NT - 07.03.1985, Blaðsíða 14

NT - 07.03.1985, Blaðsíða 14
Fimmtudagur 7. mars 1985 14 Rás2 kl. 21. Hvererþriðji maður- inn? ■ Sl. fimmtudagskvöld hóf nýr þáttur göngu sína á Rás 2 og vakti hann mikla athygli. Þátturinn heitir Þriðji maður- inn og er í umsjón Ingólfs Margeirssonar og Ama Þórarins- sonar. I fyrsta þætti var það einmitt Davíð Oddsson borgarstjóri, sent var þriðji maðurinn, og vöktu sum ummæli hans slíka • athygli, að ástæða þótti til að fjalla um þau sérstaklega í fréttatíma útvarpsins, og póli- tískt fjaðrafok varð talsvert. • En hlustendum kom saman um að borgarstjóri hafi sýnt á sér hlið, sern ekki hefur snúið opinberlega að almenningi fyrr og þótti liann komast vel frá glímunni. Nú er komið að öðrum þætti í kvöld kl. 21-22 og verður gesturinn að þessu sinni Guð- rún Helgadóttir alþingismað- ur. Guðrún hefur hingað til ekki átt í erfiðleikum með að koma fyrir sig orði og ósenni- legt er að hún eigi eftir að valda hlustendum Rásar 2 von- brigðum í kvöld. En hvers konar þáttur er Þriðji maðurinn eiginlega? „Þátturinn er hugsaður sem opinskár samtalsþáttur með ■ Það stendur yfirleitt ekki á svörum hjá Guðrúnu Helga- dóttur alþingismanni. Ár- eiðaniega svíkur hún ekki út- varpshlustendur í kvöld. innskotum af músík, bæði eftir smekk gestsins og okkar,“ seg- ir Árni Þórarinsson. Aðspurð- ur um það hvort þeir félagar væru ágengir við viðmælendur sína, vildi hann ekki alveg neita því, en tók skýrt fram að þeir sýndu fyllstu kurteisi í spurningum sínum. Þátturinn Þriðji maðurinn er sendur út beint. Tónlistarkross- gáta nr. 21 ■ Tónlistarkrossgátan er á . Gröndal sem hefur umsjón dagskrá Rásar 2 nk. sunnudag með henni. kl. 15-16. Að venju er það Jón ■ Bandaríski trompetleikarinn Chet Baker gerði lukku á tónleikunum í Gamla bíói á dögunum. í kvöld verða leiknar upptökur frá þeim tónleikum og rætt við kappann og fleiri góða menn á Rás 2 kl. 23-24. Rás 2 kl. 23. Tónleikar Chet Baker í Gamla bíói ■ Bandaríski trompetleikar- inn Chet Baker kom eins og kunnugt er hingað til lands fyrir skemmstu og hélt þá tón- leika í Gamla bíói við mikinn fögnuð viðstaddra. í kvöld ki. 23-24 fá útvarpshlustendur að heyra glefsur úr þessum tón- leikum í fylgd Vernharðs Linnet, sem hefur umsjón með ■ í Skjólbrekku er félagsheimili Myvetnmga. Utvarp kl. 20.30: Mývetningar skemmta sér og öðrum landsmönnum ■ Kvöld í Mývatnssveit kall- ast þáttur í umsjá Jónasar Jónassonar, sem hefst í útvarpi kl. 20.30 í kvöld. Hann kemur frá RÚVAK. Jónas bregður sér þá í heim- sókn í Mývatnssveit með hljóðnemann og tekur þátt í kvöldskemmtun heimamanna, sem ungmennafélagið Mývetn- ingur stendur fyrir. Mývetn- ingar hafa löngum verið hressir og ekki hrjáir minnimáttar- kenndin þá, að þeirra eigin sögn. Það kennir því ýmissa áhugaverðra grasa á þessari dagskrá, sem byggir á heima- tilbúnu efni og flytjendum. Þarna verður sungið, fluttir leikþættir og farið með vísur. T.d. fer Starri í Garði með Vísurnar um uxana eftir sjálf- an sig. Þáttinn „Um daglegt mál" flytur Hjörleifur Sigurð- arson frá Grænavatni, en bróð- ir hans Erlingur fór með sam- nefndan þátt í útvarpi um skeið og ríkti engin lognmolla um hann þá frekar en fyrri daginn. Ásmundur Gestsson bóndi á Stöng flytur ávarp Ríkisút- varpsins í Mývatnssveit. Þá sýnir Friðrik Dagur Arnarson kennari á sér margar hliðar. Þessi þáttur úr Mývatnssveit er í sama dúr og þáttur, sem nefndist Kvöld í desember, en þá fengu útvarpshlustendur tækifæri til að skemmta sér með Akureyringum kvöld- stund. Einn slíkur þáttur er síðan á dagskrá um páskana og verður hann líka frá Akureyri. Jónas Jónasson hefur haft um- sjón með öllum þáttunum. þættinum, og fleiri góðra manna. Chet Baker komst hingað til lands við illan leik eftir 20 tíma ferð alla leið frá vesturströnd Bandaríkjanna. Honum gafst því ekki tækifæri til að hitta samleikara sína fyrr en á sviði Gamla bíós 2. febrúar, í þann mund sem tónleikarnir áttu að hefjast. Engu aðsíður þóttu tónleikarnir takast mjög vel. en samspilarar hans voru Kristján Magnússon á píanó, Tómas Einarsson á bassa og Sveinn Óli Jónsson á trommur. í þættinum í kvöld ræðir Vernharður við þá félaga, svo og Jónatan Garðarson, einn stjórnarmann Jazzvakningar, og sjálfan „prófessorinn“ Jón Múla Árnason, en hann gegnir stöðu „jazzprófessors“ við Tónlistarskóla FÍH. Útvarp kl. 13.20: „Siggi litli og skipið hans“ í Barnagamni ■ Fyrstufjóravirkadagavik- unnar er á dagskrá útvarps kl. 13.20 þáttur, sem hefur verið gefið nafnið Barnagaman og er hann ætlaður yngstu hlust- endunum, sem oft eru orðnir dasaðir um þetta leyti dags og veitir ekki af að hvíla sig aðeins eftir hádegismatinn. I dag kemur þátturinn frá RÚ- VAK og er það Anna Ringsted sem hefur umsjón með honum. í dag ætlar Anna að lesa sögu úr bókinni Mamma segðu mér sögu, sem Vilberg Jú- líusson tók saman. Sagan heitir „Siggi litli og skipið hans“ og segir Anna hana segja frá óþægum og frekum strák, sem gerir ekkert af því sem mamma hans biður hann að gera. Auð- vitað kemur það honum í koll, enda er það Ijótur ósiður að vera óhlýðinn við mömmu sína. Anna Ringsted hefur unnið sem kynnir við RÚVAK frá upphafi. Reyndar hefur hún gripið inn í flest önnur störf þar og segir hafa verið í mörgu aðsnúast þessa dagana, enda er mikið um að vera í útvarpsmál-, um á Akureyri um þessar niundir. „En það er virkilega gaman," segir hún og kvartar ekki undan vinnuálaginu. ■ Anna Ringsted les sögu um óþekkan strák, sem neyðist til að taka upp betri siði. Fimmtudagur 7. mars ■ 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Málræktarþáttur. Endurt. þáttur Baldurs Jónssonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður- fregnir. Morgunorð - Sigurveig Guðmundsdóttir talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Agnarögn“ eftir Pál H. Jónsson. Flytjendur: Páll H. Jónsson, Heimir Pálsson og Hildur Heimisdóttir (2). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónlejkar. 9.45 Þingfréttir. Tónleíkar. 9.45 Þingfréttir falla niður þessa viku, þvi ekkert þing er á meðan Norðurlandaráðsþingið stendur. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. lor- ustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar. 11.00 Ég man þá tíö“ Lög frá liðnum árum. Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson. 11.30 Fyrrverandi þingmenn Vest- urlands segia frá Eðvarð Ingólfs- son ræðir við Jósep Þorqeirsson. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.20 Barnagaman Umsjón: Anna Ringsted. (RUVAK) 13.30 Tónleikar 14.00 „Blessuð skepnan" eftir James Herriot Bryndis Víglunds- dóttir les þýðingu sina (21). 14.30 Á frívaktinni Sigrún Sigurðar- dóttir kynnir óskalög sjómanna. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar a. Fiðlu- sónata á A-dúr op. 100 eftir Jo- hannes Brahms. Pinchas Zuker- man og Daniel Barenboim leika. b. Strengjakvartett nr. 16 i F-dúr op. 135 eftir Ludwig van Beetho- ven. Budapest-kvartettinn leikur. 17.10 Siðdegisútvarp Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir.Tilkynningar. 19.50 Daglegt mál. Sigurður G. Tóm- asson flytur þáttinn. 20.00 Hvískur Umsjón: Hörður Sig- urðarson. 20.30 Kvöld í Mývatnssveit Umsjón: Jónas Jónasson. (RÚVAK). 21.25 Frá tónleikum kammersveit- ar Reykjavíkur í Áskirkju 4. des. sl. Strengjasextett í B-dúr op 18 eftir Johannes Brahms. Rut Ing- ólfsdóttir og Szymon Kuran leika á fiðlur, Helga Þórarinsdóttir og Ro- bert Gibbons á viólur, Inga Rós Ingólfsdóttir og Arnþór Jónsson leika á selló. 22.00 Lestur Passíusálma (28) 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins 22.35 Fimmtudagsumræðan - Um nýskipan útvarpsmála Umsjón: Helgi Pétursson. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Fimmtudagur 7. mars 10:00-12:00 Morgunþáttur. 14:00-15:00 Dægurflugur. Nýjustu daegurlögin. Stjórnandi: Leópold Sveinsson. 15:00-16:00 I gegnum tíðina Stjórn- andi: Ragnheiður Davíðsdóttir. 16:00-17:00 Bylgjur Framsækin rokktónlist. Stjórnendur: Ásmund- ur Jónsson og Árni Daniel Júlí- usson. 17:00-18:00 Einu sinni áður var Vinsæl lög frá 1955 til 1962 = rokktímabilið. Stjórnandi: Bertram Möller. Hlé 20:00-21:00 Vinsældalisti hlust- enda Rásar 2 10 vinsælustu lögin leikin. Stjórnandi: Páll Þorsteins- son. 21.00-22.00 Þriðji maðurinn Stjórn- endur: Ingólfur Margeirsson og Árni Þórarinsson. Gestur: Guðrún Helgadóttir alþingismaður. 22:00-23:00 Rökkurtónar Stjórn- andi: Svavar Gests. 23:00-00:00 Óákveöið. Föstudagur 8. mars 19.15 Á döfinni Umsjónarmaður: Karl Sigtryggsson. Kynnir: Byrna Hrólfsdóttir. 19.25 Krakkarnir í hverfinu. 12. Benjamín viðrar hundinn. Kan- adiskur myndaflokkur um hvers- dagsleg atvik í lífi nokkurra borgar- barna. Þýðandi: Kristrún Þórðar- dóttir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Kastljós. Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður: Sigur- veig Jónsdóttir. 21.15 Mezzoforte Hljómsveitin Mezzoforte leikur á alþjóðlegri djasshátíð í Montreux í Sviss árið 1984. 22.35 Ráðgátan í Oberwald. (II mis- tero di Oberwald) I tölsk sjónvarps- mynd gerð eftir leikritinu „Þríhöfða erninum" eftir Jean Cocteau. Leik- stjóri Michelangelo Antonioni. Aðalhlutverk: Monicas Vitti og Pa- olo Bonacelli. Myndin gerist í Ev- rópuriki á öldinni sem leið. Kon- ungshjónin þar bera svipmót af Elísabetu keisaradrottningu Aust- urríkis og Lúðvík II. Bæjarakóngi. Er sagan hefst hefur konungur verið myrtur en ekkjan hefur flúið hirðina og ferðast milli halla sinna. Fjendur krúnunnar senda ungt skáld til höfuðs drottningu og ber fundum þeirra saman i Oberwald- höll. Samskipti þeirra verða þó ólikt vinsamlegri en til var ætlast. Þýðandi: Þuríður Magnúsdóttir. 00.45 Fréttir i dagskrárlok.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.