Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 21 DAGLEGT LÍF „Í BARNASKÓLA var ég með frá- bæran handavinnukennara sem kom mér á föndursporið, eftir þá kennslu kunni ég að meta handverk og hef verið að föndra síðan, “ segir Helga sem blaðamaður hitti einn kaldan dag á heimili hennar í Reykjavík þar sem hún býr ásamt manni sínum Ragnari Valssyni. Hún hefur prófað margt í föndri og handverki en í dag er hún aðallega í bútasaum. „Það var árið 2003 sem ég byrjaði í bútasaum en ég er líka að gera annað með, eins og kort og tréverk. Ég prófa allt föndur og festi mig ekki endilega í einhverju einu.“ Út um alla íbúð má sjá bútasaumsteppi, púða og dúka og borðstofuborðið er fullt af handa- vinnu sem Helga er að vinna að um þessar mundir. „Ég er aðallega að vinna þetta á kvöldin en hitti svo reglulega bútasaumshópana mína. Ætli ég eyði ekki að minnsta kosti tíu klukkustundum á viku í handa- vinnu allt árið um kring, ég er alltaf með eitthvað í höndunum. Eftir er- ilsaman vinnudag slaka ég vel á við handavinnuna. Mér finnst ofboðs- lega þægilegt að skella hljóðbók í geislaspilarann, hlusta og gera handavinnu. Ég keypti mér Harry Potter á hljóðbók um daginn og er að hlusta á hana núna, auk þess sem ég nota stundirnar fyrir framan sjón- varpið líka til þess að sauma.“ Föndurkvöld fyrir vinnufélagana Helga vinnur í verðbréfavakt Ís- landsbanka, sú hefð hefur skapast hjá henni að fyrir hver jól heldur hún föndurkvöld fyrir vinnufélaga sína. „Ég hef meðal annars látið þá gera þrívíddar-jólakort, útsagað jólatré og nammikrans og er núna að hugsa um hvað ég eigi að kenna þeim fyrir þessi jól,“ segir Helga og tekur fram að það séu ekki aðeins stelpurnar í vinnunni sem mæti í jólaföndrið því strákarnir séu lið- tækir líka. „Það koma ýmsir fimir fingur fram þarna og strákarnir eru ekki síðri en stelpurnar í föndrinu,“ segir hún og hlær. Aðspurð segist Helga fara að huga að jólaföndrinu í október. „Núna fyr- ir jólin er ég að gera jólasokka, jóla- kort, jólasveina, jólauglur og svo sá ég jólapósthús um daginn sem mig langar líka til að gera en ég veit ekki hvort ég hef tíma til þess. Ég á fullan skáp af hlutum sem ég hef ekki klár- að ennþá en ég er í átaki að klára það sem ég er byrjuð á áður en ég byrja á nýju.“ Hún segist aðallega gefa það sem hún gerir í afmælis- og jóla- gjafir en þá aðeins til fólks sem kann að meta handverk. „Um síðustu jól gerði ég bútasaumsjólasokka og gaf þá alla, svo núna gerði ég nokkra bara fyrir sjálfan mig.“ Verslar í Bandaríkjunum Fyrir um ári fór Helga í versl- unarferð til Minneapolis í Banda- ríkjunum. „Þetta eru sérstakar föndurverslunarferðir sem eru skipulagðar í Bandaríkjunum, ég og vinkona mín flugum út og hittum þar hóp sem hafði bókað sig í sömu verslunarferð og við og síðan var bara keyrt á milli föndurverslana og verslað. Þessi ferð var eingöngu til að kaupa efni í bútasaum eða föndur en það mætti kalla Minneapolis mekka föndursins, bútasaumshefðin er líka mjög sterk í Bandaríkj- unum.“ Helga segist aðallega kaupa efni í bútasauminn erlendis til að fá öðruvísi vörur en fást hér á landi en annars segir hún úrvalið hérlendis ágætt Á borðstofuborðinu hjá Helgu standa þrír glæsilegir jólasveinar sem hún var að klára. „Það eru gos- flöskur inni í þeim. Á jólaborðinu er oft ljótt að hafa berar gosflöskur og því er sniðugt að klæða þær í svona jólasveinabúning, þá eru þær líka borðskraut, það er saumur á hliðinni svo hægt sé að hella úr þeim,“ segir Helga og stefnir næst að því að gera svipaða poka utan um vínflöskur. Hugmyndirnar að bútasaums- verkefnunum segist hún fá úr blöð- um og bókum. „Ég er líka meðlimur í Íslenska bútasaumsfélaginu og þar eru konur að gera frábæran búta- saum.“ Hún ráðleggur þeim sem langar að læra bútasaum að byrja á því að fara á námskeið. „Á nám- skeiðum lærir maður mikla tækni og að nota áhöldin og meðhöndla efnin.“ Fram að jólum ætlar Helga að halda áfram í jólaföndrinu en svo tekur önnur handavinna við eftir áramót. „Ég er ennþá að uppgötva búta- sauminn svo ég veit að það bíða mín ýmiss konar spennandi verkefni í honum auk þess sem það er alltaf eitthvað nýtt að koma í föndrinu,“ segir þessi hressa handavinnukona um leið og hún dregur fram fallega bútasaumsmuni til að sýna blaða- manni.  ÁHUGAMÁL |Helga Einarsdóttir er alltaf með eitthvað í höndunum Á kafi í jólaföndri Morgunblaðið/Sverrir Helga Einarsdóttir er mikil föndurkona. Hún hefur mjög gaman af búta- saumi og er nú á fullu í jólaföndrinu. Að loknum erfiðum vinnudegi veit Helga Einarsdóttir fátt betra en að setjast niður með handavinnu og hlusta á góðar sögur eða horfa á sjónvarpið á meðan hún saumar. Ingveldur Geirsdóttir dáðist að jólaföndrinu hjá Helgu. Morgunblaðið/Sverrir „Um seinustu jól gerði ég bútasaumsjólasokka og gaf þá alla svo núna gerði ég nokkra bara fyrir sjálfan mig,“ segir Helga. Morgunblaðið/Sverrir Þessar jólauglur eru í miklu uppá- haldi hjá Helgu enda ólst hún upp við að hafa slíkar á jólatrénu. Hún gerði nokkrar fyrir komandi jól og fá þessar að hanga á jólatrénu hennar í ár. ingveldur@mbl.is E N N E M M / S IA / N M 19 10 5 Vertu me› fyrir kl.17. 807 509 1. vinningur 1306milljónir Bónus-vinningur 10 milljónir Alltaf á mi›vikudögum! lotto.is Me› LOTTÓ Í ÁSKRIFT gætir flú auk fless hreppt einnaf 30 glæsilegumaukavinningum.LOTTÓ ÁSKRIFTAR LEIKUR Nú hefur›u meiri tíma til a› vera me›. Sölukerfi› er opi› til kl. 17 á veturna!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.