NT - 01.03.1985, Blaðsíða 11

NT - 01.03.1985, Blaðsíða 11
111' Föstudagur 1. mars 1985 11 Blðð II IlL ÁBÓT Útvarp -— Sjónvarp Sjónvarp laugardag kl. 22. ■ Laurence nær nánara og innilegra sambandi við nemendur sína eftir naflaskoöunina. ■ Á morgun, laugardags- kvöld, er aðeins ein mynd í sjónvarpinu að þessu sinni. Hún er frönsk og hefur verið gefið nafnið Vikufrí á íslensku. Sýning á henni hefst kl. 22. Par segir fra 35 ára kennslu- konu Laurence, sem stendur á tímamótum. Hún er í sambúð með fasteignasalanum Pierre, sem vill ólmur giftast henni og eignast með henni barn, en Laurence getur ekki tekið svo afdrifaríka ákvörðun. Einn morguninn leggur hún leið sína til heimilislæknisins í stað þess að fara til vinnu sinnar í gagn- fræðaskólanum, þar sem hún hefur kennt í 10 ár. Hann skrifar upp á veikindavottorð til einnar viku og þeim tíma ver hún í naflaskoðun, enda hefur hún góðan tíma til þess þar sem Pierre er ekki heima. frekar en svo oft áður. Laurence og Pierre búa í Lyon og þar tíðkast að vinir og kunningjar líti fyrirvaralaust inn til að spyrjast fyrir um heilsufarog líðan. Laurenceer þess vegna ekki einangruð þessa vikuna. En hún brýtur Utvarp laugardag kl. 19.35: Á hvað trúir hamingjusamasta þjóð í heimi? I Á morgun laugardags- hamingjusamasta þjóð í kvöld, kl. 19.35 verður í út- heimi? Umsjónarmenn eru varpi þátturinn Á hvað trúir þær Valdís Óskarsdóttir og Þær Valdís Óskarsdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir skemmta útvarpshlustendum á laugardagskvöld með úttekt á nýlegri skoðanakönnun. Kolbrún Halldórsdóttir. Það hlaut að koma að því að hin fræga skoðanakönnun, sem birt var hér fyrir skemmstu, yrði einhverjum að yrkisefni í léttum dúr, en það eru þær Valdís og Kolbrún vísar með að gera. Eins og kunnugt er kom þar í ljós að íslendingar eru allra manna hamingjusam- astir, þrátt fyrir tímabundna efnahagserfiðleika, og þótti mörgum mikil firn. Ekki vakti það síður undrun margra, að skoðanakönnunin kom upp um það, sem fáa hafði grunað, að við erum mjög trúuð inni við beinið, þó að við séum ekkert að flíka því með of tíðum kirkjuferðum. Nafn þáttarins á morgun bendir til þess að a.m.k. þessi tvö atriði könnunarinnar verði höfð í einhverjum flimtingum. Viku naf laskoðun breytir kennslukonunni ■ Að afloknu vel heppnuðu ráni er fengurinn skoðaður. ■ Föstudagskvikmynd sjón- varpsins, Frumskógur stór- borgarinnar (Asphalt Jungle), er bandarísk frá 1950 og í svart/hvítu. Leikstjóri er Jolin Huston en með aðalhlutverk fara Sterling Hayden, Sam Jaffe, Louis Calhern og Mari- lyn Monroe. Þýðandi er Bald- ur Hólmgeirsson. Sýning hefst kl. 22.15. Þar segir frá „Doc“ Ri- edenschneider (Sam Jaffe) sem yfirgefur fangelsi að aflok- inni afplánun með fullskapaða áætlun um stórkostlegt ,eðal- steinarán. Um fjármálahliðina á framkvæmdinni sér gamal- reyndur lögfræðingúr, sér- fræðingur í glæpamálum, sem kominn er með annan fótinn yfir í herbúðir fyrrverandi skjólstæðinga sinna. Sá heitir Alonzo Emmerich (Louis Calhern). Fjárhagur hans stendur vægast sagt völtum fótum og veldur þar mestu kostnaðarsamt samband hans við hjákonuna og glæsikvendið Angelu (Marilyn Monroe) en hún vefur honum um fingur sér. í slagtogi með „Doc“ eru bílstjórinn Gus Minissi (James Whitmore) og Dix Handley (Sterling Hayden). Þeim tekst ránið eins og áætlað var, en ekki líður á löngu þar til slettist upp á vináttu þeirra kumpána. Lögreglan er á hælunum á þeim og mikill skotbardagi upphefst. heilann um nemendur sína og samband sitt við þá. Hún kemst að þeirri niðurstöðu að hún reynist þeirn ekki nógu vel í mannlegum samskiptum. Hún kynnist föður eins þcirra, fyrrverandi fúxi, en sonurinn virðist líka vera ákveðinn í að skipa það sæti. Faðirinn trúir henni fyrir því, að hefði hann haft kennara eins og hana þegar liann sat á skólabekk, hefði hann staðið sig betur. Kynni Laurence af þessum lélega námsmanni og vini hans, sem vikulega fer í heimsókn til sonar síns í fangelsi, gefa Laur- ence kjark til að takast á við kennsluna að nýju og nú hefur orðið viðhorfsbreyting hjá henni. Hún á nú auðveldara með að tala við nemendur sína á mannlegum nótum, en sú aðferð fellur ekki í góðan jarð- veg hjá yfirmönnum hennar sem gefa henni tiltal fyrir. Nemendur hennar standa með henni í þeim málarekstri. Laurence hefur enn ekki komist að niðurstöðu um hvort hún vilji giftast Pierre og eign- ast nteð honum barn, en hún hefur þó haft það upp úr vikufríinu, að hún skilur sjálfa sig betur sem kennara. Með aðalhlutverk fara Nat- halie Baye, Michel Galabru, Philippe Noiret og Gérard Lanvin. Leikstjóri er Bertrand Tavernier. Þýðandi er Ólöf Pétursdótt- Sjónvarp föstudag kl. 22.15: lllur fengur illa forgengur - í frumskógi stórborgarinnar INT Föstudagur 1. mars 10:00-12:00 Morgunþáttur Stjórn- endur: Páll Þorsteinsson og Siguröur Sverrisson. 14:00-16:00 Pósthólfiö Stjórnandi: Valdís Gunnarsdóttir. 16:00-18:00 Léttir sprettir Stjórn- andi: Jón Ólafsson. HLÉ 23:15-03:00 Næturvaktin Stjórnend- ur: Vignir Sveinsson og Þorgeir Ástvaldsson. Rasirnar samtengdar aö lokinni dagskrá rásar1. Laugardagur 2. mars 14:00-16:00 Léttur laugardagur Stjórnandi: Ásgeir Tómasson. 16:00-18:00 Milli mála Stjórnandi: Helgi Már Baröason. HLÉ 24:00-24:45 Listapopp Endurtekinn þáttur frá rás 1. Stjórnandi: Gunnar Salvarsson. 24:45-03:00 Næturvaktin Stjórn- andi: Kristín Björg Þorsteinsdóttir. Rásirnar samtengdar aö lokinni dagskrá rásar 1. Sunnudagur 3. mars 13:30-16:00 Krydd í tilveruna Stjórnandi: Asta Rangheiöur Jó- hannesdóttir. 16:00-18:00 Vinsældalisti hlust- enda Rásar 2 20 vinsælustu lögin leikin. Stjórnandi: Ásgeir Tómas- son. Föstudagur 1. mars 19.15 Á döfinni Umsjónarmaöur Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfs- dóttir. 19.25 Krakkarnir í hverfinu 11. Katrin heldur jafnvæginu Kana- dískur myndaflokkur í þrettán þáttum, um atvik í lífi nokkurra borgarbarna. Þýöandi Kristrún Þórðardóttir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 22.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Kastljós Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaöur Helgi E. Helgason. 21.15 Skonrokk Umsjónarmenn Haraldur Þorsteinsson og Tómas Bjarnason. 21.45 Válynd veður Bresk heimilda- mynd um veðurofsa; flóö, fellibylji og þrumuveður, og hvernig maöur- inn stenst slíkar hamfarir. 22.15 Frumskógurstórborgarinnar (Asphalt Jungle) s/h Bandarísk bíómynd frá 1950. Leikstjóri John Huston. Aðalhlutverk: Sterling Hayden, Sam Jaffe, Louis Calhern og Marilyn Monroe. Roskinn glæpamaöur er ekki fyrr laus úr fangelsi en hann byrjar að vinna aö miklu skartgriparáni og hefur lögfræöing i fjárkröggum aö bak- hjarli. Þýðandi Baldur Hólmgeirs- son. 00.20 Fréttir í dagskrárlok. Laugardagur 2. mars 16.00 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felixson. Meðal efnis í þættinum verður stjörnuleikur (All Star) úr- valsliöa Austur- og Vesturstrandar Bandarikjanna í körfuknattleik. 18.30 Enska knattspyrnan 19.25 Smáir en knáir Bresk dýralifs- mynd frá Etosha-þjóðgaröinum í Afríkurikinu Namibiu. Dýrin sem sjást i myndinni eru flest smávaxin spendýr sem mörg hver eru þó ekki siður athyglisverð en þau stóru sem allir þekkja. Þýöandi Óskar Ingimarsson. Þulur Svan- hildur Sigurjónsdóttir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Við feðginin Sjöundi þáttur. Breskur gamanmyndaflokkur i þrettán þáttum. Þýöandi Þrándur Thoroddsen. 21.00 Kollgátan Spurningakeppni Sjónvarpsins, þriðji þáttur. Gestir Stefán Benediktsson og Anna Ólafsdóttir Björnsson. Umsjónar- maður lllugi Jökulsson. Stjórn upp- töku: Viðar Víkingsson. 21.25 Kvöldstund með Anniku Ho- ydal Danskur sjónvarpsþáttur. Annika Hoydal syngur færeysk lög. Þýöandi Guöni Kolbeinsson. (Nordvision - Danska sjónvarpiö). 22.00 Vikufri (Une semaine de vac- ances) Ný (rönsk bíómynd. Leik- stjóri Bertrand Tavernier. Aöalhlut- verk: Nathalie Baye, Michel Gal- abru, Philippe Noiret og Gérard Lanvin. Ung kona sem verið hefur áhugasamur kennari tekur sér vikufri frá störfum að læknisráöi. Hún hefur fyllst vonleysi og ihugar aö hætta kennslu. Þessa viku notar hún til aö gera upp hug sinn um framtíðina, ein og meö öörum. Þýöandi Ólöf Pétursdóttir. 23.50 Dagskrárlok. Sunnudagur 3. mars 17.00 Sunnudagshugvekja Sólveig Franklínsdóttir nemandi flytur. 17.10 Húsið á sléttunni. 15. Máttur söngsins. Bandarískur framhaldsmyndaflokkur. Þýöandi Óskar Ingimarsson. 18.00 Stundin okkar Umsjónar- menn: Ása H. Ragnarsdóttir og Þorsteinn Marelsson. Stjórn upp- töku: Andrés Indriðason. 18.50 Hlé 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Sjónvarp næstu viku Umsjón- armaður Magnús Bjarnfreðsson. 20.55 Stiklur 19. Af sviðinu á sjóinn. I þessum þætti liggur leiöin út í Hrísey á Eyjafiröi á einum af mörgum góöviðrisdögum sumars- ins 1984 þegar bátar eyjarskeggja og annarra Eyfiröinga eru aö veiö- um á spegilsléttum sjónum kring- um eyna. Fariö er í róður með hjónunum Árna Tryggvasyni leikara og Kristinu Nikulásdóttur. Þau fara á hverju sumri úr skarkala höfuðborgarinnar út i hinafriðsælu eyju, þar sem eru æskustöðvar Árna, og stunda þar handfæra- veiöar sumarlangt. Umsjón Ómar Ragnarsson. 21.35 Flöktandi skuggi Annar þáttur. Finnsk sjónvarpsmynd i þremur hlutum, gerð eftir skáld- sögunni „Vandrande skugga" eftir Bo Carpelan. Sagan gerist um aldamót í friðsælum smábæ við ströndina. Ung stúlka finnst myrt og við rannsókn málsins kemur í Ijós aö ýmsir góðborgarar hafa átt vingott við þá látnu. Við þetta bætist að kveikt er í tjörugeymsl- unni í bænum svo aö Frid lögreglu- stjóri hefur nóg á sinni könnu. Þýöandi Jóhanna Þráinsdóttir. (Nordvision - Finnska sjónvarpið) 22.25 Gary Burton Siöari hluti djass- tónleika kvartetts Gary Burtons, sem haldnir voru í Gamla Biói voriö 1983. Stjórn upptöku: Tage Ammendrup. 23.30 Dagskráriok.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.