum í járn- blendinu og ætlar að lækka kaupið hjá hinum — og kannski hjá sjálfum sér. Markús Örn Antonsson, sem er búinn með reynslutímann sinn í ráðhús- inu og samherjar hans í Sjálfstæðisflokknum eru smátt og smátt að hætta að vera kurteisir við. Ásmundur Stefánsson. Eða hvað á hann að gera þegar hann hættir að vera forseti ASÍ? Sækja um vinnu hjá Krónan.Eða nægir vilja- styrkur Friðriks Sophusson- ar og Þórð- ar Friðjóns- sonartil að halda henni

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.