Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Ég ætla að skrifa til þín nokkrar línur í tilefni þess að þú hefðir orðið 75 ára 1. nóvember, ef við hefðum fengið að hafa þig lengur hjá okkur. Við komum samt öll saman í sumar í tilefni af afmæli ykkar ömmu. Það var bara það sem þú vildir fá í afmæl- isgjöf, að fá alla fjölskylduna, börn, barnabörn og langafabörn, saman. Ég er viss um að pabbi, Jói frændi og Smári hafa tekið á móti þér. Ég verð að þakka þér allar stundirnar og hjálpina sem þú veittir okkur mömmu og stundirnar sem þið amma pössuðuð mig og því bið ég englana að passa þig núna. Ég og mamma og auðvitað öll hin líka ætlum að passa ömmu vel og reyna að hjálpa henni að lifa með sorginni og söknuðinum. Hvíldu í friði. Þín afastelpa Elísabet Kristín. JÚLÍUS A. FOSSDAL ✝ Júlíus Arason Fossdal fæddistá Akureyri 1. nóvember 1930. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 11. september síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Akureyrarkirkju 23. septem- ber. GUÐLAUG Þorsteinsdóttir er Ís- landsmeistari kvenna árið 2005 þó að hún eigi eina skák óteflda á mótinu þegar þessar línur eru ritaðar. Hún náði forystunni á mótinu með sigri á Lenku Ptácníkovu í fjórðu umferð og áður en níunda umferð hófst hafði hún 5½ vinning af 6 mögulegum en Lenka hafði 6 vinninga af 7 mögu- legum. Þetta var lokaskák Lenku á mótinu og með sigri myndi hún tryggja sér titilinn en tap myndi þýða að Íslandsmeistaratitillinn rynni í skaut Guðlaugar í fimmta sinn. Skák þeirra varð mjög spennandi og stóð hún sannarlega undir nafni sem úr- slitaskák mótsins. Hvítt: Lenka Ptácníková (2181) Svart: Guðlaug Þorsteinsd. (2114) 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6 5. Bd3 Dc7 6. O-O Rf6 7. De2 d6 8. c4 g6 9. Rc3 Bg7 10. Rf3 Rc6 11. Hd1 O-O 12. h3 Rd7 13. Bd2 Hér er venjulega leikið 13. Be3. 13...Rce5 14. Rxe5 Rxe5 15. Hac1 Bd7?! Miðað við framhald skákarinnar var rökréttara að leika 15...b6 og svo næst Bb7. 16. b3 Bc6?! Enn var 16...b6 betra eða jafnvel Re5-c6 með hugmyndinni að koma riddaranum fyrir á d4. Eftir þessa ónákvæmni svarts nær hvítur nú undirtökunum. 17. Bb1 b6 18. Be3 Hfd8 19. f4 Rd7 20. Rb5! Hvítur tryggir sér nú varanlegt frumkvæði í skjóli biskupaparsins og peðaveikleikanna í svörtu stöðunni. 20...axb5 21. cxb5 Bxb5 22. Dxb5 Db8 23. b4 Ha3! Snjall leikur sem reynir að skapa usla í herbúðum hvíts. 24. Bf2 Bh6 25. g3 e5 26. Hc6! Vel leikið þar sem nú gengur 26...exf4 ekki upp vegna 27. Hcxd6 og riddari svarts á d7 fellur. 26...Bf8 27. f5 gxf5? Mistök sem hefðu átt að kosta svartan skákina þar sem nú opnast línur fyrir hvítreita biskup hvíts. 28. exf5 Da8 29. Dc4! Db7 30. Be4?! 30. f6! hefði knúið svartan brátt til uppgjafar þar sem eftir 30...Rxf6 31. Hc7 Df3 32. Dxf7+ Kh8 33. Hxd6! væri öll sund lokuð fyrir svartan. 30...b5?! 31. Dc1! Rf6 32. Dg5+?! 32. Hcxd6! var betra þar sem eftir 32...Rxe4 33. Hxd8 yrði leppun bisk- upsins á f8 svörtum ofviða. 32...Bg7 33. Hcxd6 Hxd6 34. Hxd6 De7 35. Bc5 h6 36. Dh4 Hxg3+! 37. Dxg3 Rxe4 38. Hd3?! Svörtum hefur tekist að þyrla upp nógu miklu moldviðri til þess að eiga praktíska jafnteflismöguleika og nauðsynlegt er fyrir hvítan að tefla af mikilli nákvæmni. Textaleikurinn gerir verkefni svarts auðveldara þar sem t.d. 38. Hb6 hefði verið öflugri í ljósi þess að 38...Rxc5 gengi þá ekki upp vegna 39. f6. 38... Rxc5 39. bxc5 Dxc5+ 40. De3 Dc4 41. Hd2 Dc1+ Nú er komin upp staða sem erfitt er fyrir hvítan að vinna en sjálfsagt hafa báðir keppendur haft lítinn um- hugsunartíma þegar hér er komið sögu. Hvítur reyndi að bæta stöðu sína en það gekk erfiðlega. 42. Kg2 Dc6+ 43. Kg3 Kh7 44. He2 Bf6 45. Df3 Dc4 46. Kg2 b4 47. De4 Db5 48. Hb2 Dd7 49. Hc2 Dd1 50. Dc4 Dd7 51. Hf2 Db7+ 52. Kg3 De7 53. Hc2 Dd7 54. Hf2 De7 55. Kf3 Dd7 56. Ke4 Da7 57. Hd2 Bg5 58. Hd3 Bf6 59. Hb3 Db7+ 60. Dd5 Dc7 61. Hd3 Kg7 62. Hg3+ Kh7 63. Hg2 Da7 64. Hc2 Kg7 65. Hg2+ Kh7 66. Hb2 Dc7 67. Hh2 Da7 68. h4 Kg7 69. Hg2+ Kh7 70. h5 Dc7 71. Hd2 Kg7 og í þessari stöðu, sem er betri á hvítt, féll Lenka á tíma og við það varð Guðlaug Íslandsmeistari. Þessi áhugaverða skák er báðum keppend- um til sóma sem og íslenskri kvenna- skák. Í næsta skákþætti verður gerð grein fyrir endanlegum lyktum Ís- landsmóts kvenna í skák árið 2005 en heimasíða mótsins hefur vefslóðina http://www.skaksamband.com/ ice05w. Kínverjar með pálmann í höndunum á HM í skák Á heimsmeistaramóti landsliða sem fram fer þessa dagana í Beer- Sheva í Ísrael hefur karlalið Kína afar þægilega stöðu í efsta sæti móts- ins þegar sex umferðum er lokið af tíu. Kínverska liðið hefur 16 vinninga í efsta sæti en það hefur tekið þátt í fimm viðureignum á meðan helstu keppinautar þeirra, lið Rússlands hefur 15½ vinning eftir sex viður- eignir. Það yrði sannarlega saga til næsta bæjar að fjölmennasta ríki heims yrði heimsmeistari í liðakeppni í skák en það er eingöngu aldarfjórðungur síðan sú stefna var tekin upp hjá þar- lendum yfirvöldum að beina athygli fleiri þegna alþýðuveldisins að skák- listinni. Á þeim tíma hefur afskap- lega góður árangur náðst hjá kín- versku kvenþjóðinni en hvað eftir annað hefur lið þess unnið Ólympíu- skákmót og aðrar keppnir í kvenna- flokki. Nú er ljóst að röðin er komin að karlpeningnum að sýna mátt sinn og megin. Hægt er að fylgjast með skákum keppninnar á Netinu á vefslóðinni http://www.wccisrael.com. Ljósmynd/Helgi Áss Grétarsson Guðlaug Þorsteinsdóttir sigraði Lenku Ptácníkovu og er Íslandsmeistari. Guðlaug Íslands- meistari kvenna SKÁK Skáksamband Íslands 30. október–8. nóvember 2005 SKÁKÞING ÍSLANDS, KVENNAFLOKKUR daggi@internet.is Helgi Áss Grétaesson Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÁRNI SIGHVATSSON, Dyngjuvegi 17, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánu- daginn 31. október. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. nóvember kl. 13.00. Guðrún Jónsdóttir, Sighvatur Sævar Árnason, Þórhalla Arnljótsdóttir, Ásta Árnadóttir, Gunnar Árni Ólason, Kristín Árnadóttir, Hlynur Reimarsson, afabörn og langafabarn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HERMANN BÚASON, Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju laugar- daginn 12. nóvember kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Dvalar- heimili aldraðra, Borgarnesi. Georg Hermannsson, Helga Helgadóttir, Björn Hermannsson, Þóra Þorkelsdóttir, Brandur Hermannsson, Sigríður Sverrisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför el- skulegrar konu minnar, móður okkar, tengd- amóður og ömmu, ÁSDÍSAR BJÖRNSDÓTTUR, Ögmundarstöðum, Skagafirði. Hróðmar Margeirsson, Sigríður Hróðmarsdóttir, Guðmundur Kr. Eydal, Jón Margeir Hróðmarsson, María Jónsdóttir, Hróðmar, Ríkey, Urður og Hörn. Faðir okkar, tengdafaðir, fósturfaðir, sambýlis- maður, afi og langafi, ÓLAFUR H. JÓHANNESSON fyrrverandi lögregluþjónn í Borgarnesi, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju föstu- daginn 11. nóvember kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Jóhannes Ólafsson, Guðrún Birna Eggertsdóttir, Einar Loftsson, Ólafur Örn Ólafsson, Heiðrún Björnsdóttir, María Erla Geirsdóttir, Theódór Þórðarson, Hrafnhildur Valdimarsdóttir, Trausti Örn Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Þegar við vorum að vakna í hlöðunni á Gilsbakka í Borgar- firði grillti, í morgun- skímunni, í mann sem sat í hlöðuopinu. Þarna var kominn Daníel Eysteinsson skólafélagi okk- ar úr Garðyrkjuskólanum. Áður en leiðir skildi eftir útskrift vorið 1944 hafði okkur talast til um að gaman DANÍEL EYSTEINSSON ✝ Daníel Eysteins-son fæddist á Höfða í Þverárhlíð 24. janúar 1915. Hann lést á sjúkra- húsi Akraness 16. október síðastliðinn og var útför hans gerð frá Borgarnes- kirkju 21. október. væri að fara í skóla- ferðalag upp í Borg- arfjörð og skoða Surtshelli. Daníel kvaðst geta útvegað okkur hesta til farar- innar. Þegar fór að líða á sumarið var vörubíll skólans feng- inn til fararinnar og á hann sett 16-20 manna farþegahús (boddí) sem skólinn átti og það skemmti- lega var að skóla- stjórahjónin Unn- steinn og Elna Ólafsson ætluðu að koma með. Farið var frá Garðyrkju- skólanum um Uxahryggi í Hvítár- síðu og gist í hlöðunni á Gilsbakka. Í Þverárhlíð hafði Daníel, ásamt dyggri aðstoð Ásmundar bróður síns, smalað saman hátt í þrjátíu hestum, ásamt reiðtygjum, sem þeir, ásamt tveim aðstoðarmönnum, komu með að Gilsbakka í Hvítársíðu um nóttina. Það var ekki fyrr en þarna að ég gerði mér grein fyrir hverskonar átak þetta hefur verið fyrir Daníel og hans félaga. Ferðin frá Gilsbakka í Surtshelli er ógleymanleg og tókst eins og best var á kosið. Þar sem ég átti stóran þátt í því að þessi ferð var farin er ég óendanlega þakklátur Daníel og Ásmundi bróður hans fyrir þátt þeirra. Ekki minnist ég þess að um peninga hafi verið að ræða í þessu sambandi. Hláturmildi Daníels er mér ógleymanleg, hann virtist alltaf svo geðgóður og léttur í skapi. Árið 1975 heimsótti ég, ásamt fjölskyldu minni, Daníel að Högna- stöðum. 1994, á fimmtíu ára út- skriftarafmæli okkar, heimsóttum við bekkjarsystkin Daníels hann að Dvalaheimilinu í Borgarnesi og á 90 ára afmæli hans heimsóttum við Svavar Kjærnested, skólabróðir, Daníel. Í þau fáu skipti sem ég hef átt leið um Borgarnes heimsótti ég hann þegar tækifæri gafst. Daníel var sá maður sem manni gat ekki annað en þótt vænt um. Jón H. Björnsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.