Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.2003, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.2003, Blaðsíða 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. NÓVEMBER 2003 H elgi Þorgils Friðjónsson: Ég sá verk þín í fyrsta skipti í svissneska listtímaritinu Sondern, rétt fyrir 1980, og var strax forvitinn um þau. Þetta var samansafn af sögu- legri myndlist tengdri haf- inu, sem þú hafðir safnað saman og skrifað texta með. Fyrir það fyrsta hafðir þú valið listamenn sem allir voru í uppá- haldi hjá mér á þessum tíma, og svo skrifað þennan óvenjulega texta, ekki síst þegar maður hugsar um tímann. Getur verið að sameiginleg- ur áhugi okkar á de Chirico hafi verið lykillinn að þessari forvitni minni? Stephen McKenna: Listtímaritið Sondern helgaði sig samruna og skyldleika ritlistar og myndlistar, texta og myndar, eða hugsunum myndlistarmanna um sýnilegar hugmyndir. Þetta hefur verið mitt aðaláhugasvið á öllum listferlinum, og ég setti hugmyndir mínar fram í nokkrum heftanna. „On taste and Marine Pict- ures“ var skipulögð tilraun til að reyna að setja saman að því er virtust ólík verk sem höfðu sama innihald, þ.e.a.s. innihéldu öll hugmyndir um sjóinn. Sjórinn hefur alltaf verið viðfangs- efni hjá mér. Ég lagði upp með verk eftir nokkra listamenn sem ég hafði sérstakan áhuga á á þessum tíma, þar á meðal Courbet, de Chirico, Boeklin og Broodthaers, sem voru meðal þeirra listamanna sem voru með sögulegar tengingar og því mikilvægir í heildarbygginguna. Svo bætti ég við nokkrum myndum annarra lista- manna sem gátu skipt máli í þessu samhengi. Textann skrifaði ég svo eftir á. Girico de Chirico er fyrir mér einn allra mik- ilvægasti málari tuttugustu aldarinnar og að auki sérstaklega góður rithöfundur. Arnold Boecklin er einn af bestu málurum nítjándu ald- arinnar; þeirri skoðun deili ég með de Chirico. HÞF: Þetta var á tíma konseptlistarinnar, og flestir þeirra listamanna sem fengu athygli í list- tímaritunum og á stóru frægu sýningunum á þessum tíma unnu í önnur efni en teikningu og málverk. Aðallega voru þetta ljósmyndir, texti og vídeó. Hvað sem öllu leið þá var þetta tillegg til hugmyndarinnar um stöðuga þróun listasög- unnar og heimspeki. Einn listamaðurinn sem þú hafðir með í þessu vali var mjög virtur hug- myndamyndlistarmaður á þessum tíma og vann í óhefðbundnari efni, Marcel Broodthaers. SM: Marcel Broodthaers var ljóðskáld sem lagði til innsæi sitt og gáfur til að athuga stöðu myndlistar samtíma síns. Hann var mjög góður ljósmyndari og kvikmyndatökumaður. Hann gerði sér ljóst að vanræksla tímans milli sextíu og áttatíu við málverkið og teikninguna hafði rýrt listina. Kaldhæðin og fjarlæg notkun á hefðinni. Margir af hans tilbúnu hlutum og inn- setningum eru eins konar leit til baka, til ljóð- rænunnar sem er fyrir hendi í málverkum eftir t.d. de Chirico og Boeklin. Þó að málverkið og teikningin hafi alltaf verið meginefnið sem ég hef notað í myndlist minni síðan snemma á sjö- unda áratugnum, þá hef ég skipst á skoðunum við og deilt hugmyndum með svokölluðum hug- myndalistamönnum, sem virtust vera náttúru- legir bandamenn í samræðum um hugmynda- lausa framkvæmd stórs hluta abstrakt expressjónismans. HÞF: Svo kom málverkasprengingin, og þá sáust verk þín meira og víðar, oft með „neó-neó- klassíkinni“, eins og t.d. Carlo Maria Mariani, Umbaldo Bartolani og fleirum. Hvað um þá samlíkingu? Einhvern veginn fannst mér þeir nota söguna meira eins og stíl á meðan þín verk voru meira um hugmynd og þróun. Meiri þétt- leiki í tilvitnunum til ólíkra tímabila og hug- mynda og vitund um sögulega hreyfingu. SM: Þegar málverkið komst aftur í tísku um 1980 reyndi hinn opinberi listheimur að setja mig í margs konar samhengi, oft á mjög svo ein- feldningslegum forsendum eða þá alltof þægi- legum og tilfallandi. Ég var settur í flokk með póstmódernistum, ný-ný-klassíkerum, „Bad painting“, hugmyndalist og jafnvel akademískri skólalist. Með einhverjum hætti var hægt að koma mér fyrir hér og þar. Hvað Ítalina varðar þekki ég þá marga persónulega og líkar vel við list margra þeirra, en samsvörunin við þá í mál- verkum okkar er að mestu misskilningur. Flest- ir þeirra byrjuðu sem málarar á skólaárunum en þróuðust yfir í hugmyndalistamenn, en sneru sér svo aftur að málverkinu með sérstökum stíl, sem tilheyrði tímanum og var einhvern veginn í verndaðri og hæðnislegri fjarlægð frá viðfangs- efninu. Sjónrænt tillegg þeirra til listarinnar var oft yfirborðslegt minni í listasöguna. Ég málaði allt- af, en reyndi stöðugt að þróa breytiferli í mál- verkunum, hvað varðaði hugmyndir og innihald í grunngerðinni. Grunnurinn í málverkum mínum er alltaf að einhverju leyti frá einhverju raunverulegu í ytri veruleikanum; þannig má segja að málverk mín og teikningar af náttúrunni, hvort sem það er frá hlutlægri fyrirmynd eða skissum og minn- ispunktum, hafi alltaf verið hluti af minni vinnu. legt að endurtaka það í sömu og þvílíkri mynd. HÞF: Þú skipulagðir málverkasýningu á Irish Museum of Modern Art fyrir nokkrum árum, mér virtist þetta gott val á listamönnum og nokkuð ólíkt því sem maður á almennast að venjast í dag, og þó nokkrir listamenn sem ég varla kannaðist við. Eins og fyrir utan tísku- hreyfingar, en með sterka sögulega vitund. Get- ur þú sagt eitthvað um hugmyndir þínar sem lágu að baki þessari sýningu? SM: Málverkasýningin sem ég skipulagði á Ir- ish Museum of Modern Art hafði sérstaka auka- breytni sem ég skilgreindi í sýningarskrá. Sögu- legur helmingur listaverkanna á sýningunni innihélt verk eftir þá listamenn tuttugustu ald- arinnar sem hafa haft mesta þýðingu fyrir mína myndlist. Samtímamálararnir voru allt málarar sem ég hef fylgst með og borið virðingu fyrir í langan tíma, og margir þeirra að auki vinir mínir eða kunningjar. Sýningin var persónuleg sýn mín yfir stöðu málverksins frá sérstaklega landfræðilegum fjarvíddar-útgangspunkti frá Dublin. Ef ég hefði haft umsjón með sambærilegri sýningu frá London eða Berlín eða Mílanó hefði samtíma- hluti sýningarinnar trúlega orðið allt öðruvísi. HÞF: Getur þú gefið mér lauslega mynd af því hvernig þú vinnur. Hugsarðu teikningarnar sem vinnumyndir fyrir málverkin eða eru þau unnin alveg sem endanleg myndverk? SM: Olíumyndirnar sem ég mála eru venju- lega undirbúnar með teikningum og vatnslita- myndum. Þær myndir sem ég vinn á pappír geta því verið allt frá snöggum skissum að vel und- irbúnum myndum. Teikningarnar geta verið fjöldi tilbrigða við smáatriði í undirbúnings- vinnu fyrir stóru fígúratífu málverkin, sem hafa í sér flókið byggingar- og fjarvíddarkerfi og sögulegar skírskotanir. Ég mála sérstaklega oft smáatriðin aftur og aftur. Jafnframt því að vera vinnumyndir þá set ég þau fram sem endanleg myndverk. Almennt vinn ég mjög kerfislega, reglulegan vinnudag og er með nokkur málverk í takinu. Stundum tek ég fram striga sem ég kláraði aldr- ei, og gat aldrei klárað, og byrja að mála mynd- ina á ný. UPPHAFIÐ EITT- HVAÐ SEM ÉG SÉ Morgunblaðið/Jim Smart „Ég veit ekki hvort það er sérstök norræn tilfinning í verkum mínum, eða hvort hún er til yfir höfuð,“ segir McKenna. Breski myndlistarmað- urinn Stephen McKenna sýnir um þessar mundir tíu myndverk í Galleríi Gangi, heimagalleríi koll- ega síns, Helga Þorgils Friðjónssonar á Reka- granda 8. McKenna hefur verið áberandi í evrópsku listalífi á liðnum áratugum fyrir eigin listsköpun og sýningastjórn. Helgi Þor- gils ræddi við McKenna um myndlist. HÞF: Þegar við hittumst í Mílanó um 1990 held ég að þú hafir verið að flytjast aftur til Ír- lands. Málverkin virðast taka nokkrum breyt- ingum við það skref. Ég ímyndaði mér alltaf þegar ég sá málverkin sem þú vannst nærri Miðjarðarhafinu, þar sem þú notaðir mikið söguleg minni frá því svæði, að það væri samt sem áður norræn tilfinning í þeim og listamenn- irnir sem þú valdir í „On taste and Marine Pict- ures“ eru oft sagðir vera með norrænar áherslur. Er yfirhöfuð hægt að tala um eitthvað norrænt? Kirkegaard, Köbke, Simberg, Hamm- ershöj? Ég hef séð að litanotkunin hjá þér breyttist, birta í myndunum virðist verða meira viðfangsefni en áður; þótt áhugi þinn fyrir sög- unni og þekking þín á málverkinu sé ennþá gegnumgangandi hefurðu málað meira og meira heimilislega hluti og landslagið í kringum þig. Kannski er þetta rangt hjá mér. Hvernig velur þú viðfangsefnið? SM: Ég veit ekki hvort það er sérstök norræn tilfinning í verkum mínum, eða hvort hún er til yfirhöfuð. Það er þó sannarlega rétt að Norður- Evrópubúar hafa sérstakan áhuga á eða heillast af ljósi. Kannski höfum við þróað þessa tilfinn- ingu fyrir ljósi vegna þess að við eyðum svo miklum tíma í dimmu eða hálfrökkri. Miðjarð- arhafsbúar búa í sterku ljósi og hafa því síður ástæðu til að hafa það sem viðfangsefni. Við sem erum norðan að höfum líka þörf fyrir að heim- sækja suðrið, og jafnvel búa þar til lengri eða skemmri tíma. Ítalir, eins og de Chirico og fleiri, höfðu sérstakan innihaldslegan áhuga á nor- rænni heimspeki. Eins og ég sagði áður er upp- haf verka minna alltaf tengt einhverju sem ég hef séð. Það gæti verið annað málverk, en venju- legast er það eitthvað sem tilheyrir hinum ytri heimi, svo sem landslag, tré, kýr, bygging eða áhrif ljóss í vatni. Af þessari ástæðu breytast myndir mínar þegar ég færi mig frá einni vinnu- stofu til annarrar. Núna hef ég vinnustofu bæði á Ítalíu og á Írlandi. Kannski var ein af ástæðum þess að ég flutti aftur til Írlands þörf mín fyrir þá sérstöku birtu sem er hér. Hvað sem öllu líð- ur og hversu mikið sem ég treysti á náttúruna hef ég stöðugt í huga og vinn með langa sögu málverksins, vitandi að allt hafi verið gert áður, en samt sem áður og þrátt fyrir allt er ómögu-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.