Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.2003, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.2003, Blaðsíða 10
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. NÓVEMBER 2003 Á haustsýningu í Hallgríms- kirkju sýnir Gunnar Örn myndaröð, sem hann kall- ar Sálir. Það er nú reynd- ar hnyttið nafn á sýningu í kirkju! Gunnar Örn hef- ur lengi horft á fólk, hlustað á sögur, fylgst með vinum sínum og fjölskyldu. Hann hefur staðið við lygnur og starað í spegilmynd sína og horft niður í djúp tilverunnar. Þetta hefur síðan allt orðið honum tilefni, sem hann hefur túlkað á léreftið. Myndirnar á sýningunni í kirkjunni eru kyrrlátar og agaðar. Stilling þeirra er svo slá- andi að þær stöðva jafnvel hraðfara ferða- menn. Fletirnir eru hvítir eða einlitir með skýrum formum. Sem næst blöðrulaga eggj- um í ýmsum litum er raðað á ljósan strigann. Þarna eru sálirnar og sýningin minnir áhorf- endur á að sálir eru ekki yfirvarp eða útlit, heldur andlegur veruleiki. Myndirnar sýna alls konar sálir. Sumar eru litlitlar, aðrar marglitar, nokkrar eru kröftugar og enn aðr- ar máttlitlar. Sálir eru flestar í hóp og oftast tengdar. Hvað er í þessum sálnaspegli, sem er ekki boðað með beinum hætti? Myndir Gunnars Arnar leysa ekki sálargátur áhorf- enda. Þær prédika ekki, en þær anda og lifa þar með. Þær örva skynjun á dýptina og hugsun um lífið. Þær spyrja um sjálfsmyndir, ímyndir og djúpmyndir. Sálin og systir hennar Á bak við vestræn heiti fræðigreinarinnar sálfræði er nafn grísku gyðjunnar Psyche. C.S. Lewis ritaði eitt sinn bók um Psyche og systur hennar, sem hét Órúal. Psyche var sögð fögur og hún reyndist traust í lífsraun- um sínum. Vegna staðfestu uppskar hún ástir elskuguðsins Erosar. Saga hennar er fyrir- myndar- eða jafnvel kennslu-saga um sálina í þroskaleit, með elskuna að leiðarljósi. Órúal, var ólík systurinni ástríku. Hún var svo ófríð að hún kaus að láta aldrei sjá sig án þess að fela andlitið á bak við grímu. Á nútímamáli getum við sagt að sjálfsmynd Órúal hafi verið veik, en gríman veitti henni vörn. Í skjólinu hafði hún athafnafrelsi, sem varð til að hún erfði konungsríki föður síns. Landsmenn Órúal sáu grímuna og ræddu um hvernig ásjóna hennar væri, hvort hún væri nokkur, eða hvort hún væri svo fögur að enginn mætti líta hana. Engum kom til hugar að gríman væri vörn hryggðarmyndar. Sögur um hið dularfulla andlit fóru sem eldur um landið. Gríman féll Í skáldabúningi Lewis er síðan sagt frá, að síðar hafi Órúal lent í raunum. Hún var svipt valdi, klæðum og grímu og að lokum leidd berstrípuð fyrir dómstól guðanna. Þegar allt var tekið frá henni, varnirnar fjarlægðar, staða og umbúðir einnig, kom í ljós keipa- krakki. Hún vældi og skammaðist yfir að ver- öldin væri ekki eins og hún vildi, að ekki hefði verið farið að öllu eftir hennar óskum. Þetta er sagan um hina grímu- lausu frekju og sjálfshverf- ingu. Sagan segir síðan hvern- ig Órúal gekk í sig, náði þroska og gerði sér grein fyrir að til að ávinna allt varð hún að missa. Til að ná þroska varð hún að týna hækjum lífsins. Til að vitkast varð hún að sjá sig eins og hún var og viðurkenna sig eins og hún leit út. Gríman varð að falla til að sjálfsþekk- ingu yrði náð. Sagan er bæði forn og ný og er til í jafnmörg- um myndum og mennirnir eru margir. Lífsgrímur Er sagan um Órúal dæmi- saga um okkur? Er líf manna æðisgengin leit að grímum og ímyndum? Er líf margra sam- felldur Barbieleikur, þar sem jafnvel dauðinn er ekki lengur til án þess að vera fegraður og snurfusaður? Er það versta fíkn mannsins að dýrka eigin grímu, eigin ímynd, eigin draum? Þegar svo er komið er ímyndin orðin að sannleika og raunveran orðin að lygi. Hver er gríman mín? Hver er gríman þín? Eða áttu enga grímu? Er innrætið horfið og ekkert eft- ir nema sýndarveruleiki? Ásjónur eru okkur mönnum mikilvægar. Við höfum tiltrú til andlita átrúnaðargoða okkar. Börnin tengja öryggi og elsku við ásjónur fjölskyldu sinnar. Eðlilegur barns- þroski er jafnvel tengdur andlitum. Við lær- um að greina í þeim reiði, gleði, voða og veg- semd. Andlit eru mikilvæg en eru þetta mennsk andlit? Guðsmyndin Við flokkum ásjónur snarlega í konur og karla, svertingja og eskimóa, Austurlandabúa og norrænt fólk. Við greinum að og sjáum ímyndir. En Jesús Kristur fer hins vegar öf- ugt að. Hann sér í hinu ólíka samsemd, í hin- um mismunandi litu andlitum hið sam- mennska, í mismunandi mönnum og kynþáttum það sem tengir þá. Jesús tekur aldrei frá mönnum rétt þeirra, heiður og ríki- dæmi heldur leitast við að gefa mönnum gæði. Hann leitast aldrei við að ná til sín, sölsa undir sig, heldur útdeila mönnum því sem Guðs er. Guðsstarfið er ævinlega það að gera menn Guði líka, skapa þá í sinni mynd, gefa þeim vald og vegsemd, ríkidæmi og mátt. Sagan sem fyrstu blaðsíður Biblíunnar seg- ir er að menn skildu ekki að þeir voru sem Guð og reyna því allt til að verða eins og Guð. Síðan heldur Biblían uppi myndum af sálum í leit að mynd sinni. Myndirnar eru af einstak- lingum af holdi og blóði, sem eru eins og speglar sem við getum séð okkur í, Abraham, Davíð, Rut, María, Marta og Páll. Allt sögur MANNAMYNDIR, GRÍMUR OG GUÐSMYND Gunnar Örn sýnir kyrr- látar sálarmyndir á haustsýningu í Hall- grímskirkju, sem lýkur í nóvemberlok. Fyrir mörgum árum málaði hann líkamsparta og iðraslitur. En Gunnar Örn hefur gengið í end- urnýjun lífdaga og mál- daga. Hér eru myndir manna íhugaðar. Sálir eftir Gunnar Örn. Eitt af verkunum á sýningunni í Hallgrímskirkju. Höfundur er doktor í guðfræði og aðstoðarprestur í Hallgrímskirkju. E F T I R S I G U R Ð Á R N A Þ Ó R Ð A R S O N „Hvað er í þessum sálnaspegli, sem er ekki boðað með bein- um hætti?“ Verkið nefnist Sálir. um sálir sem eru misskýrar myndir af mynd Guðs. En skýrust er myndin af Jesú. Þar er mynd Guðs. Kristnir menn hafa gjarnan sagt að þar sé mynd Guðs í mannsmynd. En það er ekki nákvæm lýsing því við erum mennsk af því við erum sköpuð í Guðs mynd. Mynd Jesú er sú mynd sem okkur mönnum er ætlað að vera til að við séum fyllilega í Guðs mynd. Þegar við reynum að setja upp grímu flýjum við mannsmynd okkar, sem er Guðsmynd okkar. Því stórkostlegri ímyndum sem við komum okkur upp því lengra erum við frá raunmynd okkar. Því betur sem við leyfum grímum að falla af okkur því betur og nær komum við sjálfum okkur, mynd Guðs. Á leið til lífs Sálirnar hans Gunnars Arnar í forkirkjunni eru um þetta, held ég. Þær eru ekki eins og leikur að eggjum á Náttúrugripasafni eða myndir af svartfuglseggjum í veiðiferð á vori. Þær eru frekar myndir af leit mannsins að sjálfum sér, því sem kemur í ljós þegar grím- urnar falla. Þegar lífið dagar á okkur sjáum við, að atferli og spor svo margra tilheyra grímudansleik. Verjurnar falla og lífið sjálft sýnir allt aðrar myndir en fólk hefur viljað sýna og sjá. Hvað er þá eftir, hvaða líf bíður þess að eignast mót? Sálir Gunnars Arnar hvísla að öllum sem eiga leið inn í hlið himins í Hallgrímskirkju: Hver ert þú? Hvaða líf er þér opinberað? Hvað fæðist nú á þinni að- ventu? Gunnar Örn kemur sífellt á óvart með mannlífsmyndum sínum. Hér situr þú í þokusveipaðri morgunkyrrð og veist að áttatíu og fimm ár geyma takmörk tilvistar. Löng vegferð ofin úr sorg, sársauka, gleði og friði, án skýringar. Dularmagn vitundar hefur staðfest að frá ófreski kærleika og góðvildar er ávallt vakað yfir lífi. Eins og Beatrice, hin látna ástmey vakti yfir Dante og sendi honum anda mannlegrar skynsemi, Virgil, er hann villtist í myrkum skógi og gat ei lengur greint jarðneska vegferð sína. Svo lítur þú líf þitt. Hve miskunnarlaust leiddi Virgill Dante gegnum ógnir og hrylling þess vítis er maðurinn skóp utan hins skilvitslega, um leið og fullvissu um eilífa sælu kærleika réttlætis og friðar. Andlegur sársauki Dantes hrópaði á hvíld í stríðu, ljóslausu lífi. Í sigrandi mætti sínum vissi Beatrice að jarðnesk hvíld geymist í næmum skilningi á andstæðum góðs og ills sem mennirnir verða sífellt að velja á milli. Af ást kærleikans knúði hún skáldlegan anda Dantes til sárrar ferðar um Helvíti það er mennskan hefur gróðursett og ræktað utan tilvistar. Í vitund Dantes vék andi Beatrice aldrei frá þeim Virgli, sem yfirgaf Dante ekki fyrr en komið var úr dimmum dal myrkviðis og hann naut hvíldar „á grænum grundum“ þar sem gæska Almættis er eilíf. Dante öðlaðist skilning á hinum sívirku átökum góðs og ills og hann spurði: „Hví má slík gæska í moldarleirnum búa?“ Kærleiksríkur andi Beatrice hvarf, en vísaði veginn. „Guðdómlegi leikurinn“ varð til. Dýrmæt gjöf Dantes til mannkyns. Í skilningsríku samræmi við 23. sálm Davíðs konungs. Í „La Divina Commedia“ Dantes og 23. sálmi Davíðs býr máttugur kraftur kærleika og vonar í veröld nútímans. Hvergi felst slík vissa um að sól og stjörnur munu aldrei hætta að lýsa þeim er vill horfast í augu við andstæður lífsins og vinna úr þeim. Í ágúst 2003 JENNA JENSDÓTTIR RÖK TILVISTAR Höfundur er skáld.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.