Íslendingaþættir Tímans - 01.09.1971, Blaðsíða 32

Íslendingaþættir Tímans - 01.09.1971, Blaðsíða 32
JON S. BALDURS fyrrverandi kaupfélagsstjóri Laugardaginn 7. ágúst s.l. fylgdu Húnvetningar Jóni S. Baldurs fyrr verandi kaupfélagsstjóra til grafar á Blönduósi við fjölmenni. Áttu þeir þar á bak að sjá einum af vinsælustu borgurum héraðsins, manni, sem meira en hálfa öld helgaði starfskrafta sína samvinnu fpiögunum á Blönduósi, óx með þeim frá tvítugum, óreyndum ungl ingi til höfuðforystumanns þeirra um alilangt skeið, sem unni þeim og hugsjónum þeirra svo fölskva- laust, að hann vann þeim allt, sem orkan leyfði, unz yfir lauk. Jón fæddist í Hvammi í Laxár- dal í Húnavatnssýslu 22. júní 1898 og var því fullra 73 ára, er hann lézt 1. ágúst s.l. Foreldrar hans voru hjónin Ingibjörg Jónsdóttir og Sigurjón Jóhannsson. Faðir hennar Jón bóndi á Strjúgsstöðum og Hvammi var Guðmundsson, bónda á Móbergi Jónssonar. Móðir Ingibjargar var Anna Pétursdóttir bónda á Refsstöðum, Jónssonar. Var Anna alsystir Sveins á Geit- hömrum föður Þórðar læknis á Kleppi. Faðir Sigurjóns var Jó- hann Fr. Sigvaldason, hreppstjóri í Mjóadal, Vestur-Húnvetningur að uppruna. Móðir Sigurjóns var Guð rún dóttir Jóns hreppstjóra Sveins sonar í Sauðanesi. Verða þessar ættir ekki raktar hér frekar. Jón ólst upp í skjóli foreldra sinna, sem voru leiguliðar og flutt ust milli býla í Bólstaðarhlíðar- hreppi á uppvaxtarárum hans. Var heimili þeirra þekkt að rausn, greiðvikni og gleði, — heimilishátt um, sem réðu svo ríkjum á heim- ili Jóns og konu hans, að frægt er. Það eplið féll því skammt frá eikinni. Jón settist í annan bekk Verzlun arskóla íslands haustið 1915 og lauk þaðan góðu prófi vorið 1917 19 ára að aldri. Þó þessi skólaseta væri svo skammvinn, sem hér er bent til, nægði hún til að skila hon um svo gagnmenntuðum að starfi, að athylgi og aðdáun vakti, þegar á fyrstu starfsárum hans. Hann var einn þeirra manna, sem störf sín rækti á þann hátt, að þau ræktuðu manngildi hans. Þá er löngum vel á málum haldið, er hvort tveggja helzt í hendur langa ævi. Jón réðst til Kaupfélags Hún- vetninga vorið 1918. Hófst ferill hans þar á afgreiðslu í sölubúð fé- lagsins. Vakti starfshæfni hans þegar athygli og vinsældir. Alúð hans og hin létta kímni, sem fylgdi honum til leiðarloka, féllu og í hinn sama farveg. Þeir, er þá réðu málum kaupfélagsins sáu snemma, að þekíking og starfshæfni Jóns væri slík, að honum hæfðu vanda- meiri störf. Er þó eklki þar með kastað rýrð á þau, sem áður er getið. Hann varð fljótlega aðalbók- ari félagsins, enda til þeirra starfa ágætlega fallinn, frábær skrifari og glöggskyggn og rökvís á með- ferð talna. Þessi störf hafði hann með höndum til ársloka 1943. Næsta ár var hann bókari við heild verzlun Kristjáns G. Gíslasonar í Reykjavík. í ársbyrjun 1944 kom hann aft- ur til Kaupfélags Húnvetninga, en þá sem framkvæmdastjóri. Nokkr- um mánuðum síðar tók hann og við forustu í málum Sláturfélags Austur-Ilúnvetninga. Hið sama gerðist og um Mjólkursamlagið á Blönduósi, enda reis það á legg undir handleiðslu hans. Hér verð- ur ekki freistað að rekja vöxt þess ara stofnana undir forustu hans. Það er gert annars staðar. Þess er enginn kostur í fáum línum. En þessi störf hafoi hann á hendi til ársloka 1957. Var þá annar ráðinn til þessara starfa, og tók hann við þeim öndverðlega á árinu 1958. Jón tók að kenna notokurs heilsu brests snemma árs 1957 og leitaði þá til Danmerkur sér til heilsubót- ar og með markverðum árangri. En hann lagði ekki hendur í skaut þótt hann legði af framkvæmda- stjórastöðuna. Hann hélt áfrani að vinna við samvinnufélögin á Blönduósi allt til þess að hann leit aði til Borgarspítalans og þá í sinni síðustu för. Hann vann því þessum samtökum allt, sem hann mátti, unz yfir lauk og hafði þá að baki annríkan og farsælan feril á þeirra vegum full 52 ár. Jón var víðar kvaddur til ráða á vegum samvinnu- og félagsmála. Hann átti sæti í fulltrúaráði Samvinnu- trygginga frá stofnun þeirra sam- taka og var löngum skrifari á full- trúaráðsfundum. Og hann sat 15 ár í stjórn hafnarmála á Blöndu- Framhald á bls. 31. 32 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.