Fréttablaðið - 24.08.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 24.08.2004, Blaðsíða 4
4 24. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR SLYSFARIR Minna var um slys í um- ferðinni í fyrra en árið á undan. Samkvæmt nýútkominni skýrslu samgönguráðuneytisins um um- ferðarslys á Íslandi árið 2003 og unnin var af starfsmönnum slysa- skráningar Umferðarstofu fækkaði látnum úr 29 í 23, slösuðum fækk- aði úr 1.485 í 1.221 og alvarlega slösuðum úr 164 í 145. „Því má segja að árið 2003 hafi verið betra en árið þar á undan í flesta eða alla staði,“ segir í inngangi skýrslunnar. Fram kemur að árið 2003 hafi verið meðalár hvað slys varðar þeg- ar litið er til lengri tíma. „Fleiri lét- ust en að meðaltali síðustu tíu ár og einnig voru fleiri banaslys. Fleiri eignartjónsóhöpp urðu árið 2003 en að jafnaði áratuginn þar á undan en að öðru leyti var árið betra en með- alárið,“ segir í skýrslunni. Slys með meiðslum voru færri en í meðalári og fjöldi slasaðra hefur ekki verið lægri síðasta áratuginn, hvort held- ur sem litið er til fjölda alvarlega slasaðra eða lítið slasaðra. ■ SKÓLAMÁL Nokkrir tugir barna hafa enn ekki fengið heilsdagsvist í frístundaheimilum Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur (ÍTR) fyrir veturinn. Þetta veldur mikl- um óþægindum fyrir foreldra sem þurfa að gera aðrar ráðstaf- anir ef bæði eru útivinnandi. Jósep Thorlacius er faðir tveggja barna í Ölduselsskóla sem ekki hafa fengið vist í frístunda- heimili. „Það er ekki nóg pláss fyrir alla og fólk er sett á biðlista. Því er sagt að því miður þurfi það að bíða eftir að einhverjir aðrir hætti og fólk þurfi að sjá um sig sjálft,“ segir Jósep. Að sögn Steingerðar Kristjáns- dóttur hjá ÍTR er unnið hörðum höndum að því að leysa þau vandamál sem upp hafa komið. Hún segir að sér virðist sem ástandið sé einna verst í Árbæn- um. „Við erum að reyna að leysa allt sem við getum og staðan er að breytast frá klukkutíma til klukkutíma. þannig að það er von okkar að þetta hafist allt saman,“ segir Steingerður. Þetta er fyrsti veturinn sem ÍTR sér um rekstur allra frí- stundaheimila í Reykjavík en áður voru þau ýmist á vegum ÍTR eða Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur. „Við eigum ein- faldlega við ákveðna byrjunar- erfiðleika að etja,“ segir hún. Hún segir að meðal þeirra úr- lausnarefna sem ÍTR standi frammi fyrir sé að starfsmenn frístundaheimilanna séu margir í skóla og því sé það púsluspil að raða upp vöktum. „Ég geri mér grein fyrir að þetta er mjög óþægilegt fyrir þá foreldra sem eru í þessari stöðu en engu að síður þá erum við með ákveðin öryggisatriði og teljum okkur ekki vera að þjóna börnunum eða foreldrunum með því að setja of mörg börn inn í lít- ið húsnæði eða hafa of fáa starfs- menn til að sinna þeim,“ segir hún. Steingerður vonast til þess að mál sem flestra leysist á næstu dögum. Hún segir fólk sem eigi í vandræðum eiga að snúa sér til forstöðumanna ÍTR í hverju hverfi. thkjart@frettabladid.is TETRA ÍSLAND Unnið er að fjárhags- legri endurskipulagningu Tetra Íslands í kjölfar greiðslustöðvun- ar í vor. Jóakim Reynisson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, seg- ir bjartsýni ríkja um árangur þeirrar endurskipulagningar. Fjölmargar stofnanir Reykja- víkurborgar hafa fengið drög af samningi um þjónustu í gegnum tetra kerfi félagsins en á meðan þeir samningar eru ekki undirrit- aðir er rekstrargrundvöllur fé- lagsins í óvissu. Ekki hefur heldur verið undir- ritaður samningur við dómsmála- ráðuneytið en Jóakim segir að ef slíkir samningar náist geti félag- ið staðið undir rekstri þótt staðan sé „óþægileg á meðan ekki hafi verið gengið frá þessum samn- ingum“. ■ EFNAHAGSMÁL Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunar- manna, segir ákvörð- un verða tekna um það á næstunni hvort vöxtum á sjóðslánum verði breytt til sam- ræmis við breytingar í húsbréfakerfinu. „Ég á heldur von á því að það verði í næsta mánuði sem við sjáum hvað tekur við í þessu,“ segir hann. „Við höfum hingað til miðað við 25 ára húsbréfaflokkinn í við- skiptakerfi Kauphall- arinnar. Nú er hann ekki lengur til þannig að ég geri ráð fyrir því að við notum sem við- miðun íbúðalánabréfin sem eru til þrjátíu ára,“ segir Þorgeir. Á það hefur verið bent að vextir lífeyrissjóðslána ættu að vera að minnsta kosti 0,2 pró- sentustigum lægri ef miðað væri við vaxta- stigið í nýja húsnæð- islánakerfinu en þeir miða ennþá við gamla kerfið sem var skipt út 1. júlí. Miðað við heildarútlán í kerfinu nemur slík lækkun um 180 milljónum á ári. „Það sem við erum að gera núna er að sjá hvernig kerfið þróast. Það er ekki búið að vera í gangi nema í einn mánuð og aðeins eitt útboð farið fram. Ég á von á því að við fáum niðurstöðu í þetta fljótlega þegar við sjáum hvernig kerfið þróast;“ segir Þor- geir Eyjólfsson. ■ Bílvelta undir Eyjafjöllum: Kona á gjör- gæsludeild SLYS Kona á fertugsaldri var flutt á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að pallbíll sem hún var far- þegi í valt við bæinn Steina und- ir Eyjafjöllum síðdegis á sunnu- dag. Fernt var í bílnum en aðrir sluppu án teljandi meiðsla. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli eru tildrög slyssins ekki ljós. Bíllinn fór eina veltu og gjöreyðilagðist. Konan og sautján ára piltur voru flutt með sjúkrabíl til Reykjavíkur þar sem hún var lögð inn á gjör- gæsludeild en hann fluttur til skoðunar á slysadeild. Pilturinn var útskrifaður eftir skoðun en konan höfð áfram undir eftirliti á gjörgæsludeild. Hún er ekki í öndunarvél og mun líðan hennar vera stöðug. ■ Síldveiðar í Smugunni: Tveir togarar að veiðum SJÁVARÚTVEGUR Tveir íslenskir togarar eru á síldveiðum í Smug- unni eins og sakir standa og ganga veiðarnar bærilega. Þrír aðrir togarar hafa ennfremur verið að veiðum á þessu svæði að undanförnu en þeir hafa kom- ið með sinn afla að landi og óvíst er hvort þeir fara aftur af stað enda um langa siglingu að ræða. Tæplega þriggja daga sigling er að jafnaði á svæðið frá aust- fjörðum. ■ Afkoma Símans: Hagnaður vex milli ára VIÐSKIPTI Hagnaður Símans á fyrri helmingi ársins nam rúmum 1,2 milljörðum króna. Hagnaðurinn var 250 milljónum króna meiri en fyrir sama tímabil í fyrra. Tekjur símans jukust um 667 milljónir króna en rekstrargjöldin hækkuðu um 583 milljónir króna. Samkeppni hefur að sögn fyrir- tækisins lækkað verð en aukin umferð vegur þar upp á móti. Minnkun er þó í notkun í fastlínu- kerfinu. Hækkun gjalda má að mestu rekja til leigu á sæstrengjum. ■ Hefur þú komið að Kárahnjúkum? Spurning dagsins í dag: Var rétt að víkja Siv úr ráðherrastóli? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 72,97% 27,03% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun visir.is Nákvæmni vitnisburðar: Skapvondir muna betur VÍSINDI Sálfræðingar í Ástralíu telja sig hafa komist að því að vitni að atburðum muna betur það sem gerðist ef þau voru í vondu skapi. Vitnisburður fólks sem var í góðu skapi þegar at- burðurinn gerðist reynist að jafnaði ekki eins nákvæmur og vitnisburður skapvondra. Almenn greind og tjáningar- hæfni virðist hafa minna að segja um nákvæmni vitnisburð- ar en hugarástandið hverju sinni. Þessar niðurstöður koma nokkuð á óvart, en verða birtar í næsta hefti sálfræðitímaritsins Journal of Experimental Social Psychology. ■ Singer and Friedlander: Aukinn hagnaður VIÐSKIPTI Hagnaður breska bankans Singer and Friedlander jókst um 40 prósent fyrstu sex mánuði árs- ins miðað við sama tímabil í fyrra. Hagnaður bankans fyrir skatta nam 25 milljónum punda eða rúm- um þremur milljörðum króna. KB banki á tæp 20 prósent í bankanum og Burðarás um átta prósent. Auk þess eiga íslenskir fjárfestar töluvert í viðbót í bank- anum. Samhliða uppgjörinu var til- kynnt að bankastjórinn John Hod- son léti af störfum og að fjár- málastjórinn Tony Shearer tæki við. ■ SLYSASKÝRSLAN Í skýrslunni kemur fram að slysum hafi fækkað milli áranna 2002 og 2003. Árið í fyrra er hins vegar sagt hafa verið meðalár með tilliti til tíðni umferðarslysa. UMFERÐARSLYS ÁRIÐ 2003 Eðli slyss Fjöldi Banaslys 20 Alvarleg meiðsli 120 Minniháttar meiðsli 667 Eignatjón eingöngu 7145 Heildarfjöldi slysa og óhappa 7952 Látnir 23 Alvarlega slasaðir 145 Lítið slasaðir 1076 Heildarfjöldi slasaðra og látinna 1244 Heimild: Skýrsla um umferðarslys á Íslandi árið 2003. Umferðarslys á síðasta ári: Færri slasaðir en í meðalári BÖRN Á LEIÐ Í SKÓLA Þessa dagana eru börn að undirbúa sig fyrir nýjan vetur í grunnskólum landsins. Stór hópur foreldra hefur hins vegar lent í vandræðum á síðustu dögum þar sem ekki er hægt að sjá öllum fyrir heilsdagsvist. [Börnin á myndinni tengjast ekki efni fréttarinnar] FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R TETRA Í NOTKUN Lögregla og sjúkralið nota Tetra kerfi til samskipta. Farsímaframleiðandinn Nokia framleið- ir Tetra fjarskiptatæki og er myndin af kerfinu í notkun á Norðurlöndum. Tetra Ísland: Óvissa um reksturinn Lífeyrissjóður verslunarmanna: Endurskoðar vexti fljótlega ÞORGEIR EYJÓLFSSON Forstjóri Lífeyrissjóðs versl- unarmanna segir að tekin verði ákvörðun um breytt vaxtastig lífeyrissjóðslána upp úr mánaðamótum. Ríkisstjórnarfundur: Fjárlagagerð á tíma STJÓRNMÁL Fjárlagaundirbún- ingur fyrir árið 2005 var kynnt- ur á fundi ríkisstjórnarinnar í gærmorgun og síðdegis fyrir þingflokkum stjórnarflokk- anna. Hjá fjármálaráðuneyti feng- ust þær upplýsingar að allur undirbúningur væri á áætlun, en aðeins var fjallað almennt um málið á fundunum. Ekki stendur til að kynna einstök atriði fjár- lagafrumvarpsins fyrr en 1. október næstkomandi þegar það verður formlega lagt fram á Al- þingi. ■ VÖXTUR Afkoma Símans batnar þrátt fyrir lækkandi verð í samkeppni. Farsíma- og gagnaflutn- ingar aukast á kostnað fastlínu. Tugir barna án gæslu Ekki fá öll grunnskólabörn í Reykjavík heilsdagsgæslu. Þetta skapar foreldrum mikinn vanda. Unnið er að úrlausn málsins og standa vonir til að öll börn fái heilsdagsvist.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.