Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 21
um og segir Megan Bassendale mannfræð- ingur, sem starfar í Lukavac, að líkams- leifar eins manns gætu hafa lent í „þremur, fjórum eða fimm gröfum“. Í ofanálag létu yfirvöld sér í mörgum til- fellum ekki nægja að grafa líkamsleifarnar aftur, „heldur krömdu þær, brenndu og settu síðan rusl ofan á til að fela þær“. Þetta „gerir starf okkar mjög erfitt,“ segir hún og er það vægt til orða tekið. Tölfræðin um þá, sem saknað er, segir sína sögu. Samkvæmt gögnum ICMP eru 85% þeirra Bosníu-múslímar, 12% Serbar og 3% Króatar. Um 8.000 manna saknað frá Srebrenica og fjöldi þeirra, sem borin hafa verið kennsl á þannig að málinu teljist lokið, er 2.011. Hins vegar eru 3.700 pokar með líkams- leifum, sem tengjast Srebrenica, og 3.000 til viðbótar í gömlum námagöngum, sem ekki tengjast Srebrenica, og bíða þess að kennslarannsókn hefjist. Fjöldi pokanna er engin vísbending um fjölda látinna, sem hafa verið og enn er verið að grafa upp vegna þess að í hverjum poka geta verið líkamsleifar margra manna. Haldið í vonina Mannfræðingarnir í rannsóknarstofunni í Lukavac raða líkamsleifunum saman eins og púsluspili og geta með DNA-greiningu fundið og sameinað hluta einstakra líkama, sem hafa blandast öðrum eða verið grafnir hver í sinni gröfinni. Þeir geta áttað sig á því hvaða hlutar eiga heima saman af stóru beinunum vegna þess að líkt og í púsluspili passa einungis bein úr einum og sama lík- amanum fullkomlega saman. Í sumum tilfellum er dánarorsökin aug- ljós. Á sumum hauskúpunum er skotgat á hvirflinum. Allajafna slökkva mannfræðing- arnir á tilfinningum sínum þegar þeir vinna, en eins og Bassendale segir: „Það er alltaf erfitt þegar þú rekst á 15 eða 16 ára ung- ling.“ Fyrir fjölskyldur um alla gömlu Júgó- slavíu getur það lokað kafla í lífi þeirra – þótt erfitt sé – að bera kennsl á ástvin eða ættingja. Hajra Catic, forseti Kvennahreyf- ingar Srebrenica, fer fyrir fjölskyldum þeirra sem er saknað og hafa verið myrtir. Ekki eru nema tveir mánuðir síðan hún fékk að vita að borin hefðu verið kennsl á leifar eiginmanns hennar. „Ég veit enn ekki nákvæmlega hvernig hann dó,“ segir hún og endurómar vonir þúsunda annarra þegar hún útskýrir að undanfarin tíu ár hafi hún haldið í von- arneista um að einhvers staðar væri hann á lífi. „Ég var að vona að hann fyndist á lífi … Þannig að það er erfitt að kyngja sann- leikanum.“ Ljósmynd/Tim Judah Megan Bassendale, réttarmannfræðingur í Lukavac, með poka fulla af líkamsleifum. Ljósmynd/Tim Judah Réttarmannfræðingurinn Laura Yazedjian raðar saman beinum fórnarlamba. Gat eftir byssukúlu virðist vera á hauskúpunni sem hún er með. Ljósmynd/Tim Judah Bein fórnarlamba fjöldamorðanna í Srebrenica eru hreinsuð og skrúbbuð vandlega áður en reynt er að raða þeim saman á ný. Ljósmynd/Eva E. Klonowski MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 21 Við óskum RTS verkfræðistofu til hamingju með að hafa fengið faggilda gæðavottun fyrst íslenskra verkfræðistofa á rafmagnssviði. Með faggildri vottun á gæðakerfi er tryggt að viðskiptavinir RTS munu ávallt fá þá þjónustu sem þeir vænta og að sú þekking og reynsla sem stofan og starfsfólk hennar býr yfir nýtist viðskiptavinum á hagkvæman hátt. Það er okkur hjá British Standards Institute (BSI), sem nú höfum opnað starfsstöð á Íslandi, í senn ánægja og heiður að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í að auka veg þeirra sem starfa við þjónustu og ráðgjöf í rafmagnsverkfræði á Íslandi. TIL HAMINGJU RTS A T H Y G L I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.