Heimilistíminn - 07.11.1974, Qupperneq 17
til þeir gera sér grein fyrir, að lykillinn að
öllu saman er samúð og skilningur milli
manns og blóms. Það þarf sérþjálfað fólk
til þessara starfa og það þarf að vera vel
andlega þroskað.
Dr. Vogel notaði einfalt kerfi til að
hjálpa börnum að skilja félagsskapinn við
náttúruna. — Með þvi að sjá blóm vaxa,
segir hann — geta börn lært list ástarinn-
ar og i sannleika skilið að þegar þau
hugsa hugsun, senda þau óhemju sterkt
afl eða kraft út i alheiminn ..
Geimfarinn Ed Mitchell situr og ruggar
sér hægt og rólega i ruggustólnum á skrif-
stofu sinni i Palo Alto. Hann var sjötti
maðurinn sem steig á tunglið og nú er
hann yfirmaður rannsóknardeildar.
— Starf Backsters er ennþá mjög um-
deilt, segir hann. — En tilraunir hans
hafa verið endurteknar það oft að aðrir
visindamenn eru þeirrar skoðunar, að
hann sé á nýrri leið. Ég er viss um, að
með timanum verður starf hans viður
kennt af öllum. Hann hefur sannað, að
youghurt virðist hafa tilfinningar og að
frumskilningurinn getur þvi verið til
alveg niður á lægstu gerlastig. Ég tel að
hann hafi rétt fyrir sér, en min eigin skoð-
un er sú sama og i orðum dr. Kathryn
Breese-Whitings: — Guð sefur i málmi,
vakir i jurtum, hreyfir sig i dýrum og
hugsar i manninum.
Niðurstöðum rannsókna á tilfinningalifi
blóma, hefur verið safnað saman i bók
sem nýlega er komin út og heitir „Dulið lif
jurtanna”. Þar með standa opnar dyr að
nýrri trúarhugsun, dyr, sem ef til vill lok-
ast ekki aftur.
Clive Backster segir: — Aður var ég
vantrúaður, eiginlega trúleysingi, en ég
finn að til eru leiðir til visindalegra rann
sókna á svo venjulegum fyrirbærum sem
bænum og hugleiðslu og þær rannsóknir
munu geta leitt ýmislegt i ljós um sálina.
Hvað mig varðar, hef ég.egar komizt að
ýmsu.
I \f I II I
undan
Þegar prjónað er með margföldu
garni, getur verið býsna erfitt að
henda reiður á þráðunum i allar áttir.
Gott er að byrja á þvi að þræða alla
endana gegnum venjulegan
gardinuliring. Hann sameinar
þræðina.
Þegar gallabuxur barnanna eru út-
slitnar er gott að spretta af þeim
vösunum og geyma þá, ef slysagat
skyldi koma á nýjar buxur.
Fólk , sem er i megrun og leiðist, á
það til að fá sér eitthvað að borða til að
hafa ofan af fyrir sér. Farið heldur i
gönguferð, þvoið gluggana, gólfin, eða
gerið við eitthvað sem þarfnast lag-
færingar. Matarlöngunin hverfur á
meðan verið er að.
Þegar búið er og sofið i einu herbergi,
eru rúinfötin stundum vandamái á
daginn. Snjallræði er að sauina a 11-
stóran poka, troða rúmfötunum i hann
og nota sem „pokastól" á daginn.
17