Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 47 DAGBÓK upphaflega búið til af lyfsalanum John Pemberton í Bandaríkjunum. Pemberton þessi hafði til sölu lyf við morgunsleni og getuleysi sem hét Vino Mariner. Lyfið var íblandað rauðvín, fengið frá Miðjarðarhafs- löndum og var ekki alltaf aðgengi- legt vegna fjarlægðar frá fram- leiðslustað og stopulla samgangna með seglskipum. Pemberton fór því að þróa sitt eigið efni sem mikill markaður var fyrir vegna nýafstað- innar borgarastyrjaldar. Tvennt þurfti til, örvun og orkugjafa. Til örvunar valdi Pemberton að nota kókaín og kólabaunir, orkugjafinn varð sykur. Skammturinn var 6 úns- ur, þar af sykur 1 únsa (28 grömm). Bragðbætt var þetta með vanillu og Heimsmet OFT HAFA Íslendingar bara verið hársbreidd frá því að setja ýmiskon- ar met en nú höfum við eignast nýtt met. Þetta nýja met er í notkun á rít- alíni, skyldu amfetamíni sem talið er banvænt fíkniefni. Rítalín er gefið órólegum börnum að læknisráði. Börnum er eðlilegt að hreyfa sig og reyndar bráðnauðnsynlegt ef þau eiga að halda heilsu. Nú hefir s.k. velmegun náð svo langt að börnum er almennt ekið í skóla og umferð bíla við barnaskóla er eins og við flugstöðina í Frankfurt á annatíma. Annað heimsmet eigum við sem tengist þessu, það er neysla Coca Cola. Coca Cola er gamalt geðlyf, sítrónusýru. Með hertum heilbrigð- isstöðlum var svo hætt að nota kók- aínið og settur í staðinn safi af kóka- laufi. Coca Cola hefir verið drukkið á Íslandi síðan í maí 1943, hver lands- maður drekkur 160 lítra á ári, mest drekka börn og unglingar. Nokkrir lifa á þessu einu og engu öðru. Gall- inn er að þessi ágæti drykkur er á vitlausum stað, ætti eiginlega að not- ast á elliheimilum, fyrir hádegi ein- göngu. Gestur Gunnarsson, Flókagötu 8, Rvík. Athyglisvert viðtal ÉG hlustaði á leið í vinnu á morg- unþáttinn Ísland í býtið sl. fimmtu- dag. Þar var viðtal við lækni á slysa- deild um slys í umferðinni og afleiðingar þeirra. Fannst mér mjög fróðlegt að hlusta á þetta viðtal og kom ýmislegt fram sem ég hafði ekki gert mér grein fyrir. Sagði lækn- irinn að við árekstur bíla yrði þrenns konar árekstur. Í fyrsta lagi rækist bíllinn á, því næst rækist líkaminn á í bílnum og að lokum yrðu líffærin fyrir höggi í líkamanum. Fannst mér þetta mjög athyglisvert og vil koma þessu á framfæri til þeirra sem misstu af þessu viðtali. Hafdís. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Félagsstarf Bólstaðarhlíð 43 | Kaffihlaðborð í Básnum, Ölfusi, 14. júlí. Lagt af stað kl. 13. Ekið til Þorlákshafnar, Eyr- arbakka og Stokkseyrar. Komið við í Eden á heimleið. Upplýsingar og skráning í síma 535 2760. Allir vel- komnir. Félag eldri borgara, Kópavogi, ferðanefnd | Ferð FEBK 7. júlí nk. Brottför frá Gjábakka kl. 8.30 og Gull- smára kl. 8.45 Leið: Selfoss, Land- vegur, Dómadalsleið, Landmanna- laugar/ -hellir. Eigið nesti snætt. Ljótipollur, Sigalda. Áð í Hrauneyjum. Þjórsárdalur, Hjálparfoss o.fl. Kvöld- matur í Árnesi. Skráningarlisti í Gjá- bakka, sími 554 3400 og hjá Þráni, s. 554 0999 /Boga, s. 560 4255. Félagsstarf Gerðubergs | Vegna sumarleyfa starfsfólks er lokað frá föstudeginum 1. júlí. Opnað aftur þriðjudaginn 16. ágúst. Vetrardagskrá hefst 1. september. Upplýsingar á: www gerduberg.is. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öllum opið. Betri stofa og Listasmiðja opin í sumar án leiðbeinanda kl. 9–16. Sjónvarp, útvarp og dagblöðin liggja frammi. Molasopi að morgni, hádeg- isverður og síðdegiskaffi. Félagsvist á morgun, mánudag, kl. 13.30. Sum- arferð í Bása í Þórsmörk miðvikudag- inn 7. júlí kl. 9. Upplýsingar í síma 568 3132. Norðurbrún 1, | Norðurbrún – Furu- gerði. Farið verður í nestisferð fimmtudaginn 7. júlí að Básum í Þórs- mörk. Leiðsögumaður: Anna Þrúður Þorkelsdóttir. Upplýsingar í síma: Norðurbrún, s. 568 6960 og Furu- gerði, s. 553 6040. Kirkjustarf Hjálpræðisherinn á Akureyri | Sum- ardagskrá: Samkoma sunnudaga kl. 20. Allir velkomnir. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Laugavegi 68 • Sími 551 7015 Útsalan hefst á þriðjudag Lið-a-mót FRÁ Extra sterkt H á g æ ð a fra m le ið sla Nr. 1 í Ameríku APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR Góð heilsa - Gulli betri A ll ta f ó d ýr ir 1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. e3 c5 4. Bd3 d5 5. b3 Rc6 6. O-O Bd6 7. Bb2 O-O 8. Rbd2 b6 9. a3 Bb7 10. Re5 Re7 11. f4 Re4 12. De2 f6 13. Ref3 Hc8 14. c4 Rxd2 15. Rxd2 He8 16. Had1 Dc7 17. dxc5 bxc5 18. Bb1 Rg6 19. Dh5 d4 20. exd4 Bxf4 21. d5 exd5 22. cxd5 Be5 23. Rc4 Bxb2 24. Rxb2 He5 25. Hf5 Hce8 26. Rc4 He2 27. Bd3 Ha2 28. Hf3 Dd7 29. Bf5 Dd8 30. Hg3 Staðan kom upp í atskákarhluta ein- vígis milli Jan Timmans (2607) og Laz- aro Bruzon (2669) sem fram fór fyrir skömmu í Curaçao. Timman hafði svart og nýtti sér veikar varnir hvíts á fyrstu og annarri reitarröðinni. 30... Dxd5! 31. Dg4 drottningin var friðhelg vegna mátsins upp í borði 31. Hxd5 He1#. 31... Hee2 32. Rd2 Haxd2 33. Be6+ Hxe6 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. BÓK Brians Pilkingtons, Allt um tröll, hefur verið seld til Eistlands og bók Aðalsteins Ásbergs Sigurðs- sonar, Brúin yfir Dimmu, hefur ver- ið seld til Finnlands. Það var eistneska bókaforlagið Ilo sem tryggði sér réttinn á bók Brians en áður hefur útgáfurétt- urinn verið seldur til Ítalíu og Dan- merkur. Finnska bókaforlagið Idun tryggði sér réttinn á bók Aðalsteins Ásbergs og er það fyrsta landið sem rétturinn er seldur til. Fyrir stuttu kom út í Rússlandi safn norrænna smásagna fyrir börn, hjá bókaforlaginu Azbooka. Tveir ís- lenskir höfundar eiga þar sögur, þeir Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, með Töfrataflið, og Andri Snær Magnason, með Eina sorglega sögu af Medíasi konungi. Í Brúnni yfir Dimmu segir frá vöðlungum sem búa saman í sátt og samlyndi í Mángalíu; þeir fullorðnu sinna sínum störfum og smávöðl- ungar una sér í leik. En Kraka og Míríu þyrstir í ævintýri og dularfulli lykillinn sem þau veiða upp úr gruggugum hylnum undir Dunu- fossi setur af stað spennandi at- burðarás. Ásamt Póa litla leggja þau af stað út í óvissuna, í ferð sem enginn veit hvernig endar. Í bókinni Allt um tröll má fræðast um lifnaðarhætti trölla, menningu þeirra og áhugamál. Bókin hlaut á sínum tíma viðurkenningu Ferða- málaráðs sem besta hugmynd að minjagrip frá Íslandi. Bækurnar eru gefnar út af Eddu útgáfu. Íslensk tröll og vöðlungar á faraldsfæti Brian Pilkington Aðalsteinn Ás- berg Sigurðsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.