Morgunblaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 2
SAMNINGANEFND Sjómanna- sambandsins verður ekki boðuð til fundar í þessari viku til að ræða stöðuna í kjaraviðræðum og fá heimild til að undirbúa at- kvæðagreiðslu um verkfall. Hólm- geir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambandsins, segir að ekki hafi verið ákveðið hvenær hún verði kölluð saman. „Á með- an vonin er einhver er ekki tíma- bært að kalla saman fund,“ segir hann. Af því gæti þó orðið í næstu viku. Sjómenn og útvegsmenn hafa fundað reglulega síðustu vik- urnar og í dag er boðað til þriðja fundarins í þessari viku. Aðspurður segir Hólmgeir að hann vilji ekki leggja mat á hvort meiri sáttatónn sé í mönnum þessa dagana. „Það er voðalega erfitt að segja til um það en menn eru að hittast og það er af hinu góða. Menn sjá kannski ekki ár- angur eftir daginn en það getur skilað sér seinna,“ segir hann. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, segir í raun ekkert nýtt að frétta af deilunni, enn sé rætt um sömu viðfangsefni og áður. Fundir hafi verið tíðir frá því um miðjan september og yfirleitt hittist menn oft í viku. Samninganefnd ekki boðuð á fund Yf ir l i t 2 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Í dag Sigmund 8 Viðhorf 28 Úr verinu 12 Umræðan 28/33 Viðskipti 14 Bréf 33 Erlent 16 Minningar 34/36 Heima 18 Dagbók 40/42 Höfuðborgin 20 Víkverji 40 Suðurnes 21 Menning 43/49 Akureyri 22 Bíó 46/49 Landið 22 Ljósvakamiðlar 50 Daglegt líf 24/25 Veður 51 Forystugrein 26 Staksteinar 51 * * * Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir álímt auglýsingaspjald frá Nóatúni. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull- trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl                                  ! " #        $         %&' ( )***                      SAMKOMULAG hefur náðst um sameiningu Há- skólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands og er stefnt að því að henni verði endanlega lokið næsta sumar. Auk núverandi viðfangsefna skól- anna tveggja verður m.a. boðið upp á MS-nám í verkfræði og meistaragráðu í kennslufræði og frekara framhaldsnám eftir aðstæðum. Skólinn hefur heimild til að innheimta skólagjöld en nú- verandi nemendur í THÍ munu ekki þurfa að greiða hærri gjöld en nú er krafist af þeim. Samkvæmt viljayfirlýsingu sem var undirrituð í gær mun einkahlutafélag í eigu Verslunarráðs Ís- lands, Samtaka iðnaðarins og Samtaka atvinnu- lífsins taka yfir rekstur skólanna en fram að þessu hefur HR verið rekinn af Verslunarráði en THÍ verið ríkisháskóli. Sjö manna stjórn verður skipuð yfir einkahlutafélaginu sem jafnframt verður háskólaráð hins nýja skóla. Sameining er háð því að Alþingi fallist á lagabreytingar sem nauðsynlegar eru til að af sameiningunni geti orð- ið. Hluthafar leggja fram 300 milljónir króna í eigið fé og er félaginu ekki ætlað að skila eig- endum sínum arði. Formlegar viðræður um sameininguna hafa staðið yfir síðan í ágúst. Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir menntamálaráðherra, sem átti frum- kvæðið að viðræðunum, sagði að með sameining- unni sköpuðust skilyrði fyrir öflugan og stöndugan háskóla sem yki enn á möguleika Ís- lendinga til að velja sér nám og skóla. Íslendingar hefðu verið örlitlir eftirbátar annarra Evr- ópuþjóða í tæknigeiranum og í sameiningu skól- anna fælist mikið tækifæri til þess að efla raun- greinamenntun, sérstaklega í tækni- og verkfræði. Báðir skólarnir hefðu haft metn- aðarfullar áætlanir um frekari uppbyggingu og í kjölfarið hefði hún efnt til viðræðna um samein- ingu sem nú hefði verið ákveðin. „Þetta var tæki- færi sem ekki var hægt að láta fram hjá sér fara,“ sagði hún. Í nýtt hús árið 2007 Framlög ríkisins verða annars vegar miðuð við nemendafjölda og hins vegar fær skólinn rann- sóknarfé sem mun fara stighækkandi til 2009. Ljóst má vera að skólinn verður stöndugur með fjárframlögum ríkisins, öfluga bakhjarla og möguleika á að innheimta skólagjöld. Spurð um áhrif sameiningarinnar á umræðu um skólagjöld í Háskóla Íslands sagði Þorgerður Katrín að hún hefði sagt að ekki kæmi til greina núna að inn- heimta skólagjöld í grunnnámi. Hún væri á hinn bóginn tilbúin í viðræður um skólagjöld í fram- haldsnámi en margir innan HÍ hefðu rætt um slíkt. Þrýstingur á það gæti aukist. „Ég held að menn verði að sjá að ákveðin tækifæri felast í skólagjöldum. Það er verið að auka svigrúm há- skóla og tækifæri til að þróast frekar á sjálf- stæðum forsendum,“ sagði hún. Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor HR, og Stef- anía Katrín Karlsdóttir, rektor THÍ, fögnuðu sameiningunni og sögðu hana bæði mikilvæga fyrir menntun og samkeppnishæfni íslensks at- vinnulífs. Miðað er við að sameiningu skólanna verði lokið næsta sumar og að nemendur innritist í hinn nýja skóla haustið 2005. Þá er stefnt að því að skólarnir verði komnir undir sama þak árið 2007 og munu nokkrir staðir koma til greina í því sambandi. HR og THÍ verða sameinaðir og mun einkahlutafélag sjá um rekstur skólans Morgunblaðið/Golli Forsvarsmenn skólanna tveggja og menntamálaráðherra undirrituðu samkomulagið í gær. Mun efla tækni- og verkfræðimenntun Þrjár beiðnir samþykktar UNDANÞÁGUNEFND vegna verkfalls grunnskólakennara sam- þykkti í gær þrjár undanþágu- beiðnir, frá Hamraskóla, Hafra- lækjarskóla og Hlíðarskóla á Akureyri. Alls voru ellefu beiðnir um undanþágu ræddar á fund- inum. Sigurður Óli Kolbeinsson nefndarmaður sagði að afgreiðslu þriggja beiðna, sem fyrir nefnd- inni lágu, hefði verið frestað, því fulltrúi kennara hefði viljað afla sér frekari upplýsinga um þau mál. „Ég vona að það verði gengið frá því sem allra fyrst og þær undanþágubeiðnir afgreiddar sem fyrst,“ sagði hann. Unnu Sviss í 5. umferð ÍSLENSKU sveitirnar á ólympíu- skákmótinu á Mallorca háða harða baráttu við sterka andstæðinga í fimmtu umferð, sem tefld var í gær. Karlasveitin tefldi við Svía og varð niðurstaðan 2-2, Bragi vann öruggan sigur á stórmeistaranum Stellan Brynell, á 4. borði, en Þröstur tapaði slysalega fyrir alþjóðlega meistaran- um Emanuel Berg. Hannes Hlífar gerði jafntefli við stórmeistarann Evgenij Agrest og Helgi við alþjóð- lea meistarann Johan Hellsten. Konurnar tefldu við svissnesku sveitina og unnu 2-1. Lenka vann stórmeistarann Tatjönu Lematsjko og Guðfríður Lilja vann Moniku Seps en Guðlaug tapaði fyrir alþjóð- lega meistaranum Gundulu Heinatz sem hefur unnið allar skákir sínar á mótinu til þessa. Karlaliðið hefur 11 vinninga í 20 skákum og kvennaliðið hefur 8,5 vinninga í 15 skákum. STEFÁN Jón Hafstein, borgar- fulltrúi R-listans og formaður framkvæmdastjórnar Samfylking- arinnar, segir hagsmuni Reykja- víkurborgar ólíka hagsmunum flestra annarra sveitarfélaga og borgin sé ekki skuldbundin til að vera í hagsmunafloti með „öðrum sveitarfélögum“. „Ef menn kjósa að vera í þessum smáhreppum hingað og þangað um landið – eitt hundrað talsins – þá er ekkert sem segir að við eigum að vera í hagsmunagæslu með þeim. Hagsmunirnir eru svo ólíkir eins og berlega kemur í ljós á hin- um ýmsu sviðum. Ég tel að verði ekki breyting á þessu fyrirkomu- lagi, og það hratt og örugglega, eigi Reykjavíkurborg að endur- skoða afstöðu sína til þátttöku í Sambandi sveitarfélaga vegna þess að hagsmunir okkar eru svo ólíkir hagsmunum flestra annarra sveit- arfélaga,“ sagði Stefán Jón á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í gær- kvöldi. Vildi hann frekar horfa á eflingu starfsins í Sambandi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og taka upp sérstakt samband sveitarfélaga á suðvesturhorninu. Gagnrýndi stöðu oddvita Sjálfstæðisflokksins Hann sagði að þetta vekti upp spurningar um stöðu formanns Sambands sveitarfélaga, Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, sem jafnframt er oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Eina klukkustund væri hann að ræða við samflokks- menn sína í ríkisstjórn um stöðu sveitarfélaga og hina stundina væri hann kominn niður í ráðhús. „Þá eigum við bara að taka á móti hon- um eins og skátahöfðingja allra sveitarfélaga – algjörlega ópólitísk- ur og friðflytjandi um öll þessi mál. Og við eigum bara að vera himinlif- andi yfir því hvað hann standi sig vel í að tala við flokksfélaga sína sem algjörlega hafna öllum lausn- um á því sem hann er að biðja um,“ sagði Stefán Jón Hafstein. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagð- ist hafa verið 14 ár formaður Sam- bands sveitarfélaga og ekki verið vændur um það að ganga erinda einhvers tiltekins stjórnmálaflokks þegar hann væri að sinna hags- munum sveitarfélaganna í landinu. Hann gæti talið upp þúsund dæmi um hagsmunagæslu hans fyrir Reykvíkinga og hann hefði náið samstarf við þá sem stjórnuðu borginni. Það hefði ekki haft áhrif að hann væri í minnihluta í borgar- stjórn um tíma. Reykjavík endurskoði þátt- töku í Sambandi sveitarfélaga NÝTT HJARTALYF Fyrstu prófanir hjá Íslenskri erfðagreiningu (ÍE) á nýju lyfi, DG031, sýna að það hefur mark- tæk áhrif á áhættuþætti hjarta- áfalls og veldur almennt ekki aukaverkunum. Næsta skref er að prófa lyfið á 1.500 til 2.000 sjúk- lingum víða um heim. Gífurleg eyði legging Gífurleg eyðilegging blasti við á bænum Knerri í Breiðuvík í gær eftir stórbrunann sem varð á mánudagskvöld. Hlaða, fjárhús og vélageymsla voru rústir einar og 6–700 lömb brunnu inni. 41 á s júkrahús eft ir veltu Rúta fauk út af veginum og valt undir Akrafjalli á áttunda tím- anum í gærmorgun. Um borð voru 45 starfsmenn Norðuráls á leið til vinnu og var 41 fluttur á sjúkra- hús. Enginn slasaðist þó alvarlega. Breskri konu rænt Breskri konu, Margaret Hassan, og yfirmanni hjálparstofnunar- innar CARE var rænt í Bagdad í gær. Er ekki vitað um kröfur mannræningjanna en Bretar eru slegnir óhug enda stutt síðan breski gíslinn Kenneth Bigley var líflátinn. Í Bretlandi er kominn upp mikill kurr innan Verka- mannaflokksins vegna fyrirætlana um að flytja breskt herlið í Írak til átakasvæða í landinu. Hafa ýmsir þingmenn, sem studdu þó Íraksinnrásina, mótmælt því harð- lega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.