Morgunblaðið - 10.01.2005, Síða 31
Góð þjónusta
á Læknavaktinni
ÉG fór á Læknavaktina einu sinni
fyrir jól og svo eftir áramótin. Dá-
ist ég að hversu góðar móttökur
maður fær þar og allt skipulag svo
gott og eiga þeir hrós skilið. Kær-
ar þakkir fyrir mig.
Ásta.
Við veisluborð
Morgunblaðsins
ÉG hef verið áskrifandi að Morg-
unblaðinu í 30 ár og það er alltaf
veisla þegar blaðið kemur fullt af
fréttum, fróðleik og upplýsingum.
Um margra ára skeið bar ég út
Morgunblaðið áður en ég fór til
vinnu og las það alltaf snemma
morguns eftir útburð, þvílík for-
réttindi. Síðustu ár hef ég búið á
Vestfjörðum og mér finnst ég satt
að segja komin 30 ár aftur í tímann
hvað dreifingu blaðsins snertir á
þessu svæði. Ég bý á sveitabæ sem
er í hálftíma akstursfjarlægð frá
þéttbýliskjarna og pósthúsi og það
eru tveir mánuðir síðan póstur fór
að koma hingað daglega, hafði áð-
ur komið þrisvar í viku.
Þar sem póstbíllinn kemur
seinni hluta dags var það mikil til-
hlökkun að nú kæmi Morgunblaðið
á útkomudegi. Svo fór þó ekki því
blaðið kemur aldrei fyrr en daginn
eftir útkomu eða eftir miðjan
næsta dag. Ef það er ófært geta
liðið dagar án þess að blaðið komi
sem er þó skiljanlegt þegar enginn
kemst yfir nema fuglinn fljúgandi
og ekki er við póstbílstjórann að
sakast sem er með afbrigðum lið-
legur.
Ég hefði skilið þetta á sjöunda
og áttunda tug síðustu aldar en
þetta er óskiljanlegt árið 2005 á
þessari öld upplýsinga, hraða og
framfara á öllum sviðum að ekki sé
hægt að koma blaði til áskrifenda
samdægurs hvar sem er á landinu.
Að vísu getum við lesið hluta
blaðsins á Netinu daglega en það
er ekki sama stemningin og felst í
því að fletta Morgunblaðinu við
eldhúsborðið.
En eins og fyrr var nefnt, þá er
alltaf veisla þegar blaðið berst
hvort sem það er nokkurra klukku-
tíma gamalt eða margra mánaða
og það mun aldrei breytast en það
er eins og með brauðið sem er ólíkt
skemmtilegra nýtt eða nýlegt.
Íbúi í Strandasýslu.
Frakki tekinn í misgripum
30. DESEMBER sl. var tekinn í
misgripum í Háteigskirkju dökk-
blár stuttur frakki. Sá sem er með
frakkann er beðinn að hafa sam-
band í síma 557 3088.
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU fundust á Gnoð-
arvoginum 5. janúar á gangstétt-
inni við blokkina nr. 14–18. Þau
eru með dökkgrárri spöng og í
svörtu hörðu hulstri með drapplitu
fóðri. Hugsanlega eru þetta barna-
eða unglingagleraugu. Ef einhver
kannast við lýsinguna getur eig-
andinn hringt í síma 821 8746 hve-
nær sem er yfir daginn.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2005 31
DAGBÓK
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
LÓÐIR ÓSKAST TIL KAUPS
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Til mín hefur leitað traustur og fjársterkur
byggingaverktaki sem óskar eftir að kaupa
lóðir fyrir íbúðar eða atvinnuhúsnæði. Eignir
sem þarfnast niðurrifs koma einnig til greina.
Staðgreiðsla í boði, Áhugasamir vinsamlega
hafið samband og ég mun fúslega veita nánari
upplýsingar.
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
Bæjaryfirvöld í Garðabæ efna nú áfimmtudag til opins hugarflæðisfundarum mótun menningarstefnu í bæj-arfélaginu, en nýlega tók til starfa
stýrihópur um slíkt mótunarstarf fyrir Garðabæ.
Með stýrihópnum starfar Hulda Hauksdóttir,
upplýsingafulltrúi á bæjarskrifstofunum og verk-
efnisstjóri, en einnig er ráðgert að þrír vinnuhóp-
ar taki til starfa í lok janúar sem munu fjalla sér-
staklega um tiltekna málaflokka; Listir fyrir börn
og ungmenni, söfn og sýningarstarfsemi í bænum
og að lokum menningarmál almennt o.fl. Mark-
mið starfsins er að móta heildarstefnu sem tekur
tillit til þeirra safna og menningarstofnana sem
nú þegar eru í bænum.
„Það er mikilvægt að fá fram hugmyndir, skoð-
anir og væntingar bæjarbúa um framtíðarstefnu í
menningarmálum,“ segir Hulda Hauksdóttir, en
fundurinn verður haldinn í Garðabergi, fé-
lagsmiðstöð eldri borgara, Garðatorgi 7 frá kl.
20–21.30. „Á fundinum gefst fólki tækifæri til að
koma hugmyndum sínum á framfæri á óform-
legan og auðveldan hátt. Ráðgjafarfyrirtækið
Alta, sem sá m.a. um íbúaþing Garðabæjar árið
2002, mun stýra fundinum. Niðurstöður fund-
arins munu nýtast vel í þeirri vinnu sem fram-
undan er við að móta menningarstefnu fyrir
Garðabæ. Það er því mikilvægt að fá sem flesta
til að leggja sitt af mörkum með því að mæta á
fundinn og taka þar með þátt í undirbúningi fyrir
mótun menningarstefnunnar. Niðurstöður fund-
arins verða síðan birtar á heimasíðu Garðabæjar
og þar verður hægt að nálgast frekari upplýs-
ingar um vinnu við mótun menningarstefn-
unnar.“
Hvers vegna opinn fundur um menningarmál?
„Við viljum gefa öllum tækifæri til að koma að
þessari vinnu frá byrjun. Við viljum fá bæjarbúa
til að koma að vinnunni með beinum hætti með
því að leggja sitt af mörkum, t.d. með því að
mæta á þennan fund og koma sínum hugmyndum
á framfæri á óformlegum og óþvinguðum vett-
vangi. Framlag bæjarbúa getur orðið gott vega-
nesti fyrir vinnuhópana þegar þeir taka til starfa.
Þetta er líka hugsað þannig að vinnuhóparnir,
sem samsettir eru af fólki sem allt kemur að
menningarmálum á einhvern hátt, geti kallað til
sín sérfræðinga og aðra sem koma að menningu
og listum, þannig að þetta verði skapandi ferli.“
Hvert stefna Garðbæingar í menningarmálum?
„Með því að skipta niður í þessa þrjá mála-
flokka má ef til vill líta til þess að við séum að
skapa okkur sérstöðu, bæði með því að horfa á
hvað er til hér á höfuðborgarsvæðinu og hvað við
getum sérhæft okkur í. Við viljum styrkja það
sem er fyrir í bænum og einnig líta til framtíðar
og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.“
Menningarmál | Opinn hugarflæðisfundur um mótun menningarstefnu í Garðabæ
Fjölbreytt og skapandi ferli
Hulda Hauksdóttir
fæddist í Reykjavík ár-
ið 1973. Hún lauk
stúdentsprófi frá MR
árið 1993 og BA-prófi í
sænsku og ensku frá
HÍ árið 2000. Þá lauk
hún leiðsögumanna-
prófi frá Leiðsögu-
mannaskóla Íslands.
Hún hefur starfað sem
leiðsögumaður og
flugfreyja. Undanfarið
ár hefur Hulda Hauksdóttir starfað sem upp-
lýsingafulltrúi á Bæjarskrifstofum Garðabæjar.
Sambýlismaður Huldu er Gylfi Magnús Jón-
asson.
Brúðkaup | Gefin voru saman 30.
október sl. í Digraneskirkju af sr.
Svavari Stefánssyni þau Júlía Jóhann-
esdóttir og Árni Júlíusson. Heimili
þeirra er að Fífulind 7, Kópavogi.
Mynd, Hafnarfirði
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14,
handavinna kl. 9–16.30, söng-
stund kl. 10.30, smíði, útskurður
kl. 13–16.30, félagsvist kl. 13.30,
myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn
handavinna, bútasaumur, kl.
13.30 samverustund, línudans,
fótaaðgerð.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan í Gullsmára 9 er opin
kl. 10–11.30. Félagsvist spiluð í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids í dag kl. 13, kaffitár með
ívafi kl. 13.30, línudanskennsla
byrjendur kl. 18, samkvæm-
isdans framhald kl. 19 og byrj-
endur kl. 20.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13
| Gullsmárabrids. Bridsdeild
FEBK Gullsmára spilar tvímenn-
ing alla mánu- og fimmtudaga.
Skráning kl. 12.45 á hádegi. Að-
gangseyrir kr. 200.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ
| Kvennaleikfimi kl. 9.15, kl.
10.05 og kl. 11. Spilað brids og
pílukast í Garðabergi eftir hádegi.
Gam-Anon samtökin | Fundir eru alla
mánudaga að Skúlatúni 6, 3. hæð kl 20.
Allir velkomnir. Gam-Anon samtökin
eru sjálfshjálparsamtök fyrir aðstand-
endur spilafíkla.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun.
keramik–perlusaumur–kortagerð, kl. 10
fótaaðgerð, bænastund, kl. 12 hádeg-
ismatur, kl. 13.30 skrautskrift, kl. 15
kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–16. Jóga kl. 9–11, frjáls spila-
mennska kl. 13–16, böðun virka daga
fyrir hádegi. Fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll-
um opið. Framsögn og framkoma í
Listasmiðju kl. 9–16, Soffía Jak-
obsdóttir leiðbeinir, betri stofan opin.
Bað 9–12. Landsbankinn 10–10.30, fé-
lagsvist 13.30. Skráning á Híbýli vind-
anna. Hárgreiðslustofa 568-3139. Fóta-
aðgerðarstofa 897-9801. Sími
568-3132.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höf-
uðborgarsvæðinu | Brids í kvöld kl. 19.
Skátamiðstöðin | Endurfundir skáta
eru í Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123,
annan mánudag í mánuði. Næsta sam-
vera verður mánudaginn 10. janúar kl.
12. Léttur hádegisverður í boði. Stutt
dagskrá og nokkur skátalög sungin í
lokin.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 hannyrðir,
kl. 9–10 boccia, kl. 11–12 leikfimi, kl.
11.45–12.45 hádegisverður, kl. 13–16
kóræfing, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, bókband, myndlist og hárgreiðsla
kl. 9, morgunstund og fótaaðgerðir kl.
9.30, boccia kl. 10, handmennt, gler-
bræðsla og frjáls spil kl. 13. Fé-
lagsstarfið er opið fyrir alla aldurshópa.
Kirkjustarf
Bústaðakirkja | Kvenfélag Bústaða-
sóknar. Fundur verður mánudaginn 10.
janúar í safnaðarheimilinu kl. 20.
Hattafundur. Snyrtivörukynning.
Grensáskirkja | Kvenfélag Grens-
ássóknar er með fund í safnaðarheimili
Grensáskirkju, mánudaginn 10. janúar
kl. 20. Á fundinum verður spiluð fé-
lagsvist.
Laugarneskirkja | Kl. 18 Opinn 12
sporafundur í safnaðarheimilinu. Vinir í
bata.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
FERTUGASTI og
fjórði árgangur
Ársrits Sögu-
félags Ísfirðinga
er kominn út.
Meðal efnis er
grein Björns Teits-
sonar um sögu
Sunnukórsins á
Ísafirði í 70 ár,
Guðni Th. Jóhann-
esson skrifar
grein sem nefnist
„Stóra drápið. At-
laga Hannesar
Hafsteins og Dýr-
firðinga að breska
togaranum Royal-
ist árið 1899“ og
Jón Þ. Þór skrifar
um Ásgeirs-
verslun og sjálf-
stæðisbaráttuna.
Þá hefur Sögufélag Ísfirðinga einnig
gefið út ritið Vestanglæður, afmæl-
isrit tileinkað Jóni Páli Halldórssyni
sem fagnaði 75 ára afmæli sínu 2.
október síðastliðinn. Jón Páll hefur
verið formaður Sögufélagsins frá
1979, skrifað greinar og sagnfræðirit
auk þess að vera ötull málsvari vernd-
unar gamals fróðleiks og minja.
Ársrit Sögufélags
Ísfirðinga komið út