Íslendingaþættir Tímans - 01.09.1971, Blaðsíða 7

Íslendingaþættir Tímans - 01.09.1971, Blaðsíða 7
Steindór Gunnlaugsson Þann 17. fyrra mánaðar andað- ist vinur minn, Steindór Gunn- laugsson lögfræðingur, á Landa- kotsspítala eftir um tveggja mán- aða þunga legu. Steindór fæddist á Kiðabergi í Grímsnesi 25. september 1889. Voru foreldrar hans Gunnlaugur Jón Halldór Þorsteinsson, óðals- bóndi og hreppstjóri í Kiðabergi, dannebrogsmaður, sonur Þorsteins Jónssonar kanselíráðs, sem var sýslumaður í N.-Múlasýslu og bjó á Ketilsstöðum í Eyðaþinghá, og eiginkonu hans, Ingibjargar Gunn- laugsdóttur, sem var fædd og upp- alin í Reykjavík, dóttir séra Gunn ars Oddssonar Dómkirkjuprests og eiginkonu hans, Þórunnar Björns- dótt'ur, Jónssonar prests í Bólstaða hlíð og Soffía Skúladóttir, dóttir séra Skúla Gislasonar, þá prests á Breiðabólsstað í Fljótshlíðar- hreppi og eiginkonu hans, Guð- rúnar Þorsteinsdóttur, prests frá Reykholti í Reykholtsdalshreppi. Steindór Gunnlaugsson var því af háu og góðu ættarbergi, enda bar hann það með sér, líkamlega og andlega. Systkini Steindórs voru: Skúli, látinn, er var óðalsbóndi í Bræðra- tungu í Biskupstungum, Guðrún, sem nú á heima í Reykjavík, Jón, fyrrverandi fulltrúi í Stjórnarráði íslands, Halldór, guðfræðingur, óð- alsbóndi og hreppstjóri að Kiða- bergi og Ingi, póstafgreiðslumaður 1 Reykjavík. Öll hafa systkini Steindórs gifzt nema Halldór, og er Jón tvíkvænt- ur, en hefur misst báðar eiginkon- ur sínar, og Guðrún missti einn- ig sinn eiginmann. Steindór Gunnlaugsson varð stúdent vorið 1911 og lögfræðing- ur 1915, og er víst, að hann stund- aði námið afar vel og stóð sig því jafnan vel í skóla. Öll þau ár, sem Steindór var í skóla, vann hann á heimili for- eldra sinna baki brotnu að hey- önnum um sláttinn, og var það áreiðanlega yndi hans. í sambandi við æsku Steindórs Gunnlaugssonar get ég ekki látið hjá líða að minnast dálítið á bernsku- og æskuheimili hans. Á Kiðabergi er sérsta-klega fagurt, bergið skjólgóður vinur og vörð- ur gegn norðangjósti og Hvítá liggur sem silkiband við fætur bergsins. Heimili Gunnlaugs og Soffíu í Kiðjabergi var vítt rómað og dáð fyrir gestrisni þeirra, enda komu þangað margir. Steindór Gunnlaugsson, lögfræð ingur, hóf fyrst starf á Akureyri. Þar var hann fulltrúi bæjarfóget- ans um tveggja ára skeið. Þar kynntist hann sérstaklega fagurri og góðri prestsdóttur, Sigríði Bryn dísi Pálmadóttur, dóttur séra Pálma Þóroddssonar, þá prests á Hofsósi, og eiginkonu lians, Önnu Jónsdóttur. Steindór og Bryndís urðu hjón og voru gefin saman af föður hennar á Hofsósi 24. maí 1918. Um tíma var Steindór settur sýslumaður Árnessýslu, þá til heim ilis á Eyrarbakka. En hin ungu og glæstu hjón áttu heima á Sauð- árkróki meðan Steindór var sýslu- maður Skagfirðinga. Síðar varð Steindór Gunnlaugs- son fulltrúi í Stjórnarráði íslands um nokkurt skeið. Þegar Sjúkra- samlag Reykjavíkur hóf starf, varð Steindór starfsmaður þess um sinn, síðan varð hann lögfræðing- ur í Reykjavíkurborg, þangað til hann hætti starfi vegna aldurs. Öll störf sín rækti Steindór með sérstakri skyldurækni. Steindór Gunnlaugsson og Sigríður Bryndís Pálmadóttir, eiginkona hans, áttu tvö börn, Önnu Soffíu, sem gift var Páli Sigurðssyni, rafmagnsverk fræðingi, en hann er dáinn. Áttu þau tvo syni. Og Gunnlaug for- stjóra, sem kvæntur er Guðrúnu Haraldsdóttur. Eiga þau tvo syni. Steindór var áreiðanlega dásamleg- ur afi, og ljósgjafar lífs hans voru heimsóknir barnasonanna. Systkin- in: Anna Soffía og Gunnlaugt'.r eru sérstaklega góð, glæsileg og efni- eg- Það var fagurt og vinalegt heim- ili, sem Bryndís bjó eiginmanni sínum, enda nutu margir, meðal þeirra ég, gestrisni þeirra í afar ríkum mæli. Steindór unni íslandi heitt, var sannur sonur þess, vildi af heilum huga velgengni þess og allan veg sem mestan. Og hvað sveitina okk- ar, Grímsnesið góða, snerti, unni hann henni dag og nótt, sem Kiðjabergsdrengurinn í anda þeirra dýiðlegu orða skáldsins Sig- urðar Jónssonar á Arnarvatni: Blessuð sértu sveitin mín sumar, vetur, ár og daga. Aldrei heyrði ég vin minn, Stein dór, hallmæla nokkrum manni, enda var hann Ijúflingur og sann- ur mannvinur. Steindór Gunnlaugsson, lög- fræðingur, var sérstakur vinur foreldra minna og okkar systkin- anna. Hann var svo mikill vinur föður míns, séra Gísla Jónssonar, að hann sagði oftar en einu sinni við mig: „Kiðjaberg setti ofan, þegar pabbi þinn dó“. Svo undir- strikaði Steindór, ógleymanlega, vináttu sína til föður míns með sérstaklega fallegri og vinalegri grein, sem birtist eftir hann í Morgunblaðinu á eitthundraðasta afmælisdegi föður míns. Steindór var alveg sérstaklega trúaður maður. í honum átti krist in Vú og kirkja heilsteyþt- an, traustan vin. Ég vissi til þess að hann predikaði eitt sinn við messu í Skálholtskirkju. Stejndór Gunnlaugsson, lögfræð ingur, var hestamaður mikill, enda hesta- og dýravinur. Þá má með senni segja, að það var sem hver reiðgata brosti, þegar fætur gæð- ings, sem Steindór reið, snertu hana og blessuðu. Þá átti þessi vísa við, þótt gæfumaður væri á ferð: ÍSLENDINGAÞÆTTIR 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.