Fréttablaðið - 24.08.2004, Síða 18

Fréttablaðið - 24.08.2004, Síða 18
Fitumiklar sósur geta alveg farið með heilsuátakið. Prófaðu að sleppa kokkteilsósunni á hamborgar- ann. Skiptu henni út fyrir tómatsósu. Reyndu líka að sleppa remúlaðinu á pylsunni. Það svínvirkar. YGGDRASILL, KÁRASTÍG 1, 101 RVK., S: 5624082 - þar sem þú getur treyst á gæðin - Lífrænt ræktaðar vörur Það er ekki sama hvernig þú missir aukakílóin. Niðurstöður rannsókna sem birtust í virtu bandarísku læknatímariti benda til þess að það sé ekki nóg að fara í fitusog og minnka þannig magn blóðfitu og fækka kílóunum. Fylgst var með fimmtán of feitum konum sem gengust undir fitusog til að minnka líkamsfitu sína og léttast. Læknar fjarlægðu að með- altali 11 kílógrömm af fitu af hverri konu og mældu því næst áhættuþætti í tengslum við skurð- aðgerðina. Brottnám fitunnar hafði engin áhrif á insúlínnæmi, háan blóðþrýsting eða kólesteról. Það er því augljóst að leiðin til að minnka þessa áhættu- þætti er eftir sem áður sú að hreyfa sig reglulega og taka mataræðið í gegn. Ein helsta ástæðan er sú að þegar hreyfing og hollt mataræði fara saman gengur á fituforðann í fitu- frumunum, sem þá minnka smátt og smátt. Þegar fitan er sogin úr frumunum með utanaðkomandi afli minnka þær ekki heldur halda sínu fyrra ummáli og halda áfram að valda blóðþrýstingi og hafa áhrif á efnaskiptin. Að auki býr líkaminn yfir djúpt liggjandi fituforða sem hann gengur á sjálfur þegar fitu er þörf en ekki er hægt að ná til með fitusogi. Fitusog er því fyrst og síðast fegrunar- aðgerð en gerir lítið fyrir heilsuna nema bættir lifn- aðarhættir fylgi í kjölfarið. Eina lausnin á offituvandamál- inu kemur að innan. ■ í höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð: Unnið með himnur líkamans Erla Ólafsdóttir er sjúkraþjálfari sem ásamt Birgi Hilmarssyni er í forsvari fyrir Upledgerstofnun- ina á Íslandi en samtökin standa fyrir kynningarnámskeiðum í höfuðbeina- og spjaldhryggjar- meðferð um allt land. „Dr. John Upledger er upphafsmaður höfuð- beina- og spjaldhryggjarmeðferð- ar og þróaði hana út frá beina- og liðskekkjufræði. Við höfum sótt námskeið hjá honum í Flórída og einnig hérna heima.“ En í hverju felst meðferðin? „Við vinnum með himnukerfi lík- amans. Við erum að losa um spennu, bólgur og samgróninga í himnukerfinu. Það eru himnur utan um allar frumur líkamans og þær safna í sig bólgum sem svo valda bæði andlegri og líkamlegri vanlíðan. Ef næst að slaka á himn- unni fara hormónarnir að vinna betur og orkuflæðið jafnast um líkamann og hann á auðveldara með að losa sig við úrgangsefni. Fólk liggur fullklætt á bekk og meðferðin byggist fyrst og fremst á mjög léttri snertingu þar sem við erum að mæta þeirri spennu sem er í líkamanum og vefjunum. Við hlustum inn í líkamann og fylgjum því sem fer af stað þegar við mætum spennunni sem fyrir er. Upphaflega var unnið með himnurnar utan um miðtauga- kerfið og mænuna en nú erum við að vinna með allar himnur líkam- ans. Þegar maður losar um himn- urnar í miðtaugakerfinu er verið að fara mjög djúpt og þá er við- búið að fólk upplifi tilfinningar sem það hefur bælt niður. Þetta getur því verið bæði andleg og lík- amleg meðferð í senn.“ Kynningarnámskeiðin hafa tví- þættan tilgang, þar sem á þeim er bæði verið að kynna meðferðina fyrir fagfólki sem getur lært hana hjá stofnuninni og hins vegar fyrir almenningi. „Námskeiðin eru ætluð fagaðilum sem hafa hug á að kynna sér þetta meðferðar- úrræði en þeir sem vilja læra slíka meðferð til að hjálpa sér og sínum geta líka notið góðs af því að koma á námskeiðin.“ Næsta námskeið verður í Reykjavík 3.og 4. september. Allar nánari upplýs- ingar er að finna á upledger.is. ■ Leiðrétting Síðastliðinn þriðjudag birtist grein um stafgöngunámskeið sem þær Guðný Aradóttir og Jóna Hildur Bjarnadóttir standa fyrir. Þar stóð að geng- ið væri frá Laugardalshöll, sem er rangt. Hið rétta er að gengið er frá Laugardalslaug. Engin auðveld lausn er á offituvandamálinu. Draumurinn búinn: Fitusog leysir ekki vandann Erla Ólafsdóttir er í forsvari fyrir Upledgerstofnunina á Íslandi. Lyfja Lágmúla og Lyfja Smáratorgi Opið alla daga kl. HEILSA Herbalife, frábær lífsstíll. Þyngdar- stjórnun, aukin orka og betri heilsa. www.jurtalif.is Bjarni sími 820 7100. www.workworldwidefromhome.com Frábær líðan.. Alveg síðan.. HERBALIFE www.eco.is Erla Bjartmarz erla@eco.is 899 4183. Þinn tími er núna! Reynsla og árangur, Rakel -50 kg s. 869 7090 rakel.topdiet.is www.arangur.is NÝTT Líkami í mótun. Sérsniðið fyrir þig. S. 595 2002 www.arangur.is Lágkolvetnavörur. Súpur-drykkir-saltaðarsoja- hnetur og próteinsstykki. Edda, s. 861 7541 og 820 7547. Ert þú að nærast rétt? HERBALIFE hjálpar þér að ná meiri vellíðan og vera í kjörþyngd. Hringdu/Edda Borg s. 896 4662. Kílóin á rétta staði! Þú ert það sem þú borðar! gudbjorg.grennri.is, S. 846 2140. Ókeypis ráðgjöf í þyngdarstjórnun, BMI mælingar og fl. Finnum leið sem hentar þér. Hringdu og pantaðu tíma. Katrín, 699 6617. Viltu léttast? Eða þyngjast? Þú getur það með Herbalife! Hafðu samband. Ólöf. S. 861 5356, olsiar@hotmail.com Minni mör-meira fjör-HERBALIFE. www.eco.is/love Lovísa Ósk. S. 699 3661 FæðubótarefniHeilsuvörur Á ÞRIÐJUDÖGUM Auglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is - mest lesna blað landsins -

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.