Íslendingaþættir Tímans - 11.08.1971, Blaðsíða 10

Íslendingaþættir Tímans - 11.08.1971, Blaðsíða 10
brag, risnu og skörungsskap, svo sem hún á kyn til. Þau hjón eign- uðust tvær dætur og einn son, og er sonur þeirra Hjörtur Hjartar, framkvæmdastjóri skipadeildar S.Í.S. Svanhildur var elskuleg kona og myndarleg í sjón og raun og bjó hún bónda sínum, sem var henni svo ástríkur, umhyggjusam ur og nærgætinn eiginmaður, að á betra varð ekki kosið, gott og fall- egt heimili. Þau eignuðust aðeins eitt barn, Ólaf Ragnar, sem nú er maður jrjóðkunnur og lektor við Háskóla íslands. Frú Svanhildur snennna heilsuveil, og var það þeim feðgum sár raun, hve oft hún varð þjáð að dvelja í sjúkra- húsum fjarri heimili sínu — og það var þeim mikill missir, þá er hún lézt eftir iangvarandi þján- ingar sumarið 1966 — aðeins rúm- lega fimmtug. 'Haiur Ragnai vai foreldrum sínum góðnr -or ui þeg ar á bernsku- og unglingsárum, reyndist fágætlega reglusamur og duglegur námsmaður og að sama skapi áhugasamur um öil almenn mál. Urðu þeir feðgai sérlega sam- rýndir og ræddu landsins gagn og nauðsynjar sem jafnaldrar og jafn- réttháir vinir og félagar, hvað sem leið deilum flokka og forystu- manna í þjóðmálum, og þarf ég engum getum að því að leiða, að Ólafi Ragnari hafi orðið ærið mik- ið um fráfali þess drengskapar- manns, sem var honum allt í senn, ástríkur faðir, vinur og félagi. Grímur hafði ekki bein afskipti af bæjarmálum á ísafirði fyrr en árið 1934, enda voru þar forsvars- menn þess flokks, sem hann fylgdi, Alþýðuflokksins, aðrir eins skörungar og séra Guðmundur frá Gufudal, sonur hans Haraldur og Vilmundur Jónsson og Finnur Jónsson. En ýmis félagsmál lét hann sig miklu skipta. Hann var áhugamaður um íþróttir og stofn- aði íþróttafélag ísafjarðar og einn- ig glímufélag — enda síðar frum- kvöðull að þvi, að ísfirðingar eign- uðust sundhöil og var umsjónar- maður með byggingu hennar:, hann vann mikið að félagsmálum iðnaðarmanna og var um skeið for maður Iðnaðarmannafélags ísa- fjarðar. í bindindishreyfingunni var hann virkur félagi og stofnaði sem áður getur dýraverndunarfé- lag. Lengi var hann í sóknarnefnd og var þegar fram í sótti f stjórn Alþýðuflokksfélags ísafjarðar og um árabil formaður þess. Frá 1934—1953 var Grímur siðan í bæjarráði eitt kjörtímabil og ann- ars oftast varamaður. Hann var mikill áhugamaður um atvinnu- mál, átti frumkvæði að stofnun út- gerðarfélagsins Njarðar, var í stjórn fyrstu rækjuverksmiðju á ísafirði 1936, og einnig stóð hann að hlutafélaginu Hávarði. Kynni okkar Giáms hófust í rak- arastofunni. Milli hennar og þess húss, sem Bókasafn ísafjarðar var í, var eins eitt hús, og fram hjá henni lá leið mín í safnið og úr því. Brátt gerðist ég oftar gestur í rakarastofunní en þegar ég þurfti að n.ióta þjónustu rakarans — og þar komu ýmsir verkamenn og sjómenn — einkum eftir að krepp an mikla dundi yfir — sem ekki létu klippa sig eða raka, og var þar margt talað og ýmsar fréttir sagðar, bæði örugglega sannar og samkvæmt vafasömum heimildum. Grímur tók gjarnan þátt í umræð- um og gerði sínar athugasemdir við flutning hinna ýmsu frétta. Varð ég þess brátt vis, að hann hafði mikinn áhuga á þjóðmálum og Iiögum almennings í bænum, en einnig komst ég fljótlega á snoð ir um, að hann var glöggur mann- þekkjari og gæddur óvenjulega næmu skopskyni. Ilann var og auð heyrilega laus við ofstæki gagnvart mönnum og málefnum og unni þeim sannmælis, sem höfðu aðrar skoðanir en hann eða voru að meira eða minna leyti gallagripir. Og ekki leið á löngu, unz ég komst að raun um, að ýmsir þeirra, sem telja mátti smælingja, leituðu til hans um ráð og fyrirgreiðslu — og elíki án árangurs. Hann var og oftast gleður og reifur og kunni mjög vel að stilla skap sitt. Við urðurn svo fljótlega góðkunningj- ar og þá er samstarf okkar hófst um bæiarmá! 1934, tókst með okk- ur sú vináíta, sem ég hef áður á Uiinnzt. Við Hannibal Valdimarsson höfð- um um tólf ára skeið forystu Al- þýðuflokksins á ísafirði í bæjar- stjórn — og gjarnan í orrahriðum á öðrum pólítískum mannfundum, ef þirigmenn flokksins voru þar ekki viðstaddir, og auðvitað áttum við náið samstarf um störf og stefnu. Hvernig, sem á því kann að hafa staðið, hlóðust á mig mörg og allveigamikil störf — ekki aðeins í );>æjarstjórn og skólanefnd, held- ur og á sviði atvinnulífs og úrræða á verstu tímum, sem yfir þjóðina hafa komið i minu minni, þar eð saman fór lítill fiskafli, lágt verð á fiski og sölutregða. En sannar- lega vissi ég, að mig skorti mjög þekkingu á ýmsu, sem taka þurfti afstöðu til — og að sitthvað, sem virtist smámál og ef til var það, gat orðið afdrifaríkt, ef það var ekki tekið réttum tökum. Ég gerði mér því að reglu að ræða ýmis mál 1 einrúmi við menn, sem ég taldi hafa þar eitthvað skynsamlegt fram að bera, og þó að ég segi sjálfur frá, hafði ég nokkra hæfi- leika til að vega og meta rök og þekkingu þeirra, sem ég leitaði til. Og til engra leitaði ég jafnoft og til Gríms Kristgeirsonar. Hann var hagsýnn, bar gott skyn á margt verklegt, og því mátti fyllilega treysta, að hann væri velviljaður og segði ekki annað en það, sem hann teldj réttast, þorði líka, ef nauðsyn krafði, að taka afstöðu, sem — að minnsta kosti í bili — virtist ekki flokkslega líkieg (il vinsælda. Og hugkvæmni hans og áhugi um framkvæmdir og úr- ræði í atvinnumálum var mér og öðrum samstarfsmönnum hans mikill styrkur og bæjarfélaginu gagnlegur. Ilann átti til dæmís — eins og áður er drepið á — frum- kvæði að jafnþarfri framkvæmd og stofnun útgerðarfélagsins Njarð ar, sem flestum virtist í fyrstu óhugsanlegt, sakir fjárskorts bæj- arfélagsins og þeirra, sem lögðu sinn skerf til þess fyrirtækis. E'kki var hætt við, að Grímur væri þar eða annars staðar að ota sínum tota eða trana sér fram. Hann lét lítt til sín taka á fundum og ekki nema hann hefði eitthvað sjáif- stætt og sérst.ætt til málanna að leggja — og var þá jafnan stutt- orður. Eitt sinn hafði ég orð á þvf við hann, að hann væri að þessu leyti of lilédrægur. Iiann svaraöi: „Til hvers ætti ég að láta móðan mása? Þeir duga okkur víst á því sviði, túlarnir á ykkur Hannibal'' Það, sem ég hef sagt í þessu greinarkorni um vin minn Grim Kristgeirsson látinn, er sízt um of. Hann var lilýr, bjartsýnn og ein- lægur drengskapai-- og manndóms- maður, v og vona ég að geta gert minningu hans og samskipta okkar betri skil, ef mér endist til þess aldur að skrifa rækilega um veru mína og störf á ísafirði. Guðmundur Gíslason Hagalín. f 10 ÍSLENDINGAÞÆTTiR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.