Morgunblaðið - 10.01.2005, Side 1
STOFNAÐ 1913 8. TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Gleði ríkir í
Grundarfirði
Nýi fjölbrautaskólinn er
á við stóriðju | Miðopna
Fasteignir | Útsýnið yfir Elliðavatn hefur aðdráttarafl Sjö hæða
fjölbýlishús rís við höfnina í Keflavík Íþróttir | Sannfærandi hjá Stjörn-
unni Eiður Smári var fyrirliði Þeir gömlu mörðu sigur á Akureyri
FJÓRTÁN fórust þegar mikið óveð-
ur gekk yfir norðurhluta Evrópu á
laugardag, þar af fórust sjö í Sví-
þjóð. Veðurfræðingar sögðu veðrið
það versta sem gengið hefði yfir
svæðið í mörg ár og í Svíþjóð fór
vindur sums staðar upp í 42 m/s á
Skáni, Hallandi og í Smálöndum.
Að minnsta kosti fjögur hundruð
þúsund heimili í Svíþjóð voru um
tíma án rafmagns. Fólki stafaði
mest hætta af trjám sem rifnuðu
upp með rótum og í Svíþjóð dóu
fjórir þegar tré lentu á bílum
þeirra. Á myndinni má sjá hvar tré
hefur lent ofan á bifreið nálægt
Sturup-flugvelli í Malmö með þeim
afleiðingum að einn maður dó.
Í Danmörku dóu fjórir í óveðrinu
sem var verst á Norður- og Vestur-
Jótlandi. Um sextíu þúsund dönsk
heimili voru án rafmagns um tíma.
Þrír létust einnig í borginni Car-
lisle í Bretlandi en vatnavextir af
völdum mikillar rigningar ollu því
að flæddi inn í mörg hús.
SCANPIX
Fjórtán
fórust í
óveðri
Tré rifnuðu/6
ÁÆTLAÐ er að lífeyrisskuld-
bindingar ríkissjóðs aukist um
tíu milljarða króna vegna ný-
gerðs kjarasamnings grunn-
skólakennara og
sveitarfélaga.
„Útreikning-
arnir liggja ekki
endanlega fyrir
en ljóst er að
þetta eru háar
upphæðir, hugs-
anlega um það bil
tíu milljarðar
króna,“ sagði
Geir H. Haarde
fjármálaráðherra
í samtali við
Morgunblaðið í
gær. Eru þetta
skuldbindingar ríkisins á
grundvelli reglna sem settar
voru er grunnskólinn fór yfir
til sveitarfélaganna.
„Þó að það líti þannig út
núna að þetta sé upphæðin þá
er eftir að fara betur í saum-
ana á því með tilliti til þess með
hvaða hætti þetta fellur á það
árabil sem um er að ræða í
þessum samningi,“ segir Geir.
„Það er ljóst að töluverður
hluti af þessu mun verða bók-
færður á árið 2004, vegna þess
að þá var samningurinn gerð-
ur, og mun auðvitað breyta
niðurstöðu varðandi rekstrar-
afkomu ríkissjóðs
til hins verra.“
Geir segir ekki
hægt að meta að
svo stöddu hver
áhrif annarra
kjarasamninga
verði á lífeyris-
skuldbindingar rík-
issjóðs.
Aðspurður hvort
ríkið hafi verið haft
með í ráðum við
gerð kjarasamn-
inganna segir Geir
að svo hafi ekki
verið en samningarnir hafi
verið gerðir með tilliti til þessa
atriðis.
Hann segir að sl. haust hafi
verið gerð fyrirspurn í þinginu
um horfur á aukningu lífeyr-
isskuldbindinga ríkisins vegna
kjarasamninga kennara og
sveitarfélaga. „Þar kom nú
fram hver gæti verið stærðar-
gráðan í þessu svo út af fyrir
sig er þetta kannski ekki
óvænt,“ segir Geir.
Útgjöld ríkissjóðs vegna kjara-
samninga grunnskólakennara
Tíu milljarðar
í lífeyrisskuld-
bindingar
Geir H. Haarde
MAHMOUD Abbas, forseti
Frelsissamtaka Palestínu
(PLO), sigraði örugglega í
forsetakosningunum sem
fram fóru í Palestínu í gær.
Útgönguspár sem birtar voru
eftir að kjörstöðum var lokað
kl. 19 í gærkvöldi að íslensk-
um tíma sýndu að Abbas fékk
meira en tvo þriðju hluta at-
kvæða en næstur kom lækn-
irinn og mannréttindafrömuð-
urinn Mustafa Barghouti.
Útgönguspá virtrar palest-
ínskrar rannsóknastofnunar
sem byggðist á samtölum við
10.000 kjósendur sýndi að
Abbas fékk 66% en Barghouti
aðeins 19,7%. Önnur út-
gönguspá, sem An Najah-há-
skólinn í Nablus gerði, sýndi
Abbas með 69,5% en Barg-
houti með 24,5%.
Gangi þessar tölur eftir –
en endanleg úrslit verða kunn
í dag – er ljóst að Abbas hefur
fengið ótvírætt umboð frá pal-
estínsku þjóðinni til að hrinda
í framkvæmd áætlunum sín-
um um nýjar friðarviðræður
við stjórnvöld í Ísrael, draga
úr öfgaverkum róttækari
samtaka Palestínumanna og
stefna að umbótum á palest-
ínsku heimastjórninni en
spilling hefur verið þar land-
læg.
Abbas ávarpaði stuðnings-
menn sína í Ramallah í gær-
kvöldi og lýsti þá yfir sigri sín-
um. Hann þakkaði löndum
sínum stuðninginn og hét því
að vinna að því að binda enda
á þjáningar þjóðarinnar.
Kjörið fór vel fram
Loka átti kjörstöðum kl. 17
að ísl. tíma en ákveðið var að
framlengja kosningarnar um
tvær klukkustundir eftir að
yfirkjörstjórn staðhæfði að
aðgerðir Ísraelshers víða á
hernumdu svæðunum hefðu
orðið til þess að kjósendur
komust ekki á kjörstað.
Alþjóðlegir eftirlitsmenn
sögðu engu að síður að kosn-
ingarnar hefðu gengið vel,
engin meiriháttar vandkvæði
hefðu verið á framkvæmd
þeirra. Barghouti bar þó fram
kvörtun snemma í gær, sagði
óreiðu víða einkenna kjörið.
Róttæk samtök Palestínu-
manna, Íslamskt Jíhad og Ha-
mas, hvöttu fólk til að hunsa
kosningarnar. Þau hétu því þó
í gær að virða úrslit þeirra.
Öruggur sigur hjá
Mahmoud Abbas
Álitinn hafa fengið umboð til að hefja viðræður við Ísraela á ný
Reuters
Stuðningsmenn Mahmouds Abbas fagna úrslitunum í gær.
Kosningarnar/14
Ramallah, Jerúsalem. AFP, AP.
EMBÆTTISMENN í Ísrael
fögnuðu úrslitum kosning-
anna og sögðust vonast til
þess að kjör hins hófsama
Abbas, sem nú tekur við
leiðtogahlutverki Yassers
Arafats, myndi stuðla að
friði í Mið-Austurlöndum.
„Eftir því sem ég kemst
næst fór allt fram í sam-
ræmi við lýðræðislegar
reglur og það er út af fyrir
sig mjög mikilvægt því að
þetta eru einu lýðræðislegu
kosningarnar í arabaheim-
inum,“ sagði Ehud Olmbert,
varaforsætisráðherra Ísr-
aels.
Lét hann þess getið að
Ariel Sharon, forsætisráð-
herra Ísraels, væri reiðubú-
inn að eiga fund með nýjum
forseta Palestínumanna við
fyrsta tækifæri.
Sharon vill fund hið fyrsta
Fasteignablað og Íþróttir í dag