Morgunblaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Samvera eldri borgara verður í kirkjunni á morgun, fimmtudaginn 21. október, kl. 15.00 Gestir samverunnar: Reynir Hjartarson, hagyrðingur, Þórhildur Örvarsdóttir, sópran og Daníel Þorsteinsson, píanóleikari. Almennur söngur, fræðsla, gamansögur, spjall og kaffiveitingar. Helgistund í lok samveru í umsjón sr. Arnaldar. Hjörtur Steinbergsson leikur undir almennum söng. Glerárkirkja. GLERÁRKIRKJA Suðurland | „Þetta er skelfilegt. Við sjáum ekki til sólar fyrir þessu,“ segir Sveinn Sigurjónsson, bóndi á Galta- læk II í Landsveit. Mikið moldrok hefur gengið yfir allt Suðurland í storminum í gær og fyrradag og telur Andrés Arnalds, fagmálastjóri Land- græðslunnar, að veruleg landeyðing hafi orðið á hálendinu og efri byggð- um Suðurlands. „Þetta er líklega versta uppblást- ursveður sem komið hefur á sunnan- verðu landinu um árabil, jafnvel verra en á uppblástursárunum 1991 til 1993 þegar oft var mikið moldrok,“ segir Andrés. Hann segir að moldrokið nú hafi verið í Árnessýslu og austur eftir suðurströnd landsins og á miðhálend- inu. Samkvæmt þeim upplýsingum sem hann hafði síðdegis í gær var ástandið verst í Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu og líkir hann ástandinu þar við náttúruhamfarir. Þó er fokið misjafnt eftir svæðum. Nefnir hann að fólk í Gunnarsholti telji að moldrokið þar hafi verið verra en um árabil. Einnig sé ástandið slæmt í Landsveit, að Fjallabaki, í Eldhrauni og á Mýrdalssandi. Andrés segir að það rjúki úr opnum jarðvegssárum, svo sem flögum og rofabörðum og úr uppþornuðum tjörnum, auk þess sem laus sandur á gömlum sandfokssvæðum sem unnið hafi verið við að hefta fari aftur á hreyfingu. Þá fjúki aska og vikur úr síðustu Heklugosum. Sáu ekki til fjalla Sveinn Sigurjónsson sagði að í gærmorgun hefði hann ekki séð út af- leggjarann að Galtalæk sem þýðir að skyggni hefur verið innan við 200 metrar. „Við sáum engin fjöll fyrr en núna fyrir stundu að það rofaði fyrir Skarðsfjalli,“ sagði Sveinn síðdegis. Þá hafði mesta veðrið gengið yfir og skyggni orðið 400 til 500 metrar. Sveinn taldi að efnið kæmi af svæð- inu framan við Búrfell og innar af há- lendinu. Þetta virðist vera sambland af sandi, jökulleir og jarðvegsleyfum. Fyrir þremur vikum gekk yfir austanrok og flutti til jarðveg, að sögn Sveins, og núna kemur norðaust- anáttin þvert á þetta. „Venjulega er belgingur hér í norðanáttinni en þessu veðri hafa fylgt miklar storm- hviður. Ég stóð varla þegar ég kom út í morgun,“ segir Sveinn og telur að þessi mikli vindur sem staðið hefur í þetta langan tíma hafi átt auðvelt með að vinna á ófrosinni jörðinni. „Ég hefði vel getað þegið eitthvað af snjónum sem þeir fengu fyrir austan. Það hefði hægt á eyðingunni.“ Síð- degis var orðið lygnara en Sveinn var þó ekki farinn að átta sig á skemmd- um. Landgræðslan hefur sáð töluvert í nágrenni bæjarins til að hefta land- eyðingu og telur hann fullvíst að skemmdir hafi orðið þar. „Það hefur orðið gríðarlegt tjón af þessu.“ Andrés segir að ekki sé hægt að meta skemmdir á landi enn sem kom- ið er en telur að þær eigi eftir að koma í ljós víða. „Hætt er við að sumsstaðar gangi sandöldur langt inn á gróið land,“ segir hann. „Þetta sýnir okkur að þótt við teljum okkur hafa náð góð- um árangri í landgræðslu er jafnvæg- ið viðkvæmt. Ekki þarf mikið til að það raskist. Sá lærdómur sem við drögum af þessu er að ekki megi skilja við verstu svæðin fyrr en búið er að loka þeim að fullu og helst að mynda skjól með kjarri til að brjóta niður vindinn,“ segir Andrés. Landeyðing og mikið moldrok í storminum sem gengið hefur yfir Suðurland síðustu tvo daga „Sjáum ekki til sólar fyrir þessu“ Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Moldin litar listaverkið Í fyrsta hausthretinu útbjó náttúran sín listaverk. Austan við Vík í Mýrdal rauk vatn úr fisk- eldistjörn og hrannaðist upp á bakkanum og nálægri girðingu. Moldrokið sem gekk yfir sá um að lita allt brúnt. LANDIÐ AKUREYRI Íbúum fjölgar| Á fyrstu þremur ársfjórðungum ársins 2004 hafa 89 íbúar flutt til Eyjafjarðarsveitar, en 70 úr sveitarfélaginu. Aðfluttir um- fram brottflutta eru því samtals 19. Þetta kemur fram á vef Eyjafjarð- arsveitar og er vitnað í tilkynningu um búferlaflutninga frá Hagstofu Ís- lands. Alls voru íbúar í Eyjafjarðarsveit 958 talsins 1. desember síðastliðinn. Á Norðurlandi eystra eru brottfluttir umfram aðflutta á sama tímabili 107 og í sveitarfélögum við Eyjafjörð eru brottfluttir umfram aðflutta á tíma- bilinu 32. Mest er fjölgun í Hörg- árbyggð, en þar voru aðfluttir um- fram brottflutta 24 talsins.    VERÐKÖNNUN á umfelgun og jafnvægisstillingu hjá fjórum verk- stæðum á Akureyri sýnir að verð- munur milli þeirra er á bilinu 13% og upp í 20%. Neytendasamtökin gerðu verðkönnunina hjá Toyota, Dekkja- höllinni, Höldi og Gúmmívinnslunni. Munur á umfelgun og jafnvægis- stillingu á fólksbíl er 13,3%, lægsta verð er hjá Höldi, 4.547 krónur, en hæst hjá Gúmmívinnslunni 5.150 krónur. Þegar kemur að litlum jeppa er munurinn 21,4%, kostar mest hjá Toyota, 6.808 krónur en minnst hjá Höldi, 5.610 krónur. Hvað meðal- jeppann varðar er munur á verði 17,8%, umfelgun og jafnvægisstilling kostar 9.012 krónur hjá Toyota en 7.650 krónur hjá Höldi. Þegar að stórum jeppum kemur er það sama uppi á teningnum, mest kostar að fara með slíka jeppa til Toyota, 9.572 krónur en minnst hjá Höldi, 7.990 krónur og er munurinn 19,8%. Fram kemur að Neytendasamtök- in hafi síðast gert verðkönnun á um- felgun í apríl 2002. Verðmunur milli aðila var þá frá 2,6% upp í 9,7%. Þó svo að verðmunurinn sé meiri nú en þá hefur verð ekki hækkað mikið á þessum tíma. Lægsta verð er raunar í nær öllum tilvikum lægra nú en þá. Verðmunur á um- felgun 13–20% ÚR Fjörunni til fjarlægra landa er heiti á sýningu sem opnuð var í Amts- bókasafninu á Akureyri á laugardag, en sýningin fjallar um einn frægasta Akureyring fyrr og síðar, Jón Sveins- son, Nonna. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands opnaði sýninguna á dánardægri Nonna, 16. október en 60 ár voru liðin frá láti hans þann dag. Æskuminningar Nonna úr Eyja- firði voru aðalefniviðurinn í hinum vinsælu Nonnabókum sem þýddar hafa verið á yfir 30 tungumál. Á sýn- ingunni eru Nonnabækur á erlendum tungumálum,vatnslitamyndir úr nýj- um útgáfum Nonnabókanna eftir Kristin G. Jóhannsson auk ýmissa muna og mynda sem tengjast lífi og störfum jesúítaprestsins og rithöf- undarins Jóns Sveinssonar. Ólafur Ragnar sagði þegar hann opnaði sýninguna að hann hefði sem ungur drengur á Ísafirði lesið Nonna- bækurnar og hrifist mjög af ævintýr- um Nonna. Seinna í störfum sínum sem forseti hefði hann kynnst mörgu fólki í útlöndum sem þekkti til Nonna og hefði kynnst Íslandi í gegnum bækur hans. Sérstaklega væri þessi áhugi mikill í Þýskalandi og minntist forsetinn sérstaklega á það hversu mikillar aðdáunar og virðingar Nonni nýtur enn í Köln, en þar lést Nonni fyrir 60 árum og er jarðsettur þar. Þakkaði forsetinn Zontaklúbbi Akur- eyrar fyrir að hafa varðveitt minn- ingu Nonna með því að setja á fót og reka minningarsafn í Nonnahúsi. Forseti Íslands opnaði sýningu um Nonna Ljósmynd/Rúnar Þór Sýning um Nonna Ólafur Ragnar Grímsson opnaði sýningu um Jón Sveins- son, Nonna, í Amtsbókasafninu á Akureyri á laugardag, á dánardægri hans, en hún nefnist Úr Fjörunni til fjarlægra landa. Áður brá hann sér í Nonnahús við Aðalstræti og skoðaði það í fylgd Brynhildar Pétursdóttur, safnvarðar Nonnahúss, og Hólmkels Hreinssonar amtsbókavarðar. Mótmæla gjöldum | Félag stúd- enta við Háskólann á Akureyri, FSHA, mótmælir harðlega hug- myndum um hækkun innrit- unargjalda við Háskólann á Ak- ureyri. Í yfirliti um lagabreytingar sem gert er ráð fyrir að komið verði í gegn sem forsendur fjárlaga 2005, kemur fram að gert verði að tillögu að innrit- unargjöld nemenda verði hækkuð úr 32.500 í 45.000. Er þar um að ræða tæplega 40% hækkun, eða um 16 m.kr. tekjuhækkun fyrir skólann, segir í ályktun frá félaginu. Þar kemur einnig fram að félagið fagni auknu fjármagni HA til handa, telur það að leitað sé á röngum stað að því fjármagni. FSHA hvetur Háskólann á Ak- ureyri til að nýta sér ekki þessa heim- ild til hækkunar innritunargjalda.    Styrkja ekki | Ingólfur Ásgeir Jó- hannesson hefur sent jafnréttis- og fjölskyldunefnd Akureyrarbæjar er- indi þar sem hann óskar eftir styrk að upphæð kr. 150–200 þúsund vegna bókar sem hann er með í smíðum um karlmennsku og jafnréttisuppeldi. Í bókun frá fundi nefndarinnar kemur fram að hún geti ekki orðið við erindinu, en fagni hins vegar framtakinu og óskar höfundi góðs gengis. Fyrsti fundur vetrarins | Félag foreldra og aðstandenda samkyn- hneigðra á Norðurlandi heldur fund á Sigurhæðum á fimmtudagskvöldið kl. 20. Þar verður fjallað um starfs- árið framundan, skýrslu nefndar forsætisráðherra um réttarstöðu samkynhneigðra og fleira. Félagið tók til starfa síðastliðið haust og var þátttaka strax góð, en í ljós kom að mikil þörf var á vettvangi fyrir að- standendur, þar sem menn hittust, fræddust og hjálpuðust að við að finna svör við spurningum og að leita leiða til að styðja börn sín í lífi og starfi. Fólk sem á langt að sækja getur verið í sambandi við hópinn um síma eða með tölvupósti. Íþróttaiðkun í verkfalli | Grunn- skólabörnum á Akureyri stendur ýmislegt til boða hvað varðar íþróttaiðkun nú í verkfalli grunn- skólakennara. Heilsueflingarátakið „Einn, tveir og nú!“ stendur yfir en það miðar að því að virkja grunn- skólabörn og foreldra þeirra til reglubundinnar hreyfingar. Skautahöllin er opin lengur en vant er, er opnuð kl. 10 alla virka morgna og er opin til kl. 15 eða 16 og einnig á föstudagskvöldum. Næstu tvær vikur verður grunnskólabörn- um boðið upp á endurgjaldslausa skautaleigu. Hestaleigan Kátur býð- ur upp á fimm daga reiðnámskeið á 6 þúsund krónur og þá benda for- svarsmenn átaksins á að sundlaugar séu opnar, íþróttir sé hægt að stunda á vegum íþróttafélaganna í bænum og líkamsræktarstöðvar hafa sumar boðið upp á sérstök til- boð fyrir börn í efri bekkjum grunn- skóla.   

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.