Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 24

Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR PRCSSAN 1. OKTÓBER 1992 PRESSAN Útgefandi Blað hf. Ritstjóri GunnarSmári Egilsson Ritstjórnarfulltrúar Egill Helgason SigurðurMár Jónsson Auglýsingastjóri Sigrfður Sigurðardóttir Dreifingarstjóri HaukurMagnússon Farið hefur fé betra I PRESSUNNI í dag er greint frá stöðu Sambands íslenskra samvinnufélaga. Þar kemur fram að staða fyrirtækisins er mun verri en ársreikningar þess gefa til kynna. f þeim eru eignfærðar ónýtar kröfur á hálfgjaldþrota dótturfyrirtæki sem engar líkur eru til að innheimtist. Þá er ekki tekið tillit til ábyrgða, sem Samband- ið hefur gengist í vegna illa staddra samstarfsfyrirtækja, sem að öllum líkindum munu falla á Sambandið. Auk þess skuldfærir Sambandið ekki eftirlaunaskuldbindingar sínar gagnvart starfs- mönnum sínum. Loks er eign fyrirtækisins í Sambandshúsinu á Kirkjusandi eignfærð á verði sem er langt fyrir ofan hæsta verð sem skrifstofuhúsnæði hefúr verið selt á á íslandi. Þegar þetta er allt tekið saman má draga í efa að Sambandið eigi fyrir skuldum. Þó er reiknað með að hægt sé að selja hlut þess í dótturfyrirtækjum á því verði sem hann er eignfærður á í reikn- ingum Sambandsins, en hægt er færa rök að því að einhver þess- ara fyrirtækja séu of hátt metin í reikningunum. Þegar litið er yfir þessa stöðu er Ijóst að Landsbankinn er ekki að leysa til sín eignir Sambandsins til að létta skuldastöðu þess og tryggja hagsmuni sína. Þessi aðgerð bankans er örvæntingarfúll tilraun til að bjarga því sem bjargað verður eftir að hafa leyft þessu fyrirtæki að vaða í sjóði sína um margra áratuga skeið. Það er ljóst að nú sér fyrir endann á sögu Sambandsins og er sjálfsagt fáum eftirsjá í því. Þetta fyrirbrigði, sem eitt sinn var talið eitt af mátarstólpum þjóðfélagsins, mun ekki skilja eftir sig nein raunveruleg verðmæti önnur en uppsafnaðan hermangsgróðann í Regin, eitt olíufélag, lítið skipafélag og nokkur önnur misilla rekin fyrirtæki. Miðað við umfang Sambandsins á undanförnum áratugum og óstjómlegt fjármagnsstreymi til þess telst þetta vart mikið. Það þarf ekki frjótt ímyndunarafl til að sjá fyrir hvað hefði betra mátt gera við þessa fjármuni. En þótt endalok Sambandsins blasi við þráast þeir starfsmenn þess, sem ekki ganga út á almennum vinnumarkaði, við. Þeir vilja halda í þá trú að fyrirtækið hafi einhvern tilgang — ef ekki vill betur, þá sem einskonar félagasamtök kaupfélaganna. Það er vel hugsanlegt að sú verði raunin. Að þessi fyrrum risi í íslensku viðskiptalífi endi sem nokkurs konar Akademía Café Óperu, þar sem Sambandsforkólfarnir geta komið saman og rætt hugðarefni sín. Og þótt þessi endalok séu hjákátleg er ekki hægt að horfa upp á þau með sorg í hjarta. Sambandið er fyrir löngu orðið tákn um þá sjúku viðskiptahætti sem hér viðgengust lengi og hafa dregið mestan mátt úr þessari þjóð. Þó ekki væri fyrir annað; þá væri fagnaðarefni ef Sambandið yrði lagt niður sem tákn um að þjóðin vilji reyna að þokast í átt að heilbrigðari háttum. Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingan Nýbýlavegi 14-16, sími 64 3080 Faxnúmen Ritstjórn 64 30 89, skrifstofa 64 31 90, auglýsingar 64 30 76 Eftir lokun skiptiborðs: Ritstjórn 64 30 85, dreifing 64 30 86, tæknideild 64 30 87. Áskriftargjald 700 kr. á mánuði ef greitt er með VISA/EURO/SAMKORT en 750 kr. á mánuði annars. PRESSAN kostar 230 krónur í lausasölu BLAÐAMENN: Andrés Magnússon, Anna H. Hamar, Bergljót Friðriksdóttir, Friðrik Þór Guðmundsson, Guðrún Kristjánsdóttir, Haraldur Jónsson, Jón Óskar Hafsteinsson útlitshönnuður, Jim Smart Ijósmyndari, Karl Th. Birgisson, Sigríður H. Gunnarsdóttir prófarkalesari, Telma L Tómasson. PENNAR: Stjórnmál og viðskipti; Birgir Árnason, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Hreinn Loftsson, Jeane Kirkpatrick, Mörður Árnason, Ólafur Hannibalsson, Óli Björn Kárason, Ragnhildur Vigfúsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir, össur Skarphéðinsson. Listir; Gunnar Árnason myndlist, Gunnar Lárus Hjálmarsson popp, Kolbrún Bergþórsdóttir bókmenntir, Lárus Ýmir Óskarsson leiklist. Teikningar; Andrés Magnússon, Ingólfur Margeirsson, Jón Óskar, Kristján Þór Árnason. Setning og umbrot PRESSAN Filmuvinnsla, plötugerð og prentun: ODDI V I K A N SÓKNARFÆRl í CHILE Einn vanmetnasti maður þessa lands er sjálfsagt Ingjaldur Hanni- balsson. Þessi fyrrum forstjóri Álafoss veitir nú Utflutningsráði forstöðu. Honum hefúr á skömm- um tíma tekist að efla ráðið svo það er nú farið að leita nýrra at- vinnutækifæra langt fyrir utan hefðbundna markaði íslendinga. Ingjaldur hefur til dæmis fundið ótrúlega sóknarmöguleika í Chile. fslenskir útflytjendur láta sér hins vegar fátt um finnast þrátt fýrir að Ingjaldur hafi sent sinn mann ut- an til Chile þar sem hann var þrjá mánuði að reyna að grafa upp ný atvinnutækifæri. Það kann því að fara svo að þetta þriggja mánaða starf mannsins sé það eina sem Útflutningsráð og Ingjaldur finna í Chile. Það ætti kannski ekki að koma neinum á óvart, því þannig hefur afraksturinn af starfsemi ráðsins verið hingað til. Einu störfin sem það býr til er til handa starfsmönnum ráðsins sjálfs. FREKAR ÞÁ SEM GETA EKKI Það hefúr löngum verið sagt að þeir sem geta ekki snúi sér að kennslu. Þannig eru kennararnir í Verzlunarskólanum þeir sem kunna ekki bissness. En þótt þeir kunni ekki bissness gátu þeir samt fengið lóðina sem MacDonald’s- keðjan sóttist eftir í Kringlunni — og kunna þeir MacDonald’s- menn þó nóg fýrir sér í bissness. En borgarráð kaus heldur að búa þeim sem kunna ekki bissness að- stöðu til að kenna fleirum hana en leyfa þeim sem sannarlega kunna sinn bissness að stunda hann. KRISTJÁN FELLDI GENGIÐ Nú hefur Kristján Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri Lands- sambands íslenskra út- vegsmanna, talað og því er vandséð hvernig gengi íslensku krónunn- ar verður varið. Kristján vill fella gengið og þá verður það fellt. Það kann vel að vera að ráð- herrar geti spyrnt við fótum í fáeinar vikur en sagan sannar að það er alltaf Kristján sem sigrar að lokum. Ef hér væri virkur gjaldeyrismark- aður hefðu spákaupmenn séð um að fella gengið um leið og Kristján sleppti orðinu. En þar sem gengið er fast en ekki frjálst mun einhver tími líða áður en það hlýðir orð- um Kristjáns. HVERS VEGNA Er almenningi treystandi til að kjósa í almennum kosningum efhonum er ekki treystandi til að kjósa um EES? ÞRÖSTUR ÓLAFSSON, AÐSTOÐARMAÐUR UTANRIKISRÁÐHERRA, SVARAR Þannig hljóðar spurning PRESSUNNAR. Spurningin er villandi og veldur misskilningi. Ég hef engan heyrt segja að hann treysti ekki almenningi til að kjósa um EES, þó ekki væri nema vegna þess að kjósendur hafa þeg- ar kosið um EES. Það er hins vegar ekki sjálfgefið að þeir eigi að gera það aftur svo skjótt. EES-málið var á dagskrá fyrir síðustu kosningar og eitt af þeim málum sem bar þar hæst. Núver- andi stjórnarflokkar tóku afger- andi jákvæða afstöðu til málsins og sögðust mundu klára það á svipuðum nótum og drög lágu fýrir, ef þeir fengju hvor fyrir sig umboð til stjórnarþátttöku frá kjósendum. Fyrrverandi samstjórnarflokk- ar Álþýðuflokksins snerust hins- vegar á móti EES-málinu að hluta eða öllu leyti. Um hvort tveggja var kosið í síðustu kosningum í apríl 1991. Síðan þetta gerðist eru aðeins liðnir átján mánuðir. f öllum aðalatriðum er sá EES- samnmgur sem er til meðferðar í Alþingi sá sami og lá fyrir í drög- um fýrir átján mánuðum. Ef eitt- hvað er þá er núverandi samning- ur ótvíræðari og okkur hagstæðari í dómstólamálinu svokallaða. Auðvitað eru mörg álitamál í samningnum, þar er einnig vissu- lega margt sem mun þarfnast frekari skýringa og eflaust verður að leita úrskurðar um mörg mál, þegar samningurinn fer að takast á við raunveruleikann. Þetta eru þó í reynd allt aukaat- riði þótt eflaust heilli þau þá sem unna þrætubókarlist og hafa gam- an af málfundum. Deilur um svo- kölluð stjórnarskrármál eru um keisarans skegg og í reynd grund- vallaðar á slíkum hártogunum að einungis fáir menn gera sér grein fýrir því um hvað sú deila snýst í reynd. Aðalatriðið er þó það að samn- ingurinn er uppsegjanlegur með tólf mánaða fyrirvara. Þessi upp- sagnarréttur er einhliða og leysir viðkomandi ríki undan öllum réttindum og skyldum að upp- sagnarffestinum liðnum. Það er vissulega engin ástæða til að halda þjóðaratkvæði um við- skiptasamning, þótt umfangsmik- ill sé, sem er uppsegjanlegur hve- nær sem er með árs fýrirvara. Enn síður á það við þegar síðustu þingkosningar snerust að veruleg- um hluta um þetta mál og núver- andi stjórnarflokkar fengu ótví- rætt umboð til að ganga ffá mál- inu á Alþingi. Þessa ábyrgð ber Alþingi að axla. Alþingismenn mega ekki skjóta sér undan þess- ari ábyrgð með því að vísa málinu ff á sér. f reynd má segja að búvöru- samningurinn sem gerður var fýr- Alþingismenn mega ekki skjóta sér undan þessari ábyrgð með því að vísa málinufrá sér ir rúmlega ári hafi bundið hendur ríkisvaldsins og þjóðarinnar meira en EES-samningurinn ger- ir, svo ekki sé nú talað um lögin um kvótakerfið og lögbindingar ffamtíðarsjávarútvegsstefiiu. Síðastnefnda málið er örlaga- mál fýrir þjóðina og miklu nær að krefjast þjóðaratkvæðis um það en EES. Framtíðarbinding þjóðarinnar verður, ef að líkum lætur, mun meiri þar en gagnvart EES. Þá erum við hins vegar komin að spurningunni um notkun þjóðaratkvæðis í stjómkerfi okk- ar, en það er óháð EES-málinu. Umræður þar um eiga vissu- lega fúllan rétt á sér, en slíkt kerfi þýddi óhjákvæmilegt valdaafsal Alþingis. FJÖLMIÐLAR Lítill afrakstur afháum styrkjum Á fjárlögum yfirstandandi árs eru 80 milljónir ætlaðar til út- gáfustyrkja til stjórnmálaflokka. Þetta er álíka upphæð og varið er samtals til rekstrar heilsugæslu- stöðvanna á Akranesi, í Borgar- nesi, Stykkishólmi, Ólafsvík, á Gmndarfirði og í Búðardal. Þetta em semsagt mildir penmgar. Á sínum tíma hafa þessir styrkir sjálfsagt verið rökstuddir með því að sökum smæðar þjóð- arinnar væri eðlilegt að ríkið styrkti útgáfú blaða til að tryggja lýðræðislega umræðu í samfélag- inu. Með því væri komið í veg fyrir að auglýsendur eða aðrir fjársterkir aðilar gætu haft í hendi sér hvaða blöð héldu velli og hver lognuðust út af. I sjáifu sér gef ég ekki mikið fyrir þessa hugmynd. Stjórn- málaflokkunum er engu betur til þess treystandi en öðrum að halda h'fi í blöðum. Og þegar allt kemur til alls eru það fyrst og ffemst lesendur sem hafa líf blað- anna í hendi sér. Auglýsendur koma á eftir lesendunum til blað- anna en ekki öfúgt. f raun skiptir engu máli hvort hugmyndin er góð eða slæm. Eins og málum er háttað í dag hirða stjórnmálaflokkarnir þess- ar 80 milljónir og nota í eigin rekstur. Aðeins brotabrot af þeim fiármunum fer til útgáfú. Stærst- ur hluti fer í að halda uppi skrif- stofum flokkanna, greiða starfs- mönnum þeirra laun og borga kosningabaráttu þeirra. Þó að kosningum fylgi alltaf einhver útgáfa er mér til efs að þingmenn kæmust upp með að samþykkja 80 milljóna króna ffamlag til útgáfú kosningabæk- linga. Það er því eðlilegt að meta þennan styrk út ffá því hversu vel hann nýtist til útgáfu blaða eða tímarita. Og hvað fær almenningur fýrir 80 milljónirnar sínar? Hugsan- lega hafa þær haldið Alþýðublað- inu, Tímanum, Degi og Veru á floti. önnur blöð eða tímarit hafa ekki notið þeirra. Ef ég má svara fýrir mitt leyti; þá vil ég frekar halda eftir mínum hlut af 80 milljónunum en verja þeim í þessi annars ágætu blöð. Ég held að lýðræðisleg umræða í þjóðfélaginu mundi ekki bera mikinn skaða af þótt þau hyrfú. Enda þótt revnsla mín af heilsugæslunni í Ólafsvík sé ekki góð eftir að botnlanginn í mér sprakk þar um árið er ég sann- færður um að þeim 80 milljónum sem varið er til rekstrar heilsu- gæslustöðva á Vesturlandi er bet- ur varið en þeim 80 milljónum sem fara í að halda uppi Tíman- um, Degi, Alþýðublaðinu og Veru.____________________________ Ciunnar Smárí Egilsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.