Morgunblaðið - 23.04.2004, Side 56

Morgunblaðið - 23.04.2004, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. TVEIR drengir, níu og tíu ára að aldri, fundu haglabyssu uppi við húsvegg á Seyðisfirði á mánudag. Voru þeir á gangi þegar þeir sáu byssuna og töldu þeir rétt að láta lögregluna strax vita af málinu. Náðu þeir strax í fullorðinn aðila, hér- aðslögreglumann sem var ekki á vakt en var staddur rétt hjá og fjarlægði hann skotvopnið og tók í vörslu lögreglunnar. Reyndist byssan óhlaðin og engin skot- færi í grennd við hana. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafði veiðimaður sem var að koma af svartfuglsveiðum gleymt byssunni við vegginn um stundarsakir og gengu drengirnir þá fram á byssuna. Þóttu drengirnir að sögn lögreglu bregðast hárrétt við. Fundu haglabyssu á glámbekk BÚAST má við umtalsverðri fjölgun nýnema í framhaldsskólunum í haust en árgangurinn er stærri en verið hefur undanfarin ár eða hátt í 400 fleiri en næsti árgangur á undan. Auk þess hefur hlutfall þeirra af hverjum ár- gangi sem sækja um nám í framhaldsskólunum hækkað jafnt og þétt á undanförnum árum og er líklegt að það hlutfall mun halda áfram að hækka, skv. upplýsingum Aðalsteins Eiríks- sonar, verkefnisstjóra í menntamálaráðuneyt- inu. Áætlanir gera ráð fyrir að allir fái skólavist Sölvi Sveinsson, skólameistari Fjölbrauta- skólans við Ármúla, segir að bjartsýnustu menn telji að miðað við fjárveitingar vanti hugsanlega 400–500 sæti í framhaldsskólum í Reykjavík á næsta skólaári. „Og þeir sem svartsýnastir eru telja að það muni vanta allt að 800 til 1.000,“ segir Sölvi. Hann segir fjölgunina ekki eingöngu stafa af því að árgangur nýnema sé fjölmennur, heldur sæki fleira fólk í nám í framhaldsskólum til að afla sér réttinda, þar sem sorfið hafi að á vinnumarkaði meðal þeirra sem hafa litla sem enga menntun. Aðalsteinn segir enn nokkra óvissu um hversu margir muni sækja um skólavist í haust en innritun fer fram í byrjun júní. Hann segir að gert sé ráð fyrir því í fjárlagagerð og áætl- unum að allir fái skólavist. „Það er ekkert ann- að á borðinu en að það muni sleppa að öllu óbreyttu,“ segir hann. Erfiðleikar blasa við í Flensborgarskóla Hrefna Geirsdóttir, aðstoðarskólameistari Flensborgarskóla í Hafnarfirði, segir erfiðleika blasa við vegna fjölgunar nýnema, þar sem skólinn er ekki nógu stór til að taka á móti öll- um. Spurð hvort stefni í að ekki fái allir skóla- vist segir Hrefna að reynt verði að gera allt sem hægt er til að taka við umsækjendum í haust. 530 nemendur eru við nám í Flensborgar- skóla á yfirstandandi skólaári og er skólinn fullskipaður. Um 70 nemendur útskrifast í vor en Hrefna segir alveg öruggt að mun fleiri muni sækja um skólavist í haust en þeir sem útskrifast. „Það er alveg greinilegt að það verða erfiðleikar að komast að,“ segir hún. Sölvi segir að ef mæta eigi öllum sem sækja um skólavist þurfi að veita meira fé til skóla. „Það liggur ekkert fyrir enn en ég veit að menntamálaráðuneytið hefur fullan hug á að sækja meira fé þegar séð er hverjar innrit- unartölurnar verða,“ segir hann. Búist er við mikilli fjölgun nýnema í framhaldsskólum í haust Telja vanta 400 til 1.000 pláss í skólum í Reykjavík KARLMAÐUR á þrítugsaldri var handtek- inn í gær eftir að hafa skotið úr loftriffli á vegfarendur við Miklatún. Lögreglu var um þrjúleytið tilkynnt um að manneskja hefði orðið fyrir skoti úr loftriffli. Var talið að skotið hefði komið frá hópi fólks sem sat á túninu og skemmti sér. Reyndist vopnaði maðurinn meðal þeirra. Grunur leikur á að fólkið hafi verið ölvað og hugsanlega undir áhrifum fíkniefna. Sjö manns voru færðir í fangageymslu lögregl- unnar. Málið er nú til rannsóknar, en vitað er um einn mann sem fékk skot í sig. Hann er ekki mikið meiddur. Skotið með loftriffli á Miklatúni EITT af greinilegustu einkennum þess að vorið sé gengið í garð er til- hugalíf og varp fuglanna. Varptím- inn er nú að komast á fullt skrið og eru fyrstu fuglategundirnar nú orpn- ar. Þar má nefna fálka, hrafna, tjaldi, svartþresti og starra. Að sögn Jó- hanns Óla Hilmarssonar, formanns Fuglaverndarfélags Íslands, sáust einnig álftir á hreiðri á skírdag á Eyrarbakka, sem er með fyrra móti. „Þetta er greinilega að færast fram- ar, enda veðrið búið að vera mjög milt,“ segir Jóhann en varar við að ef það gerir vont hret gæti komið bak- slag í varpið. „Við vonum bara að svo fari ekki.“ Jóhann segir komið nokkuð skrið á tilhugalíf fuglanna. „Hrossagaukar eru farnir að syngja, sem og stelkar og lóur. Þetta fer allt á fullt núna um mánaðamótin,“ segir Jóhann og bæt- ir við að allir helstu farfuglar séu komnir fyrir utan óðinshana og kríu. Varpið kom- ið vel af stað Ljósmynd/Ragnar Sigurjónsson Gæsahreiður fannst í Viðey. FÁTT er meira tilheyrandi á sumardaginn fyrsta en lúðraþytur og trommuslög þrammandi skrúðgangna. Hefðin fyrir skrúðgöngum með lúðrasveitum í fararbroddi hefur haldist hér á landi í meir en sextíu ár. Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts hefur löngum gengið á þessum degi og haldið tryggð við hefðina þrátt fyrir óviss veður. Hinn ungi trommuleikari, Teitur Snær Tryggvason, lét ekki ungan aldur aftra sér frá því að marséra með sveitinni hans stóra bróður, en lét kampakátur kjuðana dynja á forláta Fisher Price trommunni í veðurblíðunni. /6 Morgunblaðið/Sverrir Smár en knár sumarliði KOSIÐ verður um sameiningu Austur- og Norður- héraðs, Fljótdalshrepps og Fellahrepps samhliða forsetakosningum í júní í sumar. Þetta var ákveðið á fundi samstarfsnefndar sveitarfélaganna á mið- vikudagskvöldið. „Það er búið að vera að vinna tillögur og mál- efnaskrá undanfarna mánuði. Samstarfsnefndin hefur komist að þessari nðurstöðu og þá verður ekki aftur snúið,“ segir Óðinn Gunnar Óðinsson, starfsmaður samstarfsnefndar um sameiningu. Íbúar Austurhéraðs eru um 2.140, Norðurhéraðs um 320, í Fellahreppi búa um 470 manns og liðlega 90 í Fljótsdalshreppi. Verði sameiningin samþykkt verður því til nýtt sveitarfélag með um þrjú þúsund íbúum. Kosið á Héraði Á sumardegi á Fljótsdalshéraði. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.