NT - 01.03.1985, Blaðsíða 10

NT - 01.03.1985, Blaðsíða 10
ÁBÓT Þorgeir Ástvaldsson ■ Vignir Sveinsson ■ Kristín Björg Þorsteins- dóttir Rás 2 næturútvarp: Næturvinnufólkið á Rás 2 ■ OkkurhéráNTIangaðiað heyra í fólkinu á Rás 2, sem hressir upp á landsmcnn með léttri músík að næturlagi um helgar og litum því í dagskrá „Rásarinnar" og sáum ,að þar var um að ræða sjálfan Þorgeir Ástvaldsson, forstööumann Rásar 2, og Vigni Sveinsson- en þeir byrja næturútvarp kl. 23.15 á föstudagskvöldið, sem sagt í kvöld. Síöan cr þaö Kristín Björg Þorsteinsdóttir sem sér utn næturútvarpið ann- að kvöld. Fyrst hcyrðum við í Þorgeiri Ástvaldssyni ogspuröum hvort þeir Vignir og hann hefðu ákveðið prógrammið fyrir nóttina. Hann kvað þetta vera svolítið laust í reipunum hjá þeim, og bætti síðan við: Föstudags-næturútvarpið er þannig þáttur, að lögð er áhersla á að vera í sern bestu sambandi við hlustendur og reyna að verða við óskum þeirra. Það er eiginlega of lítið um slíka þætti og við viljum bæta úr því. Sjálfum þykir mér ágætt og skemmtilegt að vinna við næt- urútvarpið, sagði Þorgeir. Vignir Sveinsson var ekki við, svo við gátum ekki fengið frásögn hans af næturvaktinni í þetta sinn. „Þetta er besti tíminn,“ sagði Kristín Björg „Þetta er besti tíminn til að vinna,“ sagði Kristín Bjorg Þorsteinsdóttir, „alveg stórfínt að vinna á nóttunni!" - Ég er hálfsmánaðarlega á laugardagsvaktinni í vetur, en var á hverju laugardagskvöldi fyrst. Annars vinn ég hjá Sjón- varpinu. Fyrir utan það, að hafa séð nafn Kristínar Bjargar á skerminum í kynningum á ýmsum þáttum sjónvarpsins minntist blm. þess að hafa séð hana sjálfa þar líka með Hamrahlíðarkórnum. - Jú, það er satt, ég hef sungið með Hamrahlíðarkórn- um. Það er mitt „hobbf', sagði hún. - Ég var í tónlistarnámi hér áður og mér finnst mjög gaman að starfa með kórnum, 'n það er bara svo mikið að gera hjá mér. - Hvernig ætlar þú svo að hafa næturútvarpið á laugardag- inn? - Þetta verður svona með „nætursniði" eða hvað maður á að kalla það. Eitthvað fyrir alla: Þá sem eru að skemmta sér og hina sem sitja í róleg- heitum. Ég tek nú fyrir 4 vinsælustu lögin frá árunum 1966-68 og þar koma fram hljómsveitirnar Hollies, Troggs og Small Faces, en sú hljómsveit spilar uppáhaldslag mitt „All Or Nothing". Svo verð ég auðvitað með róman- tísk lög síðasta hálftímann eða svo, og enda svo á kveðjulag- inu mínu „Wonderful To Night" með Eric Clapton, sagði Kristín Björg og hló. Það verður því rómantísk næturvakt á laugardagskvöld- ið. Útvarp föstudag kl. 20.40: Til hvers voru rennurnar á Stóru-Borg? Mjöll Snæsdóttir spjallar um forn mannvirki þar ■ Á kvöldvökunni í kvöld kl. 20.40 er liður, sem nefnist „Frá safnamönnum". Þessi þáttur hcfur öðru hverju verið á dagskrá kvöldvökunnar á föstudögum í vetur, og hefur þá einn safnmaður hverju sinni sagt frá einhverju ákveðnu við- fangsefni. í þetta sinn sjáum við í dagskránni, að safnmað- urinn er Mjöll Snæsdóttir, safnvörður við Árbæjarsafn.' Mjöll sagði okkur af sínu við- fangsefni, sem hún ætlar að segja hlustendum frá í kvöld: „Ég ætla að segja aðeins af mannvirkjum nokkrum, sent hafa komið í ljós við fornleifa- uppgröft á Stóru-Borg undir Eyjafjöllum. Þetta eru rennur, sem að því er mér virðist, hafa veriö hafðar til að leiöa raka úr húsum. Þessar rennur hafa fundist þarna út og suður um rústirnar. Ég ætla að spjalla um þær og lýsa þeirn," sagði Mjöll Snæsdóttir, en hún hefur sem kunnugt er unnið mörg sumur við fornleifauppgröft á Stóru-Borg. Stóra-Borg er undir Austur- Eyjafjöllum, niður á strönd- inni austan Bakkakotsár og var stórbýli og kirkjusetur á miðöldum. Þar bjó áfyrri hluta 16. aldar Anna, dóttir Vigfúsar Erlendssonar hirðstjóra. Um ástarsamband hennar og Hjalta Magnússonar samdi skáldið Jón Trausti kunna skáldsögu: Önnu á Stóru- Borg. Sjór hefur gengið mjög á land þarna, og um 1840 var bærinn fluttur austar og ofar í landið, segir í bókinni Landið þitt. Mjöll Snæsdóttir var spurð hvort rústirnar væru í bráðri hættu af ágangi sjávar. „Sjórinn kemur til með að eyða þessum hól, en vonandi verður það ekki á þessu ári - eða því næsta. Ég held að það muni einhver ár líða áður, en það gæti auðvitað gerst snögg- lega, en þó held ég að meiri líkur séu á að það dragist ■ Mjöll Snæsdóttir forn- leifafræðingur. eitthvað," sagði Mjöll Snæs- dóttir, fornleifafræðingur og safnvörður í Árbæjarsafni. Föstudagur 1. mars 1985 10 Blað II Sjónvarp föstudag kl. 21.45: ■ Hvernig er að verða fyrir eldingu? Það er kannað með því að hleypa einnar milljón volta rafstraumi í bifreiðina, sem John Lees situr í. Veðurofsi og áhrif hans ■ Vályndveðurnefnistbresk heimildarmynd um veðurofsa, sem sýnd verður í sjónvarpi í kvöld. föstudag kl. 21.45. Þar verða sýndar raunverulegar fréttamyndir frá atvikum þegar veðurofsi gengur yfir og áhrif hans. Áhorfendur sjá 30 metra háan öldugang, lítinn læk, sem skyndilega verður að stóru straummiklu vatnsfalli, ofsa- rokið sem fellir tré eins og strá, stóra vörubíla og fólk, sem hefur orðið fyrir eldingu. Glæframaðurinn John Lees, sem leikur hættuhlutverk sem staðgengill frægra leikara, tekur að sér að kanna að hvaða marki menn standast þessa gíf- urlegu krafta náttúrunnar í myndinni. Vindorka í storm- göngum er aukin þangað til John er hreinlega feykt út úr þeim. Þá er hann látinn standa við op á göngum sem liggja að uppistöðulóni. Allar lokurnar eru síðan opnaðar til að líkja eftir áhrifum þess, ef stífla brysti, og fylgst með því hvað gerist og hvenær kemur að því að hann stenst ekki vatnsþrýst- inginn. Að síðustu sjá áhorfendur glæfralegasta óg hættulegasta athæfi hans, þegar hann situr inni í bíl, sem á er hleypt einnar milljón volta raf- straumi, til að kanna hvað gerist, þegar eldingu lýstur niður. Tvær skólastúlkur greina frá þeirri reynslu sem þær urðu fyrir, þegar þær leituðu skjóls gegn rigningu undir tré og eldingu laust óvænt niður í þær. Það er guðs mildi að þær skuli vera til frásagnar um þann atburð. Þýðandi er Jón O. Edwald. Föstudagur 1. mars 7.00 Veðuríregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Sig- urðar G. Tómassonar frá kvöldinu áður, 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður- fregnir. Morgunorð - Sigurbjörn Sveinsson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Pfpuhattur galdrakarlsins" eft- ir Tove Jansson Ragnheiður Gyða Jónsdóttir les þýðingu Stein- unnar Briem(12). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 „Það er svo margt að minnast á" Torfi Jónsson sér um þáttinn. 11.15 Morguntónleikar 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 „Blessuð skepnan" eftir James Herriot Bryndís Viglunds- dóttir les þýöingu sína (17). 14.30 Á léttu nótunum Tónlist úr ýmsum áttum. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar: Tónlist eftir Georg Friedrich Hándel a. Konsert fyrir tvær lútur og strengja- sveit. Julina Bream leikur með Monteverdi-hljómsveitinni; John Eliot Gerdiner stjórnar. b. Fiðlu- konsert i B-dúr. Yehudi Menuhin leikur með og stjórnar Hátíöar- hljómsveit sinni. c. Konsert í B-dúr. Maurice André leikur á trompet með Kammersveitinni i Heil- bronn.Jörg Faerber stjórnar. d. Konsert nr. 3 i F-dúr. Enska kamm- ersveitin leikur; Karl Richter stjórnar. 17.10 Siðdegisútvarp Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Daglegt mál Valdimar Gunn- arsson flytur þáttinn. 20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thoroddsen kynnir. 20.40 Kvöldvaka a. Frá safnamönn- um Mjöll Snæsdóttir segir frá. b. Mannhvörf og morðgrunur Úlfar K. Þorsteinsson les annan þátt. c. Kórsöngur Karlakórinn Vísir syngur. Stjórnandi: Geirharöur Valtýsson. d. Sfðasta sjóferð Emmu Árni Helgason les sjóferða- þátt eftir Ágúst Lárusson. Úmsjón: Helga Ágústsdóttir. 21.30 Kvöldtónleikar „Silete Vente", kantata fyrir sópran, óbó og strengjasveit eftir Georg Friedrich Hándel. Halina Lukomska syngur með „Collegium aureum“-kamm- ersveitinni. 22.00 Lestur Passíusálma (23) 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Úr blöndukútnum - Sverrir Páll Erlendsson (RÚVAK) 23.15 Á sveitalínunni: Umsjón: Hilda Torfadóttir. (RÚVAK). 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Nætur- útvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00 Laugardagur 2. mars 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 7.25 Leikfimi. Tónleikar. 8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð - Ástríöur Haraldsdóttir talar. 8.15 Veðurfregnír. 8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón- leikar. 8.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Valdimars Gunnarssonar frá kvöldinu áður. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ. Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir.) Óskalög sjúklinga, frh. 11.20 Eitthvað fyrir alla Sigurður Helgason stjórnar þætti fyrir börn. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.40 fþróttaþáttur Umsjón: Her- mann Gunnarsson. 14.00 Hér og nú Fréttaþáttur í viku- lokin. 15.15 Listapopp - Gunnar Salvars- son 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Islenskt mál Ásgeir Blöndal Magnússon flytur þáttinn. 16.30 Bókaþáttur Umsjón: Njörður P. Njarðvik. 17.10 Georg Friedrich Hándel - 300 ára minning 3. hluti: Kammerverk og kórtónlist. Sigurður Einarsson sér um þáttinn. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 Á hvað trúir hamingjusam- asta þjóð i heimi? Umsjón: Valdis Óskarsdóttir og Kolbrún Halldórs- dóttir. 20.00 Útvarpssaga barnanna: „Grant skipstjóri og börn hans“ eftir Jules Verne Ragnheiður Arn- ardóttir les þýðingu Inga Sigurðs- sonar (6). 20.20 Harmonikuþáttur Umsjón: Bjarni Marteinsson 20.50 Sögustaðir á Norðurlandi Hólar i Hjaltadal. Umsjón: Hrafn- hildur Jónsdóttir. (RÚVAK) 21.35 Kvöldtónleikar Þættir úr sí- gildum tónverkum. 22.00 Lestur Passfusálma (24) 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Uglan hennar Mínervu Arthúr Björgvin Bollason ræðir við dr. Gunnar Harðarson um heimspeki- ástundun íslendinga fyrr á öldum. 23.15 Óperettutónlist 24.00 Miðnæturtónleikar Umsjón: Jón Örn Marinósson. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00. Sunnudagur 3. mars 8.00 Morgunandakt Séra Hjálmar Jónsson flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veöurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 8.35 Létt morgunlög. Boston Pops- hljómsveitin leikur; Arthur Fiedler stjórnar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morguntónleikar a. „Úr djúp- inu ákalla ég þig", kantata nr. 131 eftir Johann Sebastian Bach. Alan Bergins, Stefan Rams, Kurt Equi- luz og Max van Egmond syngja með Tölzer-drengjakórnum og Concentus musicus-kammersveit- inni i Vín; Nikolaus Harnoncourt stjórnar. b. Flautukonsert i D-dúr eftir Luigi Boccherini, Camillo Wan- ansek og Pro Musica-hljómsveitin í Vín leika; Charles Adler stjórnar.c. Sinfónía nr. 4 í G-dúr eftir Carl Philipp Emanuel Bach. Enska kammersveitin leikur; Ray- mond Leppard stjórnar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Stefnumót við Sturlunga Ein- ar Karl Haraldsson sér um þáttinn. 11.00 Messa í Bústaðakirkju Prestur: Séra Agnes Sigurðardótt- ir. Organleikari: Guðni Þ. Guð- mundsson. Hádegistónleikar. 12.10 Dagskrá. Tónleikar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.30 Kalevala Samfelld dagskrá um finnska þjóðkvæðabálkinn Kale- vala. 14.30 Frá Mozart-hátiðinni í Frank- furt á liðnu ári. 15.10 Pétur Á. Jónsson óperu- söngvari - Aldarminning Guð- mundur Jónsson minnist Péturs og hljómplötum með sönglögum hans verður brugðið á fóninn. (Áður útvarpað 21. des. sl.). 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Um vísindi og fræði Stéttabar- átta og þjóðernishyggja. Hug- myndafræði islenskra jafnaðar- manna. Svanur Kristjánsson próf- essor flytur sunnudagserindi. 17.00 Georg Friedrich Hándel-300 ára minning 4. hluti: 18.00 Vetrardagar Jónas Guð- mundsson rithöfundur spjallar við hlustendur. 18.20 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 Fjölmiðlaþátturinn Viðtals- og umræðuþáttur um fréttamennsku og fjölmiölastörf. Umsjón: Hall- grímur Thorsteinson. 20.50 Um okkur Jón Gústafsson stjórnar blönduðum þætti fyrir unglinga. 20.50 Hljómplöturabb Þorsteins Hannessonar. 21.30 Útvarpssagan: „Morgun- verður meistaranna" eftir Kurt Vonnegut 22.00 Tónleikar. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Galdrar og galdramenn Umsjón: Haraldur I. Haraldsson. (RÚVAK) 23.05 Djassþáttur - Tómas Einars- son. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. i

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.