24 stundir - 05.02.2008, Blaðsíða 41
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 41
H l í ð a r v e g u r 7 | 8 6 0 H v o l s v ö l l u r | s : 4 8 7 8 0 5 0 f a x : 4 8 7 8 0 5 8 | h o t e l h v o l s v o l l u r @ s i m n e t . i s | w w w . h o t e l h v o l s v o l l u r . i s
H Ó T E L H V O L S V Ö L L U R
…a beautiful South!
Fimmtiu tveggja manna og fjögur
einsmanns herbergi. Einnig eru tvö
herbergi hönnuð með sérþarfir
fatlaðra í huga. Öll herbergi eru
innréttuð með baði, síma, sjónvarpi,
hárþurku og þráðlausu netsambandi.
2 heitir pottar.
Árshátíðir
Gisting í tveggja manna herbergi.
4 rétta hátíðarmatseðill.
Dinnertónlist og dansleikur.
Brunch.
Föstudag til laugardags. kr. 8.400.-
Laugardag til sunnudags. kr. 9.400.-
Bjóðum upp á fordrykk
í Sögusetrinu. kr. 950.-
Verð án gistingar kr. 4.900.-
Golf og hótel
frá 15/04 til 15/06 2008
Heill dagur á Strandarvelli.
Gisting í tveggja manna herbergi.
3 rétta kvöldverður.
Morgunverður.
Á leiðini heim: Komið við á Strandavelli og
tekinn einn hringur.
Verð kr. 11.000.-
Sviðamessa
dagana 09/02 og 23/02 2008
Forréttir
Aðalréttir
Svið, reykt og ný; sviðasulta, sviðalappir og
aðrir réttir.
Eftirréttahlaðborð
Kvöldið byrjar kl. 19:00 með fordrykk í
Sögusetrinu þar sem verður messað yfir fólki.
kl. 20:00 byrjar borðhald með ýmsum
skemmtiatriðum.
Veislustjóri verður Árni Johnsen
Eftir borðhald og skemmtiatriði er dansleikur.
Verð án gistingar kr. 3.900.-
Verð með gistingu kr. 8.400.-
Allt hitt
Fundir og ráðstefnur frá 2- 200 manns
Árshátíðir.
Brúðkaupsveislur.
Afmælisveislur.
Fermingaveislur.
Gerum tilboð í veislur og veitingar.
Pinnamatur/brauðtertur/snittur/hlað-
borð/a la carte/kökuhlaðborð/hádegis-
verður/kvöldverður og fleira.
Salur fyrir allt að 240 manns.
Óvissuferðir/Jeppaferðir/Njáluferðir/
strandferð með hertrukk/fjórhjólaferðir/
hestaferðir
A t h : Ö l l v e r ð m i ð a s t v i ð g i s t i n g u í t v e g g j a m a n n a h e r b e r g i á m a n n . A u k a f y r i r e i n s m a n n s h e r b e r g i k r . 3 . 5 0 0 . -
Það er ekki á allra færi að splæsa
í sólarlandaferðir og sumir þurfa
því að hugsa aðeins smærra þegar
kemur að því að taka vetrarfrí.
Sumarbústaðir eru alltaf góð
lausn fyrir þá sem vilja sleppa að-
eins frá hversdagleikanum og
styrkja fjölskylduböndin. Orðið
sumarbústaður á varla við lengur,
nú þegar flestir bústaðir eru í notk-
un allt árið og hlaðnir hinum ýms-
um þægindum.
Vinnubústaður eða Google
Flestir hafa einhvern aðgang að
fyrirtækja- eða verkalýðsbústöðum
og því er um að gera að skoða það
mál. Þeir sem ekki geta fengið bú-
stað með þeim leiðum ættu ein-
faldlega að drífa sig á netið og leita
að bústað sem leigður er út á vet-
urnar. Google.is er sérstaklega
hentugt fyrir slíka leit en einnig er
gott að hafa samband við vini og
ættingja sem gætu kannast við ein-
hvern sem leigir bústaðinn sinn.
Heitur pottur eða köld sturta
Gott er að ákveða að hverju þú
vilt hafa aðgang í bústaðnum enda
eru þeir jafn misjafnir og þeir eru
margir. Sumir eru útbúnir öllum
helstu þægindum, þar með töldum
raftækjum, sjónvarpi, DVD-spilara
og heitum potti. Aðrir bústaðir eru
byggðir í anda einfaldleikans og
hafa aðeins gashitara og pláss til að
lesa, spila og slaka á. Spurningin er
því eftir hverju þú ert að sækjast
þegar þú ferð út úr bænum.
Það er óhætt að lofa því að allir
ættu að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi. Það gæti að sjálfsögðu krafist
smá rannsóknarvinnu, sem gerir
fríið bara skemmtilegra.
iris@24stundir.is
Sumarbústaður er góður í vetrarfríi
Slakað á í sumarbú-
staðnum allt árið