Fréttablaðið - 06.02.2004, Síða 17
17FÖSTUDAGUR 6. febrúar 2004
Í takt við þínar þarfir
BIKARKEPPNI
KKÍ & LÝSINGAR
Úrslitaleikirnir í Lýsingarbikarnum í körfuknattleik
laugardaginn 7. febrúar 2004
Meistaraflokkur kvenna kl. 13:00 Keflavík - KR
Meistaraflokkur karla kl. 16:30 Njarðvík - Keflavík
Í hálfleik í leik karla fá tveir heppnir þátttakendur í skotleik Lýsingar
að reyna sig við 100.000 króna skotið.
Kalli Bjarni Idol stjarna skemmtir fyrir leik í karlaflokki.
Lukkudýr liðanna verða á staðnum á báðum leikjum.
Stuðningsmenn hvers liðs fá gefins boli frá Lýsingu í lit síns félags.
Miðaverð kr. 1.000 fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri.
Miðinn gildir á báða leikina.
Sætaferðir verða frá Kaffi Duus í Keflavík og Biðskýlinu í Njarðvík kl. 11:30 og 15:00. Miðaverð kr. 100.
Ókeypis sætaferðir frá KR heimilinu við Frostaskjól kl. 12:00
h
ö
n
n
u
n
: w
w
w
.m
m
ed
ia
.is
/h
ip
Af og til verður umræðan umstarfstíma Alþingis mjög hávær,
einkum í þinghléum eins og núna þeg-
ar Alþingi kemur ekki saman fyrr en
28. janúar og hefur þá þinghlé staðið í
43 daga. Svo kemur ný umræða í vor
um sumarleyfi þingmanna en áform-
uð þinglok eru 7. maí og hefur þá
tímabil þingstarfa rétt náð 100 dögum
frá þingfrestun fyrir jól og varð að-
eins 75 dagar fram að jólum. Í löngu
sumarhléunum koma stöðugt upp mál
sem ríkisstjórnin ber ábyrgð á en
þingmenn reyna að blanda sér í utan
úr bæ. Í mesta lagi geta þeir óskað
eftir að málefnanefnd Alþingis komi
saman en þess eru vart dæmi að þing
sé kallað saman yfir sumartímann
þrátt fyrir að núorðið sé þingfundum
einungis frestað en Alþingi ekki slitið
að vori. Þá verður oft eðlileg umræða
í þjóðfélaginu um af hverju Alþingi
fjalli ekki um málin, og gagnrýni á
vinnufyrirkomulag alþingismanna
blómstrar upp. Samkvæmt starfs-
áætlun Alþingis að þessu sinni tekur
við tæplega 5 mánaða tímabil án þing-
starfa þar til þing kemur saman á ný
föstudaginn 1. október. Það er því ekki
að undra að fólki ofbjóði.
Þetta er fullkomlega úrelt starfs-
fyrirkomulag og þekkist ekki í ná-
grannalöndum. Þingmenn í stjórnar-
andstöðu eru allflestir ósáttir við
þetta og mörgum finnst að fram-
kvæmdavaldið vilji losa sig við þingið
eins fljótt og auðið er. Fyrrverandi að-
stoðarmaður ráðherra sagði ófeiminn
í vetur að það yrði að viðurkennast að
það væri nú munur að vinna í ráðu-
neytunum þegar þingið væri farið
heim. Það er nú það. Svo skulum við
bara halda áfram að tala og tala um
Alþingi sem hornstein lýðræðisins.
Frumvarp um breytingar
Í byrjun október flutti ég ásamt
Bryndísi Hlöðversdóttur, þingflokks-
formanni Samfylkingarinnar, frum-
varp um að samkomudagur Alþingis
yrði 15. september og þingstörfum
lyki 15. júní. Verði frumvarpið sam-
þykkt verðum við með áþekkt þing-
hald og hin Norðurlöndin. Norska
þingið starfar frá fyrsta mánudegi í
október til 20. júní, það sænska frá 16.
september til 17. júní, það finnska frá
fyrsta þriðjudegi í september til 20.
júní og það danska frá fyrsta þriðju-
degi í október til 5. júní. Danska þing-
ið er styst en stendur þó mánuði leng-
ur en okkar þing.
Rök mín fyrir breytingum eru að
alþingismenn njóta launa allt árið,
þingstarfið er fullt starf nær allra
þingmanna núorðið og í seinni tíð
hafa breytingar orðið á starfskjörum
þingmanna sem taka mið af auknum
verkefnum þeirra. Alþingismenn
hafa notið fastra launa frá 1964 og frá
1970 hafa æ færri alþingismenn sinnt
öðrum störfum samhliða þing-
mennsku. Segja má að starfstími Al-
þingis hafi ekki fylgt þeim miklu
breytingum sem annars hafa orðið á
starfskjörum og starfsháttum þing-
manna.
Það er fróðlegt að skoða hvernig
þingin í kringum okkar hafa skipu-
lagt starfstíma sinn og skipt honum
niður á þingfundi, þingnefndir, undir-
búningsdaga og kjördæmisvinnu og
yrði það áhugavert verkefni fyrir for-
sætisnefnd Alþingis að endurskipu-
leggja þinghaldið út frá breyttum
starfstíma náist sátt um frumvarpið,
sem ekki hefur enn komist á dagskrá.
Rök þeirra sem enga breytingu
vilja eru gjarnan að þingmenn séu í
vinnu í þinghléum. Það er vissulega
rétt. Undirbúningur þingmála, yfir-
ferð skýrslna, erlend samskipti, kjör-
dæmisheimsóknir og fundir taka sinn
tíma og þarf að sinna vel. En þessir
þættir þingmenskunnar munu fá
miklu betri dreifingu og falla betur
að hefðbundnum þingstörfum nái
frumvarp okkar Bryndísar fram að
ganga og virðing annarra launþega
fyrir störfum alþingismanna stórum
aukast. ■
Áskorun til
stjórnar
LSH og
heilbrigðis-
yfirvalda
Félag íslenskra sjúkraþjálf-ara og Stéttarfélag sjúkra-
þjálfara lýsa þungum áhyggj-
um af niðurskurðaráformum
innan LSH. Fyrirhuguðum að-
gerðum er ætlað að skila sparn-
aði en ekki er fyrirséð hvernig
sá sparnaður skilar sér með því
að skera niður þjónustu á end-
urhæfingarsviði. Fækkun
stöðugilda sjúkraþjálfara leiðir
til minni þjónustu þeirra við
sjúklinga. Markmið spítalans
er að stytta legutíma hvers
sjúklings en það er alveg ljóst
að með skertri þjónustu sjúkra-
þjálfara getur legutíminn
lengst, þar sem sjúklingar hafa
síður færni til að útskrifast.
Enn fremur má búast við end-
urinnlögnum vegna ótíma-
bærra útskrifta.
Góð ráð dýr
Einnig vekur það furðu að
loka eigi fyrir þjónustu endur-
hæfingardeildarinnar í Kópa-
vogi. Er það okkar mat að með
þeirri aðgerð séu yfirvöld og
stjórnendur að taka ákvörðun
sem ekki er séð fyrir endann á.
Á endurhæfingardeildinni í
Kópavogi hefur byggst upp
dýrmæt sérþekking í meðferð
fjölfatlaðra einstaklinga. Hver
á að þjónusta þá og hvar mun
sú meðferð fara fram? Það er
siðlaust að leggja niður þjón-
ustu við þessa einstaklinga
áður en þeim er tryggð þjón-
usta annars staðar. Hvers eiga
þessir einstaklingar að gjalda
sem ekki geta borið hönd fyrir
höfuð sér? Tvímælalaust er
þessi þjónusta á ábyrgð ríkis-
ins og í sameiningu þurfa yfir-
völd og spítalinn að finna viðu-
nandi úrræði á endurhæfingar-
þjónustu þessara einstaklinga.
Stjórnendur spítalans eru að
sinna sínum skyldum og skera
niður, en það er nokkuð ljóst að
ef af verður þá eru „góð ráð“
dýr. Sparnaður þarf ætíð að
vera hagkvæmur.
Enn fremur vilja félögin
hvetja stjórnvöld til að láta
verða af þeirri fyrirætlan sinni
sem kemur fram í Heilbrigðis-
áætluninni til ársins 2010 og
skipa sem fyrst í þverfaglegt
endurhæfingarráð. Sú vinna
þarf að fara fram áður en
niðurskurðarhnífnum er beitt
innan endurhæfingarsviðs
LSH. ■
Umræðan
f.h.stjórnar Félags íslenskra sjúkraþjálfara,
AUÐUR ÓLAFSDÓTTIR.
f.h. stjórnar Stéttarfélags sjúkraþjálfara,
ARNDÍS BJARNADÓTTIR.
Umræðan
RANNVEIG GUÐ-
MUNDSDÓTTIR
■
alþingismaður skrifar.
Það þarf að breyta starfstíma Alþingis