Morgunblaðið - 20.11.2005, Síða 30

Morgunblaðið - 20.11.2005, Síða 30
ASTRA Sævarhöf›a 2, sími 525 8000, www.ih.is Opi›: Mán – fös kl. 9–18 og lau kl. 12–16 F í t o n / S Í A F I 0 1 4 4 7 1 fiú fær› n‡jan Opel Astra frá a›eins 1.695.000 kr. e›a 19.772 kr. á mánu›i. 6,6l á hverja 100 km Mi›a› vi› 20% innborgun og afganginn á 84 mánu›um. 30 SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Eftir valdarán sitt ríkti Jorgen Jor- genson yfir Íslandi í tvo mánuði og lýsti því yfir að það væri laust undan dönskum yfirráðum og forn réttindi þess endurreist, ekki fór hins vegar mikið fyrir viðbrögðum almennings við þessum tíðindum í fyrstu. Meðan Reykvíkingarvoru að átta sig áþessari nýju stöðumála og gaumgæfaauglýsingar og með- an þessi kynlegu tíðindi voru færð á hestbak og send út um land fóru Jor- genson og félagar hans hús úr húsi þennan dag í úrhellisrigningu og söfnuðu vopnum heimamanna. Það var nú ekki mikið til að safna. Þegar þeir höfðu lokið blautri ferð sinni um Reykjavík var fengurinn aðeins milli tuttugu og þrjátíu litlar fuglabyssur og „nokkur ryðguð sverð“. Þetta ve- sæla herfang slævði vonir þeirra um að vopna varnarlið fyrir landið en dró þó að minnsta kosti úr líkum á gagn- byltingaruppreisn í bænum. Þeir hafa varla haft miklar áhyggj- ur af uppreisn, því að 27. júní, annan heila dag byltingarinnar, fóru Jor- genson, Phelps og Hooker frá Reykjavík í dagsferð til að sinna er- indi sem áður hafði verið ákveðið og skildu Liston og skipshöfn hans eftir til að líta eftir bænum. Dagurinn leið í svipaðri friðsæld og kyrrð og hver annar. Danir biðu átekta og Íslend- ingar hristu höfuðið góðlátlega yfir því sem fram fór í stjórnarsetrinu, en sögðu jafnframt vinum sínum hinar góðu en þó naumast trúlegu fréttir um skuldaafnám og lækkun skatta. Erindi félaganna var heimsókn til Ólafs Stephensen, fyrrum stiftamt- manns og stórvinar Banks – þeir höfðu kynnst 1772 þegar Banks heimsótti Ísland og höfðu skrifast á (á latínu) alla tíð síðan. Ólafur var nú kominn á eftirlaun og bjó á eign sinni Viðey skammt frá bænum. Hooker hafði verið á fótum hálfa nóttina við athuganir á gróðri í miðnætursólinni, til þess að bæta upp rigninguna dag- inn áður, og fannst því allmikið til um þegar róið var með þá út til eyjarinn- ar um morguninn og á móti þeim tók hinn 78 ára gamli fyrrum stiftamt- maður, klæddur eins og atvikinu hæfði í danskan foringjaeinkennis- búning: bláar, þröngar langbrækur með spora, skarlatsrauðan frakka skreyttan hvítum kniplingum og skúfum og þrístrendan hatt með langri, hvítri fjöður. Ólafur var afar glaður að hitta skjólstæðinga Banks og vöknaði um augu þegar nafn gamla vinar hans bar á góma. Hoo- ker færði honum gjafir frá Banks, Ólafur talaði af miklum ákafa um liðna tíma en Jorgenson þýddi fyrir félaga sína. Menn voru léttir í tali og ekki virðist hafa verið minnst á bylt- inguna. Á miðjum morgni gengu þeir um eyna og dáðust að sauðfé Ólafs og hinum verðmæta æðarfugli. Síðan gengu þeir inn til snæðings og þótti Hooker það nokkuð snemmt miðað við matarlystina. Borðbúnað- ur var látlaus: Framan við hvern stól var diskur, hnífur og gaffall, glerglas og flaska af rauðvíni fyrir hvern gest. Smátruflun varð þegar stóllinn brotnaði undan hans ágæti en annar stóll var sóttur í hans stað og allir settust að snæðingi. Fyrsti rétturinn var borinn inn, stór skál með súpu úr „sagó, rauðvíni og rúsínum sem soðið var nánast í mauk“. Þeir borðuðu hver um sig tvær fullar skálar af þessu því að þeir vissu ekki hvort nokkuð fleira kæmi á eftir og fannst skynsamlegt að borða sig sadda. En þegar skálin var borin fram voru tveir heilir, flakaðir laxar bornir inn í hennar stað, með sósu úr bræddu smjöri, ediki og pipar. Þetta var mjög gott. Gestirnir luku af diskum sínum „með nokkrum erfiðismunum“ og hölluðu sér aftur saddir og ánægðir. Þá var önnur feiknastór skál borin inn, að þessu sinni kúffull af harð- soðnum kríueggjum. Tólf egg voru sett á diskinn hjá hverjum þeirra og þykkri rjómasósu hellt yfir. Hooker beiddist undanþágu frá að borða öll tólf eggin en var hvattur til að reyna og einhvern veginn tókst honum að ljúka þeim. Gestirnir lögðu frá sér gaffla sína fegnir, en þá var borinn inn „hálfur sauður, vel steiktur“. Gestgjafi þeirra gekk ríkt eftir því að þeir fylltu diska sína af kjötsneiðum og fengju sér ótæpilega með af sætri, maukaðri súru. Þeir borðuðu eftir bestu getu; þessu næst voru bornar inn vöfflur, hver um sig „á stærð við bók í átta blaða broti“. Ólafur sagðist gera sér að góðu að gestir hans borð- uðu bara tvær vöfflur hver. Máltíð- inni lauk loks með mörgum vænum brauðsneiðum: „norsku kexi og rúg- brauði“. Allan þennan tíma voru þeir hvatt- ir til að drekka ötullega af víninu og tæma hverja flösku. Á eftir var borið fram gott kaffi og töldu þeir fullvíst að þar með væri máltíðinni lokið en „feiknastór skál með rommpúnsi var borin inn, var það borið frjálslega um í stórum glösum og drukkið minni með hverju glasi“. Hvenær sem dofn- aði yfir drykkjunni var skálað fyrir Banks og varð þá að tæma glösin og fylla að nýju til þess að þeir gætu drukkið minni hans. Önnur skál með rommpúnsi var borin inn í stað hinn- ar fyrri og gátu þeir með naumindum talið Ólaf á að láta þá ekki tæma hana til botns líka. Veislunni lauk á því að þeir drukku þrjá tebolla hver. Báturinn hélst reyndar á floti þeg- ar þeir héldu aftur til Reykjavíkur um kvöldið. Jorgenson bauð Hooker að sofa í stjórnarsetrinu til þess að hann þyrfti ekki að staulast nokkur aukaskref að húsi sínu – „og þáði ég það með þökkum“, viðurkenndi Hooker. Kvæntur maður í Tasmaníu Valdaránið kostaði Jorgenson fangelsisvist og eftir nokkra dvöl í Englandi var hann fluttur til Ástralíu og kom sú tilfærsla ekki hvað síst til af trúarlegum ástæðum, enda höfðu skrif hans um kristna trú bakað hon- um hóp andstæðinga í Englandi. Svarta línan hafði veitt Jorgenson dálítinn frest. Eftir að hann hætti í föruflokkunum fór hann á mis við ábyrgðina og álagið sem hentaði hon- um svo vel og hafði farið út af sporinu um skeið – byrjaði það á því að hann var handtekinn fyrir drykkjuskap þegar hann var að fagna fréttunum af skilyrtri náðun sinni. „Staðreyndin er sú,“ skrifaði hann um ringluð við- brögð sín, „að maður sem hefur verið sviptur frelsinu langa hríð er eins og sá sem lengi hefur legið veikur í rúmi sínu; þegar hann fer loks að ganga er hann dálítið valtur á fótunum.“ Það var nokkuð til í þessu. Jorgenson missti fótanna gersamlega og hlaut fimm shillinga sekt fyrir það. Hann skrifaði líka: „Taktu keðjuna af hundinum; þá gerir hann ýmsar skammir af sér og svo fer grimmdin úr honum.“ En óeirðin fór ekki úr Jorgenson nema meðan hann var í Línunni. Bókarkafli | Ekki er hægt að segja annað en að Jörundar hundadagakonungur hafi átt ævintýralega ævi enda dreif margt á daga hans. Hann stýrði skipi fyrir Frakklandi gegn Bretum, sigldi með breskum kaupmönnum til Íslands þar sem hann framdi valdarán og var auk þess í fámennum hópi fólks sem stofnaði nýlenduna Tasmaníu. Sarah Bakewell fjallar um ævi Jörundar og er hér gripið niður í tvo kafla í frásögn hennar. Veisla í Viðey Reykjavík 1810, árið eftir byltingu Jorgensons. Jorgen Jorgenson, sem Íslendingum er best kunnur sem Jörundur hunda- dagakonungur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.